Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 36

Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 36
LISTIR 36 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRAMBOÐ tónleika hefur margfaldazt á undanförnum áratugum í því átta hreppa þétt- býli sem fávísir útlendingar nefna einu nafni Reykjavík. Að ætlast til að meðalmannglöggur tónleikagestur viti alltaf sjálf- krafa hvort viðkomandi einstak- lingur sé að koma fram í fyrsta sinn er því varla lengur raun- hæft. En þó að mætti leiða af líkum að svo ætti við Margréti Óðinsdóttur mezzosópran á all- fjölsóttum tónleikum hennar og Richards Simm suður í Garða- bæ á laugardaginn, kom samt ekkert fram um það, hvorki í tónleikaskrá né í undangenginni fréttatilkynningu, enda virðist slíkt enn heyra til algerra und- antekninga. Dagskráin var vönduð og val- in af smekkvísi. Flest var af lýr- ískum toga úr þýzkri rómantík; 2 lög eftir Mozart, 4 eftir Schu- bert, 2 úr post-rómantískum Jónasarlagabálki Atla Heimis Sveinssonar, 6 eftir Brahms og 2 eftir Tsjækovskíj við þýzkan texta. Voru ófáar perlur þar á milli, þekktar sem minna þekkt- ar, t.d. Abendempfindung (Moz- art), Der Blumenbrief (Schu- bert), Vor dem Fenster og Von ewiger Liebe (Brahms) og Kennst du das Land? [wo die Zitronen blühn] eftir Tsjækovs- kíj. Þá var frumflutt nýtt söng- lag eftir Óliver Kentish, Móð- urást, við samnefnt ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Söngurinn virtist framan af nokkuð spenntur, og kann taugaóstyrkur að hafa ruglað stundum minni, svo að sérhljóð- ar textans áttu til að víxlast. Að öðru leyti var þýzkuframburður allgóður, þó að samhljóðar hefðu mátt vera hvassari. Mezzo-rödd Margrétar var snot- ur og hafði góða fyllingu, nema hvað efstu nótur vildu verða klemmdar og sumar hniggjarn- ar. Um raddbeitingarfyrirbrigði eins og inntónun og mismunandi víbrató munu annars oft furðu- litlar skoðanir meðal almennra hlustenda, sem almennt virðast leggja meira upp úr atriðum eins og glæsileika, hæð og krafti, enda kannski helzt ætl- andi sjóuðum atvinnumönnum að tjalda fullkomleika og fjöl- breytni í fyrri efnum. En til þess að allt verði ekki meira eða minna einsleitt, ættu flestir að vera sammála um að skemmti- legast sé ef söngvarinn sýni a.m.k. dýnamíska breidd. Hún lét hins vegar yfirleitt á sér standa í meðferð hinna ólíku laga, sem í heild hljómuðu allt of sviplík, jafnvel þótt flest væru frá höfunda hendi á ljóð- rænum nótum. Alltjent varð undirr. allt of sjaldan var við túlkunarleg tilþrif sem nauðsyn- leg eru til að ljá hverju verki og hverjum texta persónuleg sér- kenni. Fyrir vikið varð hvert öðru líkt, og tilbreytingarleysið, þegar á leið, varð óhjákvæmi- lega þreytandi. Undirtektir áheyrenda voru þó engu að síð- ur hinar hlýjustu. Útfærsla Ólivers Kentish á hinu langa kvæði Jónasar Hall- grímssonar var dramatísk og drungaleg í samræmi við text- ann. Píanóundirleikur Richards Simm var fagmannlegur fram í fingurgóma og oft heillandi tær, t.a.m. í Von ewiger Liebe og Kennst du das land? Á ljóðræn- um nótum TÓNLIST K i r k j u h v o l l Sönglög eftir Mozart, Schubert, Atla Heimi Sveinsson, Óliver Kentish (frumfl.), Brahms og Tsjækovskíj. Margrét Óðins- dóttir mezzosópran og Richard Simm, píanó. Laugardaginn 17. marz kl. 17. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Í DAG er alþjóðlegi barnaleik- húsdagurinn haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn, að frumkvæði ASSITEJ, alþjóðasamtaka um barna- og unglingaleikhús, en með deginum er ætlunin að vekja at- hygli á því mikilvæga hutverki sem leikhúsið hefur að gegna í lífi ungra áhorfenda og leikhúsfólks um allan heim. Í tilefni dagsins efna samtök um barna- og unglingaleikhús á Íslandi til málþings um barnaleikhús í sam- vinnu við Leikfélag Reykjavíkur. Verður þingið haldið í anddyri Borgarleikhússins og hefst það kl. 20. Frummælendur verða Pétur Eggerz, formaður samtaka um barna- og unglingaleikhús á Íslandi og einn stjórnenda Möguleikhúss- ins, Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, Silja Að- alsteinsdóttir, ritstjóri menningar- skrifa DV, og Þorvaldur Þor- steinsson, rithöfundur og myndlistarmaður. „Á málþinginu munum við ræða barnaleikhúsmenningu á Íslandi og hafa frummælendur verið kallaðir til með það að markmiði að fá fram sem flest sjónarhorn,“ segir Pétur Eggerz. Pétur segist fyrst og fremst munu tala fyrir hönd sjálf- stæðu hópanna sem vinna að því að setja upp leiksýningar fyrir börn. Þá mun Guðjón Pedersen ræða mál- in út frá stóru leikhúsunum, Silja Aðalsteinsdóttir sem gagnrýnandi og áhorfandi, og að lokum mun Þorvaldur Þorsteinsson mæla út frá reynslu höfundarins. Pétur er þeirrar skoðunar að um- ræða af þessu tagi sé mjög þörf hér á landi, ekki síst vegna þess hversu margar barnasýningar eru sviðsett- ar hér á landi, fyrir mikinn fjölda áhorfenda. Gróskan sé mikil og ástæða sé til að benda á þá stað- reynd. „Ef eitthvað er þá eru op- inberar fjárveitingar til þessarar starfsemi aftur á móti að dragast saman. Það verður þó að athuga að a.m.k. fjórðungur þjóðarinnar er á aldrinum fimmtán ára og yngri, og það er réttur barna og unglinga að fá að njóta leikhúss,“ segir Pétur en bætir við að sjónum verði ekki síður beint að barnaleikhúsmenningu í víðu samhengi á málþinginu í kvöld. „Vonandi skapast í framhaldi af því umræður um hvar barnaleikhúsið er statt í dag og hvað menn vilja að verði í framtíðinni.“ Alþjóðlegi barnaleikhúsdagurinn „Réttur barna að njóta leikhúss“ Háskóla- kórinn á hádegis- tónleikum HÁSKÓLAKÓRINN syngur á Háskólatónleikunum í Nor- ræna húsinu á morgun, mið- vikudag, kl. 12.30. Á efnis- skránni eru verk eftir íslenska höfunda, m.a. Hjálm- ar H. Ragnarsson, Hafliða Hallgrímsson og Svein Lúðvík Björnsson en eftir hann verð- ur frumflutt verkið Dimmblár hálfhringur. Einnig verða fluttar útsetningar eftir Jón Ásgeirsson og John Hearne. Stjórnandi kórsins er Há- kon Leifsson. Tónleikarnir taka um það bil hálfa klukku- stund og aðgangseyrir er 500 kr., ókeypis fyrir handhafa stúdentaskírteina. Tónleikum frestað Sönghópurinn Hljómeyki Tónleikum Hljómeykis, sem vera áttu í Hjallakirkju á morg- un, miðvikudag, er frestað til laugardagsins 24. mars vegna veikinda. BARÁTTAN við eiturlyf og eit- urlyfjasmyglara er umfjöllunarefn- ið í Traffic, sem er dramatísk spennumynd í óvenju áberandi heimildarmyndastíl, sé litið til al- mennra vinnubragða kvikmynda- gerðarmanna samtímans. Marg- menn og margskipt atburðarásin nær frá æðstu stöðum í Washing- ton til örgustu krakkgrena. Heild- armyndin er því talsvert sérstök, e.k. hugvekja um þann hrikalega vanda sem fíkniefnalögreglan á við að eiga í eilífri baráttu við mis- kunnarlausa þorpara sem búa yfir óstjórnlegum auði og þar af leið- andi ógnarvaldi. Niðurstaðan er ekki til þess að fylla áhorfandann bjartsýni en hann er betur upp- lýstur um eitt mesta böl samtím- ans. Miðpunktur sögusviðsins er landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Þrátt fyrir fyrsta flokks mannskap, tækjabúnað og hvers- konar aðgerðir til að hamla starf- semi eiturlyfjasmyglara, er stað- reyndin sú að um þau fer langmestur hluti þess heróíns sem neytt er í Bandaríkjunum. Auk mýgrúts annarra fíknilyfja. Myndin hefst á atrið er tveir, mexíkóskir lögreglumenn, Rodriguez (Benecio Del Toro) og félagi hans, Manolo (Jacob Vargas), leggja hald á bíl- farm af heróíni, rétt sunnan landa- mæranna. Það er samstundis gert upptækt af yfirmanni þeirra, Salaz- ar hershöfðingja (Thomas Milian). Norðan landamæranna vakta Mont- el (Don Cheadle) og Castro (Luis Guzman), starfsmenn bandarísku eiturlyfjalögreglunnar (DEA), um- svifamikinn fíkniefnasala (Miguel Ferrer), sem reynst getur mikil- vægt vitni og uppljóstrari. Í Washington er verið að setja nýjan mann, Robert Wakefield (Michael Douglas), inn í æðsta embætti fíkniefnalögreglunnar. Ákveðinn og íhaldssamur, engu að síður er váin búin af taka af honum hús, einkadóttirin (Erika Christen- sen), er farin að leggjast í neyslu harðra eiturefna. Vestur á Kyrra- hafsströnd búa Carlos (Steven Bauer) og Helena Ayala (Catherine Zeta-Jones), í vellystingum prakt- uglega. Hún á von á barni en hitt kemur henni á óvart er maður hennar er fangelsaður og leiddur fyrir rétt, grunaður um að vera einn af eiturlyfjabarónum landsins. Þar fyrir utan kemur fjöldi ann- arra minniháttar persóna við sögu í margskiptri framvindunni. Soder- bergh og Stephen Gaghan, hand- ritshöfundur hans, reyna að flétta þær saman í trausta heildarmynd, og tekst það að flestu leyti. Best heppnaði hlutinn er tvímælalaust sá sem gerist í rykmettaðri, sólbak- aðri óvissunni sunnan landamær- anna. Sá sem á mestan heiðurinn af því er Benecio Del Toro, sem tekur fram úr kraftmiklum og vel sam- ansettum leikhóp. Kemur með jarð- bundna þáttinn inn í myndina, ör- væntinguna, vonleysið. Gefur sig þó óskiptan í stríðið í kringum landamærabæinn Tijuana. Douglas á að venju góðan dag sem gustmikill embættismaður, plagaður af persónulegum vanda- málum. Dóttir hans er eftirminni- lega vel leikin af Christensen, skyn- söm og falleg stúlka sem á alla möguleika til að blómstra í lífinu, en fellur ofan í neðsta sora jarðar. Eins og hendi sé veifað. Eiturlyfja- djöfullinn sofnar hvergi á vaktinni og gerir engan greinarmun á háum og lágum. Miklu veikari er sagan af auðs- mannsfrúnni Helenu, sem allt í einu vaknar upp við vondan draum; vel- sældin og vinirnir, allt byggt á sandi, fengið með dópsmygli „við- skiptajöfursins, manns hennar. Hún er ekki auðsmannsfrú heldur eitulyfjabarónessa. Zeta-Jones stendur sig hvorki vel né illa en skyndileg sinnaskipti hennar eru ótrúverðug og hroðvirknislega skrifuð. Sökin hvílir því á Gaghan en ekki leikkonunni. Hann á sér það til málsbóta að hafa unnið handritið upp úr breskri sjónvarps- þáttaröð og hefur tekist að sauma þá snyrtilega saman víðast hvar, en óneitanlega oft á reikning spennu og tíma. Ferrer, Cheadle, Dennis Quaid, Albert Finney, Thomas Mili- an, vinna vel úr sínu og Guzman alltaf jafn traustur. Del Toro stend- ur undir nafni. Hann er nautsterk- ur leikari, jafnvel er hann undir- leikur, eins og hér og á Óskar skilið. Traffic gefur talsvert magnaða innsýn í válynda veröld eiturlyfja. Spillinguna, mannfyrirlitninguna, græðgina og óhugnaðinn. Völd, peningar og eiturlyf, í einum pakka, er sú gjöreyðingarforskrift sem mannkyninu stendur hvað mest hætta af við upphaf þúsaldar. Því miður gefur myndin okkur litla von um að breytinga sé að vænta. Enda ekki til þess gerð, heldur að gera fólk meðvitað, og tekst það. Soderbergh hefur bæði gert betur og ver. Frásagnargleðin er ríkjandi, þrátt fyrir lengdina og mannmergðina. Eilíft stríðKVIKMYNDIR B í ó h ö l l i n , K r i n g l u -b í ó , B í ó b o r g i n , N ý j a b í ó , A k u r e y r i , N ý j a b í ó , K e f l a v í k . Leikstjóri Steven Soderbergh. Handritshöfundur Stephen Gag- han. Tónskáld Cliff Martinez. Kvik- myndatökustjóri Peter Andrews (Soderbergh). Aðalleikendur Michael Douglas, Don Cheadle, Benicio Del Toro, Luis Guzman, Dennis Quaid, Catherine Zeta- Jones, Steven Bauer, Miguel Ferr- er, Amy Irving, Thomas Milian, Al- bert Finney, Selma Hayek o.fl. Sýn- ingartími 150 mín. Bandarísk. IEG/USA Films. Árgerð 2000. TRAFFIC 1 ⁄2 Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.