Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 51
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 51 OSRAM perubúðir * Gegn framvísun kassakvittunar vegna sparpera sem keyptar eru til heimilisnotkunar eftir 15/2 2001. Frekari upplýsingar hjá söluaðilum. Tilb oð 1.4 90 k r Dæmi 15W sparpera gefur sama ljósmagn og 75 W glópera Orkusparnaður 5.706 kr* Árvirkinn Austurv.9/Eyrarvegi 29 Selfossi Geisli Flötum 29 Vestmannaeyjum GH Heildverslun Garðatorgi 7 Garðabæ Ljósgjafinn Glerárgötu 34 Akureyri Ljós & Orka Skeifunni 19 Reykjavík Glitnir Brákarbraut 7 Borgarnesi Lónið Vesturbraut 4 Höfn Rafþj. Sigurdórs Skagabraut 6 Akranesi Rafbúð R.Ó. Hafnargötu 52 Keflavík Straumur Silfurtorgi 5 Ísafirði S.G. Raftækjav. Kaupvangi 12 Egilsstöðum 5 ára ábyrgð DULUX EL Longlife* *Miðað við 15.000 klst. notkun og að verð á KWst sé 6,34 kr. á notkunartímabil. NÝVERIÐ lagði heilbrigðisráðherra fram frumvarp á Al- þingi um breytingar á lögum um tóbaksvarn- ir. Markmið þessara laga er að draga úr heilsutjóni og dauðs- föllum af völdum tób- aks. Þegar frumvarpið er skoðað eru nokkur nýmæli sem vandséð er að þjóni þessum mark- miðum. Þar má nefna að verslunarfólk verði að vera orðið 18 ára til að afgreiða tóbak í smásölu, að tóbak megi ekki vera sýnilegt í verslunum og hvergi megi fjalla um tóbak í fjöl- miðlum nema til að vara við afleið- ingum þess sem raunar gengur þvert á tjáningarfrelsi stjórnarskrárinnar. SVÞ – Samtök verslunar og þjón- ustu – telja að þessar breytingar gangi allt of langt og hafi verulegan kostnað og óhagræði í för með sér án þess að ná settum markmiðum. Starfsfólk yngra en 18 ára er mik- ilvægur starfskraftur í verslun landsins. Afgreiðslustörf eru mikil- væg tekjulind fyrir mörg ungmenni. Það veldur verulegum óþægindum fyrir verslanir og viðskiptavini þeirra ef afgreiðslufólk má ekki af- greiða allar þær vörur sem á boð- stólum eru í viðkomandi verslun. Í mörgum smærri verslunum er oft einn starfsmaður við afgreiðslu utan hefðbundins verslunartíma, þ.e. á kvöldin og um helgar. Ef umrætt frumvarp nær fram að ganga verður annaðhvort að hætta að veita ung- lingum undir 18 ára aldri vinnu við afgreiðslustörf eða sérstakur starfs- maður verður að vera til staðar til að afgreiða tóbaksvörur. Það sér hver maður að þetta mun ekki ganga upp og það síst á fámennum stöðum. Jafnframt mun aukinn starfsmanna- kostnaður hækka smásöluverð til neytenda. Í frumvarpinu er kveðið á um að tóbak megi ekki vera sýnilegt í versl- unum. Ef það gengur eftir er víst að flestar verslanir þurfa að gera veru- legar breytingar á innréttingum hjá sér með ómældum kostnaði og fyr- irhöfn sem hlýtur fyrr eða síðar að lenda á við- skiptavinum. Það eru engin dæmi þess að verslanir séu skikkaðar með lögum til að fela ákveðnar vörur sem þær selja. Ég tel að slíkt gefi afar slæmt fordæmi. Því miður virðast öfgar ráða ferð- inni í þessum efnum. Í anda þess að það þurfi að fela tóbak í verslunum er kveðið á um það í frumvarpinu að fjölmiðlar megi ekki fjalla um einstakar vörutegundir tóbaks nema til að vara við skaðsemi þeirra. Eitt er að banna auglýsingar um tóbak en þessi tak- mörkun vekur upp spurningar um það hvort ekki sé fulllangt gengið í ljósi ákvæða stjórnarskrárinnar um tjáningar- og prentfrelsi og Mann- réttindasáttmála Evrópu um tján- ingarfrelsi. Eins og segir í leiðara Morgunblaðsins sunnudaginn 25. febrúar sl.: „Með ákvæðum af þessu tagi er einfaldlega bannað að nefna tóbakstegundir á nafn í fréttum eða annarri fjölmiðlaumfjöllun, jafnvel þótt hún sé ekki á neinn hátt sölu- hvetjandi eða túlkist sem óbein tób- aksauglýsing á nokkurn hátt.“ Morgunblaðið nefnir sem dæmi að það geti varðað við lög ef viðmælandi fjölmiðils nefnir þá vindlategund sem hann reykir. Fjölmiðlar landsins hljóta að bregðast illa við þessari skerðingu á tjáningarfrelsi þeirra. Hvað verður næst bannað að segja í fjölmiðlum? Á hvaða leið er málfrels- ið? Það er umhugsunarvert hvaða skilaboð er verið að senda til ung- menna ef þetta frumvarp verður að lögum. Hvað gerist þegar farið verð- ur að pukrast með tóbak undir af- greiðsluborðum? Ekki má tala um tóbak í fjölmiðlum. Ungt fólk fær jafnvel ekki vinnu í verslunum vegna þess að þar er tóbak á boðstólum. Er ekki hætt við að allt þetta geri tóbak að spennandi og dularfullri vöru sem „flott“ er að vera með á almanna- færi? Reynslan sýnir að þar sem höft og bönn eru hvað hörðust, þar er mest spennandi að leggja talsvert á sig til að nálgast hinn forboðna ávöxt. SVÞ varar við að ofangreind atriði þjóni ekki markmiðum frumvarps- ins. Núverandi lög um tóbaksvarnir eru að flestu leyti fullnægjandi nema það vantar hert eftirlit og viðurlög ef lögin eru viljandi brotin. Morgun- blaðið bendir á í fyrrnefndum leiðara að sá árangur, sem náðst hefur í tób- aksvörnum, sé fyrst og fremst „vegna öflugs forvarnar- og fræðslu- starfs sem unnið hefur verið á vegum fjölmargra stofnana og félagasam- taka undanfarna áratugi.“ Morgun- blaðið nefnir í þessu samhengi fræðsluherferðina „Ekkert tóbak undir 18“ sem nýverið fór af stað og SVÞ á aðild að ásamt fleiri aðilum. Markmið átaksins „Ekkert tóbak undir 18“ er að vekja seljendur tób- aks til vitundar um þá ábyrgð sem þeir bera ef þeir selja ungmennum tóbak og nauðsyn þess að fræða starfsfólk um hvernig það eigi að bregðast við ef ungmenni undir 18 ára aldri reyna að kaupa tóbak. Það er margt í þessu frumvarpi sem er meingallað og getur gert strangheiðarleg verslunarfyrirtæki að lögbrjótum. Ég vil hvetja þing- menn til að ígrunda þetta frumvarp vel og velta fyrir sér hvort svona lög- gjöf skili þeim árangri sem vænst er. Stundum er betra heima setið en af stað farið. SVÞ – Samtök verslunar og þjón- ustu – styðja heils hugar forvarnar- og fræðslustarf um skaðsemi reyk- inga. SVÞ styðja að þeir, sem selja unglingum undir 18 ára aldri tóbak, séu dregnir til ábyrgðar en SVÞ geta ekki stutt lagasetningu sem er til þess fallin að vinna gegn þeim mark- miðum sem að er stefnt. Gæti gert heiðarleg verslunarfyrirtæki að lögbrjótum Tryggvi Jónsson Tóbaksfrumvarp Því miður, segir Tryggvi Jónsson, virð- ast öfgar ráða ferðinni. Höfundur er formaður Samtaka verslunar og þjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.