Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 61
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 61 ✝ Sigurbjörg Em-ilsdóttir fæddist 6. apríl 1912 á Stuðl- um í Reyðarfirði. Hún lést á Landspít- alanum Vífilsstöðum 11. mars síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Hildur Þur- íður Bóasdóttir, f. 1886, d. 1933, frá Stuðlum og Emil Tómasson, búfræð- ingur, f. 1881, d. 1967, frá Hraukbæj- arkoti í Eyjafirði. Hildur og Emil bjuggu lengst af á óðali Bóasar- ættarinnar, Stuðlum í Reyðar- firði. Hildur andaðist 47 ára göm- ul og tveimur árum seinna hætti Emil búskap. Hann bjó eftir það á heimili Guðrúnar dóttur sinnar, fyrst í Reykjavík síðan á Brúarósi í Fossvogi. Hér fyrir sunnan starf- aði hann meðal annars sem gang- avörður í Austurbæjarskóla. Sigurbjörg var elst af 8 systk- inum sem á legg komust. Þau eru: Guðrún, f. 1913, d. 1997; Kristjana Elín, f. 1914, d. 1963; Borghildur, f. 1915, d. 1929; Regina, f. 1917, búsett á Eskifirði; Tómas, f. 1918, búsettur á Seyðisfirði; Bóas Arn- björn, f. 1920, d. 1997; Jón Pálmi, f. 1923, d. 1978; óskírður drengur, Ragnhildur giftist Gylfa Reykdal grafískum hönnuði árið 1962 og eignuðust þau soninn Höskuld Harra, 1963. Ragnhildur og Gylfi skildu. Sigurbjörg og Óskar ólu upp Höskuld Harra frá fæðingu. Höskuldur Harri er myndlistar- maður. Eiginkona hans er Anna Birna Ragnarsdóttir tækniteikn- ari og eiga þau 3 börn: Evu Lind, f. 1986, Nínu, f. 1993 og Óskar, f. 1994. Seinni maður Ragnhildar var Manrico Pavolettoni frá Ítal- íu, d. 1997. 2) Borghildur mynd- listarmaður. Eiginmaður hennar er Vilhjálmur Hjálmarsson arki- tekt. Borghildur og Vilhjálmur eiga tvær dætur. Ósk er myndlist- armaður. Hún giftist Indriða Benediktssyni líffræðingi og eign- uðust þau eina dóttur, Borghildi, f. 1987. Ósk og Indriði skildu. Ósk giftist síðan Hjálmari Sveinssyni útvarpsmanni og eiga þau tvö börn: Huldu Ragnhildi, f. 1995, og Vilhjálm Yngva, f. 1997. Björg myndlistarmaður. Eiginmaður hennar er Ólafur Tryggvi Magn- ússon kvikmyndagerðarmaður. Þau eiga þrjú börn: Vilhjálm, f. 1988, Magnús, f. 1994, og Sigur- björgu Ástu, f. 1997. 3) Guðrún, lyfjafræðingur. Eiginmaður henn- ar er Jón R. Sveinsson, apótekari Garðsapóteks. Guðrún og Jón eiga þrjú börn: Gunnhildi Unu myndlistarnema, f. 1972, Svein Rúnar tölvunarfræðing, f. 1974, og Þorbjörgu stúdent, f. 1979. Útför Sigurbjargar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. f. 1926, dó samdæg- urs. Skömmu eftir fæðingu Sigurbjargar fluttu þau Hildur og Emil að Borg í Skrið- dal og bjuggu þar í 4 ár. Árið 1915 andaðist Bóas Bóasson og 1916 flytjast Hildur og Em- il á hálfa Stuðlajörð- ina. Þá varð tvíbýli á Stuðlum, á móti þeim bjuggu Jónas Bóas- son, bróðir Hildar, og Valgerður Bjarna- dóttir kona hans. Sig- urbjörg kynntist eft- irlifandi eiginmanni sínum, Óskari Bernharð Bjarnasyni, í Kaupmannahöfn en hann var þar við nám í efnaverkfræði frá 1933– 38. Óskar er fæddur í Reykjavík árið 1912. Foreldrar hans voru Bjarni Bernharðsson, bóndi og sjómaður, ættaður úr Flóa og Ragnhildur Höskuldsdóttir hús- móðir, ættuð úr Landssveit. Ósk- ar er elstur af 7 systkinum. Hann var alinn upp hjá vandalausum frá því á sjöunda ári, á Efri-Gegn- ishólum í Flóa hjá Steinunni Magnúsdóttur og Tómasi Guð- mundssyni. Dætur Sigurbjargar og Óskars eru: 1) Ragnhildur (sem tók sér nafnið Róska) mynd- listarmaður, f. 1940, d. 1996. Hún tengdamamma var góð kona. Hennar líf snerist um að þjóna sínum nánustu. Þeim skyldi líða vel og mátti ekki verða kalt. Því prjónaði hún og hún prjónaði og prjónaði. Hún hélt mikið upp á íslensku ull- ina og sauðalitina og valdi liti og sam- setningu þeirra af miklu listfengi. Hún prjónaði peysu á mig og hún prjónaði aðra peysu á mig. Um dag- inn var ég að kaupa fjöl og sem ég beið eftir afgreiðslu við kassann heyrði ég sagt við mig: „Mikið ert þú í fallegri peysu.“ Ég var í gömlu slitnu peysunni og varð að orði að hún væri nú orðin slitin. „Hún er mjög falleg,“ sagði unga stúlkan og ég hélt glaður mína leið. Hún tengdamamma hekl- aði teppi handa okkur Borghildi og hún heklaði annað teppi handa okkur og annað. Þannig var hún sífellt með á milli handanna; sokka, vettlinga, húf- ur, sjöl og dúka. Hvert verk sem hún vann var oftast einhverjum ætlað. Því eiga víst allir hennar nánustu húfur, vettlinga, sokka og teppi og barna- barnabörnin litlar og stórar kisur og skjaldbökur. Barnabarnabörnin voru henni sérstaklega kær. Þau voru, eins og hún sagði sjálf, hennar framhalds- líf. Þau hjúfruðu sig að henni þegar henni leið illa í veikindum sínum. Vin- átta þeirra Vilhjálms Yngva, þriggja ára, er ógleymanleg. Þegar hann kom í heimsókn til okkar og vissi að langamma var hjá okkur hljóp hann framhjá öllum og upp í fangið á henni og strauk henni svo blítt um vangann. Hún skildi ekki hvað drengurinn var góður við hana, því „ég hef aldrei gef- ið honum neitt“. Blessuð sé minning Sigurbjargar tengdamóður minnar. Vilhjálmur Hjálmarsson. SIGURBJÖRG EMILSDÓTTIR ✝ Cecilia Heinesenfæddist í Klaks- vík í Færeyjum 15. maí 1921. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 7. mars síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Heini Heine- sen á Strond, f. 1874, og Marin Fredr. Eliasen, sem var seinni kona hans. Fyrri kona Heina hét Christianna Jo- hansen í Ánunum. Börn þeirra voru: Jóhanna, f. 1905, Heini, f. 1907, Jákup, f. 1911, Christina, f. 1914, og Helga, f. 1916. Alsystkin Ceciliu voru: Kristiana, f. 1918, Just Amandus, f. 1920, og Hilda Maria, f. 1922. Systkin Ceciliu sammæðra voru Valdimar og Thorkilda. Thor- kilda er sú eina sem enn er á lífi og dvelst nú á hjúkrunarheimili í Klaksvík. Cecilia giftist Matthíasi Helga- syni árið 1946 í Færeyjum. Hann lést 28.11. 1983. Börn þeirra eru: 1) Þórir Simon, f. 1947, lést fjór- um mánuðum eftir fæðingu. 2) Marin Henný, f. 10.10. 1948, maki látinn, börn þeirra: Matthías, Auður og Helgi. 3) Þórir Símon, f. 25. 11. 1949, d. 6.1. 2000, maki: Olga Sigurðardóttir, börn þeirra: Cecilia, Kristjana og Matthías. 4) Guðrún Snjólaug, f. 25.4. 1954, maki: Wilfried Bull- erjahn, barn þeirra: Jakob Tómas. 5) Jón Helgi, f. 25.12. 1957, maki: Birgitte Bay, börn þeirra: Max Sony og Jean Mic- hel, búsettur í Dan- mörku. 6) Henrý Kristinn, f. 21.6. 1961, d. 6.2. 1995, maki: Samaporn Pradablert, barn þeirra: Andri. Áður átti Cecilia soninn Jakob Hendrik Daniel, f. 16.1. 1942 í Klaksvík, maki: Matthildur Ágústsdóttir, börn þeirra: Haf- dís, Hafþór, Sonja og Brynhildur. Cecilia og Matthías eignuðust 14 barnabörn og átta barnabarna- börn. Þau hófu fyrst búskap á Siglufirði. Hún var húsmóðir á stóru heimili, hann var sjómaður og dvaldist oft fjarri heimili sínu. Síðan bjuggu þau tvö ár í Klaks- vík en fluttu aftur til Siglufjarð- ar. Fjögur börn þeirra fæddust þar. Árið 1956 fluttu þau suður, þar sem þau síðan bjuggu lengst af í Reykjavík. Cecilia vann utan heimilis, m.a. við fiskvinnslustörf. Einnig starf- aði hún í mörg ár í eldhúsi á Kleppsspítala. Hún var mikil hannyrðakona. Útför Ceciliu fór fram í kyrr- þey 19. mars. Nú er lífið á enda hjá elsku móður minni, Ceciliu Heinesen, eða Cillu í Brekkunni eins og hún var jafnan kölluð heima í Klaksvík og var hún kennd við fæðingarstað okkar beggja. Margt er það sem kemur upp í hugann, þegar litið er yfir far- inn veg. Móðir mín var mikill dugn- aðarforkur, vinnusöm, kraftmikil og útsjónarsöm, því ekki voru efnin mikil fyrstu búskaparárin. Það var árið 1946 sem móðir mín giftist eig- inmanni sínum, Matthíasi Helgasyni sjómanni, miklum sómamanni, og eignuðust þau saman sex börn, auk þess sem hann gekk mér í föður- stað. Þau giftu sig í Færeyjum og fluttu síðan til Siglufjarðar þar sem þau hófu búskap. Ég var tekinn með til Íslands, aðeins fimm ára snáði, og var ég ekki alveg sáttur við að yfirgefa bernskuheimilið. Ég var ef til vill líka svolítið ofdekraður af afa mínum, sem var dýrlingur í augum mínum, svo og systkinum mömmu og öðru skyldfólki, en þetta gekk nú allt saman að lokum. Móðir mín var skapmikil kona, góðhjörtuð, meira gefandi en þiggj- andi í lífinu og sannur víkingur. Fyrir um það bil áratug greindist hún með illvígan sjúkdóm sem ágerðist með árunum. Þetta hefur verið löng og ströng barátta fyrir hana og aðstandendur hennar, en nú er henni lokið. Að lokum vil ég biðja góðan guð að taka vel á móti henni. Hafðu þökk fyrir allt. Þinn ein- lægur sonur Jakob. CECILIA HEINESEN ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. ✝ Aðalgeir Hall-dórsson fæddist á Kjalvararstöðum 21. mars 1912. Hann lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 12. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Halldór Þórðar- son, f. 4. ágúst 1867, d. 5. maí 1961, og Guðný Þorsteinsdótt- ir, f. 15. september 1870, d. 2. mars 1951. Systkini Aðalgeirs voru: Helga, Þórður, Guðríður, Ástríður Guðrún, Þorgerður, Bjarni Þor- steinn, Ármann, Steinunn og Helgi Jósef. Aðalgeir kvæntist 25. septem- ber 1965 eftirlifandi eiginkonu sinni, Önnu Guðjónsdóttur frá Vogatungu, f. 31. mars 1924. For- eldrar Önnu voru Guðjón Jónsson bóndi í Vogatungu og Helga Magnúsdóttir frá Breið á Akra- nesi. Börn Önnu og Aðalgeirs eru: 1) drengur, f. 8.6. 1947, d. 10.6. 1947. 2) Ragnheiður Helga, f. 22.5. 1948, maki Guðmundur Gunn- arsson, þau skildu. Börn þeirra eru: Ás- dís og Heiðar. 3) Guðný, f. 30.10. 1949, maki Jónas Bragi Hallgrímsson. Börn þeirra eru: Anna, Díana, Heim- ir, Aðalgeir og Víðir. 4) Halldór, f. 7.3. 1955. Barnabarna- börn Aðalgeirs eru tíu. Aðalgeir bjó á Kjalvararstöðum í nokkur ár. Hann flutti á Akranes 1946. Hann starfaði fyrst hjá HB og co. Síðar vann hann hjá Þórði Egilssyni við pípulagnir. Í kring- um 1960 hóf hann störf hjá Sem- entsverksmiðju ríkisins og starf- aði þar til ársins 1987. Útför Aðalgeirs fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 14. Elsku afi, nú hefur þú yfirgefið þennan heim. En við sitjum eftir í sorginni og ég veit að nú ert þú á góð- um stað þar sem þér líður vel, hjá guði. Ég geymi þig í hjarta mínu og allar góðu minningarnar um þig. Þú varst mér góður afi, fyrir það vil ég þakka þér. Ég læt hugann reika aftur í tímann og minnist þess hve duglegur þú varst þegar amma var veik og þú þurftir að sjá um heimilið. Þá var gott að koma til þín og stytta þér stundir. Þú varst alltaf að segja okkur systk- inunum frá sveitinni þar sem þú áttir heima á þínum yngri árum. Ekki þótti þér leiðinlegt þegar við fórum sjálf á þínar æskuslóðir að heim- sækja bróðurson þinn að Kjalvarar- stöðum. Sveitin var þér mikilvæg og á þínum seinni árum hékk loftmynd af Kjalvararstöðum uppi á vegg hjá þér og alltaf þegar ég kom spurðir þú hvort ég hefði komið þangað. Eitt sinn skal hver deyja og verð- um við bara að sætta okkur við það. Elsku afi, ég vona að þú hafir það gott í öðrum heimi og að þér sér batnað því erfitt var að horfa upp á þig síð- ustu vikur þegar heilsan var farin að gefa sig. Ég þakka þér fyrir sam- fylgdina og bið guð að blessa þig og varðveita og styrkja fjölskyldu okkar í sorginni. Verk þín munu lofa þig. Þín Díana. AÐALGEIR HALLDÓRSSON Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minn- ing@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.