Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 62

Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 62
NORSKIR blómaskreytingarmeist- arar koma hingað til landsins á næstu dögum í boði Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi. Um er að ræða hjón, þau Runi Kristoferssen og Kai Bratbergsengen. Þau munu halda tvö námskeið fyrir fagfólk í blómaskreytingum í húsakynnum Garðyrkjuskólans. Annars vegar tveggja daga nám- skeið 22. og 23. mars og hins vegar þriggja daga námskeið 26.–28. mars. Sunnudaginn 25. mars verður boðið upp á sýnikennslu í páskaskreyting- um fyrir almenning og fagfólk. Sýni- kennslan fyrir áhugafólkið verður í Garðyrkjuskólanum frá kl. 14 til 16 og fyrir fagfólk í Mörkinni 6, Reykja- vík frá kl. 20 til 22.30. Hægt er að nálgast dagskrá nám- skeiðanna á heimasíðu Garðyrkju- skólans, www.reykir.is en skráning og allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans á skrifstofutíma. Norskir blómaskreytingar- meistarar með námskeið FRÉTTIR 62 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á VEGUM Endurmenntunarstofn- unar HÍ verður hinn 23. mars nk. efnt til námskeiðs um norrænt sam- starf, en Helsinki-samningurinn, sem norrænt samstarf byggist á, var einmitt undirritaður sama dag árið 1962. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja vinna á norrænum vett- vangi, fulltrúum stofnana, fyrir- tækja og frjálsra félagasamtaka, kennurum, námsráðgjöfum og lista- fólki. Fjallað verður m.a. um upp- byggingu í norrænu samstarfi og helstu samstarfsstofnanir, stefnu- mótun og markmið, þátt Íslendinga og hugmyndir um framtíðarskipulag í norrænu samstarfi. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir störfum og áhuga og skoðað hvaða möguleikar felast í norrænu samstarfi. Umsjón með námskeiðinu hefur Sigrún Stefánsdóttir, yfirmað- ur upplýsingadeildar Norrænu ráð- herranefndarinnar og Norðurlanda- ráðs. Henni til aðstoðar eru ýmsir sérfræðingar á sviði norrænnar sam- vinnu m.a. Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri Norðurlandaskrif- stofunnar á Íslandi, Søren Christen- sen, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Matz Jöns- son, yfirmaður Norræna menningar- sjóðsins, Riitta Lampola skrifstofu- stjóri og Ragnheiður Þórarinsdóttir deildarsérfræðingur. Frekari upplýsingar um nám- skeiðið eru á vefsetrinu www.endur- menntun.is. Norrænt sam- starf – falin tækifæri FOXHALL á Íslandi ehf. hefur gefið Iðntæknistofnun nýtt tæki til próf- unar á eldvarnarfatnaði. Tækið er hannað eftir alþjóðlegum stöðlum sem rannsóknir Iðntæknistofnunar eru gerðar eftir. Um leið og gjöfin var afhent, síðastliðinn þriðjudag, var framkvæmd prófun með því að 780 gráðu heitu áli var hellt yfir ýms- ar flíkur á ákveðinn hátt og verða niðurstöðurnar metnar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Tækið, sem Foxhall gaf, gegnir því hlutverki að halda á deiglu sem í er sjóðandi álið. Tækið hellir úr deiglunni á fatnaðinn samkvæmt skilgreindum aðferðum sem stand- ast alþjóðlega staðla um hvernig skuli framkvæma próf af þessu tagi. Foxhall hefur á undanförnum ár- um unnið að þróun hlífðarfatnaðar til notkunar m.a. í ál- og járnblendiiðn- aði. Aðalhlutverk þessa fatnaðar er að koma í veg fyrir brunasár þegar slettur af bráðnum málmi, áli eða járnblendi, lenda fyrir slysni á starfsmönnum. Tæki til próf- unar á eld- varnarfatnaði Morgunblaðið/Golli NÝLEGA hófu Frumherji hf. og Flugleiðir hf. samstarf um lukkuleik sem fengið hefur nafnið Flug og bíll með Frumherja og Flugleiðum. Tilgangur leiksins er að hvetja landsmenn til þess að láta skoða bíla sína á réttum tíma. Dregið verður úr lukkupottinum mánaðarlega fram í nóvember. Verðlaunin eru flug og bíll til vinsælla áfangastaða Flugleiða í Evrópu. Nafn fyrsta vinningshafans hefur nú verið dreg- ið úr lukkupottinum og sú heppna reyndist vera Anna Sjöfn Jón- asdóttir. Hún og Bernódus Óli Krist- insson, sonur hennar, eru hér á myndinni að taka við verðlaununum úr hendi Svanbergs Sigurgeirs- sonar, þjónustustjóra hjá Frum- herja hf. Lukkupottur Frumherja og Flugleiða LÝST er eftir vitnum að umferðar- óhappi er átti sér stað á bifreiðaplani við verslunarmiðstöðina Nettó í Mjódd í Reykjavík, sunnudaginn 18. mars milli kl. 13.30 og 14.10. Þarna mun rauðri fólksbifreið af gerðinni Toyota Land Cruiser hafa verið ekið utan í mannlausa bifreið af gerðinni Opel Vectra, bláa að lit, og ekið síðan af vettvangi. Þeir sem upplýsingar geta veitt um mál þetta eru vinsam- lega beðnir að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík. Ekið á bifreið í Kringlunni Aðfaranótt sunnudagsins 18. mars var ekið á bifreiðina ID-128 í stæði á 2. hæð Kringlunnnar að vestanverðu. Bifreiðin ID-128 er Mazda-fólksbif- reið hvít að lit og skemmdist á hægra afturhorni. Tjónvaldur fór af vett- vangi en greinilegt að grill og fram- ljós höfðu brotnað af þeirri bifreið. Líklega er um að ræða ameríska bif- reið af Dodge-gerð. Þeir sem geta gefið upplýsingar um mál þetta eru beðnir að hafa samband við lögregl- una í Reykjavík, umferðardeild. Ekið á bifreið við Hafnarhúsið Föstudaginn 16. mars sl. milli kl. 9 og 15 var ekið á mannlausa bifreið, NP-078, er var í stæði norðan við Hafnarhúsið, Tryggvagötu 17. Bif- reiðin NP-078 er Ford Puma, fjólublá að lit. Tjónvaldur fór af vettvangi en þarna mun vera um að ræða ökutæki sem er skærgrænt að lit. Þeir sem geta gefið upplýsingar um þetta tjón vinsamlega hafi samband við lögregl- una í Reykjavík, umferðardeild. Lýst eftir vitnum FÉLAG áhugafólks um heimafæð- ingar heldur fræðslufund miðviku- daginn 21. mars kl. 20 í menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Á dagskrá verður kynning á starfi félagsins og lýst verður reynslu af heimafæðingu. Harpa Guðmunsdótt- ir kynnir Alexandertækni og hvernig hana má nýta á meðgöngu og í fæð- ingu. Á fundinum gefst tækifæri á að koma með fyrirspurnir um heima- fæðingar og bæklingur félagsins um heimafæðingar mun liggja frammi. Allir áhugasamir eru velkomnir. Fræðsla um heimafæðingar MICHAEL T. Corgan, Fulbright- prófessor við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands, heldur fyrirlestur á sameiginlegum fundi Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) og Varð- bergs miðvikudaginn 21. mars nk. og hefst hann klukkan 17 í Skála á Hótel Sögu. Michael T. Corgan er einn fremsti sérfræðingur Norður-Ameríku í sögu samskipta Íslands og Banda- ríkjanna á sviði utanríkis- og öryggis- mála undanfarna rúma hálfa öld. Í vor eru liðin 50 ár frá því að ríkin gerðu með sér tvíhliða varnarsamn- ing, sem er einstakur í sinni röð í al- þjóðasamskiptum. Á þessum tíma- mótum ætlar Corgan að fjalla um samstarf Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnar- og öryggismála, sem byggt er á varnarsamningnum frá 1951 og þátttöku þjóðanna í NATO. Corgan varpar fram þeirri spurn- ingu hvort varnarsamstarf þessara vinaþjóða muni lifa af allar þær breytingar sem fylgt hafa í kjölfar endaloka kalda stríðsins. Eru varn- arbandalög sem þessi börn síns tíma? Michael T. Corgan er aðstoðarpró- fessor í alþjóðastjórnmálum við Bost- on University. Hann hefur sérhæft sig í alþjóðlegum öryggismálum, ís- lenskum stjórn- og varnarmálum og bandarísku stjórnkerfi. Mestan starfsaldur sinn hefur hann verið op- inber starfsmaður, fyrst sem foringi í bandaríska sjóhernum og síðan fræðimaður og háskólakennari. Hann var m.a. í varnarliðinu á Kefla- víkurvelli á árunum 1981–1982 sem pólitískur ráðgjafi yfirmanns varnar- liðsins. Eftir að hann lauk störfum í sjóhernum sneri Corgan sér að fræðimennsku og kennslu á háskóla- stigi. Hann hefur skrifað fjölda fræði- greina og bóka. Nú vinnur Corgan að bók um íslensk stjórnmál á áttunda og níunda áratugnum. Hún er fyrsta bókin á þessu sviði sem kemur út á ensku í Bandaríkjunum í nokkra ára- tugi. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um varnarsamstarf og stjórnmála- samband Íslands og Bandaríkjanna. Þurfum við óvini til að vera áfram bandamenn? ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦  STREITUVALDAR: Álag, samskipti, einelti, fjárhagsáhyggjur, sjúkdómar ➨  STREITUEINKENNI: Einbeitingarskortur, svefntruflanir, átröskun, kvíði, depurð, uppgjöf ➨ NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG ÍSLANDS efnir til málþings í Þingsal 1, Hótel Loftleiðum, FIMMTUDAGINN 22. MARS 2001 kl. 20:00. Fundarstjóri: Árni Gunnarsson, framkvstjóri HNLFÍ Frummælendur: 1. Margrét Arnljótsdóttir, sálfræðingur 2. Þórhallur Heimisson, prestur 3. Ólafur Mixa, heimilislæknir 4. Bridget McEvoy, verkefnisstjóri í hjúkrun HNLFÍ Umræður og fyrirspurnir. Auk frummælenda taka þátt í umræðunum: Sigríður Eysteinsdóttir, næringarfræðingur HNLFÍ Helga Mogensen, jógakennari Björg Árnadóttir, framkvæmdastjóri Heilsuverndar ehf. Allir velkomnir Aðgangseyrir 600 kr. FRÍTT FYRIR FÉLAGSMENN STREITA Afleiðing atorku, dugnaðar og áfalla?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.