Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 68

Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 68
EITT mikilvægasta starf íslenskra kvenna um aldir er starf fjósakonunnar, sem sá um mjaltir, vinnslu og geymslu mjólkurafurða, sem sagt í þeirra höndum var ein elsta grein ísl. iðn- aðar og skipti miklu máli um afkomu heimilanna hvernig þau störf voru unn- in. Er nafn þriggja stjarna himinhvolfsins til marks um mikilvægi þeirra starfa. Enn eru um allt land konur sem annast það starf með miklum ágætum eins og sést á hinu mikla úrvali frábærra mjólkurvara í verslunum þó að mjólkur- fræðingar hafi nú tekið við stórum hluta starfa þeirra. Ekki voru fjósakonur fyrri tíma hátt skrifaðar í mann- virðingastiganum, á því hefur orðið breyting og gegnir nú fjósakona að norðan störfum iðnaðar- ráðherra en það starf er eitt mesta ábyrgðarstarf ísl. stjórnsýslu, virðist þar fara kona hæfileikarík. Ein grein ísl. iðnaðar hefur löngum átt í erfiðleik- um vegna mikils rekstrar- kostnaðar m.a. a.m.k. 100% hærra orkuverðs en ýmsar erlendar smíðastöðvar greiða, auk þess sem er- lendar skipasmíðastöðvar njóta margvíslegra styrkja og aðstöðumunar, miklu minni launakostnaðar og hráefnisverðs. Þrátt fyrir það hafa íslenskar skipa- smíðastöðvar skilað mörg- um vönduðum, flóknum og glæsilegum verkefnum á sanngjörnu verði. Einn merkasti forystumaður Framsóknarflokksins, Ólafur Jóhannesson, sagði á sínum tíma um verð á ís- lenskum vörum að það væri í lagi að velja íslenskar þótt þær væru allt að 10% dýr- ari en erlendar, miðað við sömu gæði. Það gæti verið þjóðhagslega hagkvæmt. Hæstvirtur iðnaðarráð- herra ætti að íhuga vel þessa skoðun Ólafs Jóhann- essonar, varðandi viðhald á tveimur varðskipum, en til- boð Stáltaks hf. í það verk- efni var tæplega 10% hærra en tilboð pólskrar skipasmíðastöðvar. Síðan hefur komið í ljós að tilboð Stáltaks hf. er lægra. Það er hlutverk og skylda iðnaðarráðherra að annast hagsmuni ísl. iðnað- ar, allt frá kaffibrennslu til lyfjagerðar, af sömu kost- gæfni og umhyggju og fjósakonur hafa alltaf ann- ast íslensku kýrnar sínar, þannig sýnir hæstvirt fjósakonan að norðan minningu formæðra okkar og ísl. kúnum verðugan sóma og öllum iðnaði mun vel farnast. Hún ætti að leita liðsinn- is stöllu sinnar, dómsmála- ráðherrans, sem er kona ákveðin og dugleg. Þær stöllur virðast eiga margar fallegar dragtir, vonandi er þess ekki að vænta að ís- lenskt atvinnulíf verði svo einhæft að helsti vinnufatn- aður kvenna verði banka- og lögfræðingadragtir. Með kveðju til flokksins og þings Framsóknar- flokksins. Hafsteinn Hjaltason. Vil fá Bör Börsson aftur Á MIÐJUM fimmta ára- tugnum var lesin í útvarp- inu útvarpssagan Bör Börsson eftir norska rithöf- undinn Johan Falkeberg. Saga þessi varð feiknavin- sæl meðal útvarpshlust- enda, svo mjög að til tíðinda mátti telja. Sagt var að göt- ur Reykjavíkur hefðu tæmst þegar Bör var lesinn og ekki þýddi að boða til nokkurs mannfagnaðar á þeim tíma. En eflaust hefur lesari sögunnar, Helgi Hjörvar, átt drjúgan þátt í þeim vinsældum sem sagan naut meðal þjóðarinnar. Nú er liðlega hálf öld síðan sagan var lesin, væri því vel við hæfi að flytja hlustend- um söguna að nýju, vita hvaða dóma hún fengi í dag. Mér er kunnugt að sá frá- bæri útvarpsmaður og upp- lesari, Pétur Pétursson, las söguna inn á segulband fyr- ir nokkru og fullviss er ég þess að Pétur fer á kostum við lestur hennar, ekki síð- ur en við lestur ævisögu séra Árna Þórarinssonar og samtalsbókarinnar um Þórberg. Ég skora nú á dagskrárstjórn útvarpsins, að drífa nú í því að flytja okkur söguna Bör Börsson við fyrstu hentugleika. Sæunn. Fyrirspurn til dagskrárstjóra RÚV Í DESEMBER fyrir fáum árum var byrjað að sýna í RÚV þáttaröð sem bar heitið „Tuttugasta öldin, þjóðin vaknar 1901-1927, átök í aldahvörf 1927- 1940“. Þessa þáttaröð gerðu þeir Hannes Hólm- steinn Gissurarson og dr. Ólafur Þ. Harðarson, þulur var Broddi Broddason. Þættirnir áttu að vera átta en það voru bara sýndir einn eða tveir þættir. Mig langar að spyrja dagskrárstjóra, er ekki hægt að halda áfram með þessa þætti? Takk fyrir Rannveig. Tapað/fundið Brúnt peninga- veski tapaðist BRÚNT peningaveski tap- aðist frá Þvottahúsinu Fönn í Skeifunni að Mjódd í Breiðholti, föstudaginn 16. mars sl. Upplýsingar í síma 568-5693. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Fjósakonur DAGBÓK 68 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Víkverji skrifar... VERKFALL sjómanna hefur ým-is áhrif, sem ekki liggja í augum uppi. Það varð meðal annars til þess að Víkverji og kona hans voru kölluð út í fiskverkun í Grindavík um helgina. Svo mikill afli hafði borizt að á dögunum fyrir verkfall að ekki hafð- ist undan að vinna fiskinn og eftir að verkfall hófst mokfiskuðu smábátarn- ir svo ekkert lát varð á. Fiskverkunin sem um ræðir er fjöl- skyldufyrirtæki og saltar fiskinn fyrir markaði á Spáni og Portúgal. Stað- reyndin er sú að þrátt fyrir góð laun er erfitt að fá fólk til þessara starfa, enda töluverð erfiðisvinna, einkum ef vel er haldið áfram. Enn verra er að fá fólk til vinnu um helgar. Það er at- hyglisvert að líta yfir hópinn, sem kom saman þessa helgi til að fletja, salta, meta og pakka þeim gula. Þarna voru Júgóslavar, Þjóðverjar, Taílendingar og Filippseyingar. Þarna var blaðamaður, starfsmaður á heilbrigðisstofnun, starfsmaður á tannlæknastofu, frystitogarasjómað- ur, útgerðarmaður, nemi í háskóla og svo framvegis. Þrátt fyrir að hópur- inn væri mislitur gekk vinnan vel og mikið gekk undan fólkinu, enda vinnudagurinn hjá sumum meira en hálfur sólarhringur. Það er ljóst að margir eru tilbúnir til þess að gera sem mest verðmæti úr fiskinum okkar, en til þess að svo verði þarf fólk bæði að kunna vel til verka og leggja sig fram við vinnuna. Framlag fiskverkafólksins til að auka verðmæti fiskaflans verður seint of metið. Víkverja finnst því á stundum að sjómenn taki lítið tillit til þess í kjarabaráttu sinni. Þeir eru í flestum tilfellum með miklu meiri laun en verkafólkið í landi, en án þess yrði hlutur sjómannsins mun minni en ella. Hlutur sjómanna úr heildarverð- mæti fiskaflans er afar hár og ef þeir bæru sig saman við fiskverkafólkið í þeim efnum ættu þeir að vera ánægð- ir með fenginn hlut. Víkverji hefur bæði verið á fiskiskipum og stundað fiskvinnslu í landi. Hann veit því að erfiðið í landi getur verið mun meira en á sjónum. Víkverji er þó sammála ýmsum kröfum sjómanna, sérstaklega hvað varðar slysatryggingar og mótfram- lag í lífeyrissjóði. Þegar þetta er skrifað stendur verkfall sjómanna enn yfir, en Víkverji vonar að það leysist sem allra fyrst. x x x VÍKVERJI hefur ákaflega gamanaf því að fylgjast með spurn- ingakeppni nánast af hvaða tagi sem er. Spurningakeppni framhaldsskól- anna og Viltu vinna milljón eru þættir í sjónvarpi sem hann lætur ógjarnan framhjá sér fara. Það er í raun ótrú- legt hvað fólk getur vitað. Einhverjir kunna að segja að ekkert gagn sé að því að kunna utan að ártöl eða stað- reyndir, sem hægt er að fletta upp í bókum eða á tölvunni í þau örfáu skipti sem á þarf að halda. Þetta sé fá- nýt vizka. Víkverji er ekki á sama máli. Öll þekking er af hinu góða, hversu fánýt sem einhverjum kann að finnast hún. Víkverji vill heldur ekki gera upp á milli þekkingar, hvort sem hún tengist hinni svokölluðu æðri menntun eða starfsmenntun af hvaða tagi sem er. Víkverja finnst með ólík- indum hve mikið framhaldsskólanem- arnir vita. Það er engu líkara en þeir standi hvergi á gati. Þekking þeirra er með ólíkindum og þjóðin getur verð stolt af þessum ungmennum. Skipin Reykjavíkurhöfn: Arn- arfell, Goðafoss, Skóg- arfoss og Jón Vídalín koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Venus Staltor og Polar Arvik koma í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun kl. 17–18. Mannamót Félagsstarfið Norð- urbrún 1 og Furugerði 1. Fimmtudaginn 29. mars verður farið í Fljótshlíðina. Stutt stopp í Hveragerði, súpa, brauð og kaffi í Hlíðarenda, Hvolsvelli. Njálusafnið skoðað og ekið að Tumastöðum. Leiðsögumaður: Anna Þrúður Þorkelsdóttir. Lagt af stað frá Norð- urbrún kl. 10.15, frá Furugerði kl. 10.30. Skráning og nánari upp- lýsingar á Norðurbrún í síma 568-6960 og í Furugerði í síma 553- 6040. Árskógar 4. Kl. 9–16.30 opin handavinnustofan, áhersla á bútasaum, kl. 9–12 bókband og öskju- gerð, kl. 9.30 dans- kennsla, Sigvaldi, kl. 13–16.30 opin smíða- stofa, trésmíði/ útskurður, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Aflagrandi 40. Enska kl. 10 og kl. 11. Heimboð á bókamarkað Iðunnar og Fróða, Suðurlands- braut 8, miðvikudaginn 25. mars, lagt af stað frá Aflagranda kl. 13.15; upplýsingar og skráning í afgreiðslu, s. 562 2572. Framtalsaðstoð verður veitt fimmtudaginn 22. mars. Upplýsingar í af- greiðslu. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–16 handavinna og fótaaðgerð, kl. 10 sund, kl. 13–16 leirlist. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið á Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16.30, spil og föndur. Leikfimi í íþróttasal á Hlaðhömrum, þriðjud. kl. 16. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586 8014 kl. 13– 16. Tímapöntun í fót-, hand- og andlitssnyrt- ingu, hárgreiðslu og fótanuddi, s. 566 8060 kl. 8–16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 hárgreiðsla og böðun, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handa- vinna. Kl. 14.45 söng- stund í borðsal með Jónu Bjarnadóttur. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Spilað í Kirkjulundi á þriðjudög- um kl. 13.30. Fótaað- gerðir mánudaga og fimmtudaga. Ath. nýtt símanúmer, 565 6775. Félagsvist á Garðaholti í boði Kvenfélags Garða- bæjar 22. mars kl. 19.30. Rútuferðir samkvæmt áætlun. Vorfagnaður í Kirkjuhvoli í boði Odd- fellow 29. mars kl. 19.30. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Brids og saumur kl. 13.30. Á morgun verður línudans kl. 11. Mynd- mennt kl. 13 og píla kl.13.30. Dansleikur á föstudag, 23. mars, kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10–13. Matur í hádeg- inu. Skák í dag kl. 13.30, afhending verðlauna fyrir meistaramótið. Al- kort spilað kl. 13.30. Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði kl. 10 á miðvikudags- morgun. Leikhópurinn Snúður og Snælda sýna „Gamlar perlur“, sem eru þættir valdir úr fimm gömlum, þekktum verkum. Allra síðasta sýning á miðvikudaginn kl. 14 í Ásgarði, Glæsibæ. Miðapantanir í símum 588-2111, 568- 9082 og 551-2203. Bald- vin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB fimmtudaginn 22. mars kl. 11–12. Panta þarf tíma. Dagsferð verður farin í Grindavík-Bláa lónið-Reykjanes 2. apríl. Brottför kl. 10 frá Ás- garði, Glæsibæ. Skrán- ing hafin á skrifstofu FEB. Silfurlínan opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10–12. Ath. Opnunartími skrif- stofu FEB er kl. 10–16. Upplýsingar í síma 588 2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður og fleira, kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.45 Bón- usferð. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 13 boccia. Að- stoð frá skattstofunni verður veitt miðvikud. 21. mars, skráning haf- in. Mánudaginn 26. mars kemur Hrafn- istukórinn í heimsókn. Veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Allar upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Sameinaðir hafa verið 2 hópar í leikfimi mæti þeir sem áður voru kl. 10.45 nú kl. 9.50, kl. 9.30 silkimálun, handa- vinnustofa opin, leið- beinandi á staðnum kl. 10–17, kl. 14 boccia, kl. 14.30 enska, þriðjudags- ganga fer frá Gjábakka kl. 14. Einmánaðarfagn- aður og handverks- markaður verða í Gjá- bakka fimmtudaginn 22. mars. Þeir sem áhuga hafa á að selja þar hand- verk sitt vinsamlegast bóki sem fyrst. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 jóga og ganga, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum, kl. 14 boccia. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir og leikfimi, kl. 9.45 banka- þjónusta, kl. 13 handa- vinna og hárgreiðsla. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 postulínsmálun, kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 glerskurður, kl. 9.45 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–16.30 myndlist, kl. 13–17 hár- greiðsla. Norðurbrún 1. Kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10–11 boccia, kl. 9–16.45 opin handavinnustofan, tré- skurður. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 bútasaumur, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 bútasaumur, tréút- skurður og frjáls spila- mennska. Heimboð á bókamarkað Iðunnar og Fróða á Suðurlands- braut 8 miðvikudaginn 21. mars. Lagt af stað frá Vesturgötu kl. 13.15. Upplýsingar og skrán- ing í síma 562 7077, eða í afgreiðslu. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður, myndlist og morgunstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 11 boccia, kl. 13 handmennt og keramik, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Spilað í kvöld kl. 19. Allir eldri borgarar velkomnir. Félag ábyrgra feðra heldur fund í Shell- húsinu, Skerjafirði, á miðvikudögum kl. 20, svarað í síma 552 6644 á fundartíma. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.20 í Digra- neskirkju. Eineltissamtökin halda fundi að Túngötu 7 á þriðjudögum kl. 20. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum, Laugardalshöll, kl. 12. ITC-deildin Irpa heldur fund í kvöld kl. 20 í fundarsal sjálfstæð- ismanna í Grafarvogi. Fundarstaður Hvera- fold 5 á 2. hæð (fyrir neðan Nóatún). Fund- urinn er öllum opinn. Uppl. hjá Önnu í s. 863- 3798. Kvenfélag Bústaða- sóknar verður með kökubasar í Kringlunni föstudaginn 23. mars nk. Konur sem vilja gefa kökur komi þeim í Kringluna frá kl. 9.30. Í dag er þriðjudagur 20. mars, 79. dagur ársins 2001. Heitdagur, vorjafndægur. Orð dagsins: En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar. Svara mér, Guð, í trúfesti hjálpræðis þíns sakir mikillar miskunnar þinnar. (Sálm. 69, 14.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. LÁRÉTT: 1 andstæða, 8 skvampa, 9 fiskar, 10 væg, 11 tog- vindu, 13 vísa, 15 hestur, 18 litur, 21 glöð, 22 mynda, 23 hryggð, 24 tómatur. LÓÐRÉTT: 2 sparsemi, 3 sjávardýrs, 4 vafans, 5 detta, 6 beitu, 7 ósoðna, 12 tíndi, 14 missir, 15 fíkniefni, 16 klampana, 17 vik, 18 staut, 19 sé til ama, 20 sjá eftir. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 uggir, 4 makki, 7 aflað, 8 kuldi, 9 aka, 11 stal, 13 kaun, 14 álfur, 15 flot, 17 ámur, 20 inn, 22 úlfúð, 23 jarli, 24 niðja, 25 lúann. Lóðrétt: 1 unaðs, 2 gella, 3 ræða, 4 maka, 5 kólga, 6 ið- inn, 10 kofan, 12 lát, 13 krá, 15 frúin, 16 orfið, 18 merla, 19 reisn, 20 iðja, 21 Njál. K r o s s g á t a6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.