Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 69 DAGBÓK Ertu slæm í húðinni? Micro Peeling húðhreinsi- klúturinn er lausnin Klúturinn fjarlægir mjúklega allar dauðar húðfrumur og „djúp-hreinsar“ húðina. Klúturinn hreinsar farðaleifar, jafnvel úr fínustu svitaholum, gefur húðinni ferskt út- lit og örvar blóðstreymi til húðarinnar. Hann hentar því sérstaklega vel fyrir við- kvæma húð. Klúturinn er margnota og þolir þvott í 100 skipti. Micro Peeling fæst í Lyfju, Lyf & heilsu, apótekunum og Hagkaup.                                         Allra síðasta tækifæri til að fá fermingarmyndatöku í mars og apríl Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake FISKAR Afmælisbarn dagsins: Hug- rekki og bjartsýni eru þínar sterku hliðar en ögn meiri þolinmæði kæmi sér vel. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það eru mörg ljón í veginum þegar þú vilt kynna nýja hug- mynd sem þú hefur fengið en láttu ekki deigan síga því hug- myndin er allrar baráttu virði. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt þú vildir helst fá að vera í friði með ákveðið verkefni verður þú að leyfa öðrum að koma þar að. Þá er nauðsyn- legt að kjósa starfshópnum forystumann. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Allskyns orða- og spurninga- leikir höfða til þín núna. Leyfðu vinum þínum að njóta þessa og einnig spilagleði þinnar og gefðu þér góðan tíma til þessara tómstunda. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Reyndu að sitja á strák þínum og gættu tilfinninga þinna vel því ótímabær viðbrögð geta gert illt verra og hleypt mál- um í ónauðsynlegan hnút. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú hefur látið reka á reiðanum um sinn og uppgötvar nú hversu langt þig hefur borið af leið. Nú er tíminn til þess að ná sér aftur á rétt strik. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Breytingar hafa legið í loftinu og nú er loksins komið að þeim. Þó að þér sé um og ó geta umskiptin orðið þér til góðs ef þú sýnir smádirfsku. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú mátt ekki hefta þig svona af einskærum ótta við það hvað aðrir hugsi um þig. Hver er sinnar gæfu smiður og þú átt sjálfur að ráða því hvernig þú vilt haga málum þínum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú lætur þig dreyma um al- gjör umskipti. Farðu samt varlega og kynntu þér vand- lega það sem freistar þín mest áður en þú tekur ákvörðun. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur ríka hæfileika til þess að fá aðra á þitt band. Gættu þess bara að málflutn- ingur þinn sé jafnan skýr og skorinorður svo að enginn misskilji þig. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér finnst eins og þú þurfir að leggja til hliðar eitt og annað sem þú hefur tamið þér um langan tíma. Farðu varlega, þú gætir þurft að leita í þessi gömlu gildi aftur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það ætti allt að ganga þér í haginn í dag og þær breyting- ar sem dagurinn ber með sér verða þér til heilla ef þú gætir þess að sýna öðrum tilhlýði- lega virðingu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur komist á snoðir um vissan fróðleik sem þig langar að ræða við aðra. Veldu þá ein- staklinga vandlega því þessir hlutir eru vandmeðfarnir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÞAÐ er ríkt í manninum að flokka alla skapaða hluti og setja á þá merkimiða. Í brids kemur þetta til dæmis fram í greiningum á endastöðum. Þvingun birtist í ótal afbrigð- um og flest hafa fengið virðu- legt viðbótarnafn – tvöföld þvingun, samsett þvingun, trompþvingun, og svo mætti lengi telja. En stundum koma upp endastöður sem falla ekki í neinn viðurkennd- an flokk! Í nýlegu hefti af The Bridge World skrifar Don Kersey um sérkenni- lega endastöðu, sem líkist kastþröng, án þess þó að uppfylla rétt skilyrði. „Ein- litaþvingun“ er þó freistandi nafngift, þótt það hljómi eins og öfugmæli. Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠ 83 ♥ 7532 ♦ G109 ♣ ÁK64 Vestur Austur ♠ ÁK54 ♠ DG96 ♥ 108 ♥ 964 ♦ K5 ♦ D874 ♣ D10752 ♣ G9 Suður ♠ 1072 ♥ ÁKDG ♦ Á632 ♣ 83 Vestur Norður Austur Suður 1 lauf Pass 1 tígull 1 hjarta 1 spaði 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Vestur kemur út með spaðaás og skiptir yfir í tromp í öðrum slag. Sagnhafi spilar spaða um hæl og fær aftur tromp til baka. Hann stingur spaða og lætur tíg- ulgosann rúlla yfir til vesturs á kónginn. Vestur er tromp- laus og spilar laufi, sem tekið er með ás og tígli spilað. Austur stíflar litinn með því að setja drottninguna og neyða sagnhafa til að taka með ás. Þá er ekki um annað að ræða en spila tígli á níuna og vona það besta. Þegar hún heldur tekur sagnhafi lauf- kónginn og þá lítur staðan svona út: Norður ♠ -- ♥ 7 ♦ -- ♣ 64 Vestur Austur ♠ 4 ♠ D ♥ -- ♥ 9 ♦ -- ♦ 8 ♣ D10 ♣ -- Suður ♠ -- ♥ ÁK ♦ 6 ♣ -- Ef sagnhafi væri heima gæti hann trompað tígulsex- una, en hann er staddur í borðinu. Ekki dugir að taka síðasta tromp austurs, því tíguláttan verður þá fjórði slagur varnarinnar. En sagnhafi spilar ekki trompi, heldur laufi. Það setur aust- ur í fáséðan vanda. Ef hann hendir spaða (eða trompar) verður hægt að stinga tígul. Og hendi austur tíguláttu tekur suður síðasta trompið og fríslag á tígulsexu. Tíguláttan er lykilspilið: Greinarhöfundur lýsir stöðu hennar vel með þessum orð- um: „Það er hættulegt að halda henni eftir, en hún er of verðmæt til að láta hana fara.“ BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 20. mars, verður fimmtug Sól- veig Þorleifsdóttir. Hún og eiginmaður hennar, Hrafn Baldvin Hauksson, taka á móti gestum í Síðumúla 35 kl. 18–22. Þessar duglegu stúlkur í 5 IK í Foldaskóla héldu í janúar sl. bingó og skemmtun fyrir 5. bekkinga í skólanum. Ágóðann, 14.200 kr., gáfu þær Rauða krossi Íslands. Á myndinni eru í efri röð: Dísa, Sif og Anna María. Í neðri röð: Þórunn, Guð- rún, Aldís Rún og Elísa. LJÓÐABROT ÞJÓÐVÍSA „Faðir minn átti fagurt land“ með fuglasönginn þýða, bjarta jökla, svartan sand og seiðinn grænna hlíða. Hugurinn reikar, hugurinn reikar víða. Fagurt átti hún manna mál, málið yndisblíða, silkimjúkt og stolt sem stál í stormi allra tíða. Hugurinn reikar, hugurinn reikar víða. Nú talar enginn mömmu mál, málið yndisblíða. „Týnd er æra, töpuð er sál,“ til hvers er að stríða? Hugurinn reikar, hugurinn reikar víða. Hann faðir minn seldi fagurt land með fuglasönginn þýða, bjarta jökla, svartan sand og seiðinn grænna hlíða. Hugurinn reikar, hugurinn reikar víða. Hjörtur Kristmundsson. Hlutavelta STAÐAN kom upp í A- flokki Skákþings Akureyrar sem lauk fyrir skömmu. Hinn reyndi skákmaður Þór Valtýsson (2090) hafði hvítt gegn öðrum slíkum, Jóni Björgvinssyni (2005). 33. Rxh7! og svartur gafst upp. Uppgjöfin er of snemma á ferðinni þar sem eftir 33. ...Bxh2+! stendur hvít- ur frammi fyrir tölu- verðum erf- iðleikum við að innbyrða vinninginn. Hann verður að leika 34. Kh1 þar sem 34. Kxh2 Dh5+ 35. Kg1 Dxh7 leiðir ein- ungis til jafnteflis. Í aðalafbrigð- inu myndi svartur leika 34. ...Kxh7 35. Dxf8 Bd6! og ætti þá góða jafnteflismöguleika. Staða efstu manna í B-flokki Skákþingsins varð þessi: 1. Eymundur Eymundsson, 6 vinningar af 7 mögulegum. 2. Ágúst Bragi Björnsson, 5½ v. 3.–4. Sveinbjörn Sig- urðsson og Haukur Jónsson, 5 v. 5. Tómas Sigurðsson, 3 v. 6. Jakob Sigurðsson, 2 v. 7. Jón Birkir Jónsson, 1 v. 8. Jón Heiðar Sigurðsson, ½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Póst- urinn, herra minn. Laugavegi 101 við Hlemm. Opið mán.-fös. frá kl. 11-18, lau. frá 11-16 ANTIK- ÚTSALA Skápar, skenkar, borð og stólar, málverk. Mikið af fáséðum smáhlutum, matar- og kaffistell 10—30% afsláttur Yfirhafnir Útsala 50% afsláttur Opið laugardag frá kl. 10—16 Mörkinni 6, sími 588 5518 Síðustu dagar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.