Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 74
FÓLK Í FRÉTTUM
74 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Pörtunum
safnað saman
(Picking Up the Pieces)
G a m a n m y n d
Leikstjóri: Alfonso Arau.
Aðalhlutverk: Woody Al-
len, David Schwimmer,
Kiefer Sutherland, Shar-
on Stone o.fl. (91 mín.)
Háskólabíó. Bönnuð inn-
an 12 ára.
PÖRTUNUM safnað saman er
vægast sagt kynlegur kvistur í kvik-
myndaflórunni. Henni er leikstýrt af
Alfonso Arau, sem er þekktur fyrir
kvikmyndir á borð við Like Water for
Chocolate og A Walk in the Clouds,
en hefur hér fengið
til liðs við sig heilan
helling af þekktum
leikurum. Sá sem
hvað mesta furðu
vekur með þátt-
töku sinni í mynd-
inni er meistari
Woody Allen, en
hann leikur mis-
heppnaðan gaur
sem myrðir eiginkonu sína, bútar
hana í sundur, en týnir annarri hend-
inni sem nálægir þorpsbúar finna og
telja vera hönd Maríu meyjar. Sharon
Stone er síðan þess heiðurs aðnjót-
andi að leika hina lauslátu eiginkonu
sem fer svo illa fyrir. Í fyrstu veit
maður ekki hvað skal halda um mynd-
ina, þá manísku og hálfhroðvirknis-
legu atburðarás sem fer af stað, en
þegar á líður venst myndin sæmilega,
og maður áttar sig á að þessi furðu-
stíll virðist á einhvern hátt vera með-
vitaður frá leikstjórans hendi. David
Schwimmer á góða spretti í hlutverki
prestsins í þorpinu og er það ekki síst
honum að þakka að myndin hangir
saman á saumunum. Woody Allen
leikur gamla taugaveiklinginn og er
það ekki síst hluti af skringilegheitum
myndarinnar að sjá hann í þessu sam-
hengi.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Kynlegur
kvistur
Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ fylltist miðbær Reykjavík-
ur af prúðbúnum nemendum Menntaskólans í Reykjavík,
klæddum í kjólföt og síðkjóla, á leið á Fiðluball í Iðnó.
Um er að ræða hefð sem á rætur sínar að rekja allt til
19. aldar, að sögn Hauks Sveinssonar, kennara við skól-
ann: „Þessi hefð er komin frá þeim tíma þegar lítill húsa-
kostur var í Reykjavík og stærsti samkomusalurinn var
hátíðarsalurinn í menntaskólahúsinu. Þar voru, fyrir
aldamótin, haldnar svokallaðar dansæfingar og voru
það álitin fínustu böllin í borginni og mikil upphefð fyrir
yngismeyjar bæjarins að vera boðnar á ball á Sal.“
Ölið batt enda á hefðina
Það gerðist síðan að sumir ballgestir fóru að hafa öl
um hönd og varð þá, að sögn Hauks, ágreiningur milli
skólastjórnar og nemenda og lagðist Fiðluballið af í sinni
upphaflegu mynd.
„Hefðin var síðan endurvakin um 1970, að frumkvæði
Jóns Gröndal, sem þá var Inspector Scholae (þ.e. for-
maður nemendafélagsins) og mikill áhugamaður um
dans, en hann stóð fyrir einu balli. Þau urðu ekki fleiri
um sinn og það var ekki fyrr en um miðjan 9. áratuginn
að Dagur Eggertsson varð Inspector og endurvakti
Fiðluballið á ný, og hafa vinsældir þess aukist statt og
stöðugt síðan þá.“
„Nú er svo komið,“ segir Haukur, „að langstærstur
hluti 6. bekkjar tekur þátt í dansleiknum og höfum við
fyrir löngu sprengt utan af okkur húsnæðið sem býðst í
Menntaskólanum og dönsum þess í stað í Iðnó sem nær
að rúma allan skarann.“
Eftirminnilegasta ballið
Haukur segir danskennslu hafa fallið vel í kramið hjá
nemendum undanfarin ár: „Við höfum látið duga að æfa
dans eina viku á hverju misseri. Það virðist skila sér vel
til nemenda, en æft var aukalega þegar nær dró ballinu.
Ég held að danskennslan gagnist nemendunum tvímæla-
laust. Þeir finna að vel er hægt að skemmta sér í dansi af
þessari gerð og þetta er góð leið til að kynnast bekkjar-
félögum sínum og skólasystkinum.“
Hauki finnst skemmtilegt að geta haldið áfengislaust
ball af viðlíka glæsibrag og með jafn góðri þátttöku og
raun ber vitni. Ballið virðist enda ákaflega skemmtilegt,
eða eins og Haukur segir sjálfur: „Margir nemendur
segja þetta vera eftirminnilegasta og skemmtilegasta
ballið sem þeir hafa sótt.“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Pilsfaldarnir flyksuðust um fætur í aðalsal Iðnó enda vel þjálfaðir dansarar á ferð.
Þau taka sig vel út, uppáklædd á veröndinni við
Iðnó, með borgarljósin í baksýn. Þetta eru nemend-
ur Menntaskólans í Reykjavík.
Valsar dans-
aðir fram
á nótt
Útskriftarnemendur MR héldu fiðluball í Iðnó
NEMENDUR Flensborgarskólans
í Hafnarfirði héldu í síðustu viku-
árshátíð. Að sögn Daníels Schev-
ing Hallgrímssonar, oddvita Nem-
endafélags Flensborgara, var
árshátíðardagurinn þéttskipaður
skemmtilegum viðburðum: „Það
var hátíðardagskrá allan daginn.
Kennslu lauk um klukkan 11 og
þá héldum við niður að íþrótta-
húsinu í Strandgötu þar sem við
kepptum við kennarana í spurn-
ingakeppni, pokahlaupi og ræðu-
keppni, þar sem umræðuefnið var
„mennt er máttur“ en kenn-
ararnir fengu að mæla á móti og
nemendur með,“ segir Daníel og
bætir við að kennararnir hafi
beðið lægri hlut í öllum greinum.
„Síðan var nemendum ekið að
Straumi, listahúsinu í Straumsvík,
þar sem frumsýnd var uppfærsla
leikfélags Flensborgarskóla á
Sweeney Todd. Um kvöldið
snæddu nemendur síðan sameig-
inlegan kvöldverð á Hraunholti,
þar sem veislustjórinn, Auðunn
Blöndal „næstfyndnasti maður Ís-
lands“, hélt uppi góðri stemmn-
ingu.“
Allir heim í rútu
Sjálfur árshátíðardansleikurinn
var haldinn á Gauki á stöng þar
sem Stuðmenn, DJ Tommy White
og DJ Ofurbaldur spiluðu af
miklu kappi fyrir dansglaða nem-
endur.
Aðspurður segir Daníel ekki
angra nemendur Flensborgarskól-
ans að þurfa að sækja dansleikinn
alla leið inn í Reykjavík. „Þessi
staður er hæfilega stór fyrir okk-
ur og nýlega búið að gera hann
upp svo hann hentar mjög vel en
við höfum engan skemmtistað í
Hafnarfirði sem getur hýst svona
stóra árshátíð. Þess vegna flytjum
við nemendurna alltaf heim í
Hafnarfjörð með rútu og rútan
ekur síðan sömu leið um bæinn
og strætisvagnarnir svo allir ættu
að komast heim heilu og höldnu.“
Nemendafélag
Flensborgarskólans
hélt árshátíð sína
Stuðmenn héldu uppi miklu
fjöri langt fram á nótt.
Erna Kristjánsdóttir, IngibjörgSigþórsdóttir og Katrín Sigurð-ardóttir skemmtu sér, að sögn,
konunglega.
Fögnuður
í Flens-
borg
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.