Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Borgar túni 37 Sími 569 7700 Reiknaðu með Fjármögnun TVÖ grænlensk loðnuskip voru á loðnumiðunum fyrir sunnan land í gærkvöldi en fundu enga loðnu. Turu landaði fullfermi, um 950 tonnum, á Vopnafirði í fyrradag, en var við Skaftárós í gærkvöldi og hafði ekkert fundið. „Loðnan hefur lagst í hrygningu og vertíðin er bara búin,“ sagði Snorri Gestsson, skip- stjóri, við Morgunblaðið. Snorri segir að færeyski báturinn Jón Sigurðsson hafi fengið eitthvað úr göngunni á sunnudag en ekkert hafi verið að sjá í gær. „Ég er mjög vonsvikinn með ástandið á miðunum en svona gerist þetta yfirleitt á hverju ári. Hún leggst niður í hrygn- ingu á einum degi og hverfur. Torfan sem Jón Sigurðsson veiddi úr virðist algerlega hafa dreift sér en hrognin voru ekki orðin það þroskuð að hún hefði átt að veiðast í nokkra daga í viðbót. Hafi menn verið að hugsa um að bjarga einhverjum verðmætum átti aldrei að láta verkfallið byrja en auðvitað á ekki að grípa inn í vinnu- deilur eins og gert hefur verið.“ Ammasat var í vesturgöngunni út af Vík í Mýrdal og fékk 300 tonn í gær en gekk illa í gærkvöldi. „Hún er mjög dreifð og er byrjuð að hrygna,“ sagði Helgi Jóhannsson, skipstjóri. Hann landaði á Höfn í fyrrakvöld en sagði ástæðulaust að fresta verkfalli. „Við höfum oft séð þessa stöðu á þessum tíma. Ég hef verið á 33 vertíðum og þetta er loka- leg staða, þó vel geti verið að eitt- hvað finnist enn.“ Tvö grænlensk skip á miðunum Engin loðna SVO virðist sem unga fólkið í Reykjavík hafi frekar hunsað kosningarnar um framtíð Vatnsmýrarinnar og staðsetn- ingu Reykjavíkurflugvallar en hinir eldri að því er fram kem- ur í upplýsingum frá skrifstofu borgarstjórnar Reykjavíkur. Þegar skoðað er gróflega hlutfall þeirra sem kusu, mið- að við heildarfjölda á kjörskrá miðað við aldur, kemur í ljós að hlutfallslega fæstir á aldr- inum 20 til 29 ára kusu eða um 27 til 28%. Þeir sem voru dug- legastir við að mæta á kjörstað voru borgarbúar á aldrinum 50 til 59 ára en um 50% þeirra tóku þátt í kosningunum. Af kjósendum á aldrinum 30 til 39 ára kusu um 37 til 38%. Af kjósendum á aldrinum 40 til 49 ára kusu um 40% og af kjósendum á aldrinum 60 til 79 ára kusu um 42 til 43%. Ennfremur kemur í ljós að nokkru fleiri karlmenn en kon- ur tóku þátt í kosningunum eða um 39% miðað við um 35,5% kvenna. Kosið var á 6 kjörstöðum í borginni og kusu flestir í Ráðhúsi Reykjavíkur eða 25,2% þeirra 30.219, sem greiddu atkvæði. Fæstir mættu í Engjaskóla í Grafar- vogshverfi eða um 9,7% kjós- enda. Á kjörskrá voru 81.258 og var kjörsókn því 37,2%. Ef að- eins eru teknir þeir sem tóku afstöðu vilja 50,6% að flugvöll- urinn fari en 49,4% að flugvöll- urinn verði áfram í Vatnsmýri. Kosningar um Reykjavíkurflugvöll Unga fólkið sat heima  Meirihlutinn/40-41 HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr- skurðaði í gærkvöldi þrjá erlenda karlmenn í 10 daga gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar í Reykjavík vegna gruns um stórfelld innbrot um helgina. Mennirnir voru handteknir skömmu fyrir kl. 10 í gærmorgun. Samkvæmt litháískum vegabréf- um þeirra eru þeir allir fæddir árið 1977. Þeir komu til landsins frá Kaupmannahöfn á föstudag en ætl- uðu sér að fara af landi brott í dag. Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra kannar nú hvort vegabréf þeirra séu ófölsuð, hverjir mennirnir séu í raun og í hvaða löndum þeir hafa dvalið áður en þeir komu til Íslands. Menn- irnir eru grunaðir um innbrot í versl- anirnar Hans Petersen og Bræðurna Ormsson um helgina en þaðan var stolið ýmsum myndavélum og tækj- um að verðmæti um níu milljónir króna. Þýfi úr innbrotunum fannst á mönnunum og við húsleit á gisti- heimili þar sem þeir héldu til. Fyrra innbrotið sem mennirnir eru grunaðir um var í verslun Hans Petersen við Laugaveg og stolið verðmætum fyrir um fimm milljónir króna. Á upptökum úr eftirlits- myndavélum sáust þrír grímuklædd- ir menn athafna sig í búðinni. Næstu nótt var brotist inn í versl- un Bræðranna Ormsson við Lág- múla og þaðan stolið verðmætum fyrir um fimm milljónir króna. Vitni sá til þriggja grímuklæddra manna aka þaðan í bifreið sem hafði verið stolið. Ómar Smári Ármannsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, sagði að þeir sem frömdu þessi inn- brot hefðu staðið fagmannlega að verki. Þýfi fannst á þremur mönnum og við húsleit á gistiheimili Úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um frestun verkfalls sjómanna til 1. apríl næstkomandi varð að lögum á Al- þingi rétt fyrir klukkan tíu í gær- kveldi og þegar í kjölfarið fóru fyrstu bátarnir að halda á veiðar. Verkfall sjómanna hafði þá staðið í tæpa fjóra sólarhringa. Stjórnarandstaðan gagnrýndi lagasetninguna harðlega og sjómenn eru ósáttir við hana en hyggjast nýta tímann til viðræðna við útvegsmenn. Útvegsmenn segjast ekkert hafa haft með lagasetninguna að gera. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin hefði ákveðið að flytja frumvarpið væri að það væri ekki hægt að horfa upp á það, þegar einhver gangur væri kominn í viðræður sjómanna og út- vegsmanna og þeir virtust vera farnir að tala um efnisatriði, að öll þessi verðmæti glötuðust. Ekki bara út- gerðarmönnum og sjómönnum, held- ur þjóðinni allri. Þetta væru fjárhæð- ir sem næmu hundruðum milljóna króna, jafnvel töluvert á annan millj- arð króna, og það væri ábyrgðarhluti að láta slík verðmæti fara í súginn. Í nefndaráliti minnihluta sjávarút- vegsnefndar lýsir stjórnarandstaðan andstöðu sinni við það að enn á ný skuli ríkisstjórnin beita sér fyrir því að Alþingi setji lög á kjaradeilu sjó- manna og útvegsmanna. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggi sé full ástæða til að óttast að inngrip rík- isstjórnarinnar leiði til þess að samn- ingar dragist enn frekar á langinn en ella hefði orðið, en samkvæmt upp- lýsingum frá deiluaðilum virðist sem ekkert samráð hafi verið haft við þá í þessum efnum. Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Íslands, segir að það sé óviðunandi að sjómenn skuli aldrei fá frið til að ljúka sínum málum án afskipta stjórnvalda. Hann segir að það sé heilög skylda samninga- manna að reyna að ljúka samningum. „Ég hef ásett mér að fara ekki í fýlu við þessar aðstæður og ásetti mér það í upphafi að vinna af heilindum að því að ljúka þessum málum. Frest- urinn bæði særir og gerir menn vonda en við megum ekki láta tímann fara til spillis.“ Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að LÍÚ hafi ekki komið að lagasetningunni á einn eða annan hátt heldur heyrt af henni í útvarpsfréttum. „Við pöntuðum þetta ekki eins og ýjað hefur verið að, en aðalatriðið er að lagasetningin verði ekki til að raska viðræðunum. Með þessu er verið að bjarga verðmætum í loðnu og bolfiski, stóra fiskinum, og það er jákvætt. Síðan þurfum við að nota tímann vel og leitast við að ljúka samningum fyrir 1. apríl en það er mjög margt eftir.“ Grétar Mar Jónsson, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, segir að lagasetningin sé ekki gott innlegg í samningaviðræð- urnar. „Það er móðgun og óvirðing við okkur sjómenn að eftir þrjá og hálfan dag í verkfalli skuli vera sett á okkur lög. Síðan er verið að tala um einhverja loðnu og búa til loðnukvóta en það veiðist engin loðna. Það eru tvö skip að veiðum undir grænlensk- um fána og þau hafa ekkert fengið. Þetta er búið og það er verið að sigla undir fölsku flaggi.“ Morgunblaðið/Sigurgeir Sjómenn í Vestmannaeyjum og víðar um landið gerðu klárt strax í gærkvöld eftir að verkfalli hafði verið frest- að. Höfðu 10 skip og bátar lagt úr höfn skömmu eftir frestun. Strákunum á Smáey var ekkert að vanbúnaði. Fyrstu bátarnir héldu á veiðar þegar í gærkvöld  Mikilvægt/6  Frumvarpið/6 Verkfalli sjómanna frestað með lagasetningu á Alþingi til 1. apríl TEKIN hefur verið ákvörðun um að sameina DV og Dag, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, og kem- ur Dagur því ekki út í sinni núver- andi mynd í dag. Útgáfufyrirtæki Dags, Dags- prent, verður áfram með prentrekst- ur á Akureyri, og engum mun verða sagt upp störfum vegna sameining- arinnar. Þeir starfsmenn sem ekki verða eftir hjá Dagsprenti fá starf á DV eða hjá öðrum fyrirtækjum Frjálsrar fjölmiðlunar sem gefur út DV. Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason verða eftir sem áður rit- stjórar DV og Jónas Haraldsson að- stoðarritstjóri, en gengið hefur verið frá því að Birgir Guðmundsson sem verið hefur aðstoðarritstjóri Dags verður fréttastjóri. DV og Dag- ur sameinuð ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.