Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 9
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað íslenska ríkið af bóta-
kröfu vegna meintra mistaka við
fæðingu drengs árið 1993.
Foreldrarnir töldu að aðgerðir og
aðgerðaleysi starfsmanna spítalans
hafi leitt til þess að drengurinn hafi
hlotið áverka við fæðingu. Örorka
hans er metin 40%. Drengurinn
hefur afar lítinn mátt í hægri hand-
legg og mjög takmarkaða hreyfi-
getu. Þá er hægri handleggur sýni-
lega styttri og rýr. Aðgerðir og
meðferð hafa skilað litlum árangri.
Foreldrarnir höfðuðu málið fyrir
hönd drengsins og fóru fram á að
ríkið greiddi rúmlega 12,6 milljónir
í bætur.
Við fæðinguna lenti drengurinn í
svokallaðri axlarklemmu. Axlar-
klemmu má skilgreina þannig að
fremri öxl barns fæðist ekki sjálf-
krafa eða með léttu togi eftir að
höfuðið er fætt.
Foreldrarnir töldu að aðgerðir
ljósmóður við fæðinguna hefðu ekki
verið nauðsynlegar, heldur flaust-
urkenndar og rangar. Lífsmörk
drengsins við fæðingu hefðu verið
með ágætum og ekkert réttlætt þá
harkalegu fæðingarhjálp sem ljós-
móðirin beitti. Þá töldu þau að yf-
irmenn og starfsmenn sjúkrahúss-
ins hafi brugðist í undirbúningi og
stjórnun fæðingarinnar. Þeim hefði
átt að vera ljóst að móðirin gekk
með stórt barn og því hefði átt að
hafa meiri aðgát varðandi mögu-
leika á axlarklemmu. Þá hafði fyrra
barn konunnar einnig verið stórt og
fæðing erfið. Viðbúnaður við fæð-
ingu seinna barnsins hafi ekki verið
í samræmi við þessar upplýsingar.
Beitti réttri aðferð
Tveir sérfræðingar í kvensjúk-
dómum og fæðingahjálp, þeir Alex-
ander Kr. Smárason og Benedikt Ó
Sveinsson, sem voru meðdómendur
í málinu, töldu reyndar að ekki
hefði verið um beina axlarklemmu
að ræða í þrengstu skilgreiningu
þess orðs. Fram kom að ljósmóðirin
hafi í raun metið fæðinguna sem
eðlilega og ástand á handlegg
drengsins hafi komið henni veru-
lega á óvart. Í niðurstöðum dómsins
segir að miðað við aðstæður hefði
ljósmóðirin beitt réttri aðferð við
fæðingu drengsins.
Þá fellst dómurinn ekki á að
stjórnun eða undirbúningi fæðing-
arinnar hafi verið ábótavant eða að
ekki hafi verið farið eftir almennt
viðurkenndum reglum á stærri
sjúkrahúsum.
Héraðsdómur sýknaði því ríkið af
kröfum foreldranna. Málskostnaður
var felldur niður.
Helgi I. Jónsson, héraðsdómari
kvað upp dóminn sem dómsformað-
ur.
Ríkið sýknað af bótakröfum
vegna mistaka við fæðingu
Atvinnumiðstöð
stúdenta undirbýr
sumarstarfið
Fleiri á
skrá en í
fyrra
RÚMLEGA 600 námsmenn hafa nú
skráð sig hjá Atvinnumiðstöð stúd-
enta í leit að starfi í sumar. Þetta eru
um 100 fleiri en voru á skrá hjá mið-
stöðinni á sama tíma í fyrra, en um er
að ræða námsfólk af framhalds- og
háskólastigi. „Athygli vekur að um
65% þeirra sem eru á skrá eru konur.
Erfitt er að tilgreina ástæður þessa,
en spurningin er hvort þetta bendi til
þess að þær eigi erfiðara með að
finna sumarstarf en karlarnir,“ segir
í frétt frá Atvinnumiðstöðinni.
FUNDUR var haldinn á þriðjudag í
kjaradeilu ríkisins og Félags há-
skólakennara. Guðmundur H. Guð-
mundsson, varaformaður samninga-
nefndar ríkisins, sagði síðdegis að
fundurinn hefði verið mjög jákvæð-
ur.
„Það eru allir að reyna að velta
upp lausnum en ekki vandamálum.
Við teljum að það sé að komast á
vinnuflötur, sem verði til þess að
leysa þetta, ef kostnaðurinn verður
ekki óyfirstíganlegur. Það er allt
annað útlit núna en var um miðjan
mánuðinn, en þá leit þetta mjög illa
út,“ sagði Guðmundur. Að hans sögn
ber þó enn mikið í milli í deilunni en
báðir samningsaðilar vilji leita
lausna.
Næsti fundur á mánudag
Fundurinn á þriðjudag stóð í um
þrjár klukkustundir en næsti sátta-
fundur í deilunni verður á mánudag-
inn. Atkvæðagreiðsla um boðun
verkfalls háskólakennara hófst á
mánudaginn og mun hún standa yfir
í eina viku. Verði verkfallsboðun
samþykkt á verkfall að hefjast 2. maí
og standa til 16. maí.
Kjaradeila ríkisins og háskólakennara
Árangursríkur
sáttafundur í gær
Smart buxnadragtir
Stuttir og síðir kjólar
Siffon- og hörjakkar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Bankastræti 9, sími 511 1135
Í t ö l s k h ö n n u n
www.jaktin.is
Sérverslun með ítalskar vörur fyrir dömur og herra
Ljósakrónur Bókahillur
Borðstofustólar Íkonar
Antík leðursófasett
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
VANDAÐUR
FATNAÐUR
LAUGAVEGI 56, SÍMI 552 2201
TEENO