Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 19
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 19
Í DAG mun netverslunin hagkaup.is
hefja sölu á ProStyle- reiðhjólum og
bjóða upp á heimsendingu á þeim. Í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
segir að á síðasta ári hafi verslunin
verið með hluta af ProStyle-úrvalinu
í sölu en í ár verði öll hjólin í nýju
2001 línunni, auk reiðhjólahjálma og
ýmissa aukahluta í boði. Til kynn-
ingar mun netverslunin bjóða upp á
ókeypis heimsendingu á öllum hjól-
um fram til mánudagsins 2. apríl.
Ókeypis
heimsending
á reiðhjólum
NÓATÚN hefur opnað nýjan vef á
Netinu; www.noatun.is sem m.a.
upplýsir neytendur um tilboð í versl-
ununum. Þá er þar Netklúbbur Nóa-
túns þar sem fólki er boðið að gerast
áskrifendur að upplýsingum um til-
boð í verslunum Nóatúns. Uppskrift-
ir af ýmsum toga eru á vefnum en
það er Ingvar Sigurðsson mat-
reiðslumeistari á Argentínu steik-
húsi sem hefur umsjón með þeim. Þá
eru þar upplýsingar um verslanirn-
ar, hægt að sækja um atvinnu og
sækja sér ýmsan annan fróðleik.
Nýr vefur
Nóatúns
annars rekja til launahækkunar
starfsmanna og hækkunar á hráefn-
isverði. Þrátt fyrir þessa hækkun er
stefna fyrirtækisins að vera með
ódýrustu eggin.“ Að sögn Helga
framleiðir fyrirtækið í kringum 100
þúsund páskaegg.
Árni Kvaran, markaðstjóri Mónu,
segir enga verðhækkun vera á páska-
eggjum fyrirtækisins í ár þrátt fyrir
hækkanir á kostnaðarliðum eins og á
hráefni. „Verð á flestum eggjum
stendur í stað. Við höfum lækkað
verð á venjulegu páskaeggi nr. 6 um
4%, Prakkara-páskaeggi nr. 6 um
10% og venjulegu páskaeggi nr. 8 um
14%. Það léttist reyndar dálítið og
lækkun miðað við þyngd er því um
4%. Þá hefur sú breyting orðið síðan í
fyrra að við erum að þyngja egg nr.
10, en það hækkar samt ekki í verði
heldur lækkar hlutfallslega um 7%,“
segir Árni. Fyrirtækið er með sex
tegundir páskaeggja þ.e. smærri egg
sem eru í álpappír, venjuleg egg,
Prakkara-páskaegg, Ástaregg og
páskaegg fyrir sykursjúka og þá með
mjólkuróþol. Árni segist gera ráð fyr-
ir að í ár verði framleidd í kringum
250 til 300 þúsund páskaegg. „Ást-
areggin voru nýjung hjá okkur í fyrra
en í þeim eggjum eru meðal annars
tveir málshættir um ástina. Þetta er
vinsælt fyrir ástfangið fólk og fyrir
börn að gefa foreldrum sínum svo
dæmi séu tekin. Þá var páskapakkinn
einnig nýjung í fyrra en í honum eru
níu smærri egg í álpappír í skemmti-
legum umbúðum. Fyrir utan örlitlar
hefðbundnar breytingar á útliti
páskaeggja og innihaldi þeirra eru
engar breytingar í ár,“ segir Árni.
Verið að koma páskaeggjum
fyrir í verslunum
„Við kaupum páskaegg frá Mónu
og Nóa-Siríusi en þess má þó geta að
Nóa-páskaeggin eru leiðandi á mark-
aðnum hjá okkur,“ segir Jón Þor-
steinn Jónsson, markaðsstjóri hjá
Nóatúni, og bætir við að fyrirtækið sé
í þessu að setja upp páskaeggin og
páskaskrautið í verslunum. „Hækkun
hefur orðið á heildsöluverði Nóa-
páskaeggjana frá því í fyrra sem
nemur í kringum 4%. Ég á ekki von á
því að við munum hækka okkar hlut
frá því í fyrra. Páskaegg eru við-
kvæm vara fyrri hækkunum.“ Að
sögn Jóns Þorsteins greinir hann
aukningu á sölu páskaeggja ár hvert.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, tekur í sama
streng og Jón Þorsteinn og bætir við
að engin hækkun eigi sér stað á heild-
söluverði páskaeggja frá Mónu en
Bónus kaupir egg frá Nóa-Síríusi,
Mónu og Góu-Lindu. „Við erum um
þessar mundir rétt að stilla páskavör-
unum upp. Verðlag á páskaeggjum
hefur meiri tilhneigingu til að lækka
þegar nær dregur páskum og mun
verðlag í Bónusi taka mið af mark-
aðnum.“ Að sögn Guðmundar hefur
verið töluverð aukning í sölu páska-
eggja undanfarin ár og þá sérstak-
lega á Bónus-eggjunum sem Góa-
Linda framleiðir fyrir þá undir Bón-
usmerkinu. „Bónus-eggin eru að
jafnaði 30% ódýrari en t.d. Nóa-egg-
in. Við erum að auka sölu á þeim
eggjum um 20 til 30% milli ára og ég
geri mér vonir um ennþá meiri aukn-
ingu í ár.“
♦ ♦ ♦
UM helgina býður Nýkaup í
Kringlunni ungnautakjöt á til-
boðsverði en verðlækkunin verður
á bilinu 30 til 37%. Um er að ræða
íslenskt ungnautakjöt af heims-
þekktum holdanautakynjum, af
Angus-, Limousine- og Galloway-
kynjum. Í fréttatilkynningu frá
Nýkaupi segir að kjötið sé af-
rakstur af metnaðarfullu kynbóta-
starfi íslenskra nautgripabænda.
Steikurnar eru stærri en lands-
menn eiga að venjast og minna
helst á stórar amerískar steikur.
Steikurnar sem verða á tilboðs-
verði um helgina, þ.e. á meðan
birgðir endast, eru m.a. Hold-
anauta prime, Holdanauta sirloin
beinlaust, Holdanauta T-bein og
Holdanauta-kótilettur.
Ungnautakjöt á tilboði í Nýkaupi
Verðlækkun
milli 30 og 37%
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
Pipar og salt kvarnir,
mikið úrval
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
A L D R E I L É T T A R A
LÉTTA fæst nú í 100 grömmum léttari öskjum og því
meðfærilegra en áður. Í LÉTTA er hlutfall ómettaðrar
fitu með því hagstæðasta sem býðst í viðbiti
á markaðnum. Þess vegna er
LÉTTA kjörið handa þeim
sem vilja forðast óholla
fitu en jafnframt njóta
góða bragðsins og létta með
því tilveruna. Létta er hollur og
góður kostur alla daga.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
F
I
0
0
1
8
4
9