Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sjálfboðaliðar óskast til Afríku Heilbrigðisstarf og fræðsla um eyðni. Kennsla barna. Bygging skóla í Angola/Zimbabwe. 6 mán. undirbún- ingstími í Danmörku. Byrjar 1. apríl eða 1. ágúst. DEN REJSENDE HØJSKOLE www.drhjuelsminde — blueheaven@tv.dk Hringið strax í síma 0045 75 39 12 29. byggingaverktakar, Skeifunni 7, 2. hæð, 108 Reykjavík, s. 511 1522, fax 511 1525 Kranamenn Óskum eftir að ráða vana kranamenn til starfa sem fyrst. Upplýsingar gefur Theódór í síma 892 5605. Múlakaffi — veisluréttir Óskum eftir að ráða starfsfólk til ýmissa starfa. Upplýsingar gefnar i símum 899 9960 og 698 7744 og á staðnum. Skólastjóri Öldutúnsskóla Staða skólastjóra við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði er laus til umsóknar. Öldutúnsskóli er einsetinn heildstæður grunn- skóli með um 720 nemendur. Skólinn var stofnaður 1961. Hann hefur gott starfsfólk í þjónustu sinni, er í glæsilegu húsnæði og vel búinn tækjum. Nú sem áður fer fram grósku- mikið og metnaðarfullt starf í skólanum. Þar er t.d. starfræktur einn frægasti barnakór á landinu. Skólinn var meðal þeirra fyrstu til að taka í notkun og þróa skólatorgið í samstarfi við upplýsingastjóra Hafnarfjarðarbæjar, UTA- verkefnið og Tæknival. Auk þess er þar unnið að ýmsum þróunarverkefnum, t.d. á sviði um- hverfismála. Leitað er að áhugasömum stjórnanda sem er opinn fyrir nýjungum í skólastarfi sem opnast hafa með nýjum kjarasamningum. Næsti yfirmaður skólastjóra er forstöðumaður Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar en Skólaskrifstofa veitir grunnskólum Hafnarfjarðar sérfræðiþjón- ustu og annan stuðning. Auk kennararéttinda er æskilegt að umsækj- andi hafi framhaldsmenntun og reynslu á sviði stjórnunar. Nánari upplýsingar um starfið gefur Magnús Baldursson, forstöðumaður Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, í síma 585 5800, netfang magn- usb@hafnarfjordur.is . Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og KÍ. Umsókn þarf að innihalda yfirlit um menntun og reynslu ásamt ítarlegri greinargerð um fyrir- hugaðar áherslur í skólastarfi. Umsókn skal skilað á Skólaskrifstofu Hafnar- fjarðar, Strandgötu 31, 220 Hafnarfjörður, eigi síðar en 18. apríl 2001. Umsækjandi þarf að geta hafið störf í júní 2001. Forstöðumaður Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar. EFTA-DÓMSTÓLLINN Dómritari EFTA-dómstólnum var komið á fót samkvæmt ákvæðum Samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið og hefur lögsögu í málum sem varða aðildarríkin, Ísland, Liechtenstein og Noreg. Helstu mál sem dómstóllinn fjallar um eru mál sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ber undir dómstólinn vegna meintra brota á samningnum og beitingar eða skýringar á EES- reglum, og mál sem höfðuð eru til endurskoð- unar á ákvörðunum ESA. Þá veitir EFTA- dómstóllinn dómstólum aðildarríkjanna ráð- gefandi álit um skýringar á ákvæðum EES- réttar. EFTA-dómstóllinn fer með hliðstætt hlutverk og dómstóll Evrópubandalaganna. Laus er til umsóknar staða dómritara, sem er ábyrgur fyrir daglegri stjórn dómstólsins, þ.á.m. gerð fjármálaáætlana og starfsmanna- haldi. Viðkomandi er einnig ætlað að sjá um málaskrá dómstólsins og annast regluleg störf dómritara. Ráðið verður í stöðuna frá 1. sept- ember 2001 til tveggja eða þriggja ára, með möguleika á endurnýjun í jafnlangan tíma. Krafist er háskólaprófs í lögfræði og kunnáttu í Evrópurétti/EES-rétti. Umsækjandi skal hafa reynslu af stjórnunarstörfum og starfsmanna- haldi. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stjórn dómstóla eða hafi starfað fyrir alþjóða- stofnun. Áskilið er að umsækjandi hafi fullkomið vald á ensku og nokkra þekkingu á frönsku. Eingöngu er tekið við umsóknum frá þegnum aðildarríkjanna þriggja. Laun og önnur kjör eru samkvæmt Starfsregl- um EFTA-dómstólsins í flokki P5 og við þau bætast húsaleigustyrkur, menntunarstyrkur vegna barna og fjölskylduuppbót. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2001. Frekari upplýsingar um stöðuna og umsóknar- eyðublöð (nr. 1/01) fást hjá EFTA- dómstólnum: EFTA Court, 1, rue du Fort Thüngen, L-1499 Luxembourg. Sími: (00 352) 42 10 81 Símbréf: (00 352) 43 43 89 Netfang: eftacourt@eftacourt.lu Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu dómstólsins: http://www.efta.int/ og með viðtölum við núverandi ritara, Gunnar Selvik. Laus störf á alþjóðasviði Vegna viðfangsefna sem Seðlabanki Íslands mun takast á hendur í samstarfi Norðurlanda og Eystasaltsríkja á vettvangi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington á árunum 2002 og 2003 auglýsir bankinn eftir tveimur starfsmönnum á alþjóðasvið bankans. Leitað er eftir hagfræðingum, þó kemur til álita að í aðra stöðuna verði ráðinn stjórnmála- fræðingur með hagfræðilega þekkingu. Búast má við að starfsþjálfun fari fram við norrænan seðlabanka. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst og að geta starfað í bankanum a.m.k. til ársloka 2003. Umsækjendur þurfa að búa yfir ● háskólamenntun ● góðri kunnáttu og ritfærni á íslensku og ensku ● skipulagshæfileikum ● hæfni í mannlegum samskiptum ● frumkvæði ● áhuga á alþjóðasamskiptum Upplýsingar um störfin veitir Ólafur Ísleifsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs, en umsóknir skulu berast starfsmannastjóra fyrir 11. apríl nk. Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík, sími 569 9600. R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Samkeppnislög til óþurftar? Hádegisverðarfundur í veitingahúsi Iðnó, 2. hæð, föstudaginn 30. mars 2001 kl. 12.00. Framsögumenn: Birgir Þór Runólfsson dósent við hagfræði- skor Háskóla Íslands „Ber að afnema sam- keppnislög?“ Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins „Samkeppnisráð á rangri leið“ Kolbeinn Kristinsson framkvæmdastjóri Myll- unnar — Brauðs hf. Fundarstjóri: Sigurður Kári Kristjánsson lögfræðingur og formaður SUS Súpa með brauði á 490,- Salat með sólþurrkuð- um tómötum og osti á 690,- Allir velkomnir Samband ungra sjálfstæðismanna Aðalfundur Ísstöðvarinnar hf. á Dalvík fyrir árið 2000, verð- ur haldinn laugardaginn 31. mars nk. á kaffi Menningu og hefst stundvíslega kl. 17.00. Efni fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. Aðalfundur Kaupmannasamtaka Íslands verður haldinn í dag, fimmtudaginn 29. mars, á 14. hæð í Húsi verslunarinnar og hefst hann kl. 16:00. Hvaða áhrif hefur Smáralind á miðborgina? Aðalfundur Þróunarfélags miðborgarinnar er í dag. Fundurinn er í gyllta salnum á Hótel Borg og hefst kl. 18.15. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður fjallað um skipulagsmál í miðborginni og áhrif Smára- lindar á verslun og viðskipti í miðborginni. Félagsmenn, mætið vel og stundvíslega. Stjórnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.