Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 53
MÚSÍKTILRAUNIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 53
FJÓRÐA og síðasta undanúrslita-
kvöld Músíktilrauna er í kvöld. Að
vanda eru hljómsveitir utan af
landi í aðalhlutverkum þetta kvöld
til að spara þeim sem komast
áfram ferðakostnað suður, en úr-
slit verða svo annað kvöld.
Tilraunirnar að þessu sinni eru
þær nítjándu frá því fyrsta keppn-
in fór fram 1982 og rétt að geta
þess að þetta ár fara tilraunirnar
fram á nýjum stað, enda Tónabær
fluttur. Sá nýi staður er Fram-
heimilið sem var, Safamýri 28, en
úrslitin verða í íþróttahúsi Fram á
föstudagskvöld.
Fyrsta tilraunakvöldið var 21.
mars síðastliðinn og á þeim þrem-
ur undanúrslitakvöldum sem hald-
in hafa verið hafa átta hljómsveitir
ólíkrar gerðar unnið sér sæti í úr-
slitum. Í kvöld bætast svo að
minnsta kosti tvær við, ein sem
salurinn velur og ein eða fleiri sem
sérstök dómnefnd velur.
Sigursveitir Músíktilrauna fá
hljóðverstíma, 28 tíma í Sýrlandi
fyrir 1. sæti og 28 í Grjótnámunni
fyrir 2. sæti. Efnilegasta hljóm-
sveitin fær 25 hljóðverstíma. Tóna-
búðin verðlaunar besta söngvarann
með Shure-hljóðnema og Tóna-
stöðin gefur þeim efnilegasta
Sennheiser-hljóðnema. Hljóðfæra-
hús Reykjavíkur gefur besta
bassaleikaranum gjafabréf og
besta hljómborðsleikaranum einn-
ig, Samspil besta trommuleikaran-
um vöruúttekt, Rín besta gítarleik-
aranum gjafabréf, en sá fær líka
gjafabréf frá Tónastöðinni. Japis
gefur sigursveitunum geisladiska
og verðlaunar besta rapparann
með gjafabréfi. Tölvumenn fá
verðlaun líka, sá besti fær dag í
hljóðveri Thule-útgáfunnar, hljóð-
kort frá Nýherja og gjafabréf frá
Tónastöðinni.
Gestasveitir leika fyrir tilrauna-
gesti áður en keppnissveitirnar
byrja hvert kvöld og síðan á meðan
atkvæði eru talin í lokin. Í kvöld
leika sænska rokksveitin Dispiri-
ted og Mínus, Svíarnir hita upp
fyrir tilraunirnar, en Mínus leikur
á meðan atkvæði eru talin.
Landsbyggðarrokk
á Músíktilraunum
Síðasta undanúrslitakvöld Músíktilrauna Tóna-
bæjar er í kvöld. Árni Matthíasson segir frá þátt-
tökusveitum, sem allar eru utan af landi.
Input
Önnur Grundarfjarðarsveit á Músíktilraununum að þessu sinni kallar sig
Input. Hana skipa Kristófer Eðvarðsson söngvari, Eyþór Rafn Sigurjóns-
son gítarleikari, Rúnar Sveinsson trommuleikari og Ólafur Hrafn Magn-
ússon slagverksleikari. Þeir eru allir á fjórtánda árinu og spila rokk.
Berrassaðir
Úr Grundarfirði er hljómsveitin Berrassaðir sem leikur þungarokk með
hljómborðsívafi. Liðsmenn hennar eru Aðalsteinn Valur Grétarsson söngv-
ari og bassaleikari, Axel Björgvin Höskuldsson og Örn Eiríksson, sem leika
á gítara, Þorkell Máni Þorkelsson leikur á hljómborð og Gústav Alex Gúst-
avsson sem leikur á trommur. Þeir eru á aldrinum þrettán til sextán ára.
Lame Excuse
Heimir Ingimarsson, Þrándur Helgason, Stefán Jakobsson og Ólafur Hauk-
ur Árnason skipa akureyrsku rokksveitina Lame Excuse. Heimir leikur á
hryngítar og syngur, Þrándur á bassa, Stefán á trommur og Ólafur Haukur
á spunagítar. Hann er á sautjánda árinu en hinir komnir yfir tvítugt.
Prozac
Frá Dalvík kemur Prozac, sem einnig var með á síðustu tilraunum. Í henni
eru Jón Helgi Sveinbjörnsson gítarleikari, Heiðar Brynjarsson trommu-
leikari, Magnús H. Felixson bassaleikari, Steinar Sigurpálsson söngvari,
Matthías Ö. Friðriksson gítarleikari og Andri M. Jóhannesson söngvari.
Þeir eru frá sautján niður í fjórtán ára og leika frekar þungt rokk.
Rufuz
Rufuz er að austan, nánar tiltekið frá Neskaupstað, og leikur venjulegt
rokk að því þeir félagar segja. Sveitina skipa Jón Hafliði Sigurjónsson
bassaleikari, Orri Smárason trommari, Hlynur Benediktsson gítarleikari
og Róbert Þór Guðmundsson sem syngur. Meðalaldur þeirra er tuttugu ár.
Do what thou wilt ...
Tríóið Do what thou wilt shall be the whole of the Law tekur heiti sitt frá
furðufuglinum Aleister Crowley og er frá Húsavík. Sveitina skipa Þórir
Georg Jónsson gítarleikari og söngvari, Ágúst Guðmundsson bassaleikari
og Ásgeir Logi Ólafsson trommuleikari. Meðalaldur þeirra er um sextán ár.
Þeir leika yfirleitt indie-rokk.
Bimbó
Bimbó heitir hljómsveit frá Ísafirði og úr Kópavogi. Í henni eru gítarleik-
ararnir Kjartan Baldursson og Friðlaugur Jónsson, Hörður Steinbergsson
bassaleikari, Telma Björg Kristinsdóttir söngkona og Jón Mar Össurarson
trommuleikari. Hljómsveitin leikur poppað rokk og liðsmenn eru frá sext-
án til nítján ára.