Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.03.2001, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN 42 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ MENNT samstarfs- vettvangur atvinnulífs og skóla hefur verið starfrækt frá árinu 1998. Stofnendur MENNTAR eru sam- tök atvinnurekenda, launafólks og skóla á framhalds- og háskóla- stigi. Hlutverk MENNTAR er að:  Annast söfnun og miðlun upplýsinga um þekkingu og framboð á menntun fyrir atvinnulífið  Vera framkvæmda- og þjónustuvett- vangur fyrir fyrir- tæki, félög, samtök, skóla og aðrar fræðslustofnanir  Vinna að gagnkvæmri yfirfærslu þekkingar og færni milli at- vinnulífs og skóla  Taka þátt í innlendum og erlend- um samstarfsáætlunum og verk- efnum  Taka þátt í þróunarverkefnum á sviði starfsmenntunar Samstarfsvettvangur atvinnulífs, stéttarfélaga og skóla byggist á mikilli samvinnu milli aðila. Mark- hópur MENNTAR er fjölbreyttur og fer eftir viðfangsefninu hverju sinni. Þannig er sumum verkefnum ætlað að ná eingöngu til félagsaðila, öðrum til fagaðila um menntun og enn öðrum til einstaklinga. Getur MENNT verið þjónustuaðili fyrir þig? MENNT er þjónustuaðili í verk- efnum sem Evrópubandalagið deilir út til aðildarlanda sinna og EFTA- landanna. Einnig er MENNT verk- taki fyrir menntamálaráðuneytið í ákveðnum verkefnum. Verkefnin sem um ræðir eru: Leonardo da Vinci II er starfs- menntaáætlun Evrópubandalags- ins. MENNT þjónustar þá sem vilja sækja um verkefnastyrki eða nemendaskipti. Einnig hefur MENNT það hlutverk að kynna áætlunina fyrir almenningi, stofn- unum og fyrirtækjum bæði hvað áætlunin hefur upp á að bjóða og einnig ein- stök verkefni sem unn- in hafa verið á vegum Leonardo. Einstak- lingar geta ekki einir sótt um verkefnastyrki eða nemendaskipti. Skilyrði er að lögaðili, þ.e. fyrirtæki eða skóli, sæki um fyrir hönd viðkomandi ein- staklings. CEDEFOP er mið- stöð á vegum Evrópu- bandalagsins um þró- un í starfsmenntun. CEDEFOP úthlutar til MENNTAR átta styrkjum á ári sem ætlaðir eru til námsferða fyrir íslenska stjórnend- ur í starfsmenntun. Með þessu gefst íslenskum aðilum sem vinna að þróunarmálum í starfsmenntun gott tækifæri að fara til valins Evr- ópulands og kynna sér hvernig staðið er að starfsmenntun þar. Einstaklingar geta ekki sótt um heldur verður lögaðili að sækja um fyrir sína starfsmenn. Einnig safn- ar CEDEFOP saman upplýsingum um starfsmenntun í allri Evrópu og kemur þeim fyrir í gagnabanka. Að- gangur að þessum upplýsingum er opinn og er vefslóðin www.- cedefop.eu.int eða www.training- village.gr Europass er starfsvegabréf. Nemendur í starfsnámi geta tekið hluta af starfsþjálfun sinni í öðru landi í Evrópu og er starfsþjálfunin MENNT fyrir atvinnulíf, skóla og ein- staklinga Stefanía K. Karlsdóttir Menntun Samstarfsvettvangur atvinnulífs, stéttar- félaga og skóla, segir Stefanía K. Karlsdóttir, byggist á mikilli samvinnu milli aðila. LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús (LH) varð til fyrir tæpu ári. Fagleg markmið sjúkrahússins eru auk- in sérhæfing þjónustu, rannsókna og kennslu. Rekstrarmarkmiðin eru hlutfallsleg aukn- ing þjónustu miðað við útgjöld, t.d með því að forðast tvöföldun þjón- ustu. Markmiðin fara ekki endilega alveg saman, en þar sem lög- bundið opinbert hlut- verk LH er að veita sérhæfða læknishjálp þá hljóta faglegu sjón- armiðin að hafa forgang fram yfir hin hagfræðilegu við útfærslu sjúkrahússins. Vandamál aðskilnaðar sérgreina Mörg fagleg vandamál snúa að rekstri hinnar sameinuðu stofnanar. Það stærsta er sú staðreynd að bráð- astarfsemin er sitt hvorum megin við Öskuhlíðina, í Fossvogi og við Hring- braut. Vegna þess hefur sameining sérgreina reynst afar flókin. Eftir sameininguna hefur verið reynt að flytja sérgreinar til (á milli húsa) þannig að aðstaða þeirra verði fyrst og fremst öðru hvorum megin. Því fylgja því miður stór læknisfræðileg vandamál þótt hagfræðilega megi e.t.v. sjá á því flöt. Nýlega var t.d. ekki unnt að sinna á einum stað bráðum veikindum kornabarns sem var í öndunarvél við Hringbrautina, en barnið þarfnaðist þjónustu sér- greinar, sem hafði áður en ekki leng- ur sérhæfða aðstöðu við Hringbraut. Stóra vandamálið er því þetta: því aðeins verður fullkominn ávinningur af sameiningu sjúkrahúsanna að all- ar sérgreinar geti veitt bráðaþjón- ustu á einum og sama stað. Ekki þarf endilega að kaupa ráðgjafa að utan til að komast að þeirri niðurstöðu því kalla má að allir sérmenntaðir læknar sjúkrahússins séu „erlendir ráðgjafar“. Læknarnir hafa allir sótt menntun sína austur eða vestur um haf. Lög (t.d. 29. og 32. greinar laga um heilbrigðisþjónustu) gera einmitt ráð fyrir að stjórnendur nýti sér þekkingu læknanna á sjúkrahúsun- um. Þarf að byggja hús? Í nýlegri grein forstjóra LH í Morgunblaðinu nefnir hann, að að- staða til bráðaþjónustu sé ófullnægj- andi í Fossvogi. Það á ekki síður við núverandi aðstöðu við Hringbraut. Sá kvittur gengur um sjúkrahúsið að byggja eigi við slysadeildina í Foss- vogi með nýbyggingu. Sumir hafa gælt við hugmyndina um að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni, t.d. í sveit- inni (á Vífilsstöðum). Aðrir deila um það hvort byggt skuli nýtt sjúkrahús frá grunni í Fossvogi eða við Hring- brautina. Sá sem þetta ritar telur ekki að byggja eigi nýtt sjúkrahús frá grunni, en að byggja eigi við- byggingar við Landspítalann við Hringbraut strax og flytja bráð- astarfsemi allra sérgreina þangað. Það er dýrt og óþarft að byggja nýtt hús frá grunni. Sú fjárfesting sem liggur í núverandi húsum verð- ur þá lítils virði. Reynslan er víða sú, að risastórar opinberar nýbyggingar af þessu tagi er gjarna orðnar „gaml- ar“ og „úreltar“ þegar þær eru loks tilbúnar meira en áratug eftir hönn- un. Því er betur farið með almannafé með því að byggja smærri og ódýrari viðbyggingar eftir þörfum („eininga- spítala“). Rífa (úrelda) ætti í leiðinni þær byggingar sem þjóna ekki leng- ur hlutverki eða liggja undir skemmdum. Staðsetning háskólasjúkrahúss Nú er orðið ljóst að NA-SV flug- braut Reykjavíkurflugvallar verður lögð niður og sömuleið- is stendur til að flytja Hringbrautina suður fyrir Læknagarð. Þess- ar skipulagsbreytingar gefa svigrúm til veru- legrar uppbyggingar á Hringbrautarlóð Land- spítalans. Lóðin er í hjarta Reykjavíkur- borgar sem er þýðing- armikið m.t.t. mannlífs í miðborginni ef stærsti vinnustaður landsins verður þar með yfir 4000 launaða starfs- menn. Inni á sjúkra- húsinu starfar líka mik- ill fjöldi nema og á lóðinni Háskóli Íslands, þ.e. Lækna- garður (lækna- og tannlæknadeildin) og Eirberg (hjúkrunarskólinn). Á lóðinni eru einnig 3 nýjustu bygg- ingar bráðaþjónustunnar í Reykja- vík, þ.e. geðdeildin, K-byggingin og hinn nýi barnaspítali sem rís hratt þessa dagana. Hvernig er hægt að réttlæta byggingu barnaspítalans ef ný ákvörðun felur í sér uppbyggingu hins sameinaða sjúkrahúss annars staðar í bænum? Forsendur sameiningar á einn stað Á LH við Hringbraut eru mörg hús sem eru nú þegar samtengd eða auðvelt væri að samtengja. Gamli og nýi spítalinn og tengibyggingin standa vel fyrir sínu sem og kvenna- deildin og K-byggingin sem hýsir geislalækningar og rannsóknastofur núna. Barnaspítali Hringsins verður samtengdur eldri byggingum með undirgangi. Sáraauðvelt væri að tengja geðdeildarbygginguna t.d. við tengibygginguna eða við eldhús- bygginguna með „yfirgangi“ yfir nú- verandi bílaplan (eða í gegnum bíla- geymsluhús sem reist væri í leiðinni og ekki vanþörf á). Til þess að koma allri bráðaþjónustu LH undir eitt þak kæm eftirfarandi lausn til greina: 1. Byggð verði ný bráðamóttaka/ slysadeild, röntgendeild, göngu- deild, skurðstofur og rannsókna- stofuhús og þyrlupallur. Þessi þjón- usta þarf öll að vera í návígi, því hún myndar „hjarta sjúkrahússins“ og henni væri auðveldlega hægt að koma fyrir á Landspítalalóðinni með því að rífa s.k. kringlu (núverandi gesta- eða aðalinngang) og byggja 4–6 hæða hús þar (á milli tengiálmu gamla og nýja spítalans og kvenna- deildar). Þyrlupallur gæti verið á þakinu. 2. Byggð verði ný legudeildabygg- ing og rannsóknastofuhús með teng- ingu niður í Læknagarð. Þeir sem aka Hringbrautina taka eftir því að norðurgafl Læknagarðs er ófrá- genginn. Það er vegna þess að for- sjálir menn ætluðu sér eitt sinn að tengja læknadeildina við Landspít- alann. Nú er tækifærið komið. Suður úr hinni nýju bráðaþjónustubygg- ingu væri byggt hús sem tengdist við Læknagarð. Þar með væri orðið inn- angengt um allt sjúkrahúsið og læknadeild. Þessi bygging gæti verið 4–6 hæðir og gæti hýst annars vegar legudeildir, og hins vegar rann- sóknastofur og skrifstofur sérgreina (t.d. sýklafræði, veirufræði, ónæm- isfræði, vefjameinafræði, blóðbanka og e.t.v. einnig efnameinafræði og blóðmeinafræði). Þrjár síðasttöldu sérgreinarnar ættu að vera nálægt bráðamóttökunni en með þessari byggingu væri e.t.v. hægt að losa nú- verandi húsnæði þessara sérgreina í K-byggingu til annarra nota. 3. Bílageymsluhús og tengiálma yfir á geðdeild (sjá ofar). Lokaorð Á ofangreindan hátt væri bráða- þjónustu allra sérgreina LH með til- tölulega ódýrum hætti komið fyrir á einum stað. Þetta mætti vinna hratt með skynsamlegri fjármögnun. Þar með væri orðinn til öflugur vinnu- staður á réttum stað miðað við mið- borg og háskóla. Og þá mætti kalla stofnunina aftur Landspítalann með greini. Háskólasjúkrahúsið verði við Háskólann Páll Torfi Önundarson Háskólasjúkrahús Því aðeins verður full- kominn ávinningur af sameiningu sjúkrahús- anna, segir Páll Torfi Önundarson, að allar sérgreinar geti veitt bráðaþjónustu á einum og sama stað. Höfundur er yfirlæknir blóðmeina- fræði á Landspítalanum og dósent við læknadeild Háskólans. UNDIR þessari yfir- skrift birtist grein í Morgunblaðinu 10. þ.m. eftir Ingólf Aðal- steinsson. Kærar þakk- ir fyrir greinina en bæði ég og aðrir reyndu að gera þessu máli skil fyrir þrem tugum ára. Einarskattur er eignaupptaka og fast- eignaskattur er það einnig og hann er meira en það, hann er rán. Þessi (fast)-eigna- skattur er miðaður við matsverð, íbúðar/húss, Fasteignamats ríkis- ins, eins og það er á hverjum tíma án tillits til staðar, aldurs og ástands húsnæðis og án tillits til veðbanda húsnæðisins. Matið er endurskoðað á hverju ári og getur húseigandi ósk- að endurskoðunar hvenær sem er. Að auki er svo bruna- bótamat sem miðast við þau verðmæti húseign- arinnar sem brunnið geta. Miðað við bruna- bótamat er svo lagt á: Viðlagatryggingar- gjald, Ofanflóðagjald og Umsýslugjald. Allt þetta verða húseigend- ur að greiða án tillits til þess hvað þeir skulda í húsnæðinu. Því dýrara sem húsnæðið er þeim mun hærri er skattur- inn. Utan höfuðborgar- svæðisins getur sölu- verð íbúðar verið aðeins brot af fast- eignamati og það eru dæmi þess að íbúðir eru verðlausar, óseljanlegar. Þar sem fasteignagjöldin renna til sveitarfélaganna þá er það þeirra til- hneiging að halda fasteignagjöldun- um háum enda veitir þeim ekki af tekjunum. Það eru því húseigendur sem borga þessi gjöld en ekki þeir sem aldrei byggðu þrátt fyrir sömu tekjur og sömu möguleika. Allir íbúðareigendur eru að greiða þessi gjöld alla ævi, af sömu eigninni sem þeir eru löngu búnir að eignast með afborgunum, eigin vinnu og greiðslu aðflutningsgjalda. Ekki verður af öðrum tekið en þeim sem spara, og í þessu tilfelli lít ég svo á að ef nokkuð brýtur gegn stjórnarskránni þá er það þessi gjaldtaka. Allavega er hún óréttlát og í raun er hún refsiskattur. Margir hafa beint og óbeint tapað íbúðum sínum vegna þessarar ósanngjörnu gjaldtöku. Brunabótamat, vátryggingargjald eignarinnar, er oftast notað í dag sem viðmiðun fyrir lánveitingu og er algengt að lánafyrirgreiðsla sé mið- uð við 60% til 65% af brunabótamati. Síðast liðið eitt og hálft ár hefur verð fasteigna verið mun hærra en bruna- bótamat, á höfuðborgarsvæðinu, og hafa því fasteignasalar oft verið beðnir um mat á söluverði íbúðar til þess að auka möguleika á lánafyr- irgreiðslu. Þetta háa verð á íbúðar- húsnæði leiðir til þess að íbúðareig- endur/kaupendur fara fram á hækkað brunabótamat til þess eins að fá meiri/hærri lán. Hærra bruna- bótamat – hærri skattar. Um víðan völl Í upphafi þessa stjórnarsamstarfs talaði forsætisráðherra um að lækka skatta, afnema öll skattfríðindi og að minnka afskipti hins opinbera. Það var lag til að byrja á þessu, sameina og einfalda innheimtuna, fækka op- inberum starfsmönnum án þess að skerða velferðarkerfið. Það er ekki nóg að selja opinberar eignir og að- Er fasteign eðli- legur skattstofn? Haukur Sveinbjarnarson Skattar Eignaskattur er eigna- upptaka, segir Haukur Sveinbjarnarson, og fasteignaskattur er það einnig og hann er meira en það, hann er rán.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.