Morgunblaðið - 29.03.2001, Qupperneq 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 31
Í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Leynifélagið
Opið virka daga 10 -18. Laugardaga 11 - 15
Fjöldi
bókatitla
með allt að
90%
afslætti!
Tilboð vikunnar! K
ostaboð da
gsins!
Veglegur bókamarkaður IÐUNNAR ...
Mikið ú
rval af
barna-
og ung
lingabó
kum!
LEIKDEILD UMF. Eflingar frum-
sýnir sína aðra uppfærslu á þessu
leikári í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 20.30 í félagsheimilinu á
Breiðumýri í Reykjadal. Um er að
ræða leikgerð unna uppúr verk-
um þeirra bræðra Jóns Múla og
Jónasar Árnasona og nefnist
Augun þín blá. Fyrr í vetur sýndi
leikdeildin Sjö stelpur eftir Erik
Thorstenson.
Að sögn Arnórs Benónýssonar,
leikstjóra og höfundar leikgerð-
arinnar, er ekki verið að setja
saman úrval úr verkum þeirra
bræðra. Þau sjónarmið réðu mest
að laga dagskrána að þeim leik-
hóp sem stendur að dagskránni
en um leið að reyna að sjá til þess
að bygging hennar stæði undir
kvöldskemmtun af þessu tagi.
33 atriði úr fimm
verkum
„Ég fór þá leið að velja lög og
texta úr fimm verkum og láta
hvert verk halda samfellu að For-
setakosningum 2012 undan-
skildum. En það er óbirt verk
sem mun þó hafa verið sýnt á
Húsavík í frumgerð sinni og þá án
tónlistar Jóns Múla,“ segir Arnór.
Dagskráin er úr fimm verkum og
skiptist í 33 atriði. Þau eru Rjúk-
andi ráð, Deleríum búbónis, Allra
meina bót, Járnhausinn og For-
setakosningar 2012. Að dag-
skránni Augun þín blá standa alls
á sjötta tug karla og kvenna, þar
af eru leikarar 33 og „Múlaband-
ið“ er skipað sjö hljóðfæraleik-
urum. Tónlistarstjóri er Sigurður
Helgi Illugason.
Leikstarfsemi í Reykjadal á sér
langa og farsæla sögu og hefur
staðið með miklum blóma und-
anfarin ár. Skemmst er að minn-
ast uppfærslu leikdeildarinnar á
Síldin kemur og síldin fer eftir Ið-
unni og Kristínu Steinsdætur í
leikstjórn Arnórs Benónýssonar.
Sú sýning var valin „athyglisverð-
asta áhugaleiksýning“ síðasta
leikárs af valnefnd Þjóðleik-
hússins.
Önnur sýning verður annað
kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30.
Þá verður sýning nk. laugardags-
kvöld og einnig verða sýningar 6.,
7. og 8. apríl.
Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar
Leikgerð byggð á verkum
Jónasar og Jóns Múla
Hörður Þór Benónýsson og
Freydís Anna Arngrímsdóttir
flytja lagið Heiðursstúlka heitir
Gunna ...
SÍMINN og Leikfélag Íslands hafa
undirritað samning um að Síminn
gerist aðalstuðningsaðili Leikfélags-
ins við uppfærslu leikritsins Snigla-
veislan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í
Iðnó. Sýningin er samstarfsverkefni
Leikfélags Akureyrar og Leikfélags
Íslands.
Að sögn Magnúsar Geirs Þórðar-
sonar, leikhússtjóra Leikfélags Ís-
lands, skiptir samstarfið við Símann
sköpum fyrir uppfærslu Sniglaveisl-
unnar. ,,Síminn er nútímalegt fyrir-
tæki sem hefur þegar sýnt það og
sannað að það er menningarlega
sinnað með samstarfi sínu við Lista-
safn Íslands. Það er afar mikilvægt
fyrir menningarlífið að fyrirtæki axli
þá ábyrgð að reyna að hafa jákvæð
áhrif á samfélagið í kringum sig.
Leikfélagið metur það mikils og ég
veit að leikhúsgestir gera það líka,“
segir Magnús.
Samstarf Símans og Leikfélags
Íslands hófst í fyrra þegar Síminn
gerðist styrktaraðili Hádegisleik-
hússins í Iðnó. Að sögn Maríu Stef-
ánsdóttur, markaðsfulltrúa hjá
Símanum, verður því samstarfi hald-
ið áfram á komandi sumri þegar nýtt
leikrit eftir Hallgrím Helgason verð-
ur frumsýnt í Hádegisleikhúsinu.
Síminn styrkir
Sniglaveisluna
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Símans, Ólafur Jóhann Ólafsson rit-
höfundur og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags Íslands.
SALURINN í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði var þéttsetinn á sunnudaginn
þegar í fyrsta sinn var haldin þar
bókmenntavaka undir nafninu Vest-
anvindar. Vakan var helguð minn-
ingu Guðmundar G. Hagalín rithöf-
undar en einnig komu þar fleiri
vestfirsk skáld við sögu.
Margir telja Guðmund Hagalín
merkastan þeirra rithöfunda sem
vestfirskir geta talist og hafa þung-
væg rök fyrir því áliti. Þá er ekki ein-
ungis átt við vestfirskan uppruna
hans og búsetu á Vestfjörðum, held-
ur ekki síður efniviðinn í ritverkum
hans. Hins vegar gæti einnig annar
þáttur í lífi Guðmundar verið tilefni
þess að hans væri minnst sérstak-
lega á Ísafirði. Það eru störf hans að
bæjarmálum og atvinnumálum.
Guðmundur Gíslason Hagalín
fæddist árið 1898 að Lokinhömrum
við Arnarfjörð. Einhver þekktasta
skáldsaga hans er Kristrún í
Hamravík, sögukorn um þá gömlu,
góðu konu, sem hann ritaði snemma
á Ísafjarðarárum sínum og út kom
árið 1933. Á Ísafjarðartíma sínum
ritaði Guðmundur einnig Sturlu í
Vogum, hið mikla og magnaða verk
sem út kom árið 1938. Ætla mætti
að maður sem vann svo mörg stór-
virki í bókmenntum sem Guðmund-
ur Hagalín hefði ekki gert neitt ann-
að. Afköst hans á öðrum sviðum
voru þó með þeim hætti, að ætla
mætti að hann hefði ekki gert neitt
annað.
Ljósmyndir af ferli Guðmundar
Guðmundur settist að á Ísafirði
árið 1929. Nokkru áður hafði hann
dvalist í Noregi um þriggja ára
skeið, ferðast um landið og flutt er-
indi um Ísland og íslenska menningu.
Á Ísafirði stundaði Guðmundur
kennslu en var einnig ritstjóri, bæj-
arfulltrúi og forseti bæjarstjórnar og
var mjög atkvæðamikill og framsýnn
á þeim vettvangi. Hann var ötull
frumkvöðull nýjunga í atvinnumálum
og átti sæti í stjórnum margra fyr-
irtækja. Guðmundur fluttist frá Ísa-
firði árið 1946. Hann andaðist árið
1985. Á vökunni í Edinborgarhúsinu
fjallaði Þröstur Helgason bók-
menntafræðingur um háskólafyrir-
lestra Guðmundar, Auður Hagalín á
Ísafirði, sonardóttir Guðmundar,
sagði frá lífi hans og störfum og
Hrafnhildur Hagalín Guðmunds-
dóttir og Gunnar Jónsson lásu úr
verkum hans. Eyvindur P. Eiríks-
son rithöfundur fjallaði um siglinga-
lýsingar Guðmundar. Safnað hefur
verið fjölda ljósmynda frá ferli Guð-
mundar, mynda sem aldrei hafa
birst opinberlega, og voru ýmsar
þeirra til sýnis. Einnig kynnti Ey-
vindur P. Eiríksson eigin verk og
skáldin Eiríkur Norðdahl og Inga
Dan fluttu nokkur af ljóðum sínum.
Merkastur
vestfirskra
rithöfunda
Salurinn í Edinborgarhúsinu var þétt setinn á sunnudag.
Ísafirði. Morgunblaðið.
Bókmenntavaka um Guðmund G. Hagalín í fyrsta sinn á Ísafirði
Morgunblaðið/BB
THE Nordic Quartet leikur í Múl-
anum í Húsi Málarans í Bankastræti
í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21.
Kvartettinn er skipaður Dönunum
Morten Ramsböl á bassa, Christian
Vuust sax og Morten Lund á tromm-
ur ásamt Svíanum Jacob Karlzon á
píanó.
Kvartettinn er staddur hér á landi
til að taka upp plötu og leika í FÍH-
skólanum.
Aðgangseyrir er kr. 1.200 en 600
fyrir nema og eldri borgara.
Norrænn kvart-
ett í Múlanum
Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn
Sýningunni Úr einkasafni Sverris
Sigurðssonar lýkur á laugardag. Á
sýningunni eru 130 verk úr einka-
safninu.
Safnið er opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 11–17.
GUK, Gardur –
Ártún 3, Selfossi
GUK, Selfossi, verður opið á
sunnudaginn kl. 16–18 að staðartíma
og eru allir velkomnir að taka þátt í
síðasta starfsdegi verkefnis Alex-
anders Steig, „Tokyo Sheetah last
employment“.
Sýningum lýkur
♦ ♦ ♦