Morgunblaðið - 04.04.2001, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2001 19
K
O
R
T
E
R
Nýkomin sending af
í leðri og áklæði
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávísun á staðgreiðslu
Stór glæsilegum
sófasettum
Mikið úrval af sófasettum,
stökum, sófum og hornsófum frá
heimsþekktum framleiðendum
n.eilersen a/s
ofSwitzerland
Sófasett ,
hornsófarog
sófasett3+2
Sími 581-2275 568-5375 Fax 568-5275
REKSTRARTEKJUR Vélavers hf.
á síðasta ári voru 1.016 milljónir
króna og hafa aukist um 6,5% frá
fyrra ári. Rekstrargjöld voru 959
milljónir og jukust um 4,8% á sama
tíma. Inni í þessum rekstrartekjum
er ekki sala á notuðum vélum, en
samkvæmt upplýsingum frá félag-
inu nam sala á þeim 220 milljónum
króna á árinu.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði og
skatta var 57 milljónir króna en 39
milljónir árið áður og hefur því auk-
ist um 46%. Fjármagnsliðir voru
neikvæðir um 27 milljónir en 5 millj-
ónir árið áður. Þessi hækkun fjár-
magnsliða skýrist fyrst og fremst af
gengistapi félagsins á síðustu mán-
uðum ársins líkt og margra annarra
fyrirtækja. Hagnaður eftir fjár-
magnsliði og skatta var því 19 millj-
ónir en 23 milljónir árið áður.
Langtímaskuldir félagsins eru
nánast að verða uppgreiddar en
þær nema þrem milljónum króna.
Eigið fé í lok árs var 186 milljónir og
eiginfjárhlutfall 37%. Arðsemi eig-
infjár var 11,2%. Veltufé frá rekstri
var 33 milljónir í árslok en 39 millj-
ónir árið áður.
Stefnt að nýbyggingu
í Reykjavík
Vélaver hf. er almenningshluta-
félag stofnað í árslok 1994. Rekstur
félagsins hefur ávallt skilað hagnaði
og hefur hluthöfum félagsins verið
greiddur árlega 10–12% arður. Fyr-
irtækið rekur starfsemi í Reykjavík
og á Akureyri en hjá fyrirtækinu
vinna um 40 manns. Aðalfundur
Vélavers hf. verður haldinn á Hótel
Sögu 10. apríl nk. og leggur stjórn
félagsins til að hluthöfum verði
greiddur 12% arður.
Að sögn Magnúsar Ingþórssonar,
framkvæmdastjóra Vélavers, er
mjög þrengt að starfsemi fyrirtæk-
isins í Lágmúlanum í Reykjavík.
Húsnæðið er orðið of lítið og að-
koma að fyrirtækinu erfið.
„Þetta hefur að undanförnu kom-
ið í veg fyrir að við gætum bætt við
starfsemi okkar vöru sem krefst
aukins lagerrýmis eða bætt við okk-
ur starfsfólki til að sinna nýjum við-
fangsefnum.
Vélaver hf. hefur í hyggju að
byggja yfir starfsemi sína sem
fyrst. Í þeim tilgangi sendi fyrir-
tækið inn umsókn um byggingarlóð
hjá Reykjavíkurborg á miðju ári
1998. Fyrirtækið hefur ekki fengið
neina úrlausn en forsvarsmenn
þess, og ekki síður starfsfólk, vænta
þess að Vélaver hf. fái úthlutað
byggingarlóð á næstunni,“ segir
Magnús.
Hagnaður Vélavers 19
milljónir króna í fyrra
! "
! #
$ %" & ' ()
! &
*#& +,
-"
#
"+, +%
*# + %."+ /& # + %
"+ %."+
0
1
$%!
0
$%!
2
2
0
!" !" !"
FJÖGUR fjármálafyrirtæki spá
verðbólgu á bilinu 0,5-0,6% í síðasta
mánuði. Samkvæmt því hefur verð-
bólga síðustu 12 mánaða verið um
3,8%.
Búnaðarbankinn spáir 0,5-0,6%
verðbólgu milli mánaða.
Bankinn segir grænmetisverð og
hækkun á fötum og skóm vegna út-
söluloka hafa mest áhrif. Þá er gert
ráð fyrir áhrifum af gengislækkun
krónunnar og launahækkunum.
Íslandsbanki-FBA spáir því að
verðbólga hafi verið 0,6% í mars.
Sem ástæðu fyrir hækkuninni nefn-
ir bankinn hækkun á fatnaði vegna
loka vetrarútsalna og gengislækk-
un krónunnar sem komi fram í
verði á bensíni og öðrum innflutt-
um vörum og innlendri framleiðslu.
Íslandsbanki-FBA gengur út frá
því að verð á húsnæði hafi staðið í
stað.
Kaupþing spáir 0,5% hækkun á
vísitölu neysluverðs milli mánaða.
Helstu forsendur eru hækkað verð
á bensíni um mánaðamótin, hækk-
un matvöru og veiking krónunnar á
síðustu mánuðum. Ætla megi að
gengisþróun síðustu daga ýti enn
frekar undir það að gengisáhrifa
taki að gæta í ríkari mæli í al-
mennu verðlagi. Kaupþing gerir
ekki ráð fyrir mikilli breytingu á
húsnæðislið vísitölunnar.
Úr eftirspurnarverðbólgu
yfir í kostnaðarverðbólgu
Landsbankinn spáir 0,59% hækk-
un á vísitölu neysluverðs milli mars
og apríl. Helstu forsendur spári-
nnar eru að veiking krónunnar skili
sér að nokkur leyti inn í verðlag á
innfluttum vörum, en um leið er
varað við að mikil óvissa sé um í
hversu miklum mæli veikingin skili
sér inn í verðlagið. Landsbankinn
gerir ekki ráð fyrir mikilli hækkun
húsnæðisliðar milli mánaða og seg-
ir hækkun bensíns hafa óveruleg
áhrif.
Landsbankinn segir að síðustu
tvö ár hafi hækkun milli mars og
apríl verið 0,5-0,6%, en þá hafi hús-
næðisverð haft mest áhrif og því
hafi verið um eftirspurnarverð-
bólgu að ræða. Gangi spá bankans
eftir sé hins vegar um kostnaðar-
verðbólgu að ræða og því séu ekki
sömu forsendur fyrir að halda vöxt-
um jafn háum hér á landi og raun
beri vitni.
Spáð er 0,5–0,6%
verðbólgu í mars