Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isAtli Eðvaldsson landsliðsþjálfari
hefur valið Möltufarana / B1
Skagamenn draga kvennalið í
knattspyrnu úr keppni / B1
4 SÍÐUR
Morgunblaðinu í
dag fylgir blað
frá Heimsklúbbi
Ingólfs, „Fagra
veröld 2001“.Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
fundið 9.000 e-töflur og 200 grömm
af kókaíni til viðbótar þeim rúm-
lega 7.000 e-töflum og 8 kílóum af
hassi sem voru í vörusendingu sem
lagt var hald á fimmtudaginn 5.
apríl sl.
Samtals var því lagt hald á um
17.000 e-töflur sem er mesta magn
af e-töflum sem lagt hefur verið
hald á í einu lagi hér á landi.
Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi
vegna málsins. Tveir þeirra voru
handteknir þegar þeir vitjuðu
sendingarinnar hjá hraðflutninga-
fyrirtæki í Reykjavík.
Að sögn Harðar Jóhannessonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í
Reykjavík, voru fíkniefnin falin í
hljómflutningstækjum. Við leit í
hátölurum fundust 7.000 e-töflur
og 8 kíló af hassi. Þegar leitað var í
öðrum tækjum fannst meira magn
fíkniefna en lokið var við leit í
vörusendingunni í fyrradag. Hörð-
ur segir að fíkniefnunum hafi verið
afar haganlega fyrir komið.
Aukinn kraftur lagður í að
stöðva innflutninginn
Hörður segir að lögreglan í sam-
vinnu við tollgæsluna hafi lagt auk-
inn kraft í að stöðva innflutning á
fíkniefnum. „Við höfum áhyggjur
af því að það skuli alltaf vera mark-
aður fyrir þetta,“ segir Hörður.
Hann segir helstu neytendur e-
töflunnar ungt fólk, á framhalds-
skólaaldri og upp úr.
„Það hlýtur að þurfa einhverja
vakningu til að fá fólk til að átta sig
á því hvað þetta er hættulegt.“
Enginn viti í raun uppruna þessara
efna eða hvar þetta er framleitt.
Hér hafi ekki fundist eitur í e-töfl-
um en það hafi gerst bæði í Hol-
landi og Danmörku.
„Það er furðulegt að þetta unga
fólk skuli hiklaust láta þetta ofan í
sig,“ segir Hörður.
Hinn 25. mars síðastliðinn hand-
tók tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
mann með ígildi 2.000 e-taflna sem
hann faldi í buxnastreng og úða-
brúsa.
Á mánudaginn voru þrír menn
handteknir á flugvellinum í sam-
eiginlegri aðgerð lögreglunnar í
Reykjavík og tollgæslunnar vegna
innflutnings á um 2.800 e-töflum.
Þeir sitja nú í gæsluvarðhaldi.
Á um þremur vikum hafa lög-
reglu- og tollayfirvöld lagt hald á
um 22.000 e-töflur. Nemur sölu-
verðmæti efnanna á götumarkaði
milljónatugum.
Um 17.000 e-
töflur faldar í
vörusendingu
22 þúsund e-töflur hafa fundist
á síðustu þremur vikum
KONUR eru í meirihluta í störfum á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi en
af 4.834 starfsmönnum eru rúmlega
3.800 konur eða 79,4% og tæplega
1.000 karlar sem er um 20%. Sé litið á
einstakar stéttir eru karlar í 75,8% af
læknisstöðum spítalans en eingöngu
konur gegna störfum ljósmæðra.
Þetta kemur fram í nýjum stjórn-
unarupplýsingum spítalans.
Af einstökum sviðum er hæst hlut-
fall karla á skrifstofu tækni og eigna
eða 40,6% en alls starfar þar 621, 369
konur og 252 karlar. Næsthæsta hlut-
fall karla er hjá yfirstjórn og skrif-
stofu fjárreiðna og upplýsinga eða
25,8%, 39 karlar á móti 112 konum.
Hæst hlutfall kvenna er á kvennasviði
93,6%, 249 konur á móti 17 körlum.
Sé litið á einstakar stéttir eru það
eingöngu konur sem gegna störfum
ljóðmæðra og störfum á leikskólum.
Þá gegna konur 99,6% ritarastarfa og
96% starfa sjúkraliða. Á fjórum svið-
um eru karlar í meirihluta, þ.e. í iðn-
aðar- og tæknistörfum, störfum
lækna og við stjórnun.
Konur gegna nærri 80%
starfa á Landspítala
!""
!
"
# $
####% &
'()
*'
+
*+
,,
*-
,.
,
+
'
'
/)
,-
**
-,
',+
-
+
)-.
0 1
2 2!
,*3
,4,/3
,**
/+.
,*3
*((
(,
*-.
,,
3'
*'
*
'
,.
*/)
.3(
.
*(
'4(+(
% /,'
,4,..
,**
/*.
,'/
',3
)(
*-(
,,
3-
*-
-,
,)
')
'*+
,4+/(
,'
*(
34../
2 20
EMBÆTTI yfirdýralæknis er stöð-
ugt með aðgerðir sínar í endurskoðun
sem eiga að varna því að gin- og
klaufaveiki berist til landsins frá Evr-
ópu. Meðal nýrra aðgerða er að spjöld
hafa verið útbúin til að setja í sætis-
bök flugvéla í Evrópuflugi. Á heimleið
lesa flugfreyjur orðsendingu frá emb-
ættinu og benda farþegum á að lesa
upplýsingarnar á spjöldunum. Hall-
dór Runólfsson yfirdýralæknir sagði
að Flugleiðir og önnur flugfélög hefðu
tekið vel í þá bón embættisins að
koma varnaðarorðum og fróðleik á
framfæri með þessum hætti.
Halldór sagði embættið standa í
ströngu við að koma til skila fræðslu
um þennan dýrasjúkdóm og varnir til
að hindra útbreiðslu hans. Embætt-
inu berst fjöldi fyrirspurna og auglýs-
ingum hefur verið komið á framfæri í
fjölmiðlum. Þá hafa starfsmenn emb-
ættisins átt fundi með samtökum af-
urðastöðva í mjólkuriðnaði og slátur-
leyfishöfum og í gær átti Halldór fund
með forráðamönnum Reykjavíkur-
hafnar og fleirum vegna móttöku á
skemmtiferðaskipum í sumar.
Halldór sagði að varðandi
skemmtiferðaskipin og smithættu á
gin- og klaufaveiki væri stærsta
spurningin um sorphirðumál. Hafn-
aryfirvöld og heilbrigðisfulltrúar eiga
að hafa eftirlit með að sorpi frá skip-
unum verði eytt með öruggum hætti
við komuna til landsins og þá annað-
hvort urðað eða brennt eftir því sem
aðstæður í viðkomandi höfnum leyfa.
Að sögn Halldórs er einnig verið að
skipuleggja eftirlit í samráði við toll-
og löggæslu með komu ferjunnar
Norrænu til Seyðisfjarðar í sumar en
fyrst leggst ferjan að bryggju 24. maí
nk. Fræðslu á að koma til farþega um
að stranglega sé bannað að koma með
hráar vörur til landsins eins og hrátt
kjöt og ógerilsneydda osta. Einnig
verða farþegar minntir á að koma
með hrein föt og skófatnað og hafa
ökutækin hrein.
Aðgerðir gegn gin- og klaufaveiki
Flugfreyjur
ávarpa farþega
HÆSTI tindur landsins, Hvannadalshnúkur í Öræfa-
jökli, skartaði sínu fegursta á páskadag og gengu tíu
manns í þremur hópum á fjallið í sólskini og góðu færi.
Einar Sigurðsson, leiðsögumaður í Hofsnesi, sem hér
sést skíða niður af hnúknum hefur farið yfir 140 sinn-
um á fjallið og er orðinn hagvanur þar efra. Margir
voru samt að klífa fjallið í fyrsta sinn og var því glatt á
hjalla á tindinum í 2.119 m hæð eftir allt að 10 klst.
göngu. Snjófylla var í öllum sprungum á jöklinum og á
tindinum sjálfum var NV 13–18 m/sek og nokkuð frost.
Stórkostlegt útsýni blasti við fjallgöngumönnum, allt
til Herðubreiðar og Snæfells.
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Hvannadalshnúkur í páskasól