Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ reglugerð um gerð lyfseðla og
ávísun lyfja tók gildi 1. apríl síðastlið-
inn. Einn liður hennar, sem snýr að
afhendingu lyfja í síma, hefur valdið
annríki í mörgum heilsugæslustöðv-
um þar sem sjúklingar hringja og
kvarta. Nú er læknum ekki lengur
heimilt að ávísa í síma ávana- og fíkni-
lyfjum og lyfjum sem ekki hefur verið
veitt markaðsleyfi fyrir, nema um sé
að ræða lyf sem framleitt er í íslenskri
lyfjabúð. Þá hefur algengt svefnlyf,
rohypnol, bæst í hóp eftirritunar-
skyldra lyfja en þeim hefur ekki verið
hægt að ávísa í síma til þessa. Með
ávana- og fíkniefnum er átt við lyf
sem valda fíkn, þ.e. svefnlyf, verkjalyf
og róandi lyf sem innihalda kodein.
Samkvæmt upplýsingum úr heil-
brigðisráðuneytinu var farið að bera á
mikilli misnotkun á lyfjum eins og
rohypnol. Meðal annars var það notað
í glæpsamlegum tilgangi á skemmti-
stöðum og sett út í drykki hjá konum
til að misnota þær kynferðislega.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins hefur hver tafla af þessu lyfi verið
seld á 1000-2000 krónur á svörtum
markaði.
Ingolf J. Petersen, lyfjamálastjóri í
heilbrigðisráðuneytinu, sagði við
Morgunblaðið að breytt reglugerð
hefði m.a. komið til vegna tilskipunar
frá Evrópusambandinu. Einnig hafði
borið á tíðum fölsunum á lyfseðlum í
gegnum síma og því ástæða til að
herða eftirlitið. Að sögn Ingolfs hafa
komið upp á þriðja hundrað tilvik
falsana með lyfseðla á síðustu tveimur
árum og eru símsendir seðlar þar á
meðal.
Ingolf sagði að svefnlyfið rohypnol
væri komið í annan lyfjaflokk í Evr-
ópu og að auki væri lyfið bannað í
Bandaríkjunum. Hann sagði skiptar
skoðanir einnig vera á meðal lækna
um ágæti lyfsins.
„Ég hef farið víða og kynnt þessa
reglugerð og flestir læknar hafa tekið
henni fagnandi. Þeir sjá að vísu fyrir
sér aukna skriffinnsku eða þá að sjúk-
lingar verða settir á önnur lyf.
Athugasemdir innan
stjórnar Læknafélagsins
Sárafáar kvartanir hafa borist á
borð til okkar en við heyrum ávinning
af ónægju með þetta meðal sjúklinga.
Þetta mun ganga yfir á meðan menn
eru að átta sig á þessum breytingum.
Breytingum er yfirleitt ekki vel tek-
ið,“ sagði Ingolf.
Stjórn Læknafélags Íslands hefur í
tvígang fjallað um þessa lyfjareglu-
gerð á sínum fundum. Sigurbjörn
Sveinsson, formaður félagsins, sagði
við Morgunblaðið að hann hefði í sín-
um störfum sem heilsugæslulæknir
orðið var við óánægju sjúklinga og að-
standenda þeirra með þessa reglu-
gerð.
Skiljanlega valdi þetta auknu álagi
og vandkvæðum innan fjölskyldna
sjúklinga sem hafa notað umrædd lyf
og eiga erfitt með að fara út úr húsi,
einkum eldra fólk.
Sigurbjörn sagði að Læknafélagið
hefði ákveðnar athugasemdir við
sumar greinar reglugerðarinnar.
„Menn hafa ýmsar athugasemdir
bæði við gerð lyfseðlanna sjálfra og
það sem á að koma fram á þeim og
einnig breytingar á heimild til sím-
sendinga lyfseðla. Við höfum einnig
rætt um breytta stöðu lyfja gagnvart
reglugerðinni og breytta meðferð
svefnlyfja og róandi lyfja. Mönnum
gengur gott eitt til með þessum
breytingum og mér finnst rétt að við
látum á þessa reglugerð reyna þannig
að hægt sé að koma þá fram með
skynsamlega og uppbyggjandi gagn-
rýni til bóta og flýta sér hægt í þeim
efnum,“ segir Sigurbjörn.
Hann segir nokkur bráðavandamál
hafa komið upp en það sé ekki sjálf-
gefið að leysa þau með enn öðrum
breytingum á reglugerðinni. Læknar
og heilbrigðisyfirvöld þurfi að vera
samstíga ef reynslan af reglugerðinni
leiðir í ljós alvarlega meinbugi í þess-
um efnum.
Suma lyfseðla má myndsenda
Ýmir Vésteinsson, lyfjafræðingur
hjá Lyfju, sagðist hafa átt von á meiri
vandkvæðum á framkvæmd reglu-
gerðarinnar en orðið hefur. Reglu-
gerðin hefði hlotið góða kynningu
meðal lækna og lyfjafræðinga en
skiljanlega hefði breytingin valdið
sumum sjúklingum erfiðleikum.
Langflestir hefðu þó tekið þessu vel.
Ýmir benti á að eftir sem áður væri
læknum heimilt að myndsenda lyf-
seðla fyrir ákveðnum lyfjum í lyfja-
búðir á þartilgerðum eyðublöðum og
samkvæmt ákveðnum uppfylltum
skilyrðum.
Ný reglugerð um ávísun lyfja veldur óánægju meðal sjúklinga og álagi á heilsugæslustöðvum
Sumum lyfjum
ekki ávísað
lengur í síma
Morgunblaðið/Ásdís
Ávana- og fíknilyfjum hefur frá 1. apríl síðastliðnum ekki verið hægt að ávísa í síma.
Stjórn Læknafélagsins hefur
fjallað um málið
BORGARYFIRVÖLD stefna að því
að banna nektardansstaði í öllum
helstu miðhverfum borgarinnar en
ekki bara í miðborginni, starfsemin
verður þó áfram leyfð í iðnaðarhverf-
um. Þetta kom fram í samtali Morg-
unblaðsins við Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra, en í síð-
ustu viku samþykkti skipulags- og
byggingarnefnd Reykjavíkur breyt-
ingu á deiliskipulagi Kvosarinnar en
tilgangur hennar er að koma í veg
fyrir að nektardansstöðum á svæð-
inu fjölgi og færa landnotkun svæð-
isins til samræmis við landnotkun
aðalskipulags Reykjavíkur. Þeir
staðir sem þegar hafa starfsleyfi fá
að starfa áfram.
Borgaryfirvöld mótuðu þá stefnu í
borgarráði síðasta sumar að setja
ákveðin skilyrði inn í deiliskipulags-
skilmála sem bönnuðu starfsemi
nektardansstaða í miðhverfum borg-
arinnar. Ingibjörg sagði að undir
miðhverfi flokkuðust staðir þar sem
stærri verslunar- og eða þjónustu-
miðstöðvar væru staðsettar eins og
Kringlusvæðið, Mjóddin í Breiðholti,
Spöngin í Grafarvogi og Hraunbær.
Óæskileg þróun
Ingibjörg sagði að stefnumótunin
ætti sér nokkuð langan aðdraganda
eða allt aftur til ársins 1997 til 1998
þegar sjö nektardansstaðir hefðu
opnað í miðborginni. Hún sagði að
borgaryfirvöldum hefði fundist þetta
óæskileg þróun en að þau hefðu ekki
haft nein tæki til að sporna gegn
henni, eins og löggjöfin hefði verið.
Því hefði verið haft samband við
dómsmála-, félagsmála- og sam-
gönguráðuneytið um að endurskoða
löggjöfina með tilliti til þess að sveit-
arfélög hefðu einhver ráð til sporna
gegn fjölgun nektardansstaða ef þau
kysu. Í framhaldinu hefði lögunum
verið breytt og sett inn skilgreining
um næturklúbba sem gerði sveitar-
félögum það kleift að banna starf-
semina á þeim svæðum sem þau
vildu með deiliskipulagsbreytingu.
Hún sagði að borgaryfirvöldum
hefði borist ein fyrirspurn fyrir
skömmu þar sem spurt hefði verið út
í möguleikann á að opna nektardans-
stað í Austurstræti og að þau hefðu
hafnað þeim möguleika á grundvelli
þess sem að ofan greinir.
Starfandi nektardansstaðir
verða áfram í miðborginni
Að sögn Ingibjargar stendur ekki
til að banna nektardansstaði á iðn-
aðarsvæðum eins og t.d. á Ártúns-
höfða, þá sagði hún að ekki stæði
heldur til að banna starfsemina á
Grensásvegi, í Síðumúla og Ármúla.
Í miðborginni eru þegar starf-
ræktir nokkrir nektardansstaðir
sem fengu rekstrarleyfi áður en lög-
gjöfinni var breytt. Ingibjörg sagði
að ekki stæði til að banna starfsemi
þeirra né heldur að endurnýja ekki
leyfin nema staðirnir brytu eitthvað
af sér. Aðspurð sagðist hún ekki telja
að það bryti í bága við lög að hafna
nýjum umsækjendum um rekstrar-
leyfi í miðborginni þó aðrir nektar-
dansstaðir væru starfræktir þar.
Starfsemi nekt-
ardansstaða
leyfð í iðnaðar-
hverfum
FLUGMENNIRNIR Sigurður Arn-
ar Runólfsson, Viktor Viktorsson
og Hergill Sigurðsson eru lentir í
Addis Abeba í Eþíópu eftir langt
flug á eins hreyfils flugvél frá
Reykjavík.
Flugið hófst í Reykjavík 25.
febrúar. Félagarnir höfðu síðast
viðkomu í Ljúbljana í Slóveníu og
héldu þaðan til Krítar þar sem
þeir voru fjóra daga meðan beðið
var eftir yfirflugsheimild yfir Súd-
an. Lengri tíma tók að fá heimild-
ina en aðrar á ferðalaginu vegna
þess að borgarastyrjöld hefur
geisað í landinu síðustu fjórtán ár.
Lagt var af stað frá Krít 11.
apríl sl. og flogið var til Luxor í
Egyptalandi. Þaðan var síðan
haldið yfir Súdan. Í tölvupósti frá
þeim félögum segir að flugið yfir
Súdan hafi tekið átta klukku-
stundir og ekki annað að sjá úr
lofti en sól og sand. Þegar komið
var inn að landamærum Eþíópíu
hafi landslagið breyst og er nær
samfelld byggð strákofa frá
landamærum Súdans að Addis
Abeba. „Er þessu flugi nú lokið og
ekki er laust við að nokkur sökn-
uður sé eftir flugvélinni okkar TF
GMT. Hún er nú að fara að sinna
mjög áhugaverðu og þörfu starfi
hér í Afríku undir stjórn Helga
Hróbjartssonar,“ segir í tölvupósti
þeirra félaga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndin er tekin á Reykjavíkurflugvelli í febrúar áður en haldið var af stað í ferjuflugið til Eþíópíu. Talið frá
vinstri: Friðrik Hróbjartsson, Friðrik Ingi Friðriksson, Viktor Viktorsson og Sigurður Arnar Runólfsson.
Lentir í Addis
AbebaFYRIRTÆKIÐ Halló!-Frjáls fjar-
skipti hafa ákveðið að fara inn á inn-
anlandsmarkað með innanlandssím-
töl sem er viðbót við þjónustu
fyrirtækisins, segir m.a. í frétt frá
fyrirtækinu. Er staðhæft að fyrir-
tækið bjóði heildarlausn fyrir heimili
og fyrirtæki á samkeppnishæfu
verði.
Markaðshlutdeild fyrirtækisins er
í fréttinni sögðum 8% af heimilis-
markaðnum. Viðskiptavinir fyrir-
tækisins eru að nálgast 10.000
manns og miðað við núverandi vöxt
muni þeir verða um 16.000 í lok
þessa árs.
„Halló! hefur nú fjárfest í nýrri
símstöð frá Telsis sem mun auka
þjónustumöguleika fyrirtækisins
sem og bæta enn gæði í utanlands-
símtölum,“ segir jafnframt.
Ætla að bjóða
heildarlausnir
Halló!-Frjáls fjarskipti