Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 16
Morgunblaðið/Kristján
GÓÐA veðrið lék við Akureyringa í
gær og sól skein í heiði. Eins og jafn-
an á sólríkum dögum þyrstir marga
í ís og þá verður hinn landsfrægi
Brynjuís oft fyrir valinu. Andrea
Davíðsdóttir og Hannes Rúnar
Hannesson voru einmitt í þeim hópi
en þau voru að sleikja sólskinið og
Brynjuís þegar ljósmyndari Morg-
unblaðsins rakst á þau. Hitamæl-
irinn á lögreglustöðinni á Akureyri
sýndi yfir 8 stiga hita um miðjan dag
í gær en hitamælirinn á Ráðhústorgi
fór hins vegar í 18 stiga hita á sama
tíma. Þótt veðrið leiki við Akureyr-
inga þessa dagana er útlitið ekkert
allt of bjart, því á sunnudag á hann
að snúa sér til norðlægrar áttar með
slyddu eða snjókomu norðanlands.
Sleikja ís
og sól
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs
Svarfdæla, Dalvík,
verður haldinn í safnaðarheimili
Dalvíkurkirkju miðvikudaginn
25. apríl nk. kl. 20.30
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf
samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Dalvík, 17. apríl 2001.
Stjórnin.
A
k
u
r
e
y
r
i
Föstudags- og laugardagskvöld
Stórdansleikur
Hljómsveitin Hálft í hvoru
með Eyjólf Kristjánsson í fararbroddi
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga
hyggst leggja fram róttækar til-
lögur um breytingar um rekstrar-
formi félagsins, fyrir aðalfund í lok
þessa mánaðar. Þær miða að því að
færa allan rekstur félagsins yfir í
hlutafélög. Fjölmörg dótturfyrir-
tæki KEA hafa þegar verið hluta-
félagavædd og má þar nefna Norð-
urmjólk, Norðlenska og Matbæ.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjórnarformaður KEA, sagði stefnt
að því að stofna hlutafélagið KEA
hf. fyrir aðalfundinn framundan,
sem tekur yfir eignir og skuldbind-
ingar samvinnufélagsins KEA.
Samvinnufélagið mun hins vegar
eiga hlutafélagið KEA hf. að öllu
leyti í upphafi. Í framhaldinu er
stefnt að því að eigendur svokall-
aðra B-deildarbréfa eignist 14,2% í
KEA hf. í staðinn fyrir sambæri-
legan hlut í samvinnufélaginu og að
almennir félagsmenn, sem eru 7–8
þúsund, eignist einnig allt að 14,2%
í staðinn fyrir hlut í samvinnufélag-
inu en að það félag eigi þá eftir rúm
70% í hlutafélaginu.
Jóhannes Geir sagði að með þess-
um aðgerðum sé stefnt að því að
uppfylla skilyrði um 25% dreifða
eignaraðild sem þarf til þess að
setja KEA hf. á almennan hluta-
bréfamarkað.
Fjármunir KEA nýttir
til uppbyggingar
Til að það gangi eftir þarf að
gera nauðsynlegar lagabreytingar
sem eru í lokaafgreiðslu á Alþingi.
Þær breytingar lúta m.a. að heimild
til niðurfærslu á B-deildarbréfum
og að heimilt verði að afhenda al-
mennum félagsmönnum beina eign-
araðild í KEA hf. samkvæmt þar til
gerðum reglum.
Jóhannes Geir sagði að gert væri
ráð fyrir að eignarhlutur samvinnu-
félagsins verði minnkaður eftir að
hlutafélagið fer á markað niður í
þriðjung og jafnvel fjórðung og þeir
fjármunir sem munu fást við sölu
bréfanna verði notaðir til uppbygg-
ingar á félagssvæði KEA.
Miðað við að þessar breytingar
gangi eftir, má gera ráð fyrir að
félagsmaður í KEA sem á 1.000
krónur í stofnsjóði, eignist hluta-
bréf að verðmæti 40–50 þúsund
krónur í KEA, miðað við eigið fé
félagsins um síðustu áramót. Raun-
verulegt verð hlutabréfsins ræðst
síðan af gengi þess á markaði en
Jóhannes Geir sagði að það yrði
örugglega hærra en þetta. Félags-
maður sem á 100 þúsund krónur í
stofnsjóði fær hins vegar hlutabréf
að verðmæti tæplega 300 þúsund
krónur í hlutafélaginu, miðað við
sömu forsendur.
Þessa dagana standa yfir aðal-
fundir í einstökum deildum KEA,
þar sem fyrirliggjandi tillögur eru
kynntar. Fyrsti fundurinn var í Ak-
ureyrardeild í fyrrakvöld og sagði
Jóhannes Geir að þar hafi tillög-
urnar fengið mjög jákvæða umfjöll-
un.
Róttækar breytingar fyrirhugaðar á Kaupfélagi Eyfirðinga
Stefnt að stofnun
hlutafélagsins KEA
Gleðifundur í
Minjasafninu
SUMARKOMUNNI verður fagnað í
Minjasafninu á Akureyri í dag, sum-
ardaginn fyrsta, með gleðifundi eins
og það er orðað í frétt frá safninu.
Gestum verða boðnar lummur og
kakó, allir taka lagið við orgelið í
betri stofunni og nemendur úr Tón-
listarskólanum á Akureyri syngja ís-
lensk þjóðlög. Opið verður frá kl.14–
16 og aðgangseyrir er 300 kr., frítt
fyrir ellilífeyrisþega og börn undir
tólf ára aldri.
Fermingar í dag
VALLAKIRKJA í Svarfaðar-
dal: Fermingarguðþjónusta
verður í dag kl. 13. Fermd
verða Helena Sif Halldórsdótt-
ir og Sólveig Björg Halldórs-
dóttir, Brimnesbraut 1 á Dal-
vík, og Sigurjón Örn Vilhjálms-
son frá Másstöðum í Svarfað-
ardal. Prestur: Magnús Gamal-
íel Gunnarsson.
HÓLAKIRKJA: Ferming kl.
11 í dag. Fermdur verður Þór-
ólfur Óskarsson frá Grænuhlíð.
Prestur: Hannes Örn Blandon.
Sumargleði
á Hjálpræð-
ishernum
UNGLINGASTARF Hjálpræðis-
hersins á Akureyri heldur sumargleði
í dag, sumardaginn fyrsta. Sumar-
gleðin hefst kl. 20 og er aðgangur
ókeypis.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá
verður í boði, m.a. leikþáttur, söngur,
spurningakeppni, glens og grín. Boð-
ið verður upp á kaffihlaðborð gegn
vægu gjaldi og einnig verður hægt að
freista gæfunnar í happdrætti.
Sumargleðin er liður í fjáröflun
unglinga sem sækja fund á Hjálpræð-
ishernum en þeir hyggja á utanlands-
ferð í sumar.
Menningarmálanefnd Akur-
eyrar stendur fyrir sam-
komu í Ketilhúsinu við
Kaupvangsstræti í dag, sum-
ardaginn fyrsta kl. 15.
Klukkustund síðar verður á
sama stað opnuð málverka-
sýning Sigurðar Árna Sig-
urðarsonar, bæjarlista-
manns Akureyrar, en sýn-
ingin stendur til 12. maí.
Á vorkomu menningar-
málanefndar verður að venju
tilkynnt hverjir hljóti starfs-
laun listamanna næsta
starfsár og hverjir hljóti við-
urkenningar menningar- og
húsverndarsjóðs í ár. Einnig
verður Ketilhúsið vígt sem
fjölnota menningarhús eftir
gagngerar endurbætur og
húsið afhent Gilfélaginu til
notkunar.
Sigurður Árni er Akureyr-
ingur að uppruna en hann
hefur starfað í Reykjavík og París
undanfarin ár. Hann hefur ekki hald-
ið einkasýningu á Akureyri frá árinu
1994 en þá dugði ekkert minna en
allt Listasafnið undir sýningu hans.
Hins vegar hefur hann tekið þátt í
samsýningum í bænum.
Sigurður Árni sagði að kominn
væri tími til að sýna á Akureyri á ný
en á sýningunni í Ketilhúsinu bland-
ar hann saman módelum og olíumál-
verkum og eru flest málverkanna ný.
Hann var kominn með átta málverk í
Ketilhúsið í gær en sagði alls óvíst
hveru mörg verk yrðu á sýningunni.
Módelin, sem eru úr áli og allt að 3,50
m á hæð, hafa ekki áður verið sýnd
hélendis en þau hafa verið sýnd á
Ítalíu og í Frakklandi.
„Það er kærkomið að sýna í Ket-
ilhúsinu en ég lít á verkin á sýning-
unni sem eina heild, þar sem sömu
form koma fram í þeim öllum.“
Sigurður Árni sýnir í Ketilhúsinu
Sigurður Árni Sigurðarson myndlistar-
maður ásamt syninum Jökli við verk sitt.
Menningarmála-
nefnd með vorkomu
Morgunblaðið/Kristján
♦ ♦ ♦