Morgunblaðið - 19.04.2001, Side 52
UMRÆÐAN
52 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKVÆMT frumvarpi til
nýrra þjóðminjalaga, sem nú
er til skoðunar hjá mennta-
málanefnd Alþingis, er þjóð-
minjaverði ætlað að hafa al-
hliða ákvarðanavald yfir
þjóðminjavörslunni í heild. Svo
það helsta sé tínt til er þjóð-
minjaverði ætlað að vera yfir-
maður Þjóðminjasafns Íslands
og fornleifavörslunnar í senn,
þótt reyndar sé gert ráð fyrir
því að undirmaður hans reki
safnið, en beri þó samtímis
„fjárhagslega ábyrgð á rekstri
safnsins gagnvart þjóðminja-
verði“ (frumvarp til þjóðminja-
laga, III. kafli, 5. grein). Þá er
þjóðminjaverði ætlað að
marka stefnu og gera langtímaáætlun
um þjóðminjavörsluna í heild (þ.e.
fornleifavörsluna og starfsemi menn-
ingarminjasafna), veita leyfi til út-
flutnings menningarverðmæta (svo
sem forngripa, náttúrugripa, bóka,
skjala, handrita og listmuna) og taka
ákvarðanir um skil á slíkum verð-
mætum til annarra landa. Þjóðminja-
verði er auk þess ætlað að veita leyfi
til fornleifarannsókna, hafa eftirlit
með og úthluta fjármagni til fornleifa-
rannsókna, ákveða hvort og þá hvaða
fornleifarannsóknir verði boðnar út,
ákveða hver fái verkefnin jafnframt
því að vera yfirmaður Þjóðminjasafns
sem stundar fornleifarannsóknir!
Þjóðminjaverði er samkvæmt þessu
ætlað að sitja beggja vegna borðs
með því að sinna stjórnsýslueftirliti
með eigin framkvæmdum sem yfir-
maður Þjóðminjasafns og fornleifa-
vörslunnar í senn. Það gefur augaleið
að slíkt alhliða forræðishyggjuvald
stangast á við ákvæði gildandi stjórn-
sýslulaga og samkeppnislaga. Þar af
leiðandi er lítið útlit fyrir að slíkt of-
urvald á einni hendi muni skapa al-
menna sátt þegar á reynir, heldur öllu
heldur hefta frumkvæði til athafna og
eðlilega samkeppni í íslenskum
minja- og safnamálum.
Sé það á dagskrá stjórnarþing-
flokkanna á Alþingi að skapa almenna
sátt um skipan fornleifamálanna
skiptir sköpum að aðskilja eftirlitið
með verndun, viðhaldi og uppgreftri
fornleifa frá allri þeirri starfsemi sem
Þjóðminjasafninu er ætlað
að sinna. Við það er því að
bæta að nær allir fornleifa-
fræðingar landsins og marg-
ir safnamenn, þeirra á með-
al reyndustu starfsmenn
Þjóðminjasafns Íslands, eru
á einu máli um það að slíkur
aðskilnaður sé þegar orðinn
tímabær. Slík skipan myndi
samtímis ýta undir að þeir
sem hafa tilskilda fræðilega
burði fái jafnt tækifæri til að
sinna rannsóknaruppgröft-
um og öðrum fornleifaverk-
efnum á eðlilegum sam-
keppnisgrunni. Á hinum
Norðurlöndunum hvílir það
á embættum ríkisminja-
varða sem sjálfstæðra ríkisstofnana,
að framfylgja eftirlitinu með verndun
fornleifa, og því mætti telja slíka skip-
an eðlilega hérlendis. Einnig hefur
verið lagt til að fornleifaverndin heyri
undir Fornleifavernd ríkisins sem
sérstaka ríkisstofnun, samanber
Náttúruvernd ríkisins sem sér um
eftirlitið með verndun náttúruminja.
Aðskilnaður fornleifavörslunnar
frá Þjóðminjasafni þarf ekki að kalla á
auknar fjárveitingar á fjárlögum sé
miðað við gildandi þjóðminjalög. Vert
er að benda á að safnið er nú þegar
rekið á tveimur stöðum. Aðskilnaður
mun enn síður kalla á auknar fjárveit-
ingar á fjárlögum verði eftirlitinu með
fornleifaverndinni tryggðir fastir
tekjustofnar með lögboðnum um-
sagnarskyldum vegna skipulagsút-
tekta, mats á umhverfisáhrifum eða
almennra framkvæmda sem raskað
gætu fornleifum. Væri fornleifa-
verndinni skipað til hliðar við Nátt-
úruvernd ríkisins myndi það ekki ein-
ungis ýta undir heildstæða
umhverfisvernd, heldur ekki síður
aukinn rekstrarsparnað af ríkisins
hálfu.
Framtíðarsýn
Þótt þjóðin byggi við sára fátækt í
upphafi síðustu aldar vandaði alda-
mótakynslóðin að baki nýrri heima-
stjórn það vel til fyrstu minjalöggjaf-
ar okkar, laga um verndun fornminja
frá 1907, að þau lög voru um margt
ein framsýnustu minjalög í Evrópu á
þeim tíma. Þar af leiðandi mætti ætla
að íslenska þjóðin, sem skipar eitt af
efstu sætunum í veraldlegum efnum
meðal þjóða heims, hefði efni á því nú
við upphaf nýrrar aldar að setja lög til
verndar eigin fornleifum sem horfa til
framtíðar ásamt því að innleiða skýr-
ar leikreglur í rekstri fornleifamál-
anna í heild.
Um tímabæran aðskiln-
að fornleifavörslunnar
frá Þjóðminjasafni
Kristín Huld
Sigurðardóttir
Þjóðminjalög
Ætla mætti að íslenska
þjóðin hefði efni á því nú
við upphaf nýrrar aldar,
segja Kristín Huld Sig-
urðardóttir og Margrét
Hermanns Auðardóttir,
að setja lög til verndar
eigin fornleifum.
Kristín Huld leiðir kennslu í
forvörslu forngripa við Háskólann í
Ósló. Margrét er formaður
Fornleifafræðingafélags Íslands.
Margrét Hermanns
Auðardóttir
Njálsgötu 86,
s. 552 0978
Handklæði
með nafni
1.500 kr.
Gleðilegt sumar!
GLEÐILEGT SUMAR!
DOMUS MEDICA KRINGLUNNI AKUREYRI
Nike Props II
st. 27-35
verð kr. 4.995
Nike Solo
litur: svart
st. 19,5-26 verð kr. 3.995
st. 27-35 verð kr. 4.995
st. 35,5-38½ verð kr. 6.995
DKNY 46117043T
Stærð og verð
18,5-27 = 4.995,-
28-35 = 5.995,-
35,5-38,5 = 6.995,-
Litir: Rautt, ljósblátt, blátt
DNKY 46117203T
Stærð og verð
18,5-27 = 4.995,-
28-35 = 5.995,-
35,5-38,5 = 6.995,-
Litir: Rauðir/hvítir og bláir/hvítir
Pokémon
Strigaskór
st. 26-34 verð kr. 2.995
Sandalar
st. 26-34 verð kr.2.995
Stígvél
st. 26-34 verð kr. 1.495