Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 45
mikið er af einstefnu-
akstursgötum í
hverfinu og vildu börn-
in breyta einstefnu á
Eyrarvegi og Ránar-
götu. Þá vantaði betri
lýsingu (lýsingu sem
lýsir upp gangbraut-
ina) á gangbraut á
Norðurgötu við Víði-
velli. Einnig vantar
gangbraut á Eyrarveg,
Sólvelli og Grenivelli.
Nemendur Glerár-
skóla töldu að það ætti
að gera undirgöng
undir Hörgárbraut við
Þverholt. Þá vantar
betri lýsingu á göngu-
leið nemenda sem koma eftir Há-
hlíð. Gangbrautir vantar á Skarðs-
hlíð bæði við Höfðahlíð og
Sunnuhlíð.
Nemendur Giljaskóla töldu að
setja ætti gangbrautarljós á Hlíð-
arbraut norðan Hlíðarfjallsvegar.
Einnig betri gangbraut með lýsingu
á Borgarbraut við Bugðusíðu.
Nemendur Síðuskóla töldu að það
vantaði gangbrautir á Vestursíðu,
Bugðusíðu, Miðsíðu og Teigarsíðu.
Þá vanti sárlega betri lýsingu á
gönguleið að skólanum frá Vestur-
síðu og að lagfæra þá leið. Nemend-
ur gerðu einnig athugasemd við
gangbrautir yfir Hlíðarbraut en til
að komast í íþróttir verða þau að
fara yfir þessa fjöl-
förnu götu.
Nemendur Lundar-
skóla gerðu margar at-
hugasemdir við hverfið
sitt. Töldu þeir meðal
annars að ökuleið að
skólanum væri alls
ófullnægjandi enda
væri þetta oft á tíðum
eina færa leiðin fyrir
gangandi vegfarendur.
Þá töldu nemendurnir
að gangbrautir með
lýsingu vantaði á Skóg-
arlund, Mýrarveg og
Byggðaveg. Koma ætti
í veg fyrir að ökutækj-
um væri ekið eftir
gangstíg frá Hrísalundi norður á
Þingvallastræti vestan við KA-
svæðið. Þá þyrfti að lýsa gönguleiðir
betur að skólanum. Þá gerðu nem-
endur margar athugasemdir við um-
ferð um Þingvallastræti. Einn hóp-
urinn lagði til að byggð yrði
göngubrú yfir Þingvallastræti og ef
til væru peningar mætti alveg hafa
brúna yfirbyggða. Einn úr hópnum,
Andri Már Jónsson, gerði teikningu
af brúnni. Þá töldu nemendur að
fjölga mætti gangbrautarvörðum.
Nemendur Brekkuskóla töldu að
gangbrautir vantaði á Hamarsstíg,
Byggðaveg og Hrafnagilsstræti. Þá
væri Spítalavegur án gangstéttar og
væri það mjög óþægilegt fyrir gang-
andi vegfarendur. Þá óskuðu nem-
endurnir eftir að bætt yrði úr leið yf-
ir Skólastíg við Möðruvallastræti en
þar er einnig mikil umferð ökutækja
með nemendum á leið í skólann.
7. bekkur kom í heimsókn á lög-
reglustöðina.
Mjög ánægjulegt var að verða var
við þann áhuga er nemendur sýndu
og vonandi fylgja foreldrar því eftir
því að heima fyrir ætti að fara fram
stöðug fræðsla í formi góðrar fyr-
irmyndar.
Þorsteinn
Pétursson
Fræðsla
Öllum sem að koma
er ljóst, segir
Þorsteinn Pétursson,
að umferðarfræðsla
ungra vegfarenda er
þeim nauðsyn og nýtist
þeim alla ævina.
Höfundur er lögreglumaður á
Akureyri og sér þar um umferð-
arfræðslu í skólum.