Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 47
uðu
ður.
m af
sjö
þeim
gæt-
n frá
rjár
um
og
efur
núna
það
am í
ðan
efur
, en
tætt
r og
tt og
n af
nar,
n ár
eðan
auk
pp í
ver-
nns í
n við
stur
það
æstu
m að
essu
mars
ggja
efur
með
um átta tonn að landi í fyrradag og um fimm tonn í gær.
„Ég er hæstánægður með þetta,“ segir Viktor Jóns-
son, skipstjóri, en með honum eru Sigurður Friðfinnsson
og Brynjólfur Gíslason. „Það er ekki oft sem maður lend-
ir í löndunarbið eins og nú en bátarnir eru oft að landa
hérna frá hádegi og fram á kvöld.“
Eins og hjá öðrum bátum í Grindavík þennan daginn
er góður og stór þorskur í aflanum en ein og ein langa
inni á milli. „Það er að koma löngutímabil núna en við
vorum út af Krísuvíkurbergi og fengum þetta á 30 til 50
faðma dýpi. Hérna eru sennilega um 15 til 20 netabátar
og í verkfallinu sitjum við einir að þessum göngum. Veið-
in hefur verið ágæt hjá okkur enda erum við þrír mjög
samhentir karlar á. Þetta er mjög góð áhöfn og svo erum
við með góð net sem skila þessum árangri. Við byrjuðum
með 54 net og erum venjulega með 45 til 54 net. Það týn-
ist alltaf úr þeim og þau voru komin niður í 41 þegar við
fórum í páskafrí, en eftir páska höfum við verið með átta
tommu net. Hólmgrímur Sigvaldason, tengdafaðir minn,
slægir í landi og það skiptir miklu máli því fyrir vikið er-
um við fljótari að draga, drögum stanslaust, og þá gengur
þetta betur.“
Viktor segir að ekki sé stoppað meðan hægt sé að
halda áfram. „Við náðum 29 róðrum í mars en tókum
okkur vikufrí um páskana til að hlaða batteríin og gera
við vélarbilun. En annars er ekkert stopp.“
Næg vinna
Þróttur ehf. er með viðskipti við Maron og tvær aðrar
trillur auk þess sem keypt er á markaði vegna saltfisk-
vinnslunnar. Þórarinn Ólafsson, framkvæmdastjóri, seg-
ir að trillurnar hafi bjargað vinnslunni í verkfallinu.
„Litlu trillurnar hafa mokfiskað og því hefur þetta verið
ágætt. Ég átti jafnvel von á að framboð yrði lítið á fisk-
mörkuðunum en trillurnar hafa bjargað okkur og í raun
hefur verðið á netafiskinum ekki hækkað fyrr en nú eftir
páska. Það gerist um leið og flugkarlarnir, sem hafa
keypt línufiskinn, sækja jafnframt í netafiskinn.“
Þórarinn segir að trillurnar sem hann kaupi af hafi
verið að fá frá tveimur og upp í átta tonn á dag og hann
hafi fengið allt upp í um 20 tonn í verkunina á dag en ann-
ars hafi þetta verið misjafnt eftir dögum. „Ég get tekið 50
til 60 tonn af slægðum fiski upp úr sjó á dag en miðað við
það tæki tvær til þrjár vikur að fylla húsið. Ég á nóg af
fiski til að pakka næstu tvær til þrjár vikur og þarf ekki
að segja neinum upp en við erum 10 fastir starfsmenn
auk þess sem bætt er við þegar á þarf að halda.“
Afli skipanna sem eru í verkfalli var mjög góður fyrir
verkfall og segir Þórarinn að hjá þeim hafi hann fengið
mjög góðan og stóran þorsk. Ítalir hafi keypt mikið af
saltfiski fyrir ári og Norðmenn upp á síðkastið en sá fái
sem hæst bjóði hverju sinni. Þórarinn segir að verkfallið
hafi ekki svo mikil áhrif á vinnsluna, því fyrirtækið sé það
lítið, en samt hafi það áhrif á fyrirtækið. „Ég vona að það
leysist sem fyrst því við erum með kvóta, sem við höfum
leigt fyrir 20 milljónir, bundinn á bátum sem eru í verk-
falli.“
Fólk sent heim og um 40 til 60 milljóna króna tap
Þó hljóðið væri almennt gott í smábátasjómönnunum
og verkendum á minni stöðum í Grindavík í gær var ekki
sömu sögu að segja hjá einu stærsta útgerðar- og fisk-
verkunarfyrirtæki landsins, Vísi hf. „Við höfum þurft að
senda 20 manns heim og seinni helmingurinn fer sömu
leið eftir um viku að öllu óbreyttu,“ segir Pétur Hafsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri. Núna vinnur fólkið við
pökkun og er 14 til 15 tonnum pakkað á dag en þegar
henni lýkur koma flakararnir aftur inn. „Við lukum við að
vinna fisk úr okkar bátum fyrir páska og eigum um 150
tonn af saltfiski á lager en fengum ekkert núna enda nær
saltfiskvinnslan ekki að keppa á markaðnum við aðra,
sem verða jafnvel að borga mjög hátt verð bara til að
uppfylla samninga. Vegna stöðunnar eru hús eins og okk-
ar almennt stopp eða við það að stoppa.“
Vísir er með rekstur á Djúpavogi og Þingeyri auk
starfseminnar í Grindavík og segir Pétur að verkfallið
hafi þýtt 15 til 20% minni framleiðni. „Framleiðnin er um
300 milljónir á ári og verkfallið hefur þegar kostað okkur
40 til 60 milljónir.“
ns
r
n
ð
r
davík frá áramótum.
Gabríel Guðmundsson á Hafsvölunni með einn vænan en fyrir aftan til vinstri er Haraldur Þorgeirsson, skipstjóri.
Morgunblaðið/RAX
Verkfall sjómanna nýtist vel til að dytta að flotanum og iðn-
aðarmenn í Grindavík eru ánægðir með lífið og tilveruna.
Brynjólfur Gíslason, Viktor Jónsson skipstjóri og Sigurður Frið-
finnsson geta verið ánægðir með árangurinn að undanförnu, en
aflaverðmætið hjá þeim á Maroni var um 18 til 20 milljónir í mars.
Feðgarnir Hafsteinn Sæmundsson, til vinstri, og Heimir Hafsteinsson hafa sjaldan veitt eins mikið, en þeir gera út Trylli GK frá Grindavík.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 47