Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 34
LISTIR
34 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VORTÓNLEIKAR Skagfirsku söng-
sveitarinnar í Reykjavík nú marka lok
þrítugasta starfsárs þessa þekkta átt-
hagakórs. Tvennir tónleikar verða í
vikunni, að vanda haldnir í Langholts-
kirkju. Hinir fyrri hefjast klukkan 17 í
dag, sumardaginn fyrsta, og hinir síð-
ari verða á laugardaginn, með sömu
tónlist og á sama tíma.
Að þessu sinni hefur kórinn fengið
til liðs við sig Öldu Ingibergsdóttur
sópran og Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson tenór. Undirleikari heitir
Sigurður Marteinsson og stjórnandi
Björgvin Þ. Valdimarsson. Hann er
jafnframt höfundur fjögurra verka
sem frumflutt verða á tónleikunum og
fellst á að segja blaðinu lítið eitt um
þau.
Áður má þó segja frá fleiri atriðum
efnisskrár; syrpu úr Leðurblökunni
eftir Jóhann Strauss og söngleikjum
eftir þá Rodgers og Hammerstein.
Einnig Sígaunakórnum og ástardúett
úr óperunni La Traviötu eftir
Giuseppi Verdi. Þarna láta einsöngv-
arar til sín taka ásamt kórnum, sem
að auki flytur verk eftir innlenda höf-
unda. Þá syngur Jóhann Friðgeir
Bikarinn með söngsveitinni. Hún flyt-
ur til viðbótar glænýtt afmælislag eft-
ir Björgvin, við ljóð Maríu K. Einars-
dóttur, Söngurinn alla nærir nefnist
það. María hefur sungið í kórnum frá
stofnun hans og var fengin til að
semja afmælisljóðið síðasta haust. Þá
lét hún duga að lesa það upp, en fær
nú að syngja kvæðið með félögunum.
Nýtt verk í afmælisgjöf
Fjölhæft fólk skipar söngsveitina
og sést það til dæmis á þessu; að
félagar í henni eru höfundar texta við
lögin fjögur eftir stjórnandann sem
frumflutt verða. Bjarni Stefán Kon-
ráðsson samdi ljóð við þrjú þeirra;
Börn, Hamingjuna og svo aðalverk
tónleikanna, Jörð. Fyrstnefnda ljóðið
fjallar um þá eymd sem mörg börn
búa við í heiminum, en heimsókn til
Brasilíu þar sem eymdin blasir víða
við varð kveikjan að þessu. Hamingj-
an er síðan dúett í óperettustíl og
fjallar ljóð Bjarna um hve oft menn
leita langt yfir skammt að þessum eft-
irsóttu lífsgæðum. Bæði lögin verða
flutt með einsöngvurunum.
En hápunktinn má vel kalla verkið
Jörð, sem er afmælisgjöf Björgvins
og Bjarna til vina þeirra í Skagfirsku
söngsveitinni. Textinn er semsagt
enn eftir Bjarna og fjallar um and-
stæður í nátturunni. Annars vegar
um gjöfula náttúru og hins vegar eyð-
andi krafta afla hennar. Með kórnum
syngja einsöngvararnir við undirleik
strengjasveitar og slagverks. Þetta
verk tekur nærri stundarfjórðung í
flutningi og segir Björgvin að það hafi
vaxið svona og dafnað í vetur þegar
það varð til.
Söngsveitin var
stofnuð á haustmánuð-
um 1970 af Skagfirð-
ingum búsettum í
Reykjavík. Fyrsti
stjórnandi sveitarinn-
ar var Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir, en frá
1983 hefur Björgvin
leitast við að hemja þá
60 karla og konur sem
syngja hjá honum. Nú
orðið eru ekki einvörð-
ungu Skagfirðingar í
kórnum, en samt er
hann áfram stoltur af
norðlenskum uppruna
sínum. Enda voru fyrri
afmælistónleikar, í
haust sem leið, á heimaslóðum nyrðra
auk Reykjavíkur.
Því má kannski ljóstra upp að ten-
órinn Jóhann Friðgeir rekur ættir
sínar norður yfir heiðar þótt hann hafi
alist upp í höfuðborginni. Sópran-
söngkonan Alda kemur svo úr Hafn-
arfirði, stjórnandinn Björgvin frá Sel-
fossi, píanistinn Sigurður af
Sauðákróki og skáldið María er Ár-
nesingur. Hitt skáldið, Bjarni, bætir
þetta allt saman upp með því að vera
hreinræktaður Skagfirðingur, af
Frostastöðum.
Á vortónleikum Skagfirsku söngsveitarinn-
ar í dag og á laugardag verða fjögur verk
frumflutt af þessum þrítuga kór og ein-
söngvurum. Þórunn Þórsdóttir heyrði í
höfundinum og stjórnanda kórsins.
Skagfirska söngsveitin heldur tvenna vortónleika í Langholtskirkju.
Alda
Ingibergsdóttir
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Skagfirskur
söngur
alla nærir
BARNABÓKAVERÐLAUN
fræðsluráðs Reykjavíkur voru veitt
í gær í Höfða. Var það í 29. sinn sem
fræðsluyfirvöld Reykjavíkur veita
verðlaunin, en tilgangur þeirra er
að örva metnaðarfullar ritsmíðar og
þýðingar fyrir börn, og vekja at-
hygli á því sem vel er gert á þeim
vettvangi.
Að þessu sinni hlaut Kristín Helga
Gunnarsdóttir verðlaunin fyrir
bestu frumsömdu bókina, Mói
hrekkjusvín, sem Mál og menning
gefur út. Hin viðburðaríka saga um
uppátækjasama stráka er að mati
dómnefndar bráðskemmtileg og vel
skrifuð. Kristín tók við verðlaun-
unum úr hendi Sigrúnar Magn-
úsdóttur, formanns fræðsluráðs
Reykjavíkur, og þakkaði heiðurinn
fyrir hönd Móa og annarra íbúa Silf-
urgötu. Hún ítrekaði jafnframt mik-
ilvægi þess að börn og fullorðnir
gefi sér tíma til að lesa góðar bæk-
ur, en sé þar um að ræða gríðarlega
mikilvægan þátt í þroska barna.
„Það er sorgleg staðreynd að víða í
okkar hraða og sjónvarpsglaða sam-
félagi gefst fullorðnum ekki ráðrúm
til að svala sagnaþörf barnanna,“
sagði verðlaunahöfundurinn.
Verðlaun fyrir bestu þýðingu
hlaut Kristín R. Thorlacius fyrir
þýðingu bókarinnar Engilbjört og
Illhuga eftir Lynne Reid Banks sem
Muninn gefur út. Sagan fjallar um
tvíburasystur og er önnur þeirra al-
góð en hin alslæm. Að mati dóm-
nefndar kemst sagan vel til skila í
lipurri íslenskri þýðingu, þar sem
orðfærið hjálpar til við að draga
fram þær spaugilegu hliðar sem
þrátt fyrir allt má finna á raunum
persónanna. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri flutti erindi í
upphaf afhendingarinnar, en Sig-
rún Erla Smáradóttir, formaður
verðlaunanefndar, kynnti verð-
launahafana. Fyrir frumsamið verk
eru veitt peningaverðlaun að upp-
hæð 250.000 krónur og 180.000
krónur fyrir verðlaunaða þýðingu.
Alls bárust úthlutunarnefndinni,
sem er skipuð af fræðsluráði
Reykjavíkur, 56 barna- og unglinga-
bækur sem út komu á árinu 2000, 32
frumsamdar og 24 þýddar.
Barnabókaverðlaun
fræðsluráðs afhent
Morgunblaðið/Kristinn
Kristín R. Thorlacius og Kristín Helga Gunnarsdóttir að lokinni verðlaunaafhendingunni í gær.
FJÖLMARGIR tón-
listarmenn samein-
ast um íslenska
þjóðlagið í Grafar-
vogskirkju í kvöld.
Þar hefjast klukkan
hálfníu tónleikar til
styrktar Þjóðlaga-
setri séra Bjarna
Þorsteinssonar á
Siglufirði. Þeir snú-
ast um íslenska kór-
tónlist og útsetning-
ar þjóðlaga, en séra
Bjarni vann ungur
mikið starf til að
safna saman þjóð-
lögum árin 1880 til
1905. Safn hans var
svo gefið út í Kaupmannahöfn
1906–9 og endurútgefið af Siglu-
fjarðarprentsmiðju þjóðhátíðar-
árið 1974.
Sú útgáfa Íslenskra þjóðlaga
er í þúsund síðna doðranti og
sem blaðamaður særði til láns
hjá Gunnsteini Ólafssyni, for-
manni félags um Þjóðlagasetur
séra Bjarna. Í bókinni eru grein-
argerðir Bjarna um þjóðlög,
söfnun þeirra og íslenskar söng-
og tónmenntir frá elstu tímum.
Þá tekur sjálft safnið við; lög úr
handritum sem hann las meðal
annars erlendis, lög úr prent-
uðum bókum og lög „skrifuð upp
eptir ýmsu fólki“ um allt land.
Nærri 300 söngvarar og hljóð-
færaleikarar standa að flutningi
þjóðlaganna í Grafarvogi í kvöld.
„Þarna verða nokkrir glæsileg-
ustu kórar landsins,“ segir
Gunnsteinn, „og þekktir ein-
söngvarar. Og við
sem vinnum að mál-
inu erum afar ánægð
með viðbrögð tón-
listarfólksins. Það
vill greinilega
flykkja sér um minn-
ingu þessa merka
frumkvöðuls og
menningararfinn.“
Sex kórar koma
fram: báðir kórar
Þorgerðar Ingólfs-
dóttur úr Hamra-
hlíð, Karlakór
Reykjavíkur og
Fóstbræður, Söng-
hópurinn Sólarmeg-
in Kammerkórar
Kópavogs og Suðurlands. Að
auki verður Caput-hópurinn á
tónleikunum og einsöngvararnir
Þorvaldur Halldórsson, Marta G.
Halldórsdóttir, Hlöðver Sigurðs-
son og Ólafur Kjartan Sigurð-
arson. Undirleikarar verða Örn
Magnússon og Antonia Hevesi.
Til að minnast starfs Bjarna
var félagið stofnað í hitteðfyrra
um undirbúning opnunar safns í
svokölluðu Madömuhúsi eða
Hafliðahúsi á Siglufirði. Þar á að
halda merki þjóðlagsins á lofti
og leyfa fólki að njóta þessarar
rammíslensku hefðar. Með því
að hlusta á þjóðlög á tónleikum
eða af upptökum ellegar lesa sér
til um þau. Gunnsteinn segir
stefnt að opnun setursins sum-
arið 2003, en við undirbúninginn
sé styrkur að reynslu Siglfirð-
inga úr hinu nýverðlaunaða Síld-
arminjasafni staðarins.
Þjóðlög kyrjuð
fyrir framtíðar-
heimili nyrðra
Gunnsteinn
Ólafsson
DAGSKRÁ helg-
uð Gyrði Elías-
syni hefst á Súf-
istanum, bóka-
kaffi í verslun
Máls og menn-
ingar á Lauga-
vegi, í dag,
fimmtudag, kl. 20
en Gyrðir er höf-
undur mánaðar-
ins hjá Eddu –
miðlun og útgáfu.
Kristján B. Jónasson ræðir um
skáldið og verk hans og lesnir
verða valdir kaflar úr þeim, allt frá
Gangandi íkorna til Gula hússins.
Einnig les Gyrðir sjálfur úr ljóða-
þýðingum sínum.
Aðgangur er ókeypis.
Dagskrá
um Gyrði
Elíasson
Gyrðir
Elíasson
Dönsk barna-
kvikmynd
DANSKA barnakvikmyndin Veröld
Busters verður sýnd í Norræna hús-
inu á sunnudag kl. 14. Leikstjóri er
Bille August.
Myndin fjallar um hugmyndarík-
an strák sem heitir fullu nafni Bust-
er Oregon Mortensen. Það er ekki
auðvelt að eiga pabba sem er at-
vinnulaus töframaður, þurfa að gæta
systur sem er fötluð, vera lagður í
einelti af stóru strákunum í skólan-
um og vinna sem sendill. En Buster
lætur ekki deigan síga. Hann er allt-
af með góðar hugmyndir á taktein-
um og kann ýmis töfrabrögð sem
vekja gleði og kátínu viðstaddra.
Kvikmyndin er gerð eftir skáld-
sögu danska rithöfundarins Bjarne
Reuter.
Aðgangur ókeypis.
♦ ♦ ♦