Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 68
MINNINGAR 68 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Páll Guðmunds-son fæddist í Reykjavík 13. ágúst 1934. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 13. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Auður Pálsdóttir, f. 23. apríl 1914, d. 10. mars 1966, og Guðmundur Pálsson, f. 11. nóv- ember 1910, d. 21. nóvember 1970. Bróðir Páls er Árni Guðmundsson, f. 28. júní 1944. Eiginkona hans er Guðfinna Sigmundsdóttir, f. 22. júní 1945. Páll kvæntist 8. september 1962 Hrafnhildi Magnúsdóttur. For- eldrar hennar voru Guðbjörg Er- lendsdóttir, f. 17. nóvember 1901, d. 17. nóvember 1991, og Magnús Pálmason, f . 15. júní 1897, d. 28 nóvember 1985. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur Pálsson, f. 25. maí 1963, maki Hulda Sólrún Guð- mundsdóttir, f. 28. febrúar 1968. Börn hans eru Hrafnhildur Eva, f. 23. ágúst 1987, og Gunnar, f. 19. maí 1988. 2) Auður Pálsdóttir, f. 21. febrúar 1965, maki Þórarinn Jóhannsson, f. 21. ágúst 1963. Börn þeirra eru Páll Ágúst, f. 29. janúar 1995, og Bjargey Þóra, f. 7. október 1998. 3) Guðbjörg Pálsdóttir, f. 6. jan- úar 1966. Páll lauk meist- araprófi í húsgagna- smíði frá Iðnskólan- um í Reykjavík og námi í innanhúss- arkitektúr frá Kaup- mannahöfn. Hann starfaði mestallan starfsaldur sinn hjá Húsameistara ríkisins en síðustu árin hjá Þjóð- skjalasafni Íslands. Páll bjó lengi í Laugarneshverfi, fyrst með for- eldrum sínum og síðar með eig- inkonu sinni og börnum. Hann sat nokkur ár í sóknarnefnd Laugar- neskirkju, var um tíma í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur og hef- ur verið virkur félagi í Oddfellow- reglunni á Íslandi um langt ára- bil. Útför Páls fer fram frá Grens- áskirkju á morgun, föstudaginn 20. apríl, og hefst athöfnin klukk- an 10.30. Páll Guðmundsson mágur minn er látinn. Mig langar að minnast hans í örfáum orðum. Þegar ég hugsa um Palla kemur fyrst upp í huga minn „sómadreng- ur“ sem ætíð var tilbúinn að rétta öðrum hjálparhönd ef með þurfti. Hann var sonur hjónanna Auðar Pálsdóttur kaupkonu og Guðmundar Pálssonar húsgagnasmiðs. Hann á einn bróður, Árna, sem vinnur hjá Landssímanum. Það er traust og gott fólk sem að honum stendur og bar hann þess merki. Páll var mynd- arlegur maður, mjög vel klæddur og alltaf snyrtilegur. Þannig var hann líka í umgengni, prúður og vildi hafa allt ekta, ekkert fúsk. Síðustu ár hef- ur verið stutt milli stríða hjá fjöl- skyldunni. Páll veiktist alvarlega fyrir hálfu fjórða ári en þá tókst vel að komast fyrir meinið og hann náði sér alveg. Fyrir nokkrum vikum kenndi hann annars meins sem leiddi til þess að hann er ekki lengur hjá okkur. Páll lærði húsasmíði og fór svo í nám í arkitektúr til Danmerkur. Starfsvettvangur hans var lengst af hjá Húsameistara ríkisins. Páll var formaður sóknarnefndar Laugarneskirkju í mörg ár, hann var í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur. Lengi hefur hann verið virkur í Odd- fellowreglunni. Það sem mest prýddi þennan ágæta dreng var hversu góður heim- ilisfaðir hann var. Mér finnst eigin- lega að allt hans líf hafi snúist um Hrafnhildi, sem hann giftist 8. sept- ember 1962, og börnin þeirra þrjú, Guðmund, Auði og Guðbjörgu. Barnabörnin eru fjögur og tengda- börnin tvö. Hann uppskar líka vel því þau eru öll vel gerð og mikið ástríki er með fjölskyldunni. Barnabörnin voru hans yndi og hann naut þess að passa þau. Þau munu sakna þess að sjá ekki afa í glugganum og veifa þegar þau keyra framhjá á leið í skólann á morgnana. Addý og Palli voru mjög samrýnd og er missir litlu systur minnar mik- ill. Ég mun sakna vinar sem fór alltof fljótt. Kæra Hrafnhildur, Guðmundur, Auður, Guðbjörg og ykkar fjölskyld- ur, guð blessi ykkur um alla framtíð. Sigurbjörg Magnúsdóttir. Í dag er til moldar borinn vinur minn Páll Guðmundsson húsgagna- arkitekt. Páll nam húsgagnaiðn hjá föður sínum Guðmundi Pálssyni, eig- anda Trésmiðjunnar hf. í Reykjavík, og stundaði jafnframt nám í Iðnskól- anum og var útskrifaður í húsgagna- smíði og síðar sem meistari í þeirri grein. Að þeim áföngum loknum hélt Páll til Danmerkur árið 1954 og stundaði þar nám næstu fjögur ár og kom til Íslands 1958 útskrifaður þaðan sem húsgagnaarkitekt. Fyrstu árin eftir starfaði Páll mik- ið með Kjartani Sveinssyni en 1963 hóf hann störf hjá Húsameistara rík- isins og vann þar uns sú stofnun var lögð niður en starfaði þó áfram á vegum ríkisins við frágang á ýmsum skjölum og teikningum er tilheyrðu þeirri stofnun. Kynni okkar Páls hófust fyrir um 40 árum eða eftir að hann kom heim frá Danmörku og kynntist hann þá eftirlifandi eiginkonu sinni, Hrafn- hildi Magnúsdóttur, en Hrafnhildur og Erna kona mín eru æskuvinkonur og hafa haldið þeim vinskap við í gegnum árin. Strax við fyrstu kynni mín af Páli kom í ljós hve hann var traustur og heilsteyptur maður. Hann var fastur á sinni meiningu en hlustaði á aðra og tók ávallt fullt tillit til þeirra skoð- ana. Páll gekk í stúkuna nr. 11, Þor- geir IOOF, 1975. Þar fann Páll sig mjög vel og starfaði fyrir stúkuna og þá Oddfellow-regluna af mikilli sam- viskusemi og erum við sem eftir stöndum þakklátir honum fyrir hans störf og söknum sárt góðs vinar. Það er ábyggilega leitun að samrýndari hjónum en þeim Hrafnhildi og Páli enda bar hann mikla ást og virðingu til eiginkonunnar og þá ekki síður til barna sinna, Guðmundar, Auðar og Guðbjargar, tengdabarna og barna- barna. Við Erna geymum í minningum okkar margar skemmtilegar sam- verustundir og um góðan vin sem ávallt var tilbúin að gefa af sér hlýju og vináttu. Elsku Addý, börn, tengdabörn og barnabarnabörn, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Halldór S. Friðriksson. Kveðja frá Þjóðskjala- safni Íslands Páll Guðmundsson kom til starfa í Þjóðskjalasafni Íslands að loknum löngum starfsdegi hjá embætti Húsameistara ríkisins. Skjalasafn Húsameistara ríkisins var afhent Þjóðskjalasafni Íslands, þegar embættið var lagt niður. Gekk Páll þá til liðs við Þjóðskjalasafnið og annaðist hann sem fyrr afgreiðslu úr teikningasafni húsameistaraemb- ættisins. Jafnframt vann hann að skráningu og frágangi teikninga- safns Þjóðskjalasafns til framtíðar- varðveislu. Páll Guðmundsson var góður félagi og glaður á vinnustað. Það var án efa erfitt að hefja störf á nýjum stað eftir áratuga störf hjá húsa- meistara. Kröfur Páls í nýrri vist voru fyrst og fremst þær, að við- skiptavinum húsameistara væri sýndur sómi og þjónusta við þá yrði ekki lakari en áður. Páll var vel að sér um byggingarsöguleg mál og þekkti til hlítar byggingarsögu margra helstu opinberra bygginga. Verður það skarð sem nú er höggvið í fámennan hóp starfsmanna Þjóð- skjalasafns vandfyllt á margan hátt. Páll lagði ávallt mikla alúð í störf sín og var hvers manns hugljúfi, ávallt reiðubúinn að sinna viðskiptavinum safnsins og veita góð og glögg ráð. Páll Guðmundsson var reglusamur starfsmaður og lét hvergi undan síga þó að hann gengi ekki heill til skóg- ar. Verður hans sárt saknað af sam- starfsfólki í Þjóðskjalasafni Íslands. Við flytjum eiginkonu Páls og ást- vinum öllum einlægar samúðar- kveðjur við fráfall hans. PÁLL GUÐMUNDSSON ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina Sími 562 0200 Erfisdrykkjur "  #      #  $    % &$&     %             A> 6.>6 6 !'&$  # - &IF   !3 %&$ !('   # ## K#" #!A2 ## ,  #  .A2   ;7&'@ ## 8@ #% ! A2 ## "&" # +  3%,('A2   @&!8## 4' #A2   22, 222,3 við Nýbýlaveg, Kópavogi .  '     '    />- 86044> $$&!)&    :      / 8 '(  '(  '(  " #! 3 '(## 7      ##'  &,$$'2,3       '     '    0-/.>;06044> +&   #   1  6   (   #  /  !! &'  +  .&,  &' ## 7 '  7 (' ,&& &' ## %&';'&'  6  &'; 6!# & 3  '    '    >= 4.A8 044> .  (   ! +  5     :        6      $ # + ' '   !('  ## '(@ ##   K#  ##  # + > %'  $ '2  %&&8 !$' # + 3      '   ' ;06%66- 044> % ( L / #$  '$ +    &  .  )%    !  6      $ * &         @&!' %&&!$  %&&!$' @&!'  8 #!  ## %&' @&!'  /& ('@ ##3 /66.>6 044>  (&7 &#I   ! +5         /  * &     7'($' 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.