Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 18
FRÉTTIR 18 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ MEÐALÁLAGNING á grænmeti í Hagkaup í marsmánuði var mjög mismunandi eftir tegundum og sveiflaðist frá því að vera innan við 2% á rauða papriku í það að vera tæp 70% á tómata. Einnig voru al- mennt miklar sveiflur í álagningu á einstakar tegundir innan hvers mánaðar, samkvæmt upplýsingum sem Hagkaup hefur tekið saman og látið Samkeppnisstofnun í té, en Finnur Árnason, framkvæmda- stjóri verslunarinnar, segir að meðalframlegð verslunarinnar af sölu ávaxta og grænmetis sé um 30% sem jafngildi 40–45% álagn- ingu. Upplýsingarnar lúta að magni, kostnaðarverði, smásöluverði og framlegð af sölu átta tegunda grænmetis, þ.e. tómata, agúrkna, jöklasalats, grænnar, rauðrar og gulrar papriku, kínakáls og blóm- káls. Álagning á blómkál 24,61% að meðaltali Svo dæmi séu tekin var með- altalsframlegðin af sölu blómkáls í mars 19,75%, en það jafngildir 24,61% álagningu að meðaltali. Framlegðin var mjög mismunandi innan mánaðarins og sveiflaðist frá því að vera tæp 12%, sem jafn- gildir um 13,5% álagningu í það að vera 44,6%, sem jafngildir 80,5% álagningu. Framlegðin af sölu kínakáls var svipuð eða 19,48% að meðaltali í marmánuði, sem jafngildir 24,19% meðaltalsálagningu. Framlegðin var einnig mjög mismunandi frá degi til dags eða allt frá því að vera langt undir kostnaðarverði í það að vera tæplega 60%. Framlegð af sölu rauðrar papr- iku var 1,54% að meðaltali í mars en er mjög sveiflukennd innan mánaðarins eins og í hinum teg- undunum. Framlegðin er 28,27% í upphafi mánaðarins, en verður nei- kvæð um rúm 48% á tímabili. Svip- að er farið um gula papriku þar sem meðaltalsálagningin er 3,34% í mánuðinum og græna papriku þar sem meðaltalsálagningin er 10,32% í mánuðinum. Álagning vegna sölu á agúrkum sker sig úr að því leytinu til að hún er stöðug allan marsmánuð, 33,4%, ef undan eru skildir tveir síðustu dagar mánaðarins sem álagningin hækkar í 78,2%. Með- altalsframlegðin af sölu á agúrkum í mánuðinum er 27,26%, sem jafn- gildir 37,48% álagningu. Framlegðin af sölu jöklasalats í marsmánuði er 26,11% sem jafn- gildir 35,33% álagningu. Fram- legðin er mismunandi eftir ein- stökum dögum í mánuðinum en verður þó aldrei neikvæð. Af þessum átta grænmetisteg- undum var álagningin mest á tóm- ata eða rúm 69% að meðaltali í mánuðinum. Álagningin er hæst framan af eða rúmlega 105% en lækkar þegar á líður og er á tíma- bili tæp 23%. Hún hækkar síðan síðustu dagana í mánuðinum og er þá rétt rúm 60%. Rýrnun að meðaltali 6–9% Finnur Árnason, framkvæmda- stjóri Hagkaups, sagði í samtali við Morgunblaðið að framlegð Hagkaups af sölu ávaxta og græn- metis að meðaltali sé um 30% sem jafngildi 40–45% álagningu. Þessi framlegð verði að standa undir öll- um kostnaði við sölu vörunnar, en þar séu launakostnaður og rýrnun stærstu kostnaðarliðirnir. Hann benti á að rýrnun væri mjög mikil í þessum vöruflokkum eða að meðaltali 6–9% af keyptu magni og að af tuttugu rýrnunar- hæstu liðum í matvöru væru sext- án grænmetis- og ávaxtategundir. Svo dæmi væru tekin sýndu mæl- ingar Hagkaups á rýrnun ópakk- aðra sveppa 18–22% rýrnun og rýrnun á ópökkuðum vínberjum væri á bilinu 20–30%. Finnur sagði að það sem hefði hleypt þessari umræðu af stað væru ummæli landbúnaðárráð- herra um álagningu á græna papr- iku og því hefði Hagkaup ákveðið að láta af hendi þessar upplýs- ingar og senda þær Samkeppn- isstofnun. Stjórnendur Hagkaups væru ekki á hverjum degi að af- henda sundurgreindar kostnaðar- upplýsingar fjölmiðlum, en þeir teldu þá umræðu sem skapast hefði í þessum efnum á villigötum og væru því að láta þessar upplýs- ingar af hendi. Nú biðu þeir við- bragða Samkeppnisstofnunar, t.a.m. hvað varðaði upplýsingar um verð og álagningu á græna papriku. „Við viljum sýna fram á að við höfum ekkert að fela í þessum efn- um og bendum á að við erum síst með hærri álagningu en nágranna- löndin. Við hljótum að gera kröfu til þess að við fáum að njóta sann- mælis hvað þetta snertir,“ sagði Finnur. Finnur sagði að almennt væri talað um framlegð í viðskiptum af þessu tagi frekar en álagningu, en þetta væru tveir mismunandi mát- ar á að reikna út hvað kæmi í hlut smásöluverslunarinnar. Framlegð- in væri hlutfall af smásöluverði án virðisaukaskatts og hún væri í lægri kantinum hér á landi ef mið- að væri við Bandaríkin og lönd í Evrópu, svo sem Danmörku og Bretland. Þar væri framlegð versl- ana af sölu ávaxta og grænmetis hærri en hér á landi þrátt fyrir lægra vöruverð þar. Óttast ekki samanburð við smásöluverslun erlendis Finnur bætti því við að það væri óhætt að bera saman smásölu- verslun hér á landi við erlendar keðjur bæði hvað tekjur og kostn- að snerti. Hagkaup óttaðist ekki þann samanburð, sem væri sá eini sem íslenskir neytendur gætu not- að sem mælikvarða á hvort um hagkvæman rekstur væri að ræða í smásöluverslun á Íslandi. Morgunblaðið birti upplýsingar um verðmyndun á ávaxta- og grænmetismarkaðnum í blaðinu á skírdag. Þar eru birtar upplýsing- ar um skiptingu stórmarkaðsverðs síðustu vikuna í mars 2000 og 2001 meðal annars á agúrkum og tómöt- um. Smásöluverð á agúrkum þar er 389 kr. síðustu vikuna í mars í ár. Verð til framleiðenda að með- talinni heildsöluálagningu er 201,26 kr. og smásöluálagning 69,5%. Útsöluverð á agúrkum sam- kvæmt upplýsingum Hagskaups í þessari sömu viku er tæpar 317 kr. að meðaltali. Kostnaðarverð er 190 kr., þ.e. verð til framleiðenda og vegna heildsölu, og verð án virð- isaukaskatts tæpar 278 kr. Álagn- ingin er rúm 46%. Verð á tómötum samkvæmt upp- lýsingum í sömu grein var 367 kr. sem er sama verðið og Hagkaup gefur upp. Verðið skiptist þannig að verð til framleiðenda er 133 kr., heildsöluálagning, umbúðir og flutningur er 26,60 kr., smásölu- álagning 162,26 kr. sem er 101,6% álagning og virðisaukaskattur 45,07 kr. Samkvæmt upplýsingum Hag- kaups er meðalkostnaðarverð tóm- ata þessa síðustu viku marsmán- aðar um 217 kr., þ.e. verð til framleiðenda og vegna heildsölu. Verð án virðisaukaskatts er tæpar 322 kr. Smásöluálagningin er því 105 kr. sem jafngildir rúmlega 48% álagningu. Það skal tekið fram að í umfjöll- un Morgunblaðsins á skírdag kom fram að þegar talað er um stór- markaðsverð þá sé t.d. átt við það verð sem var í Hagkaup og Fjarð- arkaup. Hagkaup gefur sundurgreindar kostnaðarupplýsingar um álagningu á grænmeti Meðalálagn- ing á ávexti og grænmeti 40–45% 56 #! # #  # # #7#  #*++, 8#    2 % #*++, %  &##):3; % &#,+:'; 8 #    2 % #*++, %  &#':*; % &##':';       2 % #*++, %  &#*.:'; % &##'.:/; <       2 % #*++, %  &#*-:,; % &##'/:'; 27    2 % #*++, %  &#,):/; % &##*3:*; =     2 % #*++, %  &#,):(; % &##*3:-;  #    2 % #*++, %  &#,:/; % &##,:-; 2! 0#    0# #0 4   0#      2 % #*++, %  &#3+:); % &##-):,; #    0 # 7  #0 #  #*++,              ! "# 5   '()# ! " ',.# ! "3(#  ,3+#  3*#  ,/)#    >      1   #? ')#  ((#  ,)+#  '-.# ! " '-.# ! " 5     >  % > ! 0 7  .# 7#    0&          ! "# 3/#  ,-*#  *.#  ,''#  ,+/#  *,.#  3/#    0    $%##&! ' ("#)# *+ '  TRAUSTI Sveinsson á Bjarnargili í Fljótum hefur lagt fram tillögur um að gerðar verði athuganir á hag- kvæmni vegtenginga á Tröllaskaga. Stjórnvöld telja að Héðinsfjarðarleið sé álitlegasti kosturinn til samgöngu- bóta á þessu væði, en Trausti hefur bent á að með þeirri leið muni Fljótin einangrast og þar með verði ekki arð- bært að nýta þau fjölþættu náttúru- gæði sem þar er að finna. Önnur leið, svonefnd Fljótaleið með jarðgöngum, sé heppilegri með hagsmuni allra byggðarlaga í fyrirrúmi. Í greinargerð sem Trausti hefur sent til samgönguráðherra tilgreinir hann að gnægð af heitu og köldu vatni í Fljótunum skapi ákjósanlegar for- sendur fyrir margskonar fiskeldi. Þá sé sérstaða Fljóta mikil vegna ferða- þjónustu m.a. vegna þess að þar sé mikill og árviss snjór, mikil fiski- gengd í vötnum og ám, náttúrufegurð og veðursæld. Landvernd styður tillögurnar Með því að styrkja vegsamgöngur í Fljótum með jarðgangatenginu við Siglufjörð og Ólafsfjörð verði for- sendur til nýtingar þessara auðlinda hinar ákjósanlegustu og það muni koma öllum byggðum á utanverðum Tröllaskaga til góða. Landvernd hefur varað við því að einblínt sé á vegagerð um Héðins- fjörð með jarðgöngum frá Siglufirði og Ólafsfirði þar sem betri valkostir virðist blasa við. Að mati Landvernd- ar mun opnun fyrir ökutækjaumferð til Héðinsfjarðar valda óafturkræfum spjöllum á umhverfisgildi hans. Land- vernd styður því tillögur Trausta Sveinssonar um rannsóknir á hag- kvæmni vegtenginga á Tröllaskaga þar sem tekið verði tillit til nýtingar þeirra fjölmörgu náttúruauðlinda sem sé að finna í Fljótunum. Vill kanna vegteng- ingar á Tröllaskaga Tillögur Trausta Sveinssonar í Fljótum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.