Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 63
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 63 ✝ Hrefna Ólafs-dóttir fæddist á Hamri í Hamarsfirði 12. febrúar 1928. Hún lést aðfaranótt 9. apríl síðastliðinn á Landspítalanum í Fossvogi. Foreldrar hennar voru Þóra Stefánsdóttir, f. 4. júlí 1895, d. 6. ágúst 1973, og Ólafur Þór- lindsson, f. 15. mars 1891, d. 16. ágúst 1971. Systkini Hrefnu eru Stefán Steinar, f. 24. októ- ber 1920, d. 2. desember 1960, Jón, f. 28. febrúar 1923, býr á Eskifirði, Ingibjörg, f. 10. desem- ber 1925, býr á Djúpavogi, og Örn, f. 13. nóvember 1932, býr í Reykjavík. Hinn 10. apríl 1955 giftist Hrefna Steinólfi Lárussyni, f. 26. júní 1928, frá Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Þá um vorið fluttu þau að Ytri-Fagradal og hófu bú- skap í sambýli við foreldra Stein- ólfs. Börn Hrefnu og Steinólfs eru: 1) Ólöf Þóra, f. 6. nóvember 1954, í sambúð með Pétri Stefáns- syni, börn þeirra eru Stefán Sölvi og Úlfur Orri. Dóttir Ólafar Þóru og Mar- teins Jóssonar er Jónína, f. 11. apríl 1974, og ólst hún upp hjá afa sínum og ömmu í Ytri-Fagra- dal. Jónína er í sam- búð með Sigurði Eggert Axelssyni, börn hennar eru Daði Mánason og Gabríel Sigurðsson; Sesselja, f. 27. janú- ar 1959, í sambúð með Jóni Hauki Haukssyni, sonur þeirra Bergþór Lár; Halla Sigríð- ur, f. 11. maí 1964, gift Guðmundi Kristjáni Gíslasyni, börn þeirra eru Gísli Rúnar og Hrefna Frigg. Sonur Höllu Sigríðar og Jónasar Benediktssonar er Steinólfur; og Stefán Skafti, f. 26. apríl 1967, í sambúð með Þóreyju Helgadótt- ur, dóttir þeirra er Jófríður Ísdís. Sonur Stefáns Skafta og Lindu Bjarkar Sæmundsdóttur er Hall- grímur Pálmi. Útför Hrefnu fer fram frá Grensáskirkju á morgun, föstu- daginn 20. apríl, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Í dag kveðjum við Hrefnu Ólafs- dóttur húsfreyju í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í Dalasýslu en hún lést á Borgarspítalanum aðfaranótt 9. apríl sl. Hrefna barðist við langvinn- an sjaldgæfan sjúkdóm í mörg ár og þegar ég og móðir mín heimsóttum hana á spítalann þ. 7. apríl sl. grunaði mig að þetta væru endalokin, enda var mig búið að dreyma föður minn og var hann að koma og sækja ein- hvern, en hann lést fyrir tveimur ár- um um páska. Ég kynntist Hrefnu árið 1956 þeg- ar ég fór í sveit til Hrefnu og Steinólfs um sumarið, aðeins sex ára gömul, en ég hafði eiginlega ekki séð þau fyrr. Hún var ein af stelpunum úr hús- mæðraskólanum á Hallormsstað, en það er einstakur hópur sem hefur bundist sterkum böndum og hittist ennþá reglulega einu sinni í mánuði. Mér var ætlað að aðstoða með litlu dóttur þeirra Ólöfu Þóru, sem var lít- ið yngri en ég, fædd 1954. Ég minnist þess að við fórum á gömlum Willy’s jeppa með tréyfirbyggingu og hoss- aðist ég aftur í á hræðilegum vegum og varð auðvitað bílveik. Þá komu þessar hlýju hendur og hjálpuðu mér og brosið sem Hrefna sendi mér varð til þess að við tengdumst sterkum böndum og dvaldi ég hjá þeim hjón- um í sjö sumur og leið alltaf vel. Það rifjast upp margar minningar þegar sest er niður og skrifað um þessa merkilegu og vel gefnu konu sem var ættuð að austan frá Hamri í Hamarsfirði. Hún tengdist þeim stað sterkum böndum, sem ég skildi ekki fyrr en löngu síðar þegar ég bjó er- lendis. Þegar ég var ellefu ára gömul var lagt upp í ferð austur, heim til Hrefnu og tók sú ferð nokkra daga þó ekið væri greitt og lengi yfir daginn. Lagt var af stað frá Fagradal snemma morguns og var allt mjög vel undirbúið. Fyrsti áfangastaður var Hótel Reykjahlíð á Mývatni og var komið seint að kvöldi og gist. Næsta dag var farið austur og er mér ógleymanleg leiðin yfir Oddskarð, en þar fann maður ægilega spennu enda var leiðin hrikaleg og var komið seint um kvöldið að Fagradal í Breiðdal og gist hjá einhverjum frænda að mig minnir. Síðasti áfanginn var svo að Hamri í Hamarsfirði og man ég alltaf hvernig þær mæðgur, Hrefna og Þóra, fögnuðu hvor annarri þegar þær hittust eftir áralangan aðskilnað og Ólafur var mjög glaður að sjá dótt- ur sína aftur. Í Fagradal var stórt og mikið bú, einhver hundruð fjár, kýr, hænsni, hestar, gæsir o.fl. Ekki skal gleyma hinum yndislegu Akureyjum sem siglt var til á opnum litlum vélbát til að taka æðardúninn, háfa lunda, veiða sel, farið með kindur út í eyj- arnar, en þær þóttu albestar á haust- in þegar þær voru leiddar til slátr- unar. Hrefna hafði þá einstöku náðargáfu að þekkja allar kindur með nafni og var öllum gefið nafn þegar þær fæddust. Hún gat alltaf sagt hvað kindin hét sem var utan girð- ingar eða niður í Bringum, hvort þau áttu hana eða hvort hún væri frá öðr- um bæjum. Ég var ekki eina barn foreldra minna sem fór í sveit til Hrefnu og Steinólfs. Eftir að ég hætti að fara fór Magnús bróðir minn og síðar Reynir og meira að segja fóru bæði börnin mín þangað, en það var stutt. Mig langar til að þakka Hrefnu og einnig Steinólfi fyrir einstaklega góða umönnun á þeim tíma sem ég dvaldist hjá þeim og þau voru mínir sumarfor- eldrar. Magnús og Reynir senda inni- legar kveðjur og þakklæti fyrir allt og mamma sendir sínar bestu kveðjur og þakklæti fyrir okkur öll enda blómstruðum við í Fagradal. Steinólfi, Ólöfu Þóru, Sesselju, Höllu, Skafta og fjölskyldum þeirra votta ég mína dýpstu samúð. Hvíl þú í friði, elsku Hrefna. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Guð blessi minningu þína. Pálína Kristinsdóttir. Elsku góða amma. Hér sitjum við með sorg í hjarta, og syrgjum þig, ó, amma mín. Þú sem áttir brosið bjarta, sem bræddi hverja þraut og pín. Geislum stráð var góðvild þín. Í huga mínum lengi lifir, ljómi þinn og minning sterk. Megi guð sem öllu er yfir öll þín signa kærleiksverk. Þín var ævin mæt og merk. Senn þó vori hérna í heimi, er hugur minn sem lagður ís. En trúin mín, að guð þig geymi, græðir sár er dagur rís. Ég veit þú gengur glöð um Paradís. (Pétur Stefánsson.) Takk fyrir allt. Stefán Sölvi Pétursson, Úlfur Orri Pétursson. Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða hvassan skilning haga hönd hjartað sanna og góða. (S.G.S.) Þessar ljóðlínur koma upp í hug- ann þegar okkur bekkjarsystur Hrefnu Ólafsdóttur langar að kveðja hana og þakka henni áratuga vináttu. Það var haustið 1945 að sautján ungar stúlkur hófu nám í yngri deild Húsmæðraskólans að Hallormsstað. Þessi hópur kom víða að af landinu og því ekki margar sem þekktust áður. En fljótlega myndaðist mikil vinátta og samheldni í hópnum. Á heimavist- arskóla reynir mikið á mannleg sam- skipti og umburðarlyndi. Hún Hrefna okkar, þessi myndarlega og glaðlega sveitastúlka, var búin þeim eiginleik- um að geta dreift í kringum sig glað- værð og hlýju og átti því stóran þátt í því að gera þessa nánu sambúð svo góða sem hún varð í tvo vetur. Hrefna var náttúrubarn, upprunn- in úr traustu bændasamfélagi og eng- um duldist að hún stóð föstum fótum í þeirri menningu sem hafði gömlu góðu gildin að leiðarljósi. Hún hafði fastmótaðar skoðanir á mönnum og málefnum og kom það æ betur í ljós er árin liðu. Hrefna unni sveitinni sinni, Hamri í Hamarsfirði við Djúpa- vog, og líklega enginn staður á jarð- ríki jafnfallegur í hennar huga. Það kom okkur ekki á óvart þegar hún valdi sér það hlutskipti að búa í sveit, þó ekki væri það í hennar heima- byggð, heldur langt frá heimahögun- um. Hrefna var mikill bóndi og hafði unun af því að annast málleysingjana, einkum sauðféð, hún var með afbrigð- um fjárglögg og var styrk stoð bónda síns. Það var gaman að koma í heim- sókn aðYtri-Fagradal og njóta gest- risni Steinólfs og Hrefnu. Þar kom enginn að tómum kofunum hvað varðaði umræðuefni eða annan við- urgjörning. Þó Hrefna byggi í nokkurri fjar- lægð frá Reykjavík, þar sem við flest- ar búum nú, var alltaf gott samband á milli okkar, hún var dugleg að mæta í saumaklúbbana þegar hún átti erindi í höfuðborgina. Hún átti stærstan þátt í því að við hittumst og gerðum okkur glaðan dag þegar við áttum 50 ára útskriftarafmæli. Tryggðin og vináttan dvínaði ekki þrátt fyrir margra ára baráttu við erfiðan súkdóm. Nú síðustu árin, þeg- ar heilsan leyfði ekki ferðalög nema að takmörkuðu leyti, hafði hún þann hátt á að hringja á það heimili sem saumaklúbburinn var hverju sinni og halda þannig sambandinu við okkur. Hún gleymdi aldrei að rækta vinátt- una hvort sem við bjuggum hér eða erlendis. Fjarlægðin hefur aldrei náð að slíta vináttuböndin. Hrefna átti hjartað sanna og góða, hún hafði margt að gefa sem ekki bara hennar eigin fjölskylda fékk að njóta, heldur vandalaus börn sem dvöldu hjá þeim hjónum. Hún var góður leiðbeinandi sem vildi láta aðra njóta þess góða veganestis sem hún sjálf hafði hlotið í foreldrahúsum. Nú er dagsverki þessarar mætu konu lokið. Við söknum hennar úr hópnum okkar. En yljum okkur við minningarnar um allar góðu sam- verustundirnar sem við áttum með henni fyrr og síðar. Kæra fjölskylda, við vottum ykkur innilega samúð og biðjum Guð að blessa ykkur um ókomin ár. Blessuð sé minning okkar kæru vinkonu. Bekkjarsystur í Húsmæðraskól- anum í Hallormsstað 1945–47. HREFNA ÓLAFSDÓTTIR Með þakklátum huga minnist ég þessa góða manns sem kom inn í líf mitt þegar ég var ung að árum. Það fyrsta sem kemur í huga minn er gaman- semi hans sem maður féll oft fyrir. Eitt sinn 1. apríl kall- aði hann pabbi á mig og Bylgju systur. Þegar við komum til hans sagði hann okkur að það væri verið að gefa páskaegg í samkomuhús- inu. Við trúðum honum ekki en hann sagði: „Spyrðu Bibbu frænku,“ sem hann var þá búinn að tala við áður. Bibba staðfesti sög- una og við hlupum af stað eins og fætur toguðu. Þegar við komum að samkomuhúsinu var enginn þar. Bylgja vildi ekki trúa því að þetta væri bara grín en ég sá í pabba þar sem hann veltist um af hlátri en hann hafði fylgst með okkur. Mað- ur fékk ekki að gleyma þessu strax. Ég er mjög þakklát fyrir allar minningar sem ég á um hann pabba minn. Mamma sagði mér fyrir nokkrum árum að þegar ég sá pabba í fyrsta sinn spurði ég hann: „Viltu vera pabbi minn?“ Hann ját- aði mér og gekk að fullu í pabba- RÚNAR ÁGÚST ARNBERGSSON ✝ Rúnar ÁgústArnbergsson fæddist 7. ágúst 1959. Hann lést 4. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Safnaðarheimili Sandgerðis 17. apríl. starfið sem ekki var alltaf auðvelt. Hjarta mitt er fullt af þakk- læti fyrir að hafa feng- ið að kynnast honum, því betri manni hef ég varla kynnst. Þegar ég tók nafnið hans upp var ég mjög hreykin. Eins þegar ég gifti mig og hann gekk með mér upp að altarinu. Stoltari kona fannst ekki á þeirri stundu. Það er svo margt sem kemur upp í huga mér úr liðinni tíð. Margt gerist í lífi okkar, bæði gott og slæmt en hann var mér alltaf nálægur sem besti pabbi. Þegar Ragnheiður Lilja, litla dóttir mín, fæddist gekk hann um gólf af spenningi og ég man að þegar hann hélt á henni í faðmi sér hvarf hún í stórum höndum hans en hlýjunni í augum hans gleymi ég aldrei. Minningar mínar um hann mun ég geyma í hjarta mér til að segja henni frá seinna meir. Með hjartað fullt af söknuði til hans pabba kveð ég hann en líka af þakklæti fyrir að hafa haft hann hjá mér í þennan tíma. Ég hef alltaf hlýju augun hans í huga mér og með allar góðu minningarnar sem við eigum kveð ég hann, elskulegan föður minn. Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, Hann, vörður Ísraels. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, Hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (Sálm. 121.) Kristjana Guðný Rúnarsdóttir. Ég kveð með söknuði tengdaföð- ur minn, Rúnar Ágúst. Það er margt sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa til baka. Hann hafði góðan mann að geyma. Það sé ég vel á því hvernig hann hugsaði um konuna mína alltaf alveg eins og sína eigin dóttur. Hann bar hag okkar Kristjönu og Ragnheiðar Lilju fyrir brjósti. Þegar Ragnheið- ur Lilja kom í heiminn kom hann í bæinn og parketlagði og lagaði til íbúðina með mér fyrir dóttur sína og afastelpuna sem hann var svo montinn af. Ég kveð Rúnar með hugann fullan af minningum um góðan tengdaföður og bið Drottin Jesús almáttugan frelsara minn að bera Lillu og börnin í gegnum sorgina og varðveita hjarta okkar og hugsanir í honum. Ég mun breyta sorg þeirra í gleði og hugga þá og gleðja eftir harma þeirra. (Jer. 31:13.) Ívar Þór Sigþórsson. Með nokkrum vanmáttugum þakkarorðum viljum við kveðja mann sem okkur var mjög kær. Rúnar varð tengdafaðir Ívars son- ar okkar þegar hann og Kristjana gengu í heilagt hjónaband. Við hjónin vorum svolítið stressuð áður en við hittum Rúnar og Ragnheiði, foreldra Kristjönu, í fyrsta sinn en sá kvíði vék eins og dögg fyrir sólu því þau hjónin voru einstaklega elskuleg. Rúnar var maður hógvær og lítillátur og þrátt fyrir stutt kynni er söknuðurinn mikill. Ég vil aðeins minnast á kjör hins almenna sjómanns við fiskveiðar á Íslandi. Hinn almenni borgari gerir sér enga grein fyrir því erfiði sem á þessa menn er lagt fyrir tiltölulega lág laun en Rúnar var harðdugleg- ur sjómaður og einstaklega sam- viskusamur bæði á sjó og landi. Við biðjum eiginkonu og ástvinum Guðs blessunar og þökkum fyrir kynnin við þennan góða mann. Sigþór og Lilja. Elsku Rúnar litli bróðir minn. Á þessari stundu sorgar og söknuðar hverfur hugurinn austur á Borg- arfjörð. Mér er enn í fersku minni dagurinn sem þú fæddist, 7. ágúst 1959, yngstur systkina okkar. Minningarnar um þig, elsku Rúnar, sem ungan dreng, hraustan og duglegan, allra augastein, munu alltaf fylgja mér. Við nutum þeirra forréttinda að fæðast á Borgarfirði eystra, náttúruperlu sem á engan sinn líka. Að alast þar upp hjá ástríkum foreldrum, systkinum, frændfólki og vinum er veganesti sem maður þakkar fyrir alla ævi. Síðastliðið sumar vorum við öll systkinin saman komin á Borgar- firði ásamt fjölskyldum okkar og héldum ættarmót í fyrsta skipti. Það voru ógleymanlegar stundir sem við öll áttum saman. Rifjaðar voru upp ótal skemmtilegar minn- ingar frá æskuárunum, dansað og leikið í dásamlegu veðri. Þessi sam- vera okkar var yndisleg og mun ylja mér um hjartarætur alla tíð. Elsku Lilla, Kristjana, Bylgja, Jón Stefán og aðrir ástvinir. Guð styrki ykkur og styðji í þessari miklu sorg. Ég kveð þig með söknuði, elsku Rúnar litli bróðir minn. Þín systir, Guðný. Í dag ætla ég að kveðja Rúnar frænda minn. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér eins og ég gerði á ættarmótinu á Borgarfirði eystra sumarið 1999. Ég mun ávallt minn- ast með brosi á vör spjallsins hjá mér, þér og Adda sem við áttum fram á morgun og líka þegar þú fórst með okkur skoðunartúrinn um bæinn og fræddir okkur um heima og geima, um það sem varð á vegi okkar þennan skemmtilega túr, kannski aðallega mig þar sem ég var nýgræðingur á svæðinu. Þú varst svo ungur og hress í anda en samt aftur á móti róleg og gömul sál og það var það sem maður dáð- ist að og hversu skemmtilega þú sagðir sögurnar þínar og hversu já- kvætt hugarfar þitt var. Það var í rauninni ekki annað hægt en að líta upp til þín. Minning um góðan mann mun ávallt lifa. Elsku Lilla, Kristjana, Bylgja og Jón Stefán, megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Ragnhildur Ægisdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.