Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
„LÍFIÐ hefur verið mér gott og
þessi hundrað ár hafa nú bara
verið fljót að líða,“ segir Jónína
Heiðar sem í gær hélt upp á ald-
arafmæli sitt í stórum hópi vina
og ættingja sem flestir komu frá
Bandaríkjunum til að heiðra af-
mælisbarnið og ættmóðurina á
þessum merkisdegi.
Afmælisbarnið ber aldurinn
með sóma, er vel ern, hefur
skýra hugsun og skarpa sjón og
heyrn svo viðmælendur gleyma
fljótt hugtökum eins og aldri og
kynslóðabili.
Jóna, eins og hún er jafnan
kölluð, fæddist og ólst upp á
Stóru-Vatnsleysu. Hún lærði ung
karlmannafatasaum og þótti, og
þykir enn, mikil hagleikskona,
listfeng og vandvirk mjög. Jóna
giftist tónskáldinu og kórstjór-
anum Salómoni Heiðar árið 1928
og eignuðust þau tvö börn, Guð-
rúnu og Helga. Jóna missti mann
sinn árið 1957 og fór vestur um
haf í heimsókn til Guðrúnar sem
þá bjó í Kanada. Jóna brosir þeg-
ar hún segir blaðamanni að eitt-
hvað hafi nú aðeins teygst úr
heimsókninni sem að lokum varð
að þrjátíu ára búsetu í Kanada og
í Bandaríkjunum. Enskan er
henni jafn töm og íslenskan en
ekki segist hún vera mikil mála-
manneskja, sér nægi vel það sem
hún hafi.
Jóna segist þrátt fyrir langa
dvöl í vesturheimi vera mikill Ís-
lendingur og hafi þess vegna
ákveðið að flytjast heim um
hálfnírætt til að geta eytt ellinni
með íslenskum samtíðarmönnum
sínum.
Fyrstu tólf árin var hún á dval-
arheimilinu Felli en hefur búið á
Elliheimilinu Grund síðustu ár.
Afkomendurnir búa allir vest-
anhafs en koma „heim“ einu sinni
til tvisvar á hverju ári. Guðrún
og Helgi, sem einnig er búsettur í
Bandaríkjunum, tala lýtalausa ís-
lensku og heyrist ekki á mæli
þeirra að þar fari fólk sem hefur
verið búsett fjarri Íslands strönd-
um um áratuga skeið.
Jóna fylgist vel með heimsmál-
unum og segir Guðrún dóttir
hennar það iðulega gerast í nær
daglegum símtölum mæðgnanna
að móðir sín segi sér nýjustu
fréttir, ekki bara heiman frá
heldur færi hún sér fróðleik frá
heimskringlunni allri. En hún
hefur lítinn áhuga á stjórnmálum.
„Nei, ég hef engan áhuga á póli-
tík lengur – en ég get nú alveg
sagt eins og satt er að ég hall-
aðist nú til hægri hérna í gamla
daga,“ segir Jóna og brosir kank-
víslega.
„Ég hef líka nóg annað að gera
en fylgjast með þjóðfélagsþras-
inu. Ég er í sönghópi með nokkr-
um eldri frúm á Grund og við
hittumst til að syngja saman og
svo fer ég í leikfimi daglega, það
er ósköp gott að liðka sig og
hreyfing er öllum nauðsynleg.“
Jóna les líka mikið og segist
hafa mikla ánægju af æviminn-
ingum jafnt sem skáldsögum.
„Núna er ég að lesa Vesturheims-
sögur Böðvars Guðmundssonar,
Híbýli vindanna og Lífsins tré.
Þetta var erfitt líf sem mætti
þessu fólki sem flutti til Ameríku
og margar hindranirnar sem það
þurfti að yfirstíga. Nútímafólk
hefur það miklu betra og mikið
ósköp væri gaman að vera ungur
í dag,“ segir Jóna og rifjar upp
þegar hún sjálf var ung stúlka og
dansaði fram á rauða nótt á
dansiböllum í sveitinni.
Langamma veit
hvað er í móð
Jóna er orðlögð fyrir smekkvísi
og er glæsileg að vanda á afmæl-
isdaginn í fallegri fjólublárri
dragt sem fer vel við silfurhvítt
hárið. Hún hefur nælt fíngerðu
blómi í barminn sem vekur at-
hygli tveggja unglingsstúlkna
sem dást að skrautinu og verða
svolítið montnar yfir að
langamma skuli vita hvað er í
móð.
Spurð hver sé lykillinn að lang-
lífinu og góðri heilsu brosir hún,
hallar sér nær blaðamanni og
hvíslar í eyra hans með stríðni í
röddinni: „Það er leyndarmál,“
en bætir svo við að reyndar hafi
pabbi sinn orðið „svolítið gam-
all“, – hann varð 95 ára.
Gestir streyma inn í sal Hótels
Loftleiða og það verða fagn-
aðarfundir þegar gamlir vinir
hittast á ný.
Veisluborðið svignar undan
kræsingum þar sem rammíslenskt
góðgæti eins og flatkökur með
hangikjöti og rjómapönnukökur
skipa veglegan sess að ógleymd-
um rjúkandi kaffisopanum. Það
er með miklum myndarbrag sem
hundrað ára heiðurskona býður
gesti sína velkomna til veislu.
Jónína Heiðar segir að hundrað árin hafi verið fljót að líða
Les mikið og
fer daglega
í leikfimi
Morgunblaðið/Ásdís
Afmælisbarnið Jóna Heiðar ber aldurinn vel og segir árin
sín hundrað hafa verið fljót að líða.
ÞORSTEINN Jóhann-
esson, fyrrverandi pró-
fastur í Norður-Ísa-
fjarðarprófastsdæmi,
er látinn, 103 ára að
aldri. Þorsteinn fædd-
ist 24. mars 1898 í
Ytri-Tungu á Tjörnesi.
Foreldrar hans voru
Jóhannes Jóhann-
esson, bóndi á Ytra-
Lóni á Langanesi, og
Þuríður Þorsteinsdótt-
ir.
Þorsteinn varð stúd-
ent í Reykjavík 25. júní
1920 og lauk guðfræði-
prófi frá Háskóla Íslands 8. júní
1924. Hann var settur sóknarprest-
ur í Staðarprestakalli í Steingríms-
firði sama ár, veittur Staður árið
1925 og Vatnsfjörður
1928. Þorsteinn var
settur prófastur í
Norður-Ísafjarðarpró-
fastsdæmi í ársbyrjun
1939. Honum var veitt
lausn frá embætti
1955 og var hann skip-
aður fulltrúi í dóms-
og kirkjumálaráðu-
neytinu sama ár, þar
sem hann starfaði til
ársins 1969. Þorsteinn
var formaður Presta-
félags Vestfjarða 1939
til 1944 og síðar aftur
um skeið.
Þorsteinn kvæntist Laufeyju
Tryggvadóttur 23. júní 1923 og áttu
þau fimm börn. Laufey lést árið
1990.
Andlát
ÞORSTEINN
JÓHANNESSON
KENNARAR í Kennaraháskóla Íslands, KHÍ,
hafa boðað tímabundið verkfall dagana 7. til 21.
maí næstkomandi hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma. Umræddir dagar eru prófatími
í skólanum. Talningu í atkvæðagreiðslu um
verkfall lauk í gær hjá Kennarafélagi KHÍ og
voru 108 háskólamenntaðir starfsmenn skólans
á kjörskrá. Alls greiddu 103 atkvæði og reyndist
niðurstaðan mjög afgerandi. Já við verkfalli
sögðu 99 eða 96,1% og nei sögðu 4 félagsmenn
eða 3,9%. Engir seðlar voru því auðir eða ógild-
ir.
Steinunn Helga Lárusdóttir, formaður Kenn-
arafélags KHÍ, sagði við Morgunblaðið að nið-
urstaða atkvæðagreiðslunnar gæfi í skyn mjög
skýr skilaboð um vilja kennara og annarra há-
skólamenntaðra starfsmanna skólans.
Annríki hjá sáttasemjara
Einn fundur hefur verið haldinn hjá ríkis-
sáttasemjara eftir að deilunni við ríkið var vísað
þangað og hefur næsti fundur verið boðaður á
morgun, föstudag.
Mikið annríki var hjá embætti ríkissáttasemj-
ara í gær, síðasta vetrardag, þegar alls 14 fund-
ir voru á dagskrá. Um miðjan dag í gær hafði
einn samningur verið undirskrifaður, þ.e. milli
vélstjóra og fyrirtækisins Björgunar hf.
Sjómenn og útvegsmenn voru á meðal þeirra
er sátu á fundum fram eftir degi og einnig áttu
háskólakennarar stuttan fund með samninga-
nefnd ríkisins án þess að mikið miðaði þar í
samkomulagsátt. Hafi samningar ekki tekist í
þeirri deilu skellur á verkfall í Háskóla Íslands
2. maí sem á að standa til 16. maí nk., eða á
sama tíma og flest próf eiga að fara fram.
Kennarar í KHÍ samþykkja
að fara í verkfall í maí
TIL stendur að hefja byggingu
á nýjum veitingaskála í Þrast-
arlundi á þessu ári. Ungmenna-
félag Íslands á húsið og 40
hektara land.
Tryggvi Gunnarsson banka-
stjóri gaf Ungmennafélaginu
landið árið 1911. Veitingaskál-
inn í Þrastarlundi er illa farinn
en verður þó í rekstri í sumar.
Samhliða því verður hafist
handa við byggingu á nýjum
veitingastað og þjónustuskála
sem verður úr bjálkum. Húsið,
sem verið er að teikna, verður
nær ánni. Einar K. Jónsson,
formaður Þrastaskóganefndar
og formaður Ungmennafélags
Vesturhlíðar, segir að húsið
verði í líkingu við eldra hús sem
þarna var og brann 1943. Húsið
verður tveggja hæða og verður
tilbúið næsta vor verði hafist
handa á þessu ári.
Rætt hefur verið um að hafa
70–80 fermetra bar á neðri hæð
hússins sem snýr út að ánni og í
húsinu verður einnig kjörbúð.
Einar segir að auglýst hafi ver-
ið eftir hugsanlegum rekstrar-
aðilum og nokkrir hafi þegar
haft samband.
Áform um
að reisa
bjálkahús
í Þrast-
arlundi
ÖLLU fé á bænum Hrafnkelsstöð-
um í Hrunamannahreppi á Suður-
landi, um 370 kindum, hefur verið
fargað eftir að riða greindist í þrem-
ur kindum á bænum skömmu fyrir
páska. Þetta er í fyrsta sinn á þessu
ári sem riða kemur upp en árin 1999
og 2000 kom riða upp á tveimur bæj-
um í landinu hvort ár.
Að sögn Halldórs Runólfssonar
yfirdýralæknis hafa fleiri riðutilfelli
á þessu svæði á Suðurlandi ekki
fundist en skoða á aðstæður á næstu
bæjum.
Riða hefur ekki áður greinst á
bænum Hrafnkelsstöðum en fyrir
um áratug kom sjúkdómurinn upp á
tveimur bæjum í grenndinni.
Fleiri bæir
skoðaðir
Riðan á Suðurlandi
♦ ♦ ♦
HÓTEL Atlantis á Grensásvegi ætl-
ar í sumar að óska eftir íbúðum í
Reykjavík til útleigu fyrir erlenda
ferðamenn.
Mikill skortur er á gistirými í
borginni yfir sumarmánuðina og
segir Tryggvi Þorsteinsson, hjá Hót-
el Atlantis, að íbúðareigendur geti
haft góðar tekjur af útleigu íbúða
sinna meðan þeir eru sjálfir í sum-
arfríi. Greitt verður markaðsverð
fyrir íbúðir en einkum er sóst eftir
húsnæði í miðborg Reykjavíkur.
Sem dæmi má nefna að greiddar eru
um 60.000 kr. fyrir tveggja her-
bergja íbúð í einn mánuð. Einkum
verður sóst eftir minni íbúðum til út-
leigu í lengri tíma en þrjár vikur.
Tryggvi segir að þetta hafi spurst
út og nú þegar hafi nokkrir haft
samband við sig. Hann segir að með
þessu móti gefist íbúðareigendum
kostur á því að lengja fríið sitt og fá
greitt fyrir. Fyrirtækið mun annast
eftirlit með íbúðunum og útvega
sængur og sængurföt og jafnframt
annast þrif. Hann sagði að flugfélag-
ið Go flygi til landsins á hverjum
degi í sumar og ljóst væri að mikil
eftirspurn yrði eftir gistingu.
Íbúðir leigðar
út til ferða-
manna