Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND stendur sig einna verst af
EFTA-löndunum, sem aðild eiga að
Evrópska efnahagssvæðinu, í því
að lögfesta þær tilskipanir sem
samþykktar hafa verið innan EES.
Þetta kemur fram í ársskýrslu Eft-
irlitsstofnunar EFTA (ESA) fyrir
árið 2000 sem nýlega kom út.
Í lok síðasta árs áttu EFTA-
löndin þrjú í EES að hafa lögfest
1.424 tilskipanir en af þeim höfðu
Íslendingar uppfyllt að fullu 94%.
Þetta er nokkuð lægra hlutfall en
hjá hinum EFTA-ríkjunum en það
var 95,3% hjá Norðmönnum og
best í Liechtenstein eða 97,6%.
Hlutfallið er í öllum tilfellum örlítið
hærra sé einnig tekið mið af þeim
tilskipunum sem að hluta til eru
komnar í gildi.
Í skýrslunni kemur fram að Ís-
lendingar virðast hafa slakað á í
þessum málum undanfarin ár og
var hlutfall tilskipana sem voru í
gildi að hluta eða að fullu um
tveimur prósentum lægra í fyrra
en árið þar á undan.
Sé eingöngu litið á þær tilskip-
anir sem framfylgja átti á árinu
2000 kemur í ljós að árangur Ís-
lands er mun slakari en hinna land-
anna. Af þeim 118 tilskipunum sem
um ræðir lögfesti Ísland aðeins tæp
53% að fullu á meðan Noregur inn-
leiddi tæplega 68% og Liechten-
stein tæplega 83%.
Formlegum aðvörunum sem
ESA sendi til aðildarríkja sinna
vegna tilskipana sem ekki höfðu
verið lögfestar fjölgaði um 28% í
fyrra sé miðað við árið á undan. Ís-
land á þar stærstan hlut að máli og
fékk helmingi fleiri formlegar að-
varanir í fyrra eða 51 en árið 1999
þegar þær voru 25 talsins. Ísland
er einnig það land sem hefur fengið
flestar slíkar aðvaranir á sjö ára
tímabili, á árunum 1994 - 2000.
Eftir að ESA hefur sent frá sér
formlega aðvörun gefst aðildarrík-
inu færi á að koma með athuga-
semdir. Ef ESA er enn þeirrar
skoðunar að aðildarríkið brjóti í
bága við tilskipanirnar er því sent
rökstutt álit um hvers vegna það er
talið brjóta í bága við tilskipunina.
Ísland fékk sjö slík álit í fyrra,
Noregur fékk fjögur en Liechten-
stein níu.
Í skýrslunni kemur fram að í lok
ársins 2000 hafi ESA borist kvört-
un vegna miðlægs gagnagrunns á
heilbrigðissviði þar sem viðkom-
andi telur að grunnurinn brjóti í
bága við alþjóða persónuverndar-
tilskipanir sem Ísland hefur m.a.
staðfest. ESA kannar nú hvort
þetta eigi við rök að styðjast.
Ísland og Noregur fengu í fyrra
sendar formlegar aðvaranir þar
sem ríkin höfðu ekki tilkynnt um
lögfestingu tilskipunar um flutning
hættulegra efna á vegum sem taka
átti gildi árið 1999. Síðan hefur
Noregur lögfest tilskipunina en hið
sama er ekki að segja um Ísland og
er enn beðið eftir tilkynningu um
lögleiðingu þaðan að því er segir í
skýrslunni.
Stjórnvöld hafa fengið
viðvörunarbréf
Þá hefur Ísland ekki lögleitt
nokkrar tilskipanir er varða flutn-
ing á vegum. Má þar nefna reglur
um flutning farþega með langferða-
bifreiðum, reglur um skrásetning-
arbúnað í flutningabílum, reglur
um farþegaflutning í langferðabif-
reiðum landa á milli og reglur um
farþegaflutning erlendra flutnings-
aðila. Hafa íslenskum stjórnvöldum
verið send formleg viðvörunarbréf
vegna þessara tilskipana.
Í skýrslunni er aukinheldur bent
á að Ísland hefur ekki lögleitt
fjölda reglugerða er varða sam-
keppnismál og er átján mánuðum á
eftir áætlun Evrópska efnahags-
svæðisins í þeim efnum.
Ísland stendur sig einna verst af löndunum í EFTA-samstarfinu
Uppfyllir fæstar
tilskipanir
ÁTAK, félag fólks með þroska-
hömlun, efndi í gær til móttöku þar
sem handbókin „Að þekkja sjálfan
sig“ var afhent í húsnæði Þroska-
hjálpar að Suðurlandsbraut 22 í
Reykjavík.
Þeir sem veittu bókinni viðtöku
voru fulltrúar Félagsþjónustunnar
í Reykjavík og fulltrúar frá félags-
þjónustum um allt land og fulltrúar
Svæðisskrifstofa um málefni fatl-
aðra.
Einnig voru þar fulltrúar frá
hinum ýmsu stofnunum sem sjá um
fræðslu fyrir fatlaða, trúnaðar-
menn fatlaðra, fulltrúar frá vernd-
uðum vinnustöðum og fulltrúar frá
hinum ýmsu samtökum sem berj-
ast fyrir málefnum fatlaðra. Auk
þessara aðila var félagsmálaráð-
herra og menntamálaráðherra af-
hent eintak.
Handbókin að þekkja sjálfan sig
er unnin með styrk frá Leonardo-
áætlun Evrópusambandsins og var
hluti af verkefninu „Vinnum saman
sem jafningjar“ sem Átak tók þátt
í ásamt samtökunum Mencap í
Bretlandi og Lev í Danmörku en
þessi samtök eru systursamtök
Þroskahjálpar á Íslandi. Þetta
verkefni stóð yfir í þrjú ár og lauk í
desember á síðasta ári. Útgáfa
handbókarinnar er eitt aðalframlag
Átaks til verkefnisins.
Markmið bókarinnar er að auka
sjálfstæði og sjálfstraust einstak-
linga með þroskahömlun, efla
þekkingu þeirra og skilning á rétti
sínum og styrkja þá til að vera í
forsvari fyrir eigin hagsmunabar-
áttu. Megináhersla er lögð á um-
ræðuefni sem sett eru fram í formi
umræðuæfinga. Vonast er til þess
að æfingarnar megi nýtast fólki
með þroskahömlun í viðleitni sinni
til að öðlast betri sjálfsmeðvitund.
Handbókinni fylgir myndbands-
spóla sem talsett er af leikhópnum
Perlunni og verður hún afhent
seinna í vor.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
María Hreiðarsdóttir afhendir Páli Péturssyni fyrstu bókina.
Afhentu ráðherra
handbók um
þroskahömlun
NEFND sérfræðinga sem skipuð
var í nóvember í fyrra til að gera
úttekt á hópbifreiðum í notkun og
öryggisbúnaði þeirra hefur skilað
áliti. Tilefni úttektarinnar var
ábending rannsóknarnefndar um-
ferðarslysa vegna margra alvar-
legra umferðarslysa hér á landi á
undanförnum árum þar sem far-
þegar í hópbifreiðum hafa slasast
og í nokkrum tilfellum látist.
Nefndin hefur nú lokið störfum
en þar áttu sæti Birna Hreiðars-
dóttir, deildarstjóri Löggildingar-
stofu, sem jafnframt var formaður
nefndarinnar, Ragnhildur Hjalta-
dóttir, skrifstofustjóri í samgöngu-
ráðuneytinu, Lárus Sveinsson,
fulltrúi hjá Skráningarstofunni hf.,
Benedikt Guðmundsson, formaður
Félags hópferðaleyfishafa, Óli H.
Þórðarson, framkvæmdastjóri um-
ferðarráðs, og Þorleifur Þór Jóns-
son, hagfræðingur, Samtökum
ferðaþjónustunnar.
Í starfi nefndarinnar var aðal-
áhersla lögð á að athuga mögu-
leika á því að lögleiða öryggisbelti
í þeim hópbifreiðum sem ekki hafa
slíkan búnað. Í því sambandi var
kannað hvernig ganga megi frá
festingum slíkra öryggisbelta,
þannig að þau uppfylli ítrustu ör-
yggiskröfur.
Meginniðurstaða nefndarinnar
er að leggja til að gerðar verði
breytingar á reglugerð um gerð og
búnað ökutækja til að tryggja að
lagaskylda verði að hafa örygg-
isbelti í öllum hópbifreiðum hér á
landi sem ætlaðar eru til sérleyfis-
og hópferðaaksturs.Veittur verði
frestur til 1. jan. 2004 til að koma
þessum málum í rétt horf. Ekki er
þó gerð krafa um að hópbifreiðir
sem skráðar voru fyrir 30. janúar
1998 séu búnar rúlluöryggisbelt-
um. Gerð verði sú krafa að ný-
skráðar notaðar hópbifreiðir sem
fluttar eru til landsins eftir að
ofangreind ákvæði í reglugerð um
gerð og búnað ökutækja taka gildi
séu búnar öryggisbeltum áður en
þær eru skráðar hér á landi. Að
öðru leyti gildi sömu reglur um
notaðar hópbifreiðir sem fluttar
eru til landsins.
Öryggisbelti verði í
öllum hópbifreiðum
SAMRÆMDUM prófum í
grunnskólunum lýkur fimmtu-
daginn 26. apríl. Með samstilltu
átaki skóla, félagsmiðstöðva,
lögreglu, Félagsþjónustunnar,
foreldra o.fl. undanfarin ár hef-
ur tekist að draga stórlega úr
hópamyndunum og drykkju
meðal barna við lok samræmdu
prófanna.
Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur, Félagsþjónustan
í Reykjavík, Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur, Lögreglan í
Reykjavík, SAMFOK, Heimili
og skóli, samstarfsnefnd
Reykjavíkurborgar í afbrota-
og fíkniefnavörnum og Ísland
án eiturlyfja hafa af þessu til-
efni sent frá sér ályktun þar
sem segir m.a:
Ólöglegt að kaupa áfengi
fyrir unglinga
„Við viljum minna á að for-
eldrar eru besta forvörnin,
elskulegir og ákveðnir. Við
hvetjum foreldra til að verja
deginum og kvöldinu með börn-
um sínum eða hvetja þau til að
fara í skipulagðar ferðir sem
víða verður farið í þennan dag.
Mörg dæmi eru um að á þessum
degi, eða næstu helgar, neyti
börn áfengis í fyrsta skipti.
Að gefnu tilefni viljum við
minna á að ólöglegt er að
kaupa, veita og afhenda ein-
staklingi undir 20 ára aldri
áfengi. Einnig viljum við brýna
fyrir foreldrum að samþykkja
ekki eftirlitslaus partý og ferðir
og minnum á að börn undir 16
ára aldri mega ekki vera úti eft-
ir kl. 22.00 nema í fylgd með
fullorðnum.
Foreldrar, elskum börnin
okkar óhikað! Foreldrar eru
besta forvörnin, elskulegir og
ákveðnir.“
Byrjað að
undirbúa lok
samræmdu
prófanna
SPARISJÓÐUR Kópavogs, SPK,
brást snöggt við og gaf þeim Ás-
dísi Rósu og Mími ný hlaupahjól,
eftir að upplýst varð að hlaupa-
hjólum þeirra var stolið þegar
þau systkinin voru viðstödd opn-
unarhátíð SPK í Smáranum ný-
lega.
Í Velvakanda miðvikudaginn
11. apríl var sagt frá því að Ásdís
Rósa og Mímir urðu viðskila við
hlaupahjólin sín á opnunarhátíð-
inni. Þar voru þau ásamt fjölda
fólks að njóta skemmtiatriða og
veitinga í tilefni opnunar nýrrar
afgreiðslu SPK. Ekkert hefur
spurst til hjólanna og því brugð-
ust forsvarsmenn SPK við því og
gáfu þeim ný hjól.
Á myndinni eru Hildur Grét-
arsdóttir, markaðsstjóri SPK, Ás-
dís Rós Hafliðadóttir 9 ára, Mímir
Hafliðason 7 ára og móðir þeirra
Valdís Kristjánsdóttir.
Fengu ný
hlaupahjól