Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 24

Morgunblaðið - 19.04.2001, Síða 24
ÚR VERINU 24 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ SKIPSTJÓRAR og útgerðarmenn flestra línuskipa sem róa með beitn- ingavélum vara við of mikilli sókn í keilu og löngu og leggja til að hvorki Norðmenn né Færeyingar fái að stunda veiðar á þessum tegundum hér við land, en um slíkar heimildir hefur verið samið. Þessi skip eiga það sameginlegt að keilu- og löngu- veiðar eru snar þáttur í þeirra af- komu. Tilefni fundarins var að fara yfir stöðu mála varðandi áhyggjur manna um að þessir stofnar séu þeg- ar ofveiddir en engu að síður notaðir sem skiptimynt fyrir veiðar togara og nótaskipa í lögsögum þeirra. Burðarásar í landvinnslunni Þessi línuskip eru burðarásar landvinnslu víða um land og landa stórum hluta afla síns á fiskmarkaði. Menn höfðu á þessum fundi miklar áhyggjur af áframhaldandi útgerð þessara skipa eins og kemur fram í meðfylgjandi ályktun sem afhent var sjávarútvegsráðherra 10. apríl. Þar kemur einnig fram að fundurinn hvetur stjórnvöld og aðra viðkom- andi aðila til að gæta þess að hags- munir þessara skipa verði ekki fyrir borð bornir í þeirri umræðu og ákvörðunum sem framundan eru varðandi stjórn fiskveiða við Ísland. Á fundinum var einnig farið yfir markaðsmál varðandi þessar teg- undir og kom í ljós að markviss vinna hefur verið unnin varðandi markaðssetningu afurða úr þessum tegundum og stefnir í að þessir markaðir glatist aftur ef ekki verður gripið til viðeigandi ráðstafana. Eft- irfarandi ályktun var samþykkt á fundinum: Takmarka verður veiðar „Fundur skipstjóra og útgerðar- manna línuskipa með beitningarvél haldinn í Reykjavík 9. apríl 2001 ályktar eftirfarandi um keilu, löngu og blálöngu. Fundurinn harmar þá stefnu stjórnvalda að nota ofveidda fiski- stofna, keilu, löngu og blálöngu, sem skiptimynt fyrir veiðar togara og nótaskipa í færeyskri og norskri lög- sögu. Að áliti okkar skipstjórnar- manna eru ofangreindir stofnar of- veiddir. Afli á sóknareiningu hefur minnkað, veiðisvæði dregist saman og fiskurinn smækkað mikið. Það er vaxandi samkeppni um minnkandi magn á sífellt smærra svæði. Fundurinn telur því nauðsyn- legt að takmarka veiðarnar næstu árin og þannig megi ná mun meiri verðmætum út úr þessum stofnum þegar fram líða stundir. Núverandi sókn skilar ekki bara minni heildar- afla heldur einnig lægri meðalvigt sem þýðir verðminni fisk. Þetta set- ur einnig margra ára markaðsstarf í uppnám. Á sama tíma og veiðar minnka og áhyggjur skipstjórnarmanna aukast vegna ofveiði semja stjórnvöld við Færeyinga um ótakmarkaða keilu- veiði sem gæti orðið jafnmikil og ár- leg keiluveiði við Ísland undanfarin ár. Einnig veldur það áhyggjum að á meðan íslensk skip stunda þorsk- veiðar á vetrarvertíð koma Færey- ingar og Norðmenn á keilumiðin og taka rjómann af veiðinni sem gerir það að verkum að þegar íslensku skipin byrja hefur veiðin minnkað mikið. Allt þetta leiðir af sér að arð- semi keiluveiðanna yfir sumartím- ann er hrunin. Veiði á löngu og keilu hefur verið stór þáttur í rekstri beitningavélaskipa og hefur uppi- staða þess afla á Íslandsmiðum verið veidd yfir sumartímann. Fundurinn skorar á sjávarútvegs- ráðherra, samtök sjómanna og út- vegsmanna að grípa þegar til að- gerða til að forða þessum stofnum frá hruni sem meðal annars miðar að því að takmarka verulega eða stöðva alveg veiðar Norðmanna og Færeyinga úr þessum stofnum við næstu endurskoðun samninga. Vilji stjórnvöld viðhalda samning- um við þessar þjóðir ber að gera það með öðrum stofnum en þeim sem of- veiddir eru. Að lokum hvetur fundurinn við- komandi aðila til að sjá til þess að hagsmunir þessara skipa verði ekki fyrir borð bornir við endurskoðun fiskveiðistjórnunarlaganna eða við aðrar ákvarðanir.“ Vaxandi samkeppni um minnkandi magn Skipstjórar og útgerðarmenn línuskipa vara við of mikilli sókn í keilu og löngu á Íslandsmiðum STARFSMENN Hafrannsókna- stofnunar á Ísafirði og Póls raf- eindavara vinna nú að þróun sjálf- virks búnaðar til mælinga á fiski og nota til þess tölvusjón af full- komnustu gerð frá National Instruments. Mikil þróun hefur orðið á öllum hugbúnaði til mynd- greiningar og tæknin orðin við- ráðanleg öllum. Í upphafi er tækn- in reynd á rannsóknarstofu og aðferðafræðin þróuð og síðar verður búnaður fluttur á vinnu- stað. Á myndinni má sjá þá Hjalta Karlsson hjá Hafrannsóknastofn- un (hægra megin) og Hálfdán Ing- ólfsson hjá Póls við fyrstu próf- anir, en útklipptur fiskur úr pappa er undir myndavélinni í bakgrunn- inum. Allur búnaður til þessa verkefnis hefur verið fenginn að láni hjá verkfræðistofunni Vista. Nota tölvusjón við mælingar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.