Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALRÍKISYFIRVÖLD í Bandaríkj- unum halda áfram að rannsaka mál öldungadeildarþingmannsins Roberts G. Torricellis sem grun- aður er um að hafa þegið ólögleg- ar gjafir og fjárstuðning. Torric- elli er demókrati og fulltrúi New Jersey á þingi. Hann hefur meðal annars haft afskipti af deilum vegna flutninga fyrir varnarliðið í Keflavík og réttindi útgerðarfyr- irtækja í New Jersey í því sam- bandi. Rannsóknin hófst árið 1997 og snerist í fyrstu eingöngu um ólög- leg framlög í kosningasjóði en síðar hafa m.a. komið fram ásak- anir um að aðstoðarmenn Torric- ellis hafi reynt að hindra fram- gang rannsóknarinnar. Að sögn The New York Times eru nú kannaðar vísbendingar um að Torricelli hafi brotið lög með því að þiggja gjafir frá fyrrverandi stuðningsmanni, David Chang, og skýra ekki frá gjöfunum. Chang hefur viðurkennt að hafa gefið með ólöglegum hætti 53.700 dollara, um fimm milljónir króna, í kosningasjóði Torricellis. Einnig segist hann hafa reynt að fá þingmanninn til að veita aðstoð við framgang nokkurra stórra al- þjóðlegra viðskiptasamninga. Hafi hann gefið Torricelli tugþúsundir dollara sem þingmaðurinn hafi notað til ferðalaga og í búðarápi. Einnig hafi hann fengið ýmsar gjafir. Má nefna tíu klæðskera- saumuð jakkaföt með ítölsku sniði, Rolex-armbandsúr er kostar um 8.100 dollara, nær 800 þúsund krónur, skyrtuhnappa frá hinni heimsþekktu Tiffany’s-verslun, gólfteppi sem kostaði um 1.500 dollara, eyrnalokka handa fyrr- verandi vinkonu Torricellis og loks 52 tommu Toshiba-sjónvarps- tæki. Lögmenn þingmannsins vísa fullyrðingum Changs á bug og segja þær uppspuna. Strangar reglur gilda um há- marksandvirði gjafa sem banda- rískir þingmenn megi þiggja og þeir mega alls ekki þiggja neitt fyrir að fylgja eftir málum í krafti embættis síns. Heimildar- menn blaðsins segja að tveir fyrr- verandi aðstoðarmenn Changs hafi þegar við vitnaleiðslur stað- fest orð hans og einnig munu vera til reikningar er skjóta stoð- um undir frásagnir hans. Kona sem vann hjá Chang segir hann eitt sinn hafa reynt að fá sig til undirrita yfirlýsingu um að gjaf- irnar væru aðeins lán til Torric- ellis og hafi öldungadeildar- þingmaðurinn farið fram á slíka yfirlýsingu. Klæðskerinn Chang Hwan Choi ræddi við liðsmenn alríkislögregl- unnar, FBI, árið 1997. Segir hann David Chang eitt sinn hafa náð í sig í verslunina og hafi þeir ekið að heimili manns sem kynntur var sem „John“. Tekið hafi verið mál af manninum og síðar keypti David Chang tíu jakkaföt er saumuð voru eftir málunum. Klæðskerinn segist ekki hafa ver- ið viss um að muna nógu vel eftir andliti mannsins en lögreglu- mennirnir hafi tjáð sér að „John“ hafi verið Torricelli öldungadeild- arþingmaður. Fyrir skömmu gerðu lögreglumenn húsleit á heimili Torricellis í Englewood í New Jersey en ekki er ljóst hver niðurstaðan var af henni. Rannsóknin á gjafamáli bandaríska öldungadeildarþingmannsins Torricellis Klæðskera- saumuð föt og skartgripir Robert Torricelli (t.h.) ásamt George W. Bush forseta. FÁNINN, sem Suðurríkin börðust undir í bandarísku borgarastyrjöld- inni, verður áfram í fána Miss- issippiríkis í Bandaríkjunum. Var það samþykkt í almennri atkvæða- greiðslu í fyrradag og meirihluti kjósenda vísaði því á bug, að fáninn væri táknrænn fyrir kynþáttamis- rétti og hamlaði í raun efnahags- legri framþróun í ríkinu. Suðurríkjafáninn er uppi í vinstra horni ríkisfánans en tillaga um að 20 stjörnur kæmu í hans stað var felld með miklum meirihluta. 65% vildu óbreyttan fána en 35% ekki. Í augum margra hvítra manna er Suðurríkjafáninn tákn merkrar sögu og arfleifðar en blökkumenn líta hins vegar á hann sem beina ögrun. Á síðustu árum hefur verið tekist á um fánann í öðrum Suð- urríkjanna og hefur hann alls stað- ar látið undan síga nema í Miss- issippi. Á síðasta ári var hætt að flagga honum á þinghúsinu í Suður- Karólínu og fána Georgíu var breytt til að gera Suðurríkjakross- inn minna áberandi. Hvítir íbúar Mississippi eru 61% og blökkumenn 36% og segja má, að úrslitin hafi að mestu farið eftir þessum línum. AP Mississippifáninn í bakgrunni með Suðurríkjakrossinn uppi í vinstra horni og eintak af nýja fánanum eins og lagt var til að hann yrði. Suðurríkja- fáninn sigraði í Mississippi Jackson. AP, AFP. ÍRAKSSTJÓRN fordæmdi í gær eldflaugaárásir Írana á búðir íranskra stjórnarand- stæðinga innan landamæra Íraks. Að sögn Mujahedeen-hreyf- ingarinnar, öflugasta hóps her- skárra andstæðinga Írans- stjórnar, skaut íranski herinn allt að 66 Scud-flugskeytum á sjö bækistöðvar hreyfingarinn- ar innan írösku landamæranna í gærmorgun. Talsmaður Muj- ahedeen, Farid Suleimani, sagði að einn liðsmaður hreyf- ingarinnar og nokkrir Írakar hefðu farist í árásunum. Í yfirlýsingu sem Íraksstjórn sendi frá sér í gær segir að Ír- anar þurfi að axla „fulla ábyrgð samkvæmt alþjóðalögum á því manntjóni og eignatjóni sem þessi bleyðulega árás olli.“ Þrátt fyrir að aðgerðir Írans- hers í gær hafi beinst að búðum íranskra þegna, má segja að þetta sé mesta árásin sem Ír- anar hafi gert á Írak frá því að stríði þjóðanna lauk árið 1988. Enn ríkir mikil spenna í sam- skiptum landanna, sem stafar ekki síst af því að stjórnarand- stæðingar í hvoru ríki um sig hafa bækistöðvar innan landa- mæra hins. Írakar for- dæma árás- ir Írana Bagdad. AFP, AP. FYRSTU viðræðum nefnda á vegum stjórnvalda í Bandaríkjunum og Kína um njósnavélina sem nauðlenti á Hainan eftir árekstur við kínverska herþotu lauk í Peking í gær. Segja heimildarmenn að þær hafi verið ár- angurslausar og ekki hafi verið boð- aður annar fundur í dag þótt það væri fullyrt í kínverskum fjölmiðlum. Hins vegar mun sendiherra Bandaríkj- anna, Joseph Prueher, hitta að máli kínverska embættismenn í dag. Talsmenn Bandaríkjastjórnar í Washington sögðu að fundurinn hefði verið „gagnslaus“ og ekkert hefði áunnist. Er bandarísku fulltrúarnir sneru aftur til sendiráðsins frá húsa- kynnum utanríkisráðuneytisins í Peking neituðu þeir að svara spurn- ingum fréttamanna. Fyrir nefndinni fer Peter Verga aðstoðarutanríkis- ráðherra. Embættismaður sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði að Kín- verjar hefðu harðneitað að falla frá þeirri fullyrðingu sinni að Banda- ríkjamenn bæru ábyrgð á árekstrin- um. Ekkert hefði heldur þokast í deil- unni um flugvélina sem Banda- ríkjamenn vilja fá aftur. Áhöfninni var á sínum tíma sleppt eftir 11 daga stofuvarðhald á Hainan. Bandaríkjamenn segja að njósna- vélin hafi verið yfir alþjóðlegu haf- svæði. Þeir hyggjast halda áfram að stunda eftirlitsflug á svæðinu en Kín- verjar heimta að því verði hætt. Kínverski flugmaðurinn, Wang Wei, lét lífið í slysinu sem varð á Suð- ur-Kínahafi og er hann nú hylltur sem eitt af „fórnarlömbum byltingarinn- ar“ í ríkisfjölmiðlum landsins. Kín- verjar segja að bandaríska vélin hafi sveigt fyrir herþotuna en því vísa Bandaríkjamenn á bug og kenna óvarkárni Wangs um slysið. Hafa þeir tekið upp harðari afstöðu eftir að áhöfnin fékk loks að fara heim. Leið- arahöfundur málgagns kínverska kommúnistaflokksins, Dagblaðs Al- þýðunnar, gerði gys að þessari stefnubreytingu George W. Bush for- seta og sagði hana hafa orðið „um leið og hann heyrði að bandaríska áhöfnin var lent í Honolulu“. Myndbandsupptaka af kín- verska flugmanninum birt Bandaríkjamenn birtu í gær mynd- band sem áhöfn njósnavélar tók upp í janúar sl. Sést áðurnefndur Wang fljúga þotu sinni nálægt njósnavélinni og halda á spjaldi með netfangi sínu. Hann bendir á blaðið og hvetur með látbragði sínu Bandaríkjamennina til að fljúga nær sér. Andlitsdrættir Wangs sjást vel á myndbandinu. Viðræður um njósnavél enn árangurslausar Washington. AFP, AP, The Daily Telegraph. VIÐBRÖGÐ fjölmiðla, stjórnmála- skýrenda og fulltrúa stjórnarand- stöðuflokka í gær við sjónvarpsvið- tali við Lionel Jospin, forsætis- ráðherra Frakklands, sem sent var út í beinni útsendingu í fyrrakvöld, voru meira eða minna öll á eina leið: að frammistaða hans hafi verið léleg; tilsvör hans hafi verið innihaldsrýr og andlaus. „Jospin lýsti engu yfir,“ var fyr- irsögn dagblaðsins Le Parisien á umfjöllun þess um viðtalið sem beðið hafði verið með allnokkurri eftir- væntingu, bæði vegna þess að á rík- isstjórninni standa mörg spjót þessa dagana og þeir Jospin og Jacques Chirac forseti eru báðir farnir að setja sig í stellingar fyrir kosninga- baráttu um forsetaembættið en ár er nú í að bæði forseta- og þingkosn- ingar fari fram í Frakklandi. Le Monde sagði að Jospin hefði ekki notað tækifærið til að setja stjórninni ný markmið eins og al- mennt hafði verið vænzt að hann myndi gera. Le Figaro sagði að for- sætisráðherrann hefði ekki gert neitt annað en að verja stefnu stjórn- arinnar; hann hefði ekki bætt neinu nýju við. Í viðtalinu, sem stóð í 45 mínútur, eyddi Jospin mestum tíma í að verja stefnu samsteypustjórnar sinnar í efnahags- og félagsmálum. Sagði hann þá hörðu gagnrýni sem stjórn- in hefði sætt vera óréttmæta; hún sé á réttir braut og muni halda völdum. Stjórnin hefur átt á brattann að sækja frá því Sósíalistaflokkur Jo- spins fór illa út úr sveitarstjórnar- kosningum í síðasta mánuði. Fulltrúar hægriflokkanna, sem eru í stjórnarandstöðu, sögðu viðtal- ið hafa verið „flatneskjulegt“ og „leiðinlegt“ og forsætisráðherrann hefði með frammistöðu sinni farið illa með gott tækifæri. „Þetta var glatað tækifæri vegna þess að honum mistókst að lýsa yfir einhverju sem sennilegt væri til að sýna Frökkum að hann væri í tengslum við þau vandamál sem hrjá þá,“ sagði Charles Pasqua, formaður RPF, klofningsflokks úr Gaullista- flokknum RPR. Jospin veldur von- brigðum París. AFP, AP. AP Lionel Jospin í viðtalinu á sjónvarpsstöðinni France 2 í fyrrakvöld. FJÓRIR menn voru í gær dæmdir til dauða og líflátnir í Kína vegna sprengjutilræða er kostuðu 108 manns lífið í borg- inni Shijiazhuang, norðarlega í landinu, hinn 16. mars. Aðal- hvatamaðurinn, Ji Ruchao, var 41 árs. Hann var sagður hafa staðið fyrir morðunum til að hefna sín á fólki sem honum var illa við. Íbúar í borginni hafa hins vegar látið í ljós grun um að glæpaflokkar hafi verið að verki en einnig geti tilræðismenn hafa verið óánægðir verkamenn og hermenn. „Jin var illa við nágranna sína og einnig tengdamóður sína, fyrrverandi eiginkonu og systur sína vegna smávægilegra mál- efna,“ sagði í skeytum opinberu fréttastofunnar Xhinhua um niðurstöður dómarans. „Hann ákvað því að nota sprengjur til að fá útrás.“ Jin var einnig dæmdur fyrir hnífstunguárás á fyrrverandi unnustu sína um viku fyrir sprengjutilræðin. Hinir mennirnir þrír, sem voru teknir af lífi, voru sakaðir um að hafa aðstoðað Jin við að ná í ólöglegt efni sem notað var í sprengjurnar og við að búa þær til. Eru þeir félagar sagðir hafa stundað ólöglega framleiðslu og verslun með slík efni í nær ár. Sprengjurnar sprungu með fárra klukkustunda millibili. Jin er sagður hafa flutt þær á nokkra valda staði daginn áður á þriggja hjóla vélhjóli sínu en síð- an fengið sér leigubíl morguninn eftir til að geta verið fljótur í för- um þegar hann setti kveikibún- að þeirra af stað. Jin var handtekinn átta dög- um eftir tilræðin og var þá staddur í um 2000 kílómetra fjarlægð, í Guanxi-héraði í Suð- ur-Kína. Leitin að honum er sögð hin umsvifamesta í sögu glæpamála í Kína. Fjórir líflátnir í Kína Dæmdir fyrir sprengju- tilræði Peking. AFP, Reuters.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.