Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 28
ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Heitt vor í Kramhúsinu • Yoga fyrir byrjendur • Kripalu-jóga • Power-jóga • Jóga fyrir barnshafandi • Mömmu-jóga • Leikfimi • Flamenco • Magadans • Salsa • Tango • Afró • Breikdans • Trommur • Didgerido • Hip hop símar 551 5103 og 551 7860 „VIÐ óttumst ekki þyrlur ykkar, við óttumst ekkert. Það réttlæti sem gildir í Bandaríkjunum og Bretlandi ætti að ríkja gagnvart okkur.“ Páska- boðskapur séra Ratko Peric, biskups- ins af Mostar í Bosníu, er ekki í hátíð- aranda þetta árið. Spennan í borginni hefur aukist í kjölfar nýlegra uppþota Króata við Hercegovacka-bankann sem fulltrúar alþjóðasamfélagsins hugðust loka fyrr í mánuðinum. Króatar eru reiðir í garð alþjóðasam- félagsins og hrifning þeirra á músl- ímskum nágrönnum er einnig tak- mörkuð. Messuhald þeirra ber keim af þessu, predikun biskupsins fellur í frjóan jarðveg. Bosníska borgin Mostar er tvískipt og þrátt fyrir að rúmlega fimm ár séu liðin frá stríðslokum andar enn köldu á milli króatískra og múslímskra íbúa hennar. Ef eitthvað er hefur spennan aukist í kjölfar uppþotanna við bank- ann. Útlendingar eru ekkert sérlega velkomnir í króatíska hlutanum, átta brynvarðir bílar og þungvopnaðir hermenn eru fyrir utan skrifstofur Öryggis- og samvinnustofnunar Evr- ópu, ÖSE, annað eins við skrifstofu Fulltrúa alþjóðasamfélagsins (OHR). Sú síðarnefnda er reyndar tóm, æstur múgur gerði tilraun til að ráðast inn í kjölfar bankamálsins og ekki er talið óhætt að opna í bráð. Bankanum lokað Bankanum var lokað þar sem talið var ljóst að hann væri notaður til að fjármagna fyrstu skrefin í átt að sjálf- stæði suðurhluta Bosníu, Herzegóv- ínu, sem er að meirihluta byggð Kró- ötum. M.a. var bankinn notaður til að greiða hermönnum laun sem sögðu skilið við bosníska sambandsherinn og gengu í nýstofnaðan her Króata. Ekki tókst betur til en svo að aðsúgur var gerður að starfsmönnum OHR sem loka áttu bankanum og kom SFOR, herlið NATO, til aðstoðar. Um 25 hermenn særðust í átökum við reiðan múginn og var talin mildi að enginn skyldi láta lífið en byssu var haldið að höfði bandarísks starfs- manns OHR og honum hótað lífláti. Kölluðu Bandaríkjamenn alla starfs- menn sína í Mostar heim um páska- helgina. Bankinn hefur verið lokaður í tæp- ar tvær vikur og ekkert bendir til þess að hann verði opnaður í bráð að sögn vestrænna embættismanna sem hafa hvatt yfirmenn bankans til að af- henda skjöl hans. Hinir síðarnefndu neita samvinnu og reiðin vex á meðal viðskiptavinanna, ekki síst ellilífeyr- isþega sem ekki fá lífeyrinn greiddan. Króatar fullyrða að lokun bankans hafi þegar haft slæm áhrif á viðskipti í Herzegóvínu. Ónefndir alþjóðlegir embættismenn segja að í undirbún- ingi séu frekari lokanir en viðurkenna jafnframt að OHR óttist afleiðingarn- ar ef látið verði til skarar skríða. Reiðir alþjóðasamfélaginu En málið snýst ekki aðeins um bankann. Króatar eru ekki aðeins reiðir vegna bankans, þeir eru reiðir ÖSE fyrir að refsa flokkum þjóðern- issinnaðra Króata í Herzegóvínu fyrir að efna til þjóðaratkvæðis um sjálf- stæði um leið og þingkosningar fóru fram í nóvember sl. Talsmenn HDZ, sem er systurflokkur flokks Franjo Tudjmans, fyrrum forseta Króatíu, segja yfir 70% Bosníu-Króata hafa greitt atkvæði með sjálfstæði og í síð- asta mánuði lýsti bandalag þjóðern- issinna með HDZ í broddi fylkingar yfir sjálfstæði Herzegóvínu. „Króatar hér eru búnir að fá nóg. alþjóðasamfélagið kemur fram við okkur eins og það sé okkur æðra; tal- ar niður til okkar. Það er engin þörf á því. Við viljum sjálfstæði, að minnsta kosti meira sjálfræði en nú er. Okkur svíður að sjá serbneskt lýðveldi í Bosníu á sama tíma og við erum þvingaðir til að vera í sambandsríki með múslímum,“ segir Króatinn Mar- io, vel þekktur blaðamaður og pistla- höfundur. Þrátt fyrir að allt sé með kyrrum kjörum í Mostar er Mario ekkert sér- lega vongóður um áframhaldið. „Hinn króatíski hluti Mostar er fullur af reiðu, öskureiðu fólki, sem allt hefur byssur undir höndum og er reiðubúið að nota þær. Það þarf ekki að senda króatískan liðsauka hingað, menn hér eru vanir að nota vopn. Stríðið varð til þess að fólk hér er ekki hrætt við neitt, síst af öllu hermenn,“ segir hann. Eins og margir aðrir Krótar er hann ósáttur við þá ákvörðun SFOR að senda auka liðsafla til Herzegóvínu og segir að alþjóðasamfélagið hafi gert mistök sem króatískir harðlínu- menn hafi óspart nýtt sér. „Það er þeim í hag að ástandið sé sem óstöð- ugast.“ Mario talar fyrir hönd margra Króata, fólks sem vill helst af öllu komast hjá átökum. En sé því ógnað af harðlínumönnum, eins og ónefndur vestrænn stjórnarerindreki í Bosníu segir fullvíst að eigi sér stað, eða finn- ist því á hlut sinn gengið, er hætt við að óánægja magnist sem erfitt er að hafa stjórn á. Moskurnar og krossinn Spennan í Mostar er ekki ný af nál- inni. Hún birtist ekki síst í trúarleg- um byggingum kaþólikka og múslíma í hvorum borgarhlutanum fyrir sig. Nokkrar nýjar moskur hafa risið, þétt upp við hver aðra, og feiknahár kirkjuturninn sem er í byggingu í króatíska hlutanum stingur í stúf við umhverfið. Umdeildastur er þó án nokkurs vafa tuttugu metra kross sem kirkjuyfirvöld í Mostar ákváðu að reisa á Hum-hæðinni sem er yfir borginni. Krossinn er ekki aðeins afar áberandi í hrjóstrugri hlíðinni, hann er líka staðsettur á sömu hæð og her Króata var er hann lagði stóra hluta borgarhluta múslima í rúst. „Kristið tákn fer ekki fyrir brjóstið á mér en staðsetningin gerir það,“ segir eldri maður í múslímska hlutanum reiði- lega. „Króatarnir myndu setja kross- inn upp hér í hverfinu okkar ef þeir gætu. Þeir verða að sýna mátt sinn og megin.“ Þrátt fyrir að múslimar og tals- menn alþjóðasamfélagsins hafi látið í ljósi óánægju með byggingu krossins, var ekkert hafst að og hann reis sl. sumar. „Krossinn á Hum er eingöngu trúartákn, hann hefur enga aðra merkingu,“ segir Peric biskup. Króatíski presturinn Svetozar Kraljevic segir tengsl trúar og þjóð- ernishyggju óhjákvæmileg, líkir þeim við vaxtarverki þjóðar. „Mér þykir leitt að sjá trúna notaða til að ýta und- ir þjóðernishyggju en ég geri mér grein fyrir að ekki verður hjá því komist. Fólk grípur dauðahaldi í trúna þegar allt annað er í upplausn. Krossinn í Mostar er dæmi um þetta. Moskurnar sem hafa sprottið upp um alla Bosníu eru það einnig.“ Á föstudaginn langa ganga þús- undir manna upp Hum-hæðina að krossinum, stöðva fjórtán sinnum til að biðjast fyrir og minnast píslar- göngu Krists. Ræða biskupsins undir krossinum kafnar næstum í ísköldu rokinu en ekki leikur neinn vafi á boð- skapnum sem fléttaður er inn í trúar- legar útleggingar á páskaboðskapn- um; Króatar eru búnir að fá nóg. Útlendingar; komið ef þið þorið. „Við erum ekki hræddir við afleiðingar Dayton, aðrir geta gert það sem þeir vilja en þeim mun ekki takast það,“ segir Peric biskup. „Við óttumst ekki þyrlur ykkar,“ bætir hann við með greinilegri vísan til SFOR þyrlu sem flaug yfir nokkrum mínútum áður. Biskup líkir krossinum á hæðinni við kross á gröf, eða móttakara fyrir skilaboð frá Guði. Dregur svo úr her- skáum boðskapnum með því að hvetja til þolinmæði og umburðar- lyndis; „Við verðum að fyrirgefa þeim sem gera okkur illt því þeir skilja ekki hvað þeir gjöra.“ Krossinn yfir Mostar Enn ríkir spenna í króatíska hlutanum í Mostar í kjölfar lokunar eins króatísku bank- anna. Útlendingar hafa fallið í ónáð og ekki hefur dregið úr þjóðernishyggjunni sem helst í hendur við sterka trúarvitund Króata. Urður Gunnarsdóttir skrifar frá Mostar. Thomas Dworzak/Magnum Photos Kaþólskir Bosníu-Króatar ganga fylktu liði sl. föstudag að krossi sem nýlega var reistur á hæð ofan við Mostar. Í borgarastríðinu notuðu Bosníu-Króatar hæðina til stórskotaliðsárása á múslímska hluta borgarinnar. FRÆÐSLUYFIRVÖLD í fjölmenn- asta héraði Suður-Afríku vilja banna eina þekktustu skáldsögu Nóbels- verðlaunahöfundarins Nadine Gord- imer. Segja þau bókina einkennast af „kynþáttahatri“ en Gordimer, sem er hvít á hörund, var á sínum tíma einn skeleggasti andstæðingur aðskilnað- arstefnunnar í landinu. Þá bönnuðu hvítu stjórnarherrarnir þrjár bækur hennar. Gordimer sagði í gær, að hún liti á það sem móðgun að vera kölluð kyn- þáttahatari eftir allt, sem á undan væri gengið, alla hennar baráttu ár- um saman. Hafa ýmsir kunnir rithöf- undar í Suður-Afríku komið henni til varnar en það voru skólayfirvöld í Gauteng-sýslu, sem tekur m.a. til Jó- hannesarborgar og Pretoríu, sem komust að því, að Gordimer lítilsvirti svertingja. Bókin, sem um ræðir, heitir „Júlí- fólkið“ og kom út 1981. Hefur hún verið lesin í skólum frá 1994. Segir sagan frá borgarastyrjöld milli hvítra manna og svartra og frá hvítri fjöl- skyldu, sem leitar á náðir blökku- manns og fv. vinnu- manns síns. Þar eru sem sagt höfð enda- skipti á hefðbundnum samskiptum kynþátt- anna. Svörtu ritskoðararnir sögðu bókina einkenn- ast af kynþáttahatri og hroka hvíta mannsins og þeim fannst hún tímskekkja vegna þess, að hún lýsti atburðum, sem aldrei hefðu gerst. Þá lögðu þeir einnig til, að Hamlet Shakespear- es yrði úthýst úr skól- unum vegna þess, að innihaldið væri ekki nógu „upplífg- andi“. Þeir létu þó Kaupmanninn frá Feneyjum óátaldan. Gordimer, sem er 77 ára, er einn kunnasti rithöfundur Suður-Afríku. Auk Nóbelsverðlaunanna hefur hún unnið til bresku Booker-verð- launanna og á tíma aðskilnaðarstefn- unnar var hún fremst í flokki þeirra, sem börðust gegn henni og ritskoð- uninni í landinu. Margir mennta- og fræðimenn í Suður-Afríku ætla að mótmæla ákvörðunum skólayfirvalda í Gaut- eng harðlega og tals- maður Lýðræðisbanda- lagsins í menntamálum sagði, að yrði einhvers konar pólitísk rétthugs- un notuð sem mælistika á bókmenntir, væri skammt í opinbera rit- skoðun og bókabrenn- ur. Hatur á hvítum mönnum Breska blaðið Daily Telegraph fjallaði um þetta mál í leiðara í gær og sagði það sýna hvernig ástandið væri að verða í landinu. Það sýndi ekki síst afstöðu yfirvalda, blökkumanna, til hvítra manna og skipti þá engu máli hvort um væri að ræða fólk, sem bar- ist hefði gegn aðskilnaðarstefnunni. Upp væri að rísa ný aðskilnaðar- stefna í landinu. Varað við ritskoðun og nýrri aðskilnaðarstefnu Nadine Gordimer Lagt til að skáldsaga verði bönnuð í einu héraði S-Afríku Jóhannesarborg. AFP, Daily Telegraph.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.