Morgunblaðið - 19.04.2001, Side 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 35
NÝLEGA lauk fyrsta starfsári for-
skóla fyrir leiklistarnám sem dr.
Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðing-
ur og Inga Bjarnason leikstjóri
komu á laggirnar síðastliðið haust.
Námið stóð yfir haust- og vorönn,
og er ætlað að veita undirbúning
fyrir formlegt leiklistarnám. Að
sögn Jóns Viðars Jónssonar gekk
starfsemi skólans þennan fyrsta
vetur mjög vel en fimmtán nem-
endur fóru í gegnum námið. „Þetta
var náttúrlega tilraun hjá okkur,
enda hefur vantað nám af þessu
tagi í skólakerfið,“ segir Jón og
bætir því við að af viðbrögðunum
sem þau Inga fengu eftir að hafa
auglýst námið, sé ljóst að þörfin
fyrir skóla af þessu tagi sé mikil.
„Nú þegar Listaháskólinn hefur
verið stofnaður, sjá menn kannski
enn betur að enginn fer inn í tón-
listardeild eða myndlistardeild
skólans án þess að hafa farið í
gegnum einhvers konar fornám. Í
leiklistinni er engu slíku til að
dreifa. Menn fara bara beint í inn-
tökupróf og eru mjög misjafnlega
vel búnir undir það.“
Í skólanum var lögð áhersla
bæði á praktískt og fræðilegt nám.
Inga Bjarnason og Helga Jóns-
dóttir leikkona kenndu leiktúlkun,
framsögn og textameðferð en Jón
Viðar sá um fræðilegu hliðina, með
fyrirlestrum um leiklistarsögu og
leikritagreiningu. „Við reyndum að
gera miklar kröfur í náminu, enda
er markmið þess ekki síst að kenna
fólki ákveðinn vinnuaga og veita
innsýn í það sem starfið felur í sér.
En um leið var hugsunin einnig sú
að námið gagnaðist þeim sem vildu
fá aukið sjálfstraust til að koma
fram og tala fyrir stórum hópi.“
Að lokum segir Jón Viðar að þau
Inga séu ákveðin í að halda starf-
semi skólans áfram. „Við stefnum
að því að hefja skólann aftur næsta
haust, og jafnframt er á dag-
skránni hjá okkur að fjölga
kennslustundum, kennurum og
kennslugreinum. Við höfum verið
að sinna ákveðnum þörfum með
þessu námi og það viljum við
gjarnan þróa umfram það sem
okkur var fært þennan fyrsta vet-
ur“.
„Ákveðin að
halda starfi
skólans áfram“
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Viðar Jónsson og Inga Bjarnason með nemendum úr forskóla fyrir
leiklistarnám. Á myndina vantar nokkra nemendur.
Fyrsta starfsári forskóla fyrir
leiklistarnám lokið
HÁSKÓLI Íslands og Stofnun
Árna Magnússonar efna til sam-
komu í hátíðasal Háskóla Íslands á
laugardag kl. 14 í tilefni af því að
þrjátíu ár eru liðin frá því að Kon-
ungsbók eddukvæða og Flateyjar-
bók voru færðar heim og fengnar
Háskóla Íslands til ævinlegrar
varðveislu.
Páll Skúlason háskólarektor
flytur ávarp og setur samkomuna.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra flytur ávarp. Prófessor Pet-
er Foote frá Lundúnum talar um
handritamálið frá sjónarhóli þeirra
sem utan við það stóðu. Benedikt
Erlingsson og Erlingur Gíslason
flytja eddukvæðið Hárbarðsljóð.
Þar segir frá því að Ása-Þór kem-
ur að sundi og kallar á ferju, en
ferjukarlinn Hárbarður, sem
reyndar er Óðinn faðir hans í dul-
argervi, neitar að ferja hann yfir
og deila þeir drykklanga stund uns
Þór verður frá að hverfa. Ólafur
Halldórsson handritafræðingur
flytur erindi um Flateyjarbók og
Konungsbók eddukvæða. Kynnt
verður ný útgáfa Konungsbókar
eddukvæða, gefin út af Lögbergi,
handritaforlagi Eddu – miðlunar
og útgáfu. Hér er um að ræða ljós-
prent ritsins alls, en einnig er
prentaður stafbrigðaréttur texti
handritsins, lína fyrir línu, og
gegnt hverri blaðsíðu með þeim
texta er textinn með nútímastaf-
setningu. Þetta er III. bindi í rit-
röðinni Íslensk miðaldahandrit,
sem Lögberg gefur út í samvinnu
við Stofnun Árna Magnússonar á
Íslandi. Vésteinn Ólason, forstöðu-
maður Árnastofnunar, ritar inn-
gang að útgáfunni, og er hann
einnig birtur í enskri þýðingu. Rit-
stjórn textanna annaðist Guðvarð-
ur Már Gunnlaugsson, sérfræðing-
ur við Árnastofnun.
Upplag útgáfunnar er takmark-
að, 500 tölusett eintök, og mun Vé-
steinn Ólason afhenda mennta-
málaráðherra 1. eintakið í minn-
ingu þess atburðar þegar Helge
Larsen, menntamálaráðherra Dan-
merkur, afhenti Gylfa Þ. Gíslasyni
handritið fyrir þrjátíu árum.
Að dagskránni lokinni gefst
gestum kostur á að líta handritin
tvö augum og skoða hina nýju út-
gáfu Konungsbókar.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Komu Konungs- og
Flateyjarbókar minnst