Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 38
LISTIR
38 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TIL að byrja með er hollt að hafa
hugfast að Men Of Honor er byggð á
sönnum atburðum. Aðalpersónan,
Carl Brashear (Cuba Gooding Jr.),
var fyrsti þeldökki Bandaríkjamaður-
inn sem komst í raðir kafara sjóhers-
ins, þá braut hann einnig blað í sögu
hersins er hann varð fyrstur til að
halda störfum þrátt fyrir alvarlega
bæklun. Brashear var sem sagt raun-
veruleg hetja.
Brashear lofar föður sínum að enda
ekki einsog hann; sem fátækur bóndi.
„Góður sonur gleymir aldrei,“ segir
karlinn og þau verða einkunnarorð
drengsins, sem veitir ekki af í því
óendanlega mótlæti sem á eftir að
mæta honum á leiðinni úr óbreyttum
hermanni í þjóðhetju. Brashear hóf
herþjónustu á öndverðum sjötta ára-
tugnum, þegar Truman forseti var
nýbúinn að gefa út þá umdeildu yf-
irlýsingu að framvegis yrði herinn op-
inn fyrir lituðum mönnum á öllum
sviðum. Hann komst á þrákelkninni í
kafaraskóla sjóhersins, þar sem hann
mætti andúð bekkjarbræðranna, enn-
fremur Billy Sunday, hans nánasta
yfirmanns og yfir öllu vokar æðsti
maður skólans, Mr. Pappy (Hal Hol-
brook). Hann hefur heitið því að eng-
inn litaður komist í gegnum námið á
meðan hann dregur lífsandann.
Brashear er ósvikið efni í frum-
kvöðulinn, bugast ekki í öllu mótlæt-
inu og kemst við illan leik í gegnum
lokaprófin. Kynnist stúlkunni sinni
(Aunjanue Ellis), í leiðinni. Verður að
lokum þjóðhetja þegar hann sigrar
fyrir herdómstólum og heldur sinni
gráðu eftir alvarlegt slys við skyldu-
störf. Nýtur þá fulltingis Sundays,
sem nú hefur snúist á sveif með hin-
um þeldökka heiðursmanni. Gamal-
dags mynd um gamaldags gildi eins-
og heiðarleika, þrautseigju og
metnað. Leikstjórinn Tillman segir
dramatíska og átakamikla sögu vafn-
ingalaust, fylgist fyrst og fremst með
leikurunum sínum, þeir eru hans
brellumeistarar. Gooding er traustur
sem óvenju kargur einstaklingur,
þrárri en argasti túnvargur, og veitir
ekki af. De Niro leikur annan ámóta
óbifanlegan þverhaus, sem tekur þó
sinnaskiptum og snýst á sveif með
manninum sem hann hafði mesta
skömm á. Hinsvegar eru aðrar per-
sónur illa gerðar, nánast óþarfar eins-
og þær koma við söguna. Þetta eru
báðar aðalkvenpersónurnar, Jo, eig-
inkona Brashears, og Gwen, hin dul-
arfulla spúsa Billys Sunday. Þær nást
aldrei í fókus. Uppúr stendur saga af
manni sem sakir óvenju mikilla
mannkosta tókst að brjóta blað í
langri og strangri baráttu fyrir jafn-
rétti kynþáttanna.
Metnaðarfullur
þverhaus
KVIKMYNDIR
R e g n b o g i n n ,
B í ó h ö l l i n , B o r g a r b í ó
A k u r e y r i
Leikstjóri George Tillman, Jr.
Handritshöfundur Scott Marshall
Smith. Tónskáld Mark Isham. Kvik-
myndatökustjóri Anthony B. Rich-
mond. Aðalleikendur Robert de
Niro, Cuba Gooding, Jr., Charlize
Theron, Aunjanue Ellis, Hal Hol-
brook, Michael Rappaport, Powers
Boothe, David Keith. Sýningartími
125 mín. Bandarísk. 20th Century
Fox. Árgerð 2000.
MEN OF HONOR 1 ⁄2
Sæbjörn Valdimarsson
MAGNÚS Einarsson, mannfræð-
ingur og ljósmyndari, verður með
litskyggnusýningu í Norræna hús-
inu í dag, fimmtudag, kl. 14 og kl.
15.30. Sýningin sem kallast Lands-
lag – pláneturnar samanstendur af
420 litskyggnum af íslensku lands-
lagi og mannlífi á öllum árstíðum.
Fjórar samhæfðar skyggnusýning-
arvélar birta myndirnar, en það er
tónlistin Pláneturnar eftir G.
Holst sem stýrir birtingarhætti
hverrar myndar. Með þessum
hætti verður úr kröftugt „Slide
Show“ þar sem myndir og tónar
renna saman í eitt. Sýningin varp-
ar ljósi á það hvernig pláneturnar
eiga sér hugsanlega stoð í lands-
lagi Íslands.
Aðgangseyrir kr. 800.
Eitt verka Magnúsar Einarssonar.
Skyggnusýn-
ing með tónlist
RÁÐSTEFNA um japanska menn-
ingu verður haldin í Húsi versl-
unarinnar, Kringlunni 7, á laug-
ardag kl. 13. Ráðstefnan er á
vegum Íslensk-japanska félagsins
og Japönsku menningarmiðstöðv-
arinnar.
Áhersla verður lögð á ýmsa
þætti japanskrar nútímamenn-
ingar en á dagskránni eru fyr-
irlestrar og skemmtiatriði. Dag-
skráin er tvíþætt. Annars vegar
verður fjallað um daglegt líf í
Japan. Sjónum verður beint að
japönsku stórborginni og sam-
tímalegri hönnun. Hins vegar
verður fjallað um þær hræringar
sem efst eru á baugi í menningu
og listum.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, for-
maður íslensk-japanska félagsins,
opnar ráðstefnuna.
Auðun Georg Ólafsson stjórn-
málafræðingur fjallar um jap-
anska menningu séða með augum
Íslendings; Kristín Ísleifsdóttir
myndlistarmaður fjallar um jap-
anska samtímahönnun; Gunn-
hildur Gunnarsdóttir arkitekt
fjallar um japanska byggðaþróun;
Þorsteinn Jónsson kvikmynda-
gerðarmaður fjallar um japanska
kvikmyndagerð; Stefán Baldur
Árnason bókmenntafræðingur
fjallar um Haruki Murakami og
póstmódernisma í bókmenntum;
Björn Þór Vilhjálmsson bók-
menntafræðingur nefnir fyr-
irlestur sinn Hreyfingin milli
rammanna: Manga og menningin.
Í lokin verða umræður.
Aðgangur er ókeypis.
Manga er samnefni yfir japanskar myndasögur, sem átt hafa mikilli vel-
gengni að fagna um heim allan. Þær verða meðal þess sem fjallað er um
á þinginu um japanska menningu hinn 21. apríl næstkomandi.
Ráðstefna
um jap-
anska
menningu
SAMKÓR Vopnafjarðar heldur
tónleika í Miðgarði í Skagafirði
á morgun, föstudag, kl. 20.30.
Sungin verða lög úr ýmsum átt-
um, t.d. úr óperum, negrasálm-
ar, erlend þjóðlög og íslensk
o.fl. Karlakór syngur tvö lög.
Einnig verður frumflutningur á
nýju lagi eftir stjórnanda kórs-
ins, Zbigniew Zuchowicz. Und-
irleikari er Teresa Zuchowicz.
Kórinn hefur sungið í Reykja-
vík og víða á Norður- og Aust-
urlandi en þetta er í fyrsta
skipti sem kórinn kemur fram í
Skagafirði.
Samkór
Vopna-
fjarðar í
Miðgarði
ÍRSKU myndlistarmennirnir Oona
Hyland og Ian Joyce halda fyrirlest-
ur í Listaháskóla Íslands á Laugar-
nesvegi 91 á mánudag kl. 12.30 í
stofu 24. Þau eru kunn fyrir gerð
grafík- og bókverka og reka grafík-
verkstæði á Norður-Írlandi, þar sem
þau bjóða starfandi listamönnum
gestavinnustofur og aðgang að
vinnuaðstöðu, auk þess að halda þar
sýningar og námskeið. Þau koma
hingað til lands á vegum Listahá-
skólans og í fyrirlestrinum segja þau
frá uppbyggingu verkstæðis síns og
fjalla um eigin verk.
Á námskeiðinu umbrot prent-
gripa, sem hefst á mánudag, verða
kennd undirstöðuatriði umbrots í
QuarkXPress-umbrotsforritinu.
Námskeiðið er grunnnámskeið, ætl-
að þeim sem hafa grunnþekkingu á
tölvum.
Kennari er Margrét Rósa Sigurð-
ardóttir, prentsmiður og kennari í
grafískri hönnun í LHÍ. Kennt verð-
ur í tölvuveri Listaháskóla Íslands,
stofu 301, Skipholti 1.
Á námskeiðinu Rýmisverk –
blönduð tækni, sem hefst 22. maí, er
markmiðið að nemendur kynnist
gerð þrívíðra verka með blandaðri
tækni. Kennari er Hrafnhildur Sig-
urðardóttir myndlistarmaður. Kennt
verður í LHÍ, Skipholti 1, stofu 112.
Fyrirlestur og
námskeið í LHÍ