Morgunblaðið - 19.04.2001, Side 44
UMRÆÐAN
44 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!" # $ % &
'( )*"'' *'( "''
+
&!
, !" %- +
&!&! ''( "'' .'( )*"'' *'( )*"''
+
&!
, !" / 0!
1'( "1'
23 %
!" / 0!
4'( )*"''
!
"#
5&
% /
!" 67 8
)9'( )*"'' "1' .'( "''
$ %
&
+
&!
, !"
'( "'' :'( )*"''
$' $
(
!
0; 0
!" <
2&! ('( "'' 1'"'( )*"''
) * #+++
"
# 6
% &
!" = /! =
''( )*"'' 4'( "1'
,* - .!
&
$#% = 6
!" %
> 6
)9'( )4"'' )'( )("''
/0 !
&
!" +
%
'( )4"''
$1
" % & ?
!" / 0!
)9'( )."'' '( )("'' 9'( )."''
+
2*0 3- #+++
'(' )#*%+ +
+
!" 8
<
)'( )4"'' 1''( "1'
4 !*0
"
,
# % #*%
- #*% 6
<
!" = /! =
1'( )*"'' 9'( "''
5!. .
.
+
&!
, !" %- +
&!&! )'( "'' ('( )*"''
Í UMFERÐARLÖGUNUM er
gert ráð fyrir að lögreglustjóri í
samráði við viðkomandi skólayfir-
völd geri ráðstafanir til þess að
vernda börn gegn hættu í umferð-
inni á leið þeirra til og frá skóla.
Einnig er gert ráð fyrir að kennsla í
umferðarreglum fari fram í grunn-
skólum.
Á Akureyri hefur lögreglan í
mörg ár haft sérstakt eftirlit á þeim
tíma er börn eru á leið til og frá
skóla. Með nærveru sinni og athuga-
semdum til ökumanna og gangandi
vegfarenda hafa þeir stuðlað að
öruggari umferð og verndað börnin í
umferðinni. Þá hafa lögregluyfir-
völd á Akureyri einnig haft nám-
skeið fyrir gangbrautarverði sem
gegna mikilvægu öryggishlutverki.
Fræðsla er eitt mikilvægasta
vopnið í baráttunni gegn slysum á
börnum í umferðinni. Skólarnir
gegna þar mikilvægu hlutverki og
flestir munu vera sammála um
nauðsyn virkrar og góðrar umferð-
arfræðslu í skólum. Eins og víðast
um land hefur umferðarfræðsla í
skólum á Akureyri og í Eyjafirði
verið markviss í mörg ár og ber að
fagna áhuga skólayfirvalda fyrir
fræðslunni.
Gert er ráð fyrir að nemendur fái
fræðslu sem höfðar til þeirra eigin
aðstæðna og ýmissa farartækja sem
þau umgangast og nota sjálf. Þau
þurfa að læra að setja sig í spor ann-
arra og átta sig á þeim takmörk-
unum sem ýmsir hópar vegfarenda
búa við. Áhersluatriði og uppbygg-
ing kennslunnar fer að nokkru eftir
kröfum í nágrenni skólans og hlut-
verki nemandans í umferðinni.
Öllum sem að koma er ljóst að
umferðarfræðsla til ungra vegfar-
enda er þeim nauðsyn og nýtist
þeim alla ævina. Umferðarfræðsla
er því aðeins markviss að heima fyr-
ir séu umferðareglur virtar og að
foreldrar sýni ábyrgð í hegðun sinni
og séu til fyrirmyndar í umferðinni.
Umferðarfræðslu á Akureyri og
víða við Eyjafjörð er lokið og vert að
geta nokkurra atriða.
1. og 2. bekkur fengu fræðslu um
hvernig beri að haga sér þegar
gengið er yfir götu, hvaða leið skuli
valin í skólann og jafnframt að sama
leið skuli valin til að fara heim að
skóla loknum. Lögð er áhersla á að
þau fari þá leið sem foreldrar þeirra
hafa vísað þeim á. Börnin eru einnig
minnt á að nota endurskinsmerki og
þeim bent á að gott sé að fá foreldri
til að sauma merki á þær skólatösk-
ur sem ekki hafa merki.
3. bekkur vann verkefni þar sem
nemendum var ætlað að lita mynd af
stúlku sem kom í skólann án end-
urskinsmerkja og setja síðan þau
merki á stúlkuna sem þau töldu við
hæfi. Að auki voru rifjaðar upp
grundvallarreglur fyrir gangandi
vegfarendur og notkun öryggis-
belta.
4. bekkur fékk upprifjun í umferð-
arfræðslu sem nemendurnir hafa
hlotið í yngri bekkjum og jafnframt
var rætt við börnin um að bregðast
ekki því trausti sem þeim er sýnt t.d.
af foreldrum auk þess sem þau séu
að verða fyrirmyndir yngri nem-
enda.
5. bekkur fékk það verkefni að
skrifa um óhapp er gæti hafa átt sér
stað og fengu nemendurnir mynd af
hugsanlegu óhappi drengs á reið-
hjóli og bifreiðar. Áður var rætt við
börnin um þá staðreynd að flest
óhöpp eru af mannlegum toga og
vegna mannlegra mistaka okkar
sjálfra. Jafnframt var það rætt
hversu okkur er ætíð tamt að kenna
öðrum um okkar ófarir. Lögð var
áhersla á það við nemendurna að
þeir gerðu grein fyrir því í sögunni
af hverju óhappið hefði orðið.
6. bekkur, þar var unnið verkefni
á þann hátt að varpað var upp mynd
af umhverfi skólans og því hverfi
sem nemendur búa í. Fjallað var um
leiðir nemenda að skólanum, rætt
um umferðina og hættur sem í henni
eru. Þá var rætt um skipulag við-
komandi hverfis og hvort það væri
nægilega öruggt fyrir íbúana. Þá
fengu nemdurnir kort af svæðinu og
í smáhópum unnu þeir tillögur að
úrbótum og gerðu athugasemdir
vegna hættulegra staða í umferð-
inni. Síðan gerðu börnin grein fyrir
verkefnunum og kom þar margt
skemmtilegt og gott fram. Eftirfar-
andi athugasemdir komu frá nem-
endum og tæpt er aðeins á því
helsta.
Þá var nemendum lofað því að at-
hugasemdir þeirra mundu verða
sendar bæjarstjórn Akureyrarbæj-
ar og hefur það verið gert.
Nemendur Oddeyrarskóla gerðu
nokkrar athugasemdir vegna um-
ferðar í nágrenni skólans. Óvenju-
Umferðar-
fræðsla í skólum
Gól fe fn i á v innustað inn
Ármúla 23, sími 533 5060