Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 69
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 69
„Þarna er hún
amma Margrét,“ hálf-
hrópaði Sveinbjörn, þá
nýorðinn kærasti minn
sem vildi ólmur kynna
mig fyrir ömmu sinni. Þetta var ár-
ið 1986 og við vorum að keyra á
Reykjanesbrautinni frá foreldrum
mínum á Arnarnesinu til Reykja-
víkur, en hún var að aka í gagn-
stæða átt, heim til sín á Álftanesið
frá vinnustað á Félagsmálastofnun.
Amma Margrét sá okkur ekki en
sat einbeitt við aksturinn, óvenju
hressileg miðað við aldur.
Seinna komst ég að því hvers
vegna „amma“ var í svo miklum
metum hjá sonarsyni hennar. Þar
gekk röggsöm nútímakona með
gamlar rætur. Hreinskilni og húm-
or voru hennar aðalsmerki, en auk
þess var hún félagslynd og alþýð-
leg. Þessi kona var hávaxin miðað
við hennar kynslóð en handsmá,
grófgerð en með hreina andlits-
drætti.
Þegar við Sveinbjörn komum í
heimsókn að Sólbarði var tekið á
móti okkur með kossi á kinn og
klappi á öxl. Borð voru dúkuð og
boðið upp á rjúkandi kaffi og pönns-
ur eða annað góðgæti. Var svo alla
tíð, einnig eftir að Margrét veiktist
og átti erfitt með gang og and-
ardrátt. Eftir kaffið var venjulega
sest við spil eða sjónvarp eða þá
spjallað um heima og geima.
Ekki var Margrét vön að skafa
utan af hlutunum og ekki varð ég
vör við að hún léti nokkurn tíma
segja sér fyrir verkum. Til að
mynda var Margrét hörð framsókn-
arkona þótt svo Sveinbjörn mað-
urinn hennar heitinn hefði verið
mikill alþýðubandalagsmaður, svo
og börn hennar flest. Það var ein-
kennandi fyrir Margréti að vera
ómyrk í máli um það sem henni
mislíkaði, en hreinskilni hennar var
slík að maður vissi alltaf hvar mað-
ur hafði hana. Síðan gerði Margrét
gott úr öllu með góðlátlegu gríni og
hló þá við. Eitt var víst, að hún vildi
veg fjölskyldu sinnar sem mestan.
Margrét var óþreytandi að segja
sögur. Hún talaði um uppvaxtarár
sín á Siglufirði og Norðfirði og síðar
á Fjólugötunni, í húsinu með tyrfða
þakinu þaðan sem var svo stutt í
berjamó; um félagsmálin og pólitík-
ina; um fjölskyldu sína á Álftanes-
inu og síðast en ekki síst um árin
með manni sínum, Sveinbirni Klem-
enssyni. Mér er minnisstæð sagan
um köttinn sem ætlaði að hlýja sér
á bílvél þeirra hjóna. Margrét og
Sveinbjörn keyrðu alla leið til
Reykjavíkur en þá fyrst komst upp
að kötturinn var fastur í húddinu,
hálfdauður, laskaður og verulega
illa til reika. „Mér hefur nú alltaf
verið illa við ketti,“ sagði Margrét
og vottaði fyrir hlýju í rödd hennar,
„en hann Sveinbjörn hjúkraði kett-
inum þar til hann varð fullfrískur.“
Á jóladag síðastliðinn sá ég
Margréti í hinsta sinn. Hún var þá
komin á hjúkrunarheimili aldraðra í
gamla nunnuklaustrinu í Garðabæ.
Silfurgrátt hárið gaf henni virðu-
legan blæ. Þegar við birtumst með
jólapakkann hennar sagði hún: „Æ,
er þetta enn einn konfektkassinn!“
Hún hafði lítið misst af húmor sín-
um og andlegri hreysti, en þó var
eins og hún væri að búa sig undir
sína hinstu ferð.
Ég kveð nú mæta og merka konu
glöð í bragði, enda þess fullviss að
hún var tilbúin að hlýða kalli sínu,
sátt við guð og menn.
Guðrún Elísabet.
Ég sakna sárt bestu vinkonu
MARGRÉT
SVEINSDÓTTIR
✝ Margrét Sveins-dóttir fæddist í
Tröllanesi á Norð-
firði 25. apríl 1918.
Hún lést á Dvalar-
heimilinu Holtsbúð í
Garðabæ 6. apríl síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Bessastaðakirkju 18.
apríl.
minnar, Margrétar
Sveinsdóttur frá Sól-
barði á Álftanesi. Við
kynntumst um tvítugt,
á símstöðinni á Siglu-
firði á síldarárunum,
en síðan hefur vináttu-
sambandið aldrei rofn-
að.
Hún stendur mér
fyrst fyrir hugskots-
sjónum sem myndar-
legasta konan sem ég
hafði séð. Svo kynnt-
ust þau Sveinbjörn
þarna á Siglufirði,
hann var stórglæsileg-
ur og ennþá hærri en Magga, svo
þetta var par sem eftir var tekið.
Þau urðu bæði vinir mínir og seinna
líka mannsins míns. Þegar við flutt-
um heim frá Danmörku tóku þau á
móti okkur og útveguðu okkur
samastað á Álftanesi um sumarið.
Þar fæddist dóttir okkar og var svo
skírð í Bessastaðakirkju, þar sem
Magga var organisti fyrstu árin en
sóknarprestur var sr. Garðar Þor-
steinsson, prófastur í Hafnarfirði.
Við Magga áttum líka saman
margar ánægjustundir þegar við
unnum saman á Landsímastöðinni í
Reykjavík. Laugu, systur hennar,
og hennar manni kynntumst við
hjónin fljótlega og hittumst við oft
þessi þrenn hjón og fór mjög vel á
með okkur. Þær gleðistundir entust
þó ekki lengi því við urðum allar
ekkjur um fimmtugt, með nokkurra
ára millibili. En mörg ferðalög fór-
um við saman þrjár, fyrst innan-
lands í orlofsferðir og svo nokkrar
til útlanda. Nú eru orðin mörg ár
síðan Lauga féll frá eftir langa og
stranga sjúkdómslegu en í veikind-
um Möggu var oft gaman að orna
sér við samveruna og þessar góðu
minningar, sérstaklega var ein
ógleymanleg ferð á páskatónleika á
Ítalíu, önnur í gondólaferð í Fen-
eyjum og svo mætti lengi telja.
Á Möggu hlóðust margskonar
störf fyrir hreppsfélagið eftir því
sem fólki fjölgaði á Nesinu, ekki
síst í sambandi við barnavernd og
fjölskylduráðgjöf. Það varð svo til
þess að Möggu var boðin staða hjá
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar vegna tilmæla sr. Garðars.
Þar vann hún svo þar til hún lét af
störfum sjötíu og fimm ára. Við
Lauga fylltumst stundum afbrýði-
semi þar sem við vorum með
Möggu, því mikill tími fór ævinlega
hjá henni í að tala við skjólstæðinga
sína, bæði þáverandi og fyrrver-
andi, og svo vini og kunningja, en
það tjóaði ekki að fást um það, þeir
birtust alls staðar og við alla var
talað.
Ég þakka forsjóninni fyrir við-
kynninguna við ævivinkonu mína,
mikla og góða mannkostakonu.
Systkinum hennar, börnum og öll-
um niðjum hér heima, í Svíþjóð og
annars staðar í heiminum, sendi ég
innilegustu samúðarkveðjur.
Margrét Hansen.
Merk og mikil kona hefur kvatt
þetta jarðlíf. Margrét Sveinsdóttir
var heiðursfélagi í Kvenfélagasam-
bandi Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Margrét var ættuð frá Siglufirði en
giftist Sveinbirni Klemenssyni vél-
virkja frá Bessastaðahreppi og
bjuggu þau alla tíð að Sólbarði í
Bessastaðahreppi.
Þau eignuðust fjögur börn og
eina uppeldisdóttur. Margrét var
alla tíð mjög sjálfstæð og ákveðin
og var ein af fyrstu konunum sem
fór að vinna úti samhliða heimilis-
rekstrinum. Hún fór þá með strætó
og þótti það mikið ferðalag að
leggja á sig því Bessastaðahreppur
var þá mun afskekktari en hann er í
dag og samgöngur voru á þeim tíma
mun erfiðari í alla staði. Hún vann á
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar sem félagsráðgjafi og helg-
aði starfsævi sína þannig þeim sem
bágt áttu í þjóðfélaginu. Jafnframt
kenndi hún söng og spilaði á orgel
og var alla tíð mjög músíkölsk.
Samhliða stóru heimili og störfum
hennar hjá Félagsmálastofnun tók
Margrét þátt í störfum Kvenfélags
Bessastaðahrepps af miklum krafti
og var þar formaður í 20 ár.
Kvenfélagasamband Gullbringu-
og Kjósarsýslu (KSGK) naut starfs-
orku Margrétar í ríkum mæli en
hún var formaður framkvæmda-
nefndar um orlof húsmæðra á
svæðinu frá 1960 til 1993. Árið 1960
voru sett á Alþingi lög um að hús-
mæður, sem veita heimili forstöðu,
skyldu eiga kost á að sækja um 10
daga orlof og var Kvenfélagasam-
bandi Íslands falið að annast fram-
kvæmd þess. Þá var kosin orlofs-
nefnd innan KSGK, ein kona frá
hverjum hreppi innan svæðisins og
úr þeirri nefnd kosin framkvæmda-
nefnd og var Margrét, eins og fyrr
segir, formaður hennar. Þá var far-
ið að huga að húsnæði til að hýsa
húsmæðurnar í orlofinu og fékkst
það í skólabyggingum á ýmsum
stöðum m.a. á Reykhólum, í Hlíð-
ardalsskóla í Ölfusi og víðar. Á
þessum árum var verið að byrja
með rekstur Edduhótela yfir sum-
artímann og sífellt var erfiðara að
fá húsnæði fyrir orlofið. Það leiddi
til þess að 1968 var ráðist í að
kaupa jörðina Gufudal í Ölfusi og
var kostnaði skipt til helminga milli
orlofsnefnda og KSGK. Það var
mikið þrekvirki að þetta skyldi tak-
ast og lögðu konurnar á sig ómælda
vinnu til þess. Margrét var þarna
fremst í flokki og mikil driffjöður.
Með henni í framkvæmdanefndinni
störfuðu þær Ingibjörg Erlends-
dóttir frá Kvenfélaginu Fjólu á
Vatnsleysuströnd og Kristjana
Magnúsdóttir frá Kvenfélagi Kefla-
víkur og voru þær og hópur kvenna
úr KSGK sem einn maður í að
koma öllu í stand.
Allt var málað í hólf og gólf,
saumuð gluggatjöld og húsgögnum
og öðrum búnaði safnað saman.
Sumt var gefið en annað keypt í
heildsölum. Í 12 ár var myndarleg-
ur rekstur viðhafður í Gufudal, hús-
mæðrum í sýslunni til heilla og
ánægju. En tíðarandinn breyttist
með aukinni atvinnuþátttöku
kvenna og æ fleiri fengu greitt orlof
frá sínum vinnuveitendum. Þess
vegna var reksturinn í Gufudal af-
lagður 1980 og hefur orlof hús-
mæðra á svæðinu tekið á sig annað
snið á seinni árum. Árið 1995 var
Gufudalur seldur og andvirði eign-
arinnar fór í sjóð sem notaður var
til að kaupa lækningatæki fyrir 5,5
milljónir króna.
Að leiðarlokum minnumst við
dugnaðar og ósérhlífni Margrétar.
Hún var vel máli farinn dugnaðar-
forkur sem ávallt var skemmtilegt
að vera með og gott að vinna með.
Hún áorkaði miklu og skilur eftir
sig aðdáun og virðingu okkar sem
eftir stöndum. Við vottum fjöl-
skyldu hennar innilega samúð
vegna brotthvarfs hennar. Guð
blessi minningu hennar.
Ása St. Atladóttir
formaður KSGK,
Ingibjörg Erlendsdóttir
samstarfskona í orlofinu.
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: Í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. Í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Skilafrestur
minning-
argreina
"
#
&
')'
;
/6-6">4
8
6
$ +@ (3
" # +>2
;'!('>2 ##
,& &'3
"
#
*
$
%
&$
&
%
4J/6
+% #,('$3
'(@>##
"&4 7&'3%@2 ##
(!('4## ;
7
> 4## '($''6
%&&4## % &#
'(@4## ,A(
4##
# 2 ,4 .&!=
##
>4 >K#@&##3
3
*
%.-60-6A044>
0'
.
/
;'
!
!!
6
* & *
>2 ,0& ##
.&
## ##3
.
#
#
$
%
&$&
%
060-A
%&K '$B
+('#&7 $&
! & (BE
!3
0
'
5
4'
5
+
#
* &$&
'
8@ # $' ##
2 ,
! &;>
6%&&!$ ##
'@ !% # ##
$''* .& ! # + ##
'( * 6'('% $ ##
%&$ !('/! * ##
222,3
3
4
A>4.>;0
%&
'(' #
+ &
5
#
1
>2 ,M 7 ! ##
4 7&'%&$4 ## ; 2 '
# N4 0&, '($' ##
A ,&4 ; 2 ,6 ##
# '4 ## ,@
;2 '4
!/&7 +$ ##
M 7 ! 4 '(@>& ##
@ 4 ## 8 $'';0&
K#4 ## >(; &
;''4 ## 8 !$'>&
22, 222,3