Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 78
DAGBÓK
78 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss og Polar Natt-
oralik fóru í gær. Oz-
ernica og Morraburg
komu í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un föstudag dans hjá
Sigvalda kl. 11.45, bingó
kl. 14, Magnús
verður með harmonik-
una eftir kaffi. Miðviku-
d. 25. apríl verður farið
um Borgarfjörð. leið-
sögumaður Kristleifur
Þorsteinsson, Húsafelli,
lagt af stað kl. 10. Uppl.
í síma 562-2571.
Árskógar 4. Föstud. 20.
apríl, kl. 13 opin smíða-
stofan.
Bólstaðarhlíð 43.
Föstud. 20. apríl, kl. 9
bókband, kl. 9–16
handavinna, kl. 13 vefn-
aður og spilað í sal.
Bingó og dans kl. 14.
Vinabandið skemmtir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Pútttímar í íþróttahús-
inu að Varmá kl. 10–11 á
laugard. Jóga kl. 13.30–
14.30 á föstud. í dval-
arheimilinu Hlaðhömr-
um. Uppl. hjá Svanhildi
í s. 586 8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Föstud.
20. apríl, handa-
vinnustofan opin, kl.
9.45 leikfimi, kl. 13.30
gönguhópur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30,
föstudaginn 20. apríl.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Föstud. 20.
apríl, kl. 10.30 guðs-
þjónusta, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
morgun föstudag verður
tréútskurður í Flens-
borg kl. 13, myndmennt
kl. 13 og brids kl. 13.30.
Leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið að sjá „Syngjandi
í rigningunni“ 4. maí,
miðasala í Hraunseli
milli kl. 13.30 og 16. Sig-
urbjörn Kristinsson
verður með málverka-
sýningu í Hraunseli
fram í maí. Laugardags-
gangan hefst á laug-
ardaginn 21. apríl kl. 10
frá Hraunseli.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Laugardaginn
21. apríl verður haldið
þriðja og síðasta
fræðsluerindið á þessari
önn á vegum Félags
eldri borgara undir yf-
irskriftinni Heilsa og
hamingja. Einar Hjalta-
son, sérfræðingur,
greinir frá helstu slysa-
hættum aldraðra og af-
leiðingum slysa. Ásgeir
Theodórs talar um
krabbamein í ristli og
skýrir frá fyrirhugaðri
hóprannsókn til að
greina sjúkdóma á
byrjunarstigi. Fræðslu-
fundurinn verður hald-
inn í Ásgarði, Glæsibæ,
kl. 13.30. Allir velkomn-
ir. Þriðjud. 24. apríl
koma sænskir eldri
borgarar í heimsókn kl.
10.30 Gengið verður um
Laugardalinn. Hádeg-
isverður í Ásgarði kl.
12.. Erindi flytja Ólafur
Ólafsson formaður FEB
og Benedikt Davíðsson
frá LEB. Dansað undir
harmónikuleik Ólafs B.
Ólafssonar. Upplýs-
ingar í síma 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Föstud. 20.
apríl, kl. 9–12 myndlist,
kl. 13 opin vinnustofa,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14 brids.
Félagsst. Furugerði 1.
Dagskráin fellur niður
fimmtudaginn 19. apríl.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun föstudag kl.
9-16.30 vinnust. opnar,
m.a. bókband eftir há-
degi, umsjón Þröstur
Jónsson, frá hádegi
spilasalur opinn. Veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Allar upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í s.
575 7720. Starfsfólk
óskar öllum þátttak-
endum og samstarfs-
aðilum gleðilegs sum-
ars.
Gjábakki, Fannborg 8.
Fjölskylduhátíð verður í
Gjábakka sumardaginn
fyrsta 19. apríl og hefst
kl. 14. Föstudaginn 20.
apríl, kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band, kl. 9.15 vefnaður.
Gullsmári, Gullsmára
13. Fjölskylduhátíð
verður í Gullsmára sum-
ardaginn fyrsta 19. apríl
og hefst kl. 14. Föstu-
daginn 20. apríl, Gleði-
gjafarnir koma saman í
Gullsmára kl. 14. og
syngja vor- og sum-
arlögin.
Hraunbær 105. Föstud.
20. apríl, kl. 9–12 út-
skurður, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjall-
að, spilað bingó. Mið-
vikud. 25. apríl verður
um Borgarfjörð. Leið-
sögumaður Kristleifur
Þorsteinsson, Húsafelli,
lagt af stað kl. 10.30
uppl. í síma 587-2888.
Hvassaleiti 56–58.
Föstud. 20. apríl, kl. 9–
12.30 bútasaumur, kl. 11
leikfimi.
Kirkjulundur, félags-
starf aldraðra, Garða-
bæ. Föstud. 20. apríl
leikfimi kl. 12.10 vinnu-
stofur, gler kl. 10-13.
Norðurbrún 1. Föstud.
20. apríl, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 10 boccia.
Vesturgata 7. Föstud.
20. apríl, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13 sungið við
flygilinn, kl. 14.30 dans-
að í aðalsal.
Vitatorg. Föstud. 20.
apríl, kl. 9 smiðjan, kl.
9.30 bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi,
kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Föstudaginn 20.
apríl, spilað kl. 13.15.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður laugard. 21. apr-
íl. Lagt af stað frá Gjá-
bakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra.
Föstudaginn 20. apríl,
leikfimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll kl. 10.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður laugard. 21. apr-
íl, kl. 21 í Konnakoti,
Hverfisgötu 105. Nýir
félagar velkomnir. Muni
gönguna mánudag og
fimmtudag.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í föstud.
20. apríl kl. 20.30 í
félagsheimilinu
Leirvogstungu. Kaffi og
meðlæti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (um
16-25 ára) að mæta með
börnin sín á laugar-
dögum kl.15–17 á Geysi,
Kakóbar, Aðalstræti 2
(Gengið inn Vesturgötu-
megin). Opið hús og
kaffi á könnunni, djús,
leikföng og dýnur fyrir
börnin.
GA-fundir spilafíkla
eru kl. 18.15 á mánu-
dögum í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtud. í
fræðsludeild SÁÁ, Síðu-
múla 3–5 og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugard.
kl. 10.30.
Gigtarfélagið. Hóp-
leikfimin byrjar aftur
eftir páska mánudaginn
23. apríl. Leikfimi fyrir
alla; létt leikfimi, bak-
leikfimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
Líknar- og vinafélagið
Bergmál hefur opið hús
sumardaginn fyrsta kl.
14.30 í Hamrahlíð 17, 2.
hæð. Ræðumaður sr.
Hjálmar Jónsson. Veit-
ingar: kaffi, súkkulaði
og heitar vöfflur.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar fer dagsferð á
Njáluslóðir og víðar
laugard. 26. maí. Kvöld-
verður á veitingahúsinu
Við fjöruborðið á
Stokkseyri. Látið vita
um þátttöku sem fyrst í
s: 581-4842, Signý eða
s:587-1798, Erla.
Kvennadeild Barð-
strendingafélagsins
heldur árlegan sum-
arfagnað sinn í Breið-
firðingabúð í dag sum-
ardaginn fyrsta kl. 14,
fyrir fólk úr Barða-
strandarsýslu 65 ára og
eldra.
Söngfélag Skaftfelinga.
Vortónleikar kórsins
sem vera áttu í dag,
verða haldnir í Árbæj-
arkirkju 1. maí kl. 15.
Í dag er fimmtudagur 19. apríl,
109. dagur ársins 2000. Sumardag-
urinn fyrsti. Orð dagsins: Ljúflyndi
yðar verði kunnugt öllum mönnum.
Drottinn er í nánd.
(Fil. 4, 7.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍNMENNING á Íslandi hefurekki verið upp á marga fiska
fram að þessu og forfeður Víkverja
drukku til dæmis ekki annað en
prestakaffi á hátíðlegum stundum og
þá aðeins ef svo vildi til að húsfreyjan
á heimilinu leit undan. Nú er öldin
önnur og allir eru í vínklúbbum eða
bjórfélögum og miðbærinn ber orðið
nokkurn svip af þessari tómstunda-
iðju landans. Ekki ætlar Víkverji þó
að fara að amast yfir huggulegri
stemmningu á kaffihúsum þar sem
menn staupa sig á höfugum veigum í
góðu meðalhófi, svona til að lyfta
andanum og kitla bragðlaukana. Það
er fremur að honum blöskri þetta ei-
lífa fyllirí sem á árum áður átti sér
helst stað í réttunum en virðist núna
herja á landann undir fölsku flaggi
suðrænnar menningar.
x x x
VÍKVERJI bjó á þessum um-ræddu suðrænu slóðum um
nokkurt skeið, í miklu vínmenning-
arlandi. Ekki minnist hann þess að
hafa nokkurn tíma séð suðræna
granna sína illa ölvaða þó vínið væri
selt úr sömu hillum og ávaxtasafinn.
Það var fremur eins og fólk notaði
vínið með matnum eins og saltið í
grautinn. Og hver vill of saltan graut?
Ekki það að Víkverji þekki ekki til-
finninguna sem rekur hinn dugmikla
Íslending áfram þegar kemur að því
að tileinka sér nýjungar. Hann lenti
nefnilega í því þegar hann fór í fyrsta
skipti til Ítalíu að detta ærlega í
espressokaffið sem honum fannst
sérlega ljúffengt. Þegar hann var bú-
inn að sloka í sig úr fimm bollum fyrir
hádegi, sem voru að vísu ekki nema
eins og fingurbjörg hver, var hann
farinn að kenna svima, svitna óhóf-
lega og hélt jafnvel að hann hefði
fengið snert af hitasótt. Ítalskir sam-
ferðamenn hans fylgdust með athæf-
inu sér til mikillar skemmtunar,
töldu enda allt siðmenntað fólk vita
að espressokaffis verður ekki notið
nema í hófi frekar en annarra gleði-
gjafa í lífinu.
x x x
ÞEGAR Víkverji rak fyrirskömmu augun í frétt um dreif-
ingu veitingahúsa í Reykjavík, sá
hann að sjálfsögðu í hendi sér af
hverju vínmenningin er enn bara
ómenning á Íslandi. Það er vegna
þess að öll kaffihúsin og krárnar eru
á lófastórum bletti í miðbænum. Hér
eru enn engar hverfiskrár. Íslend-
ingar stilla sig því að öllu jöfnu um að
neyta áfengis á virkum dögum og
safna orkunni til ærlegri drykkju um
helgar. Enda kannski bara eðlilegt að
allur sá fjöldi sem býr í úthverfum
borgarinnar vilji nýta vel þá peninga
sem fara í rándýrar leigubílaferðir til
og frá miðbænum, sem aukinheldur
krefjast þess að menn búi sig uppá og
bregði fyrir sig betri fætinum. Enda
sýnir það sig að miðbærinn yfirfyllist
allar helgar og fæstir eru tilbúnir til
að láta sér eitt rauðvínsglas nægja
eftir að hafa staðið illa klæddir í bið-
röð í lengri tíma, jafnvel á fleiri en
einum stað. Fólk drekkur fyrst í sig
yl og síðan hugrekki til að slást um
leigubíla á skótaui sem hannað er fyr-
ir léttúðugt tipl í veislusölum en ekki
reikular fótskriður í íslensku vetrar-
slabbi. Það myndi því óneitanlega
draga heilmikið úr helgarstressinu –
og ef til vill koma í veg fyrir reglulega
flensufaraldra – ef tekin væri upp
markviss stefna er leiddi til þess að
fólk gæti rölt út á krá í næsta ná-
grenni við heimili sitt í hversdagleg-
um klæðnaði og fengið sér eitt valið
vínglas með grönnum sínum á meðan
maturinn mallar heima. Enginn
myndi freistast til að keyra undir
áhrifum, helgunum mætti eyða með
börnunum og veikindadögum á
vinnustað myndi fækka. Það er nefni-
lega mikill munur á því að drekka
einn bjór á dag í sjö daga eða drekka
sjö bjóra í striklotu á einum degi.
Fyrir nú utan að greiðsludreifingin
kæmi af sjálfu sér og við gætum af-
lagt þann afleita sið að drekka dóm-
greindarlaus útá greiðslukort.
ÉG VIL þakka biskupi Ís-
lands fyrir að vekja athygli
í ræðu á páskadag á klámi,
ofbeldi og eiturlyfjum. Ég
vona að yfirvöld vakni af
sínum þyrnirósarsvefni
hvað þetta varðar og taki
sér Hafnarfjarðarbæ til
fyrirmyndar og banni súlu-
staði og allt sem þeim
fylgir.
Sesselja Ó. Einarsdóttir.
Fokið í flest skjól
UNDANFARIÐ hef ég
reynt að ná sambandi við
ákveðið fyrirtæki í bænum
og lendi þá í því að ég er
nánast settur í gíslingu í
símanum á bið eftir þjón-
ustufulltrúa. Eftir 10 mín-
útur næ ég sambandi við
þjónustufulltrúann sem
síðan skilar mér áleiðis og
hefst þá önnur gíslatakan
og aðrar 10 mínútur að
hlusta á: Því miður eru allir
þjónustufulltrúar upptekn-
ir. Ástæðan er víst sú að
kúnninn sem er á staðnum
er látinn ganga fyrir þeim
sem bíða í símanum. Er það
kaldhæðnislegt, því fyrir-
tækið er Síminn. Ef Síminn
getur ekki sjálfur veitt al-
mennilega símaþjónustu er
fokið í flest skjól.
Gylfi Baldursson.
Kærleikurinn
er bestur
Á MORGNI föstudagsins
langa var ég að leita að ein-
hverju góðu til að hlusta á í
útvarpinu. Á stöðinni heyr-
ist í manni þrumandi ræðu,
líklega á kristilegri stöð, og
annar sagði amen í sífellu.
Hann var óspar á að dæma
fólk og heimurinn var svo
spilltur að hans áliti að
hann sá ekki ljósan punkt í
tilverunni. Þennan sama
morgun sá ég í Bréf til
blaðsins í Morgunblaðinu
grein eftir Einar Inga
Magnússon, Hinn grimmi
guð, þar sem hann talar um
m.a. hræðsluáróður sem
prédikaður er um alla biblí-
una. Það var ömurlegt
þennan morgun að hlusta á
manninn í útvarpinu sem
beitti þessu vopni, reiði
guðs, miskunnarlaust við
fólk. Það er nú bara svo að
guð og almættið eru öfl
hins góða. Þau auðsýna
okkur kærleik án skilyrða.
Við erum hér í lífsins skóla
og erum öll að ganga í átt til
þroska og því eru lagðar
fyrir okkur ýmsar þrautir
og öllum miðar áfram. Það
er oft talað um að guð muni
dæma okkur en við dæmum
okkur sjálf með verkum
okkar hér á jörðu. Það
skiptir kannski ekki öllu
máli hve oft við förum í
kirkju, þó það sé mjög gott,
heldur hvernig við komum
fram við samferðamenn
okkar og þá sem erfitt eiga.
Orðið kærleikur heyrist því
miður sjaldan og ég gat
ekki heyrt neitt um hann í
ræðu mannsins í útvarpinu.
Kærleikurinn er bestur og
ofar öllu og ef við höfum
hann að leiðarljósi þá náum
við langt.
Sigrún.
Slæm viðskipti
ÉG KEYPTI mér tölvuleik
nýlega sem ég gat svo ekki
notað vegna þess að tölvan
sem ég á var ekki nógu öfl-
ug fyrir leikinn. Á kassan-
um stóð hversu stórt minni
þyrfti að vera í tölvunni til
að nota leikinn og átti mín
tölva að ráða við leikinn, en
það reyndist ekki rétt, það
þurfti stærra minni en til-
tekið var á kassanum. Þeg-
ar ég ætlaði að skila leikn-
um og fá annan í staðinn
var því neitað en mér bent á
að kaupa mér stærra minni
í tölvuna. Finnst mér þetta
ekki góðir viðskiptahættir.
Vil ég vara fólk við þessu og
bið það að athuga vel hvort
tölvan þeirra sé nógu öflug
fyrir leikina sem það er að
kaupa.
Neytandi.
Hlaupahjól
í óskilum
HLAUPAHJÓL fannst í
vesturbæ Reykjavíkur í
síðustu viku. Upplýsingar
gefur Ólafur á föstudag,
laugardag og sunnudag á
Bensínstöðinni, Birkimel.
Selma er týnd
SELMA sem er eins og
hálfs árs gömul læða, svört
og hvít, týndist frá Garða-
bæ. Selma stökk í skott á
bíl í Garðabæ og úr skott-
inu í Eskihlíð 12, 2. apríl sl.
Þeir sem hafa orðið hennar
varir hafi samband í síma
565-8108.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Biskupi
þakkað
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 eyðslusamur, 8 slátrar,
9 geta tekið við, 10 spil,
11 kaka, 13 líkamshlutar,
15 hlusta, 18 óreglu, 21
glöð, 22 í slæmu skapi, 23
óþreytt, 24 samsvarandi.
LÓÐRÉTT:
2 dulin gremja, 3 biða, 4
að baki, 5 ýlfrar, 6 feiti, 7
skordýr, 12 guð, 14 borð-
uðu,15 sleipur, 16 öku-
maður, 17 virðið, 18 mik-
ið, 19 klámfengið, 20
afkomenda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 storm, 4 fimur, 7 kaðal, 8 ástin, 9 dúr, 11 nart,
13 eiri, 14 endar, 15 fugl, 17 rauf, 20 ann, 22 teigs, 23
ískra, 24 messa, 25 karta.
Lóðrétt: 1 sýkin, 2 orður, 3 mild, 4 flár, 5 metti, 6 runni,
10 úldin, 12 tel, 13 err, 15 fótum, 16 glits, 18 askur, 19
flaka, 20 asna, 21 nísk.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16