Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 83
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 83
VINIR DÓRA
spila í kvöld
BREIÐIN, Akranesi: Hljómsveitin
Sóldögg leikur föstudagskvöld. 16 ára
aldurstakmark.
CAFÉ 22: Brasilíska taktráðið í
samvinnu við Nulleinn.is og Break-
beat.is standa fyrir búgalú-partýi
föstudagskvöld. Dj. Maestro frá
Brasilíu verður í aðalhlutverki á efri
hæðinni og dj. Pétur sér um grúvið á
neðri hæðinni. Aðgangseyrir 500 kr.
Kvöldið hefst kl. 23.
CATALINA, Hamraborg: Bara 2
leika fyrir dansi föstudags- og laug-
ardagskvöld.
DALABÚÐ, Búðardal: Hljómsveit-
in Land og synir leika á Jörfagleði
laugardagskvöld.
DUBLINER: Hljómsveitin Penta
skemmtir föstudags- og laugardags-
kvöld.
FÁKSHEIMILIÐ Í VÍÐIDAL:
Hljómsveitin Spútnik heldur stuð-
dansleik laugardagskvöld.
GAUKUR Á STÖNG: Hip Hop-
kvöld í samvinnu við Budweiser,
Magic, Exodus og Kronik fimmtu-
dagskvöld. Á þessu fyrsta kvöldi
Freestyle úr hljómsveitinni Arsonists
troða upp ásamt Shabazz the Disciple
og dj. Daddy Dong úr 5th Platton.
Hip Hop-kvöldin verða framvegis
þriðja fimmtudag í hverjum mánuði
og er 18 ára aldurstakmark. Verðið á
þetta fyrsta kvöld er 750 kr og hefst
kvöldið kl. 21. Teknótónlistarmaður-
inn og plötusnúðurinn Dave Clarke
leikur laugardagskvöld. Tilefnið er
heimsreisa kappans í tengslum við
nýja plötu, World Service, sem kemur
út um miðjan maí. Honum til halds og
traust verður Exos og í aukarýminu á
efri hæðinni verður dj. Maestro við
stjórnvölinn.
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK:
Tónlistarmaðurinn Gunnar Páll leik-
ur og syngur öll fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld. Gunnar
leikur hugljúfa og rómantíska tónlist.
Allir velkomnir.
H-BARINN AKRANESI: Diskó-
rokktekið og plötusnúðurinn Skugga-
Baldur sér um tónlistina föstudags-
og laugardagskvöld. Miðaverð 500 kr.
frá miðnætti.
H.M. KAFFI, Selfossi: Tónleikar
með Heiðu og heiðingjunum frá kl. 23.
500 kr. aðgangseyrir fimmtudags-
kvöld.
HITT HÚSIÐ: Hljómsveitin Dikta
leikur á Föstudagsbræðingi á Geysi –
Kakóbar föstudagskvöld. Dikta er
skipuð þeim Hauki Heiðari Hauks-
syni, gítarleikara og söngvara, Jóni
Bjarna Péturssyni gítarleikara, Jóni
Þóri Sigurðssyni trommuleikara og
Skúla Gestssyni bassaleikara. Einnig
kemur fram rafhljómsveitin Melód-
íska Anonymus. Hún er skipuð
Marlon Lee Úlfi Pollock og Tönyu
Pollock. Tónleikarnir hefjast kl. 21. 16
ára aldurstakmark, frítt inn og ekkert
rugl.
IÐNÓ: Tónleikar með hljómsveit-
inni Quarashi föstudagskvöld. Tón-
leikarnir eru í framhaldi af frumflutn-
ingi lagsins og upphitun fyrir útkomu
breiðskífu sveitarinnar Jinx sem
kemur út með vorinu. Miðasala á tón-
leikana hefst kl. 12 í miðsaölu Iðnó og
kostar 1.000 kr.
KAFFI REYKJAVÍK: Hljómsveit-
in Sixties leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
KRINGLUKRÁIN: Dúettinn
Hot’n’Sweet ásamt Helgu Möller
leikur fyrir dansi föstudagskvöld.
Stjörnukvöld með Björgvini Hall-
dórssyni og Siggu Beinteins laugar-
dagskvöld. Húsið opnar kl. 19 fyrir
matargesti og hefst sýningin kl. 21.30.
LIONSSALURINN Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um línu-
dans verður með dansæfingu kl. 21.30
föstudagskvöld. Elsa sér um tónlist-
ina. Allir velkomnir.
NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur fyr-
ir matargesti kl. 22 til 3. Naustið er
opið alla daga frá kl. 18. Stór og góður
sérréttaseðill.
Reykjavíkurstofa – bar og koníaks-
stofa: Söngkonan og píanóleikarinn
Liz Gammon frá Englandi leikur. Op-
ið frá kl. 18.
NELLYS CAFÉ: Dj. Le Chef verð-
ur í búrinu föstudags- og laugardags-
kvöld.
ODDVITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Hálft í hvoru skemmtir föstu-
dags- og laugardagskvöld.
SJALLINN, Akureyri: Dj. Páll
Óskar sér um tónlistina frá kl. 21
laugardagskvöld. Hljómsveitin Á
móti sól leikur laugardagskvöld.
SKUGGABARINN: Dj. Nökkvi
verður í búrinu föstudags- og laug-
ardagskvöld.
SKÚLI FÓGETI, Aðalstræti 10:
Hljómsveit Rúnars Þórs sér um fjörið
föstudagskvöld. Dúóið Túkall í bana-
stuði laugardagskvöld. 25 ára aldurs-
takmark. Snyrtilegur klæðnaður.
SPOTLIGHT: Dj. Mamma Sigga
skellir sér í búrið og sér um tónlistina
fimmtudagskvöld. Dj. Cesar verður
með TranceMaster-kvöld föstudags-
kvöld. Dj. Ívar Amor verður í stuði í
búrinu laugardagskvöld.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Sælusveitin leikur föstudags-
og laugardagskvöld.
Frá A – Ö
SHADOWS-SÝNINGUNNI var
hleypt af stokkunum síðastliðið
haust á Broadway og hefur hún fall-
ið í góðan jarðveg. Þeir sem voru á
unglingsárum á sjöunda áratugnum
muna margir eftir goðumlíkum gít-
arhljómum Hank Marvin og félaga
og í kjölfarið spruttu upp margar
séríslenskar Shadows-sveitir.
Næsta laugardag munu íslensku
Skuggarnir troða upp á Broadway,
undir dyggri handleiðslu Gunnars
Þórðarsonar sem endranær. Það er
gaman að geta þess að eftir mið-
nætti mun svo fornfræg sveit troða
upp, Siglufjarðarhljómsveitin
Stormar sem gerði það gott hér á
árum áður og var með helstu dæg-
urlagasveitum Norðurlands.
Evróvisjónfarinn Kristján Gíslason
syngur hlutverk Cliff Richards í
Shadows-sýningunni og leysti hann
Eyjólf Kristjánsson af í þeim efnum.
„Þetta kom nú þannig til að Eyjólf-
ur þurfti að bregða sér til Banda-
ríkjanna til að syngja með Stefáni
Hilmarssyni,“ útskýrir Kristján fyr-
ir blaðamanni. „Það þurfti því af-
leysingamann og Gunnar Þórðars-
son hringdi í mig og bað mig um að
taka þetta. Mér þótti það vera alveg
sjálfsagt mál, maður er með þennan
Cliff-pakka alveg í blóðinu. Það er
vegna mömmu (hlær).“Kristján seg-
ir að það hafi gengið vel að syngja
Cliff og þetta sé búið að vera
skemmtilegt. „Maður hélt alltaf að
þetta væri frekar „lítil“ rödd hjá
honum Cliff. Það kom mér því á
óvart er ég fór að syngja lögin hvað
þetta spannar þó mikið tónsvið.
Hann er að fara mjög djúpt en einn-
ig mjög hátt líka. Þetta reyndi því
mun meira á en ég átti von á.“Krist-
ján segist þó ekki munu syngja með
Stormum. „Nei, ekki hef ég heyrt af
því,“ segir hann og hlær við. „Ekki
enn þá.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Shadows-sýningin var sett á fjalirnar í haust og hef-
ur gengið vel að sögn Gunnars Þórðarssonar.
Stormandi lukka Kristján
Gíslason
one voru í höndum Stefáns Fannars
Stefánssonar sem lék Bugsy Malone,
Sigríður Auðna Guðgeirsdóttir lék
Blousey Brown, Elín Káradóttir lék
Tallulah, og Hálfdán Eiríksson lék
Samma feita.
Leikstjórar Grease voru Margrét
Sverrisdóttir og Elín Sigríður Arn-
órsdóttir. Stefanía Malen Stefáns-
dóttir og Ragnheiður Haraldsdóttir
leikstýrðu Bugsy Malone. Undirleik
önnuðust Julian Isacs og Jón Arn-
grímsson. Allt eru þetta kennarar
við Brúarásskóla nema Julian sem er
skólastjóri Tónskólans.
NEMENDUR Grunnskólans í Brú-
arási réðust ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur á árshátíð sinni þeg-
ar þeir settu upp tvo söngleiki ásamt
kennurum sínum sem leikstýrðu og
sáu um undirleik. Nemendur eldri
deildar fluttu Grease og nemendur
yngri deildar Bugsy Malone. Auk
þess fluttu yngstu nemendurnir leik-
þátt sem heitir Samtal í skólatösk-
unni.
Í aðalhlutverkum í Grease voru
Steinunn Sigurðardóttir sem lék
Sandy og Eyþór Stefánsson sem lék
Danny. Aðalhlutverk í Bugsy Mal-
Nemendur í Grunnskóla Brúaráss brugðu á leik á árshátíð
Þrjótarnir í Bugsy Malone.
Sandy syngur um sumarástina.
Leðurjakkagæjar
og byssubófar
Norður-Héraði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
T-birds-gengið hæðist að Eugene.
Sandy og Danny, í bílabíói með-
an allt leikur í lyndi.
NEMENDUR Menntaskólans í
Kópavogi héldu á dögunum árshátíð
sína og fjölmenntu í hátíðarkvöldverð
á Hótel Sögu og á dansleik á Gauki á
Stöng.
Að sögn Önnu Regínu Björnsdótt-
ur, sem er í skemmtinefnd MK, var
árshátíðin hin besta skemmtan. „Fyr-
ir sjálft ballið var árshátíðarkvöld-
verður á Hótel Sögu,“ sagði Anna,
„þar sem ég var veislustjóri og Frosti
Ólafsson, formaður Nemendafélags-
ins, og Margrét, skólameistari MK,
fluttu ræður. Þau eru bæði nokkuð
skondin í tilsvörum og var gaman að
hlýða á. Guðrún Ragna, sem vann
söngkeppnina okkar, söng fyrir okk-
ur. Svo var loks fluttur leikinn gam-
anannáll yfir viðburði ársins og af
nógu að taka til að gera grín að.“
Seinna um kvöldið þustu MK-ingar
og gestir þeirra að Gauki á Stöng þar
sem Straumar, með Birni Jörundi og
Stefáni Hilmarssyni, héldu uppi ríf-
andi stemmningu ásamt Páli Óskari,
200.000 naglbítum, DJ Markúsi og
DJ Ella.
Anna segir hátíðina hafa tekist vel:
„Reyndar var mikil aðsókn að aðal-
sviðinu svo þar var nokkur þröng á
þingi, em það var ógeðslega gaman
hjá öllum, það vantaði ekkert upp á
það.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þær Steinunn Sigurðardóttir, Hrafnhildur Reynisdóttir
og Kristveig Þorbergsdóttir dönsuðu inní nóttina.
Þeir ollu engum vonbrigðum enda vanir stuðbolt-
ar: 200.000 naglbítar á árshátíð MK.
Mikil gleði hjá MK-ingum