Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 1
126. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 7. JÚNÍ 2001 ÞÓTT staða stjórnarandstöðunnar í Bretlandi hafi nokkuð lagast í skoð- anakönnun á síðasta degi kosninga- baráttunar benda allar spár eindreg- ið til þess að stjórn Verkamanna- flokksins undir forystu Tonys Blairs eigi í vændum annað kjörtímabil. Lokasprettur flokkanna hefur ekki aðeins miðað að því að biðla til kjósenda, heldur einnig að lokka fólk í kjörklefann. Fjöldi óákveðinna ger- ir óvissuna meiri en ella og þar sem kjördæmin eru einmenningskjör- dæmi skiptir miklu máli hvar at- kvæðin falla. Berjast flokkarnir eins og ljón í þeim kjördæmum, þar sem frambjóðendur þeirra standa tæpt. Engar kappræður Sjónvarpskappræður flokksleið- toga tíðkast ekki í Bretlandi og því fá kjósendur ekki tækifæri til að bera þá saman í návígi. Það, sem komst þessu næst, var í gær þegar Tony Blair forsætisráðherra, William Hague, leiðtogi Íhaldsflokksins, og Charles Kennedy, leiðtogi frjáls- lyndra, voru saman í beinni útsend- ingu í kvöldfréttum BBC1 en hver á sínum stað í landinu. Uppsetningin var þó hálfmis- heppnuð því að Blair var í rauðu her- bergi, sem helst minnti á vistarverur gleðikvenna, Hague var eins og kýldur út í horn í rútu en Kennedy var sá eini sem naut sín sjónrænt með kosningarútuna sína í bak- grunni. Síðustu kannanir benda til að Verkamannaflokkurinn fái 45–48 prósent atkvæða, var með 43,2% 1997, Íhaldsflokkurinn fái 30–32%, var með 30,7% 1997, og frjálslyndir 16–18%, fengu 16,8% 1997. Ef Íhaldsflokkurinn bætir ekki við sig má Hague biðja fyrir sér og framtíð sinni sem flokksleiðtoga. Nýgræðingur sem hefur sannað sig Sá sem hefur áunnið sér mesta að- dáun fyrir kröftuga og heiðarlega baráttu er Charles Kennedy, leiðtogi Frjálslynda demókrataflokksins. Þessi rauðhærði Skoti, sem talar enskuna með klingjandi, skoskum hreim, hefur staðið við það sem hann lofaði: Að heyja jákvæða baráttu með skýrum skilaboðum til kjós- enda. Kennedy lætur ekki auðveldlega slá sig út af laginu. Þegar hann lauk baráttunni í London með kosninga- fundi í Fulham vatt náungi í sam- festingi sér upp á svið og svipti sig klæðum svo að hvatning um að kjósa flokkinn skrifuð á manninn allsberan blasti við. Stuðningsmanninum var svipt burt á svipstundu en Kennedy brosti út í annað og sagði við góðar undirtektir, að þeir væru nú einu sinni frjálslyndir. Blair hefur verið áberandi stuttur í spuna undanfarið, ekki síst við fréttamenn. Flestum neikvæðum spurningum um slælega frammi- stöðu flokksins miðað við loforð hef- ur hann svarað með því, að það sé fullt af góðu framtaki, sem fjölmiðl- arnir hafi látið vera að sýna. Álagið á honum hefur tvímælalaust verið mest en það lifnar þó alltaf yfir hon- um þegar hann fær að tala óhindrað og án óþægilegra spurninga. Hague hefur einnig áunnið sér vissa aðdáun fyrir ótrúlegt úthald. Mönnum finnst næstum eins og það sé ómannlegt hvað hann getur tekið öllu með brosi á vör. „Bara að hann brysti einhvern tímann í grát svo við gætum séð að hann er í raun mann- legur,“ varð blaðamanni að orði eftir að hafa horft á enn eina hetjulega frammistöðu Hagues fyrir framan fréttamenn, sem stöðugt hamra á skoðanakönnunum um væntanlegar hrakfarir Íhaldsflokksins. Hague og aðrir íhaldsmenn benda hins vegar á, að reynslan sýni, að skoðanakann- anir vanmeti alltaf styrk þeirra. Bretar ganga að kjörborðinu í dag eftir spennulitla kosningabaráttu Allar spár benda til öruggs sigurs Verkamannaflokksins London. Morgunblaðið. AP Sumir óttast, að dómsdagur sé jafnan yfirvofandi, en þessi gamansami maður spáði því í gær, að endalok kosningabaráttunnar og kosninganna væru ekki langt undan. Líklegt er, að hann reynist sannspár um það. Reuters Tony Blair fær hér rembings- koss frá einum aðdáenda sinna á lokadegi kosningabaráttunnar. AP William Hague, leiðtogi Íhalds- flokksins, með stuðningsmönn- um sínum í Winchester í gær. BIFVÉLAVIRKI í Notodden í Noregi slapp með skrámur þegar hann hékk neðan í flutningabíl rúmlega 20 km leið. Maðurinn hafði ekki lok- ið við að gera við bílinn þegar bílstjórinn ákvað að aka á brott, óafvitandi um farþeg- ann. Bifvélavirkinn var að herða síðustu rærnar og hafði smeygt fótunum upp á öx- ulinn á milli hjólanna á tengi- vagni bílsins, þegar bílstjór- inn tók af stað. Hann ók um 20 km áður en hann stoppaði til að taka hlass á bílinn en allan þennan tíma hékk Kwi Hong undir bílnum, með fót- leggina krækta um öxulinn og hélt dauðahaldi í slöngu. Slapp hann ómeiddur frá þessu en þegar hann ætlaði að losa sig eftir að bíllinn hafði verið stöðvaður rann bíllinn aðeins afturábak og marðist hann þá dálítið á mjöðm. Ekki bráð- feigur bílvirki Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. BANDARÍSKUR alríkisdómari hafnaði í gær ósk verjenda Timoth- ys McVeighs um að aftöku hans yrði frestað enn. Hún á að fara fram næstkomandi mánudag, 11. júní, en málið mun nú fara fyrir áfrýjunarrétt. Úrskurður dómarans, Richards Matsch, kom mörgum lögspeking- um á óvart því að aftökunni var upphaflega frestað er í ljós kom, að FBI, bandaríska alríkislögreglan, hafði ekki látið verjendur fá mörg þúsund skjöl varðandi rannsóknina. Segjast þeir hafa haft skamman tíma til að skoða skjölin en þau bendi þó til, að McVeigh hafi ekki verið einn að verki. Dómarinn sagði, að hann sæi enga ástæðu til að fresta aftökunni hvað sem liði hugsanlegum vitorðs- manni. Sannað væri, að Timothy McVeigh hefði borið meginábyrgð á dauða 168 manna er hann sprengdi upp stjórnarráðsbyggingu í Okla- homaborg í apríl 1995. Nítján þeirra voru börn. Aftöku McVeighs ekki frestað Denver. AFP. STJÓRNVÖLD í Makedóníu hótuðu í gær að lýsa yfir stríðsástandi í land- inu eftir að fimm stjórnarhermenn höfðu fallið í fyrirsát albanskra skæruliða. Evrópusambandið og Bandaríkjastjórn hvöttu hins vegar stjórnina til að bíða enn með svo af- drifaríka ákvörðun. Hermennirnir féllu í miklum átök- um við skæruliða í hlíðunum fyrir of- an Tetovo, stærsta byggðarkjarna albanska minnihlutans í landinu. Brást Ljubco Georgievski, forsætis- ráðherra Makedóníu, við tíðindunum með því að hvetja til allsherjarher- væðingar og heimildar til að beita neyðarlögum. Makedónskir stjórnmálamenn kröfðust þess í maí, að stríðsástandi yrði lýst yfir í landinu, en féllu síðan frá því að ósk vestrænna ríkja. Ekki er ljóst hvort Georgievski hyggst fylgja kröfunni eftir að þessu sinni en það þykir ekki boða gott fyrir samstarf slavneska meirihlutans og albanska minnihlutans í þjóðstjórn- inni, að forsætisráðherrann hefur krafist þess einnig, að albönsku stjórnmálaflokkarnir tveir taki af skarið um það hvort þeir séu „á bandi morðingjanna eða ríkisins“. Javier Solana, talsmaður Evrópu- sambandsins í öryggis- og utanrík- ismálum, sagði í gær, að lýsti Make- dóníuþing yfir stríðsástandi myndi það aðeins verða vatn á myllu öfga- manna. Undir það tók talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins. Óttast hefndarárásir Vestrænir sendimenn segja, að al- bönsku skæruliðarnir hafi að undan- förnu verið að reyna að koma upp nýrri víglínu við Tetovo í því skyni að færa út stríðið. Hópar Makedóníu- manna af slavneskum uppruna réð- ust í gær á Albana og eigur þeirra í bænum Bitola en þaðan voru þrír hermannanna, sem féllu. Var kveikt í 25 verslunum og öðrum fyrirtækj- um. Óttast hafði verið, að til þessa myndi koma, og höfðu stjórnvöld í Makedóníu uppi ráðagerðir um að koma á útgöngubanni í bænum en til þess hafði þó ekki komið í gær. Mannfall í átökum við albanska skæruliða í Makedóníu Vilja lýsa yfir stríðsástandi Skopje. Reuters, AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.