Morgunblaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðningarþjónusta sjávarútvegsins
Menn strax!
Sérhæfð ráðningarþjónusta fyrir sjávarútveg-
inn. Útvegum gott starfsfólk til sjávar og lands.
Sími 898 3518.
Dagskrárgerðarfólk
Útvarpsstöð á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
hressu og skemmtilegu dagskrárgerðarfólki.
Upplýsingar gefur Brynjar í símum 515 0890
og 862 0895.
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
skólaárið 2000-2001
Grandaskóli, sími 561 1400
Almenn kennsla
Smíðar
Umsóknarfrestur er til 5. júlí.
Upplýsingar gefur skólastjóri.
Umsóknir ber að senda í skólann.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um laus störf og grunn-
skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir
grunnskólar.is og job.is .
Lausar eru til
umsóknar eftirtaldar
stöður við Háskólann
á Akureyri
Lektor í hagfræði með áherslu á stærð-
fræði og tölfræði.
Lektornum er ætlað að sjá um kennslu í stærð-
fræði og tölfræði og stunda rannsóknir í
hagnýtri hagfræði.
Lektor í markaðsfræði.
Lektornum er ætlað að sjá um kennslu og
stunda rannsóknir í markaðsfræði með áherslu
á þjónustumarkaðsfræði.
Umsækjendur um stöður lektora skulu hafa
meistara- eða doktorspróf í viðkomandi fræði-
grein og hafa stundað rannsóknir í greininni.
Umsókn skal fylgja í þríriti greinargóð skýrsla
um náms- og starfsferil, vísindastörf, stjórnun-
ar- og kennslureynslu. Umsækjendur skulu
senda með umsókninni fræðilegar ritsmíðar
sínar sem þeir óska eftir að verði metnar af
dómnefnd. Laun eru skv. kjarasamningi Félags
háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra
og raðast starf lektors í launaramma B.
Móttaka allra umsókna verður staðfest,
umsækjendur fá tækifæri til að gera athuga-
semdir við dómnefndarálit og þeim verður
tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun
hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um
störfin veitir Helgi Gestsson, lektor, í síma
4630900, netfang helgig@unak.is.
Verkefnastjóri notendaþjónustu
og gagnasmiðju.
Verkefnisstjórinn mun leiða uppsetningu gagn-
asmiðju við háskólann, þróa notenda-þjónustu
vegna tölvukerfis og annast ytri og innri vef
hans. Meginhlutverk gagnasmiðjunnar verður
að veita starfsmönnum og nemendum háskól-
ans aðgang að sérhæfðum tækjakosti, hug-
búnaði og leiðsögn sem gerir þeim kleift að
hagnýta sér upplýsingatækni við nám, kennslu
og rannsóknir. Gagnasmiðjan annast innkaup,
vörslu og útlán á sérhæfðum hugbúnaði og
tækjum í eigu háskólans auk kennslu og þjálf-
unar í notkun þeirra. Nokkur hluti
starfsins verður fólginn í kennslu.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf eða
sambærilega menntun og víðtæka reynslu eða
menntun á sviði upplýsingatækni. Rík áhersla
er lögð á að viðkomandi hafi hæfileika til
mannlegra samskipta, geti unnið sjálfstætt en
jafnframt í hóp. Æskilegt er að umsækjandi
geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru skv. kjarasamningum fjármálaráðher-
ra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún
Magnúsdóttir forstöðumaður upplýsingasviðs
í síma 463 0520, netfang sigrun@unak.is
Umsóknarfrestur um áðurgreind störf er til 25.
júní nk. og skal umsóknum skilað til skrifstofu
rektors Háskólans á Akureyri við Norðurslóð,
600 Akureyri.
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R