Morgunblaðið - 07.06.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ferlinu er ekki lokið heldur verður
haldið áfram að framkvæma og
betrumbæta stöðu kvenna í at-
vinnulífinu og í stjórnmálum í þess-
um löndum. Í þriðja lagi reyndum
við nýja aðferð við framkvæmdir á
Reykjavíkurráðstefnunni sem er
sú að fá til samstarfs við okkur fyr-
irtæki og aðila í atvinnulífinu sem
vinna með stjórnvöldum eða með
öðrum fyrirtækjum að þessum
málum. Þetta hefur gefist einstak-
lega vel og ber að þakka íslenskum
fyrirtækjum og stofnunum hversu
vel þau hafa tekið við sér í þessum
málaflokki í kjölfarið á þessari ráð-
stefnu í Reykjavík.“
RÁÐSTEFNAN Konur og lýðræði
við árþúsundamót, sem haldin var í
Reykjavík á haustdögum 1999, er
fyrirmynd framhaldsráðstefnu um
konur og lýðræði sem haldin verð-
ur í Vilníus í Litháen 15. til 17. júní
nk. og var kynnt á fundi á vegum
forsætisráðuneytisins og utanríkis-
ráðuneytisins í Þjóðmenningarhús-
inu í gær.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði verkefnið á Íslandi frá byrj-
un hafa verið hugsað sem fram-
kvæmdarverkefni en ekki einungis
fundarverkefni og það yrði
skemmtilegt að fylgjast með hver
árangur yrði af framhaldsráðstefn-
unni í Vilníus. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra tók undir orð
Davíðs og sagði engan vafa vera á
því að ráðstefnur af þessu tagi
efldu og styrktu lýðræði í þeim
löndum sem tækju þátt og hvettu
konur til að vera virkari þátttak-
endur í lýðræðiskerfi þjóðar sinn-
ar.
Tilgangur ráðstefnunnar Konur
og lýðræði við árþúsundamót, sem
haldin var í Reykjavík í október
1999, var að leiða saman einstak-
linga með þekkingu, reynslu og
áhuga á lýðræðisuppbyggingu sem
felur í sér virka þátttöku kvenna
og sagði dr. Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, aðalskipuleggjandi
Reykjavíkurráðstefnunnar, árang-
ur hennar vera þríþættan en hún
hafi einnig verið upphafið á því
ferli sem haldi áfram í Vilníus. „Í
fyrsta lagi eru það verkefnin sjálf
sem hefur verið unnið ötullega að í
öllum þátttökulöndunum og hafa
komið konum og körlum í þessum
löndum til góða. Þetta er mikilvæg-
asti árangurinn, til þess var stofn-
að til ráðstefnunnar hér og þess
vegna erum við að halda áfram. Í
öðru lagi má nefna samstarf milli
þessara tíu þátttökulanda sem hef-
ur orðið enn nánara. Það er mjög
mikilsverður árangur að það er
skilningur meðal allra landanna að
Verkefnin sem unnið hefur verið
að hafa verið afar fjölbreytt og má
þar nefna ýmis framsækin sam-
starfsverkefni sem hafa bætt hlut
kvenna og eflt tengsl milli fyrir-
tækja, stofnana og einstaklinga. Að
sögn Sigríðar Dúnu miða verkefnin
að því að auka hagvöxt og sam-
keppnishæfni íslensks atvinnulífs
með því að auka þekkingu, hæfni
og þátttöku kvenna í atvinnusköp-
un. Norræna upplýsingaskrifstofan
í Vilníus hefur safnað saman upp-
lýsingum um flest verkefnanna
sem hrundið hefur verið af stað í
þeim löndum sem hlut áttu að ráð-
stefnunni í Reykjavík og er þær
upplýsingar að finna á slóðinni
www.nrm.lt.
Sigríður Dúna sagði einnig
ánægjulegt að greina frá því að
þátttökuþjóðunum hefur fjölgað
þar sem Þjóðverjar og Pólverjar
senda nú þátttakendur á ráðstefn-
una en áður hafa fulltrúar frá tíu
löndum tilkynnt þátttöku sína, þ.e.
frá Bandaríkjunum, Rússlandi,
Norðurlöndunum og Eystrasalts-
ríkjunum.
Fulltrúar verða alls um 500 í Vil-
níus eða 200 fleiri en sóttu ráð-
stefnuna í Reykjavík og sækja
nærri 40 þátttakendur frá Íslandi
ráðstefnuna í Vilníus.
Framhaldsráðstefna um konur og lýðræði í Litháen
Hvetur konur til þátt-
töku í lýðræðiskerfinu
Morgunblaðið / Sverrir
Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson kynntu ráðstefnu um konur og lýð-
ræði sem haldin verður í Vilníus í Litháen 15. til 17. júní nk.
FYRIR fimm árum flæktist ungur
hnúðsvanur (Cygnus olor) hingað
til lands með álftum frá Bretlands-
eyjum. Fuglinn hélt til á Skjálfta-
vatni í Kelduhverfi í hópi álfta.
Síðan þá hefur hann sést á hverju
sumri á þessu svæði. Nú er svo
komið að hnúðsvanurinn, sem er
karlfugl, er orðinn kynþroska og
farinn að leita sér að maka.
Vandamálið er bara að þetta er
eini fugl þessarar tegundar á Ís-
landi. Fuglaskoðarar á Kópaskeri
sem hafa fylgst með hegðun fugls-
ins að undanförnu tóku eftir því að
hnúðsvanurinn þröngvaði sér inn á
álftarpar í grenndinni og fór að
gera sig til við álftarkerlu. Endaði
þetta með slagsmálum milli karl-
anna og hafði hnúðsvanurinn bet-
ur. Seinna sáust álftarparið og
hnúðsvanurinn saman í hópi og
virtist þá allt leika í lyndi á milli
þeirra.
Kölluðu heimamenn þetta þá
gullna þríhyrninginn. Hnúðsvanur-
inn sást á þessu tímabili byggja
hreiður og virtist því fullviss um
að hafa náð kerlu á sitt band.
Nokkrum dögum seinna sást hann
svo einn og yfirgefinn á ný og náð-
ist þá þessi mynd af fuglinum.
Ljósmynd/Gunnar Þór Hallgrímsson
Hnúðsvanur í makaleit
HÁHYRNINGURINN Keiko hef-
ur átt samskipti við villta háhyrn-
inga í fyrsta sinn á árinu en þjálf-
arar hans segja að ferðalög hans
út úr kvínni við Vestmannaeyjar
hafi tekist mjög vel. Ocean Fut-
ures, stofnunin sem á Keiko og er
að þjálfa hann til að takast á við
lífið sem frjáls háhyrningur, segir
að ferðalög Keikos í fylgd tveggja
báta og þjálfara út á haf sé liður í
að æfa Keiko í að þekkja umhverf-
ið.
Keiko hefur verið í haldi manna
í yfir 20 ár en hann var eins og
flestir vita aðalstjarnan í „Free
Willy“-kvikmyndunum. Eftir það
fréttist af bágbornum aðstæðum
hans í sædýrasafni í Mexíkó. Hafin
var söfnun fyrir Keiko sem flutti
þá í sædýrasafn í Oregon í Banda-
ríkjunum og þar hófst endurhæf-
ing hans. Keiko kom síðan til Ís-
lands fyrir þremur árum og hefur
dvalist í Klettsvík síðan.
Nú virðist sem Keiko sé einu
skrefi nær því að verða frjáls út í
hafi, því fyrstu tvær „gönguferðir“
hans hafa tekist með ágætum.
Í fyrstu ferðinni komu tveir há-
hyrningar nærri Keiko og fleiri
voru nálægir. Að sögn fram-
kvæmdastjóra Ocean Futures,
Charles Vinick, var eins og Keiko
hefði hlustað á hina háhyrningana.
Í næsta ferðalagi Keiko út á sjó
daginn eftir hitti hann fleiri há-
hyrninga en báturinn sem fylgir
Keiko slekkur á vélinni þegar
hann sér villta háhyrninga nálgast.
„Þegar háhyrningarnir nálguðust,
voru í um 250 metra fjarlægð, virt-
ist eins og Keiko væri að hlusta á
þá. Hann horfði beint á þá, var á
1–2 metra dýpi í um 10–20 metra
fjarlægð frá bátnum. Keiko synti
svo í áttina að hvölunum og synti
um 50–100 metra áður en hann
sneri aftur að bátnum,“ segir í
tölvupósti Vinicks í fréttabréfi
samtakanna.
Lék sér við
lítinn kálf
Síðar í sömu ferð hitti Keiko
fleiri háhyrninga og hafði hann
nokkur samskipti við þá, sérstak-
lega lítinn háhyrningskálf, og svo
virtist sem þeir hafi verið að leika
sér saman.
Vinick segir að næsta skrefið sé
að hvetja Keiko til að færa sig
lengra frá bátnum og hafa meiri
samskipti við aðra háhyrninga.
Keiko hefur átt
samskipti við
villta háhyrninga
STJÓRN Sunnlenskrar orku
ákvað á fundi sínum í gær að kæra
til umhverfisráðherra úrskurð
Skipulagsstofnunar, þar sem lagst
er gegn áður fyrirhuguðum fram-
kvæmdum í Grændal norðan
Hveragerðis. Kæran verður send
umhverfisráðherra í dag og hefur
ráðherra lögum samkvæmt átta
vikur til að kveða upp úrskurð.
Kristján Jónsson, forstjóri RA-
RIK, sem á 90% hlut í Sunnlenskri
orku, segir að ákveðið hafi verið að
kæra úrskurðinn þar sem stjórn
Sunnlenskrar orku hafi ekki verið
sátt við hann og þau rök og grein-
argerð sem að baki liggja. Búið er
að leggja 40–50 milljónir króna í
rannsóknir og undirbúningsvinnu
á svæðinu og segir Kristján að um
mikið hagsmunamál sé að ræða.
Sunnlensk orka hafði fyrirhugað
að bora rannsóknarholu í Grændal
og leggja veg að borstæðinu. Hefði
svæðið reynst fýsilegur virkjunar-
kostur var áformað að virkja jarð-
hitann til rafmagnsframleiðslu og
nýta heitt vatn og gufu til iðn-
aðarnota.
Héraðsvötn hf., sem RARIK á
75% hlut í á móti heimamönnum,
undirbúa nú virkjunarframkvæmd-
ir í Héraðsvötnum í Skagafirði,
Villinganesvirkjun, sem yrði 33
MW. Kristján segir að von sé á úr-
skurði Skipulagsstofnunar um þær
framkvæmdir í ágúst. „Við erum
með tvo möguleika í gangi og von-
umst til að báðir verði samþykktir
þannig að við getum valið um þann
kostinn sem hentar betur þeim
markaðsaðstæðum sem fyrir
verða,“ segir Kristján. Fyrirhuguð
virkjun í Grændal er jarðgufu-
virkjun og í Villinganesi vatnsafls-
virkjun og segir Kristján mikil-
vægt að hafa val milli þessara
tveggja kosta, ekki síst vegna þess
markaðsumhverfis sem komið
verður á næsta ári með nýjum raf-
orkulögum.
Fyrirhugaðar fram-
kvæmdir Sunnlenskrar
orku í Grændal
Úrskurð-
ur Skipu-
lagsstofn-
unar
kærður
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru á hendur þremur mönn-
um vegna tilraunar til smygls á 30
kílóum af hassi til landsins haustið
1999. Hassið var falið í hurð sem
senda átti sjóleiðis til Íslands til
fyrirtækis hér. Efnið kom þó aldrei
til landsins þar sem lögreglan í
Barcelona á Spáni lagði hald á
fíkniefnið.
Mennirnir eru allir um fertugt.
Einum þeirra er gefið að sök að
hafa ætlað að flytja hassið til lands-
ins sem hafi verið ætlað til sölu hér-
lendis í ágóðaskyni. Annar er sak-
aður um að hafa komið honum í
samband við mann sem kallaður
var Yves og starfaði sem sölumaður
eða milligöngumaður seljanda efnis-
ins ytra.
Þriðji maðurinn er ákærður fyrir
að útvega upplýsingar um fyrirtæk-
ið sem hurðirnar áttu að fara til.
Samkvæmt ákæru fékk hann til
þess samþykki grandalauss for-
ráðamanns fyrirtækisins til að
flytja inn hurðir sem hann vissi að í
voru falin fíkniefni.
Ákærðir fyrir
innflutning
á 30 kílóum
af hassi
♦ ♦ ♦