Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ORVFI elst íðorðanefnda Skjár – raflögn – rofi ELSTA starfandi íð-orðanefnd landsinser Orðanefnd raf- magnsverkfræðinga (ORVFI), en sú orðanefnd varð 60 ára hinn 16. maí sl. Nefndin hefur, að sögn formanns hennar, Bergs Jónssonar rafmagnsverk- fræðings starfað óslitið frá stofnun. „Nefndin hefur gefið út tólf orðabækur og þrátt fyrir langan aldur hefur hún aðeins haft þrjá for- menn,“ bætti Bergur við. – Hvers vegna var nefndin stofnuð? „Það var fyrst og fremst vegna áhuga þeirra raf- magnsfræðinga sem þá voru í landinu árið 1941, þegar rafmagnsverkfræð- ingadeild var stofnuð fyrst sér- deilda innan Verkfræðingafélags Íslands. Nokkrir þeirra höfðu starfað með orðanefnd Verkfræð- ingafélags Íslands sem var stofn- uð árið 1919 og birtust orðasöfn með rafmagnsorðum í tímariti Verkfræðingafélagsins árin 1920 og 1923. Á þessu má sjá á hversu gömlum merg þessi íðorðasöfnun stendur.“ – Hvers konar orð hafa oftast komið inn á borð hjá ykkur? „Við höldum okkur að mestu leyti við orkusviðið og fjarskipta- sviðið en líka önnur tengd svið raf- magnsfræðinnar.“ – Getur þú nefnt okkur þekkt orð sem nefndin hefur búið til? „Það eru orð eins og skjár, seg- ulsvið, raflögn, spennistöð, rofi og tengill. Þá nefna fjölda orða úr fjarskiptasviði, svo sem loftnet, myndband og hljóðband. Sjón- varpsmálið býr yfir mörgum ís- lenskum orðum þannig að sjón- varpsstarfsmenn þyrftu ekki að tala nema íslensku sína á milli.“ – Hvenær kom fyrsta orðabók- in ykkar út? „Það var árið 1952 og þá gáfum við út Danskt-íslenskt bráða- birgðaorðasafn úr rafmagnsfræði og skyldum greinum. Næst kom út 1965 Raftækni og ljósorðasafn fyrra bindi. Árið 1973 kom út síð- ara bindi af fyrrnefndu verki. Að því loknu varð langt hlé í útgáfu- starfi en unnið var af kappi engu að síður við orðasöfnun og orða- smíði. Árið 1988 kom svo fyrsta bindi í nýrri ritröð sem bar yfir- heitið Raftækniorðasafn og var undirtitillinn: Þráðlaus fjarskipti. Þessi nýja ritröð var á allt annan veg uppbyggð en fyrri rit ORVFI, í henni eru skýringar hugtaka á tveimur til þremur tungumálum og íðorð á átta til níu tungumálum auk íslensku. Þess má geta að íð- orð er þýðing á erlenda orðinu term og er í ís- lenskri orðabók Árna Böðvarssonar skýrt sem sérfræðiorð í til- tekinni fræðigrein. Nú eru komin út níu rit í þessari ritröð, þar með talið íslenskt-enskt – enskt-íslenskt orðasafn án skýr- ingahugtaka.“ – Eiga margir sæti í ORVFI? „Það eru tíu verkfræðingar og tæknifræðingar sem eiga sæti í nefndinni og auk þess starfar með okkur íslenskufræðingur sem ráð- gjafi um íslenskt mál. Níu af þess- um tíu nefndarmönnum hafa setið fimm ár eða lengur í nefndinni, allt upp í 32 ár. Meðalstarfstími þessara níu manna í nefndinni er 23 ár. Þá má með réttu ætla að orðanefndarstörf séu ekki leiði- gjörn, þess má geta að fundir eru haldnir vikulega og hefur svo ver- ið lengst af. Fundafjöldi hefur komist upp í 43 fundi á ári, starfið hefur ávallt verið ólaunað.“ – Eru konur í nefndinni? „Við höfum gert allt sem við höfum getað til að fá konur til starfa í nefndinni en haldist illa á þeim fáu sem látið hafa tilleiðast og nú er engin kona í nefndinni – því miður.“ – Er erfitt að finna íslensk orð yfir erlend sérfræðiheiti í raf- magnsverkfræði? „Í mörgum tilvikum er léttasta aðferðin að þýða eitthvað af þeim erlendu íðorðum sem til eru yfir hugtakið en við reynum að hafa ís- lensku íðorðin gegnsæ. Þetta er ein aðferðin, önnur aðferð er sú að reyna að mynda íslensk orð, taka upp gömul íslensk orð eða þá að búa til einhvers konar hljóðlíking- ar. Gott dæmi um það sem við höf- um tekið upp úr gömlu máli er orð eins og skjár. Sími er einnig gam- alt íslenskt orð og er líka til í öðr- um tungumálum svo sem í finnsku – sima, sem þýðir ein- hvers konar þráður. Sem dæmi um hljóðlík- ingar má nefna enska orðið to scan, þarna bjuggum við nýyrðið að skanna, þetta orð beyg- ist eins og sagnirnar banna, hanna, kanna, manna og sanna. Sérlega erfið- lega hefur gengið að finna íslenskt íðorð í stað enska íðorðsins radio. Til þess að fá lausn á því máli var kallaður saman fundur 20 til 30 valdra manna og niðurstaðan varð engin þannig að við notum fjöl- mörg íslensk orð til að lýsa því sem radio nær yfir.“ – Telur þú mikla nauðsyn á að búa til íslensk íðorð? „Mér finnst það beinlínis lífs- nauðsyn tungunni að eiga íslensk orð fyrir öll hugtök sem fram koma. Þannig höldum við frá notkun og blöndun erlendra orða í íslensku.“ Bergur Jónsson  Bergur Jónsson fæddist í Reykjavík 16. apríl 1934. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1954 og fór eft- ir það til Þýskalands og lauk raf- magnsverkfræðiprófi við tækniháskólann í München og vann að því loknu í Þýskalandi hjá Siemens-Schuckertwerke AG í Erlangen til 1966, kom þá Ís- lands og vann hjá Landsvirkjun sem verkfræðingur til 1979, þá var hann skipaður rafmagnseft- irlitsstjóri ríkisins. Stofnunin var lögð niður 1996 og eftir það starfaði Bergur fyrir iðnaðar- ráðuneyti til 1. maí 1999. Hann er kvæntur Ingunni Guðmunds- dóttur bókasafnsfræðingi og eiga þau fjögur börn. Meðalstarfs- tími níu nefndar- manna er 23 ár Hann skal sko fá að vita hvar Davíð keypti ölið þegar ég næ í rassgatið á honum. JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálráðherra, hefur til- kynnt SÁÁ að fjárveiting til sam- takanna hafi verið hækkuð um 36 milljónir og er þar um að ræða leiðréttingu fyrir árin 2000 og 2001 vegna launahækkana á árinu 1999. Jafnframt mun rekstrargrunnur stofnunarinnar á árinu 2002 hækka um 18 milljónir króna. Í bréfi sem heilbrigðisráðherra sendi SÁÁ segir að samtökin hafi haldið uppi starfsemi sem er um- fangsmeiri en ríkið hafi verið reiðubúið að fjármagna en notað sjálfsaflafé eins og safnanir, hlut- deild í hagnaði spilakassa o.s.frv. til að greiða það sem upp á vanti. Á undanförnum árum hafi fjár- framlög til stofnunarinnar verið aukin verulega enda talið að fjár- magn til meðferðar vegna vímu- efnavandans nýtist vel í höndum þróttmikilla áhugamannasamtaka. 70% aukning frá 1997 Fram kemur í bréfinu að frá 1997 hafi framlög ríkisins til SÁÁ hækkað um 70%, en í þeirri tölu eru byggingastyrkir taldir með. „Það er von ráðuneytisins að þessi fjárveiting hjálpi til við að leysa þann fjárhagsvanda sem stofnunin á við að stríða, þannig að nið- urskurðurinn komi sem minnst niður á skjólstæðingum stofnunar- innar,“ segir í niðurlagi bréfsins. Á heimasíðu SÁÁ segir að þessi fjárveiting skipti miklu máli og muni hjálpa samtökunum í þeim fjárhagsvanda sem að steðji og geri það að verkum að sú lokun sem þegar hefur verið ákveðin á Staðarfelli verði nú aðeins tíma- bundin ráðstöfun. Ríkissjóður hefur hækk- að fjárveitingar til SÁÁ INNBROT í málaverkagalleríið við Skólavörðustíg 27. apríl sl. er að mestu upplýst. Þrír menn hafa við- urkennt aðild sína að málinu. Flest málverkanna, sem stolið var, eru komin í leitirnar. Þau virðast að mestu óskemmd. Maður, sem lögreglan handtók í upphafi rannsóknarinnar, hefur við- urkennt aðild sína að innbrotinu ásamt tveimur öðrum mönnum er tengjast málinu með einum eða öðr- um hætti. Rannsókn málsins heldur áfram. Innbrot í galleríið að mestu upplýst ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.