Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 29
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 29
ENN á ný eru Kolbeinn Svein-
björnsson og félagar hjá Þingvalla-
vatnssiglingum að ýta Himbriman-
um á flot, en þetta er sjötta sumarið
sem ferðamönnum gefst færi á að
njóta náttúru Þingvallasvæðisins frá
nýju sjónarhorni – vatninu, segir
Margrét Sveinbjörnsdóttir, blaða-
fulltrúi Þingvallavatnssiglinga.
Vakin er sérstök athygli á tveim-
ur nýjungum í starfseminni, það er
pakkaferðinni „Dagur í Þingvalla-
sveit“ sem er sniðin fyrir hópa, er-
lenda jafnt sem innlenda. Pakkinn
er samstarfsverkefni Íslenskra
ferðahesta og Þingvallavatnssigl-
inga og inniheldur siglingu, reiðtúr
og grillveislu. Enn fremur göngu-
ferð á Þingvöllum og veiði í vatninu,
sé þess óskað sérstaklega.
Hin nýjungin er morgunferðir
sem fyrst og fremst eru sniðnar að
þörfum erlendra ferðamanna sem
ekki ferðast á eigin bíl.
Lagt er upp í útsýnissiglingar
Himbrimans frá bryggjunni á
Skálabrekku í Þingvallasveit kl. 11,
14 og 17 alla laugardaga og sunnu-
daga í júní, júlí og ágúst – og á öðr-
um tímum eftir samkomulagi. „Á
hringferð um Þingvallavatn er
spjallað um það helsta sem fyrir
augu ber í landslaginu, sagðar sögur
af mannlífi við vatnið og lífríki þess
undir yfirborðinu. Á siglingunni
geta svangir ferðalangar keypt
heimabakaðar skonsur með reykt-
um Þingvallasilungi og sporðrennt
með heitu kakói,“ segir Margrét.
Létt fjallganga í Arnarfelli
Hægt er að velja um þrjár mis-
munandi hringferðir um vatnið og í
þeirri lengstu, sem tekur um tvær
og hálfa klukkustund, er stigið á
land í Arnarfelli og farið í létta fjall-
göngu, auk þess sem siglt er um
stóran hluta vatnsins. „Í ferðinni
sem tekur eina og hálfa klukkustund
er einnig farinn stór hringur um
vatnið og í eyjasiglingunni, sem tek-
ur einungis 40 mínútur, er farið að
eyjunum Sandey og Nesjaey og lit-
ast um eftir tröllkonunni Jóru í
Hestvíkinni,“ segir Margrét að síð-
ustu.
Pakkaferðir og
morgunsiglingar
á Þingvallavatni
Innifalið í nýrri dagsferð Þingvallavatnssiglinga og Íslenskra ferða-
hesta er reiðtúr, sigling og grillveisla.
TENGLAR
.....................................................
www.himbriminn.is.
www.centrum.is/travelhorse
Á GALDRASÝNINGU á Ströndum
eru kynntir helstu þættir galdra-
mála á Íslandi auk þess sem fjallað
er um þjóðsögur tengdar tíma-
bilinu á myndrænan og fróðlegan
hátt, segir Sigurður Atlason, fram-
kvæmdastjóri Galdrasýningar.
„Fyrsti áfangi Galdrasýningar á
Ströndum var opnaður á Hólmavík
sl. vor og komu hátt í sjö þúsund
gestir í heimsókn. Á sýningunni er
mannlífi og helstu atburðum tíma-
bilsins gerð skil á skemmtilegan og
fræðandi hátt. Þar er fyrirkomið
umfjöllunum um hina ýmsu galdra
sem tengjast þjóðsögum, í bland við
staðreyndir um fjölda dómsmála,
fjölda galdrabrenna, hverjir urðu
fyrir barðinu á ofsóknunum og
hvar galdramál komu upp á Íslandi.
Meðal annars er þar að finna um-
fjöllun um fyrirbæri eins og upp-
vakninga, tilbera, flæðarmýs og ná-
brækur. Auk þess sem þar er gerð
grein fyrir réttarkerfi 17. aldar og
fjallað um galdraskræður frá öllum
tímum og athyglisverð galdramál
og persónur frá brennuöld.“
Uppbygging annars
áfanga að hefjast
Uppbygging annars áfanga
Galdrasýningar á Ströndum sem
verður í Bjarnarfirði á Ströndum
er að hefjast. Hafist er handa við
byggingu 17. aldar almúgahúss úr
torfi, grjóti og rekaviði sem hýsa
mun þennan annan áfanga Galdra-
sýningarinnar.
Sigurður segir að 17. aldar húsið
verði reist við Hótel Laugarhól í
nágrenni við bústað Svans galdra-
manns á Svanshóli sem m.a. er sagt
frá í Brennu-Njáls sögu. Þessi hluti
sýningarinnar verður helgaður
honum auk þess sem skyggnst
verður í hugarheim galdramanns á
17. öld og gerð grein fyrir öllu bú-
andkarlakukli.
Stefnt er að byggingu tveggja
galdrasýninga til viðbótar á
Ströndum á næstu árum, í Trékyll-
isvík og í Hrútafirði.
Safnið er opið virka daga frá kl.
10–18.
Galdrasýning á
Ströndum opnuð á ný
Morgunblaðið/Golli
Uppvakningur sem gestir
Galdrasýningar á Ströndum
geta barið augum.
TENGLAR
..............................................
Sími/Fax: 451 3525
Netfang: galdrasyning@akademia.is
Heimasíða: http://www.vestfirdir.is/
galdrasyning
ERLENT
MIKILVÆGUM áfanga að lögform-
legri staðfestingu NICE-sáttmálans
svokallaða, en það er breyttur stofn-
sáttmáli Evrópusambandsins (ESB)
sem samþykktur var á leiðtogafundi
aðildarríkjanna fimmtán í frönsku
borginni Nice í desember sl., verður
náð, er írskir kjósendur ganga að
kjörborðinu í dag og greiða atkvæði
um það hvort þeir styðji breytingarn-
ar eður ei.
Írland er hið eina ESB-ríkjanna 15,
þar sem þjóðaratkvæðagreiðsla fer
fram um Nice-sáttmálann. Ákvæði í
írsku stjórnarskránni um hlutleysi
írska lýðveldisins gera að verkum, að
í hvert sinn sem skref er stigið í átt að
nánari samruna ESB þarf slíkur
áfangi ávallt að hljóta samþykki með
sama hætti og væri um stjórnarskrár-
breytingu að ræða.
Andstæðingar staðfestingar sátt-
málans sögðust í gær vongóðir um að
úrslit atkvæðagreiðslunnar yrði þeim
að skapi, en fari svo gæti það sett
áform ESB um stækkunina til aust-
urs úr skorðum.
„Ég styð það heils hugar að Aust-
ur-Evrópuríkin fái aðild að ESB,
írskt efnahagslíf mun njóta góðs af
því og ég er kaupsýslumaður,“ sagði
Roger Cole, sem fer fyrir samtökum
sem berjast gegn staðfestingu Nice-
sáttmálans á þeim forsendum að hún
muni í raun binda enda á hlutleysi Ír-
lands. „En að leggja líf mitt undir fyr-
ir hana [stækkun ESB til austurs],
það er allt annað mál,“ sagði Cole.
Samtökin sem hann fer fyrir kalla sig
Friðar- og hlutleysisbandalagið
(PANA) og hinir ýmsu hópar sem láta
sér sérstaklega annt um stjórnar-
skrárbundið hlutleysi Írlands eiga að-
ild að þeim, allt frá róttækum frið-
arsinnum til þjóðernissinnaðra
lýðveldissinna.
Það sem PANA þykir mest athuga-
vert við Nice-sáttmálann eru ákvæðin
um sameiginlega öryggis- og varnar-
málastefnu ESB, en í nafni hennar
stendur til að koma á fót hraðsveitum
60.000 hermanna sem aðildarríkin
leggi liðsstyrk til.
Þótt meirihluti þeirra sem afstöðu
taka í skoðanakönnunum segist
styðja Nice-sáttmálann hefur ríkis-
stjórnin, undir forystu Bertie Ahern,
varað við því að lítil kjörsókn geti leitt
til þess að sáttmálinn hljóti ekki sam-
þykki og staðfestingarferlið strandi.
Áhyggjur af kjörsókn
Samkvæmt Nice-sáttmálanum er
gert ráð fyrir að möguleikar aðildar-
ríkja ESB til að beita neitunarvaldi
verði takmarkaðir frekar og reglur
settar um vægi og hlutverk hvers rík-
is við ákvarðanatöku eftir því sem að-
ildarríkjunum fjölgar. Hlutfallslegt
vægi lítils ríkis eins og Írlands mun
við þessar breytingar minnka frá því
sem nú er. En Ahern segir samt ekki
annað ganga en að samþykkja þetta.
„Hin ESB-ríkin munu ekki semja um
neitt upp á nýtt jafnvel þótt við segð-
um nei í atkvæðagreiðslunni,“ sagði
hann. „Það eina sem við hefðum upp
úr því að fella sáttmálann væri að
skapa tímabundið kreppuástand, sem
myndi óhjákvæmilega enda með nið-
urlægingu,“ lýsti Ahern yfir.
Í niðurstöðum nýjustu skoðana-
kannana kemur fram að 45% að-
spurðra eru hlynntir Nice-sáttmálan-
um og 28% andsnúnir, en í eldri
könnun sem birt var í Irish Times
sagði aðeins um helmingur aðspurðra
sennilegt að hann myndi fara á kjör-
stað. Þeir sem vildu fella sáttmálann
voru mun líklegri til að láta tækifærið
til að greiða atkvæði um málið ekki
framhjá sér fara.
Til þessa hafa Írar verið hvað
hlynntastir ESB af þjóðunum í sam-
bandinu, en þeir hafa líka á þeim ár-
um sem liðin eru frá ESB-inngöng-
unni fyrir hartnær 30 árum notið
mjög góðs af styrkjakerfi þess. Nú,
þegar hin fátækari fyrrverandi
kommúnistaríki í Mið- og Austur-
Evrópu knýja dyra er svo komið að
efnahagur Íra er orðinn miklu betri;
reyndar er þar í landi einhver mesti
hagvöxtur í álfunni um þessar mund-
ir. Það er því nokkuð ljóst, að Írar
muni ekki lengur „fá eins mikið úr
ESB-spenanum“ og áður eftir stækk-
un sambandsins til austurs og þetta
er sumum nóg ástæða til að vilja
hindra að nýi sáttmálinn taki gildi.
„Þú munt tapa áhrifum, peningum,
frelsi“ er fullyrt í áróðri Nice-and-
stæðinga.
Írar kjósa um Nice-sáttmála Evrópusambandsins
Andstæðingar stað-
festingar eygja von
Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, á blaðamannafundi um þjóð-
aratkvæðagreiðsluna um Nice-sáttmálann í Dyflinni á dögunum.
Reuters
Dyflinni. AP, Reuters.
BANDARÍSKI auðkýfingurinn
Michael Bloomberg hefur gefið kost
á sér í embætti borgarstjóra New
York og kveðst vera rétti maðurinn
til að taka við af repúblikananum
Rudolph Giuliani.
Bloomberg hóf baráttuna fyrir því
að verða tilnefndur borgarstjóraefni
repúblikana með auglýsingaherferð
sem hófst á þriðjudag.
Bloomberg gekk í Repúblikana-
flokkinn fyrir ári en var áður demó-
krati. Þetta er í fyrsta sinn sem hann
gefur kost á sér í opinbert embætti.
Hann stofnaði fyrirtækið Bloomberg
LP, sem sérhæfir sig í fjármálafrétt-
um og þjónustu, og er enn aðaleig-
andi og forstjóri þess.
Mikill meirihluti kjósendanna í
New York-borg er í Demókrata-
flokknum og flestir stjórnmálaskýr-
endur telja litlar líkur á að Bloom-
berg sigri demókrata í
borgarstjórakosningunum 6. nóvem-
ber. Búist er við að Herman Badillo,
fyrrverandi þingmaður, sækist einn-
ig eftir því að verða fyrir valinu sem
borgarstjóraefni repúblikana í for-
kosningum sem fara fram 11. sept-
ember.
Fjórir demókratar sækjast eftir
borgarstjóraembættinu og þeir hafa
allir mikla reynslu af pólitískum
störfum í borginni. Þeir eru Peter
Vallone, forseti borgarráðs New
York, Mark Green, málsvari almenn-
ings, Alan Hevesi, fjármálafulltrúi
borgarinnar, og Ferndando Ferrer,
forseti hverfisstjórnar Bronx.
Giuliani hefur verið borgarstjóri í
átta ár og getur ekki sóst eftir end-
urkjöri þar sem enginn má gegna
embættinu lengur en í tvö kjörtíma-
bil. Glæpum hefur fækkað mjög í
borgarstjóratíð Giulianis, sem lagði
áherslu á að efla lögregluna, og
Bloomberg kveðst ætla að byggja á
þeim árangri og gera jafnframt
gangskör að því að bæta opinbera
heilsugæslu og skóla í borginni.
Vill verða borgar-
stjóri New York
New York. Reuters, AP.
Reuters
Auðkýfingurinn Michael Bloomberg (2. f.v.) ásamt smástirnum úr
bandarísku sjónvarpi í kvöldverðarboði í Washington fyrir skömmu.