Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 31
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri á 25 sætum aðra leiðina
til Barcelona þann 27. júní. Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja
komast út til Spánar og eru ekki
búnir
að ákveða með heimferðina.
Gildir eingöngu út aðra leiðina,
Keflavík – Barcelona, 27. júní.
Barcelona
27. júní
frá 9.900 kr.
Verð kr. 9.900
Flugsæti eingöngu.
Flugvallarskattar kr. 1.870.
Verð kr. 11.770 með sköttum.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Í KVÖLD kl. 19.30 verða lokatón-
leikar starfsárs Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Háskólabíói. Fyrra verkið á
efnisskránni er 6. sinfónía Beetho-
vens, Pastoralsinfónían, eða Sveita-
lífssinfónían. Hún var samin á árun-
um 1807–08 og frumflutt á
sannkölluðum stórtónleikum þar sem
flutt voru fleiri stórvirki höfundarins:
fimmta sinfónían, Kóral-fantasían,
kaflar úr Messu í C-dúr og fjórði
píanókonsertinn. Seinna verkið er
Vorblótið eftir Igor Stravinskíj.
Það var talað um „Le grand scand-
al“ þegar það var frumflutt í París í
maí 1913. Prúðbúnir góðborgarar
áttu von á hefðbundinni ballettsýn-
ingu með þokkafullum og léttstígum
dansmeyjum tiplandi um sviðið, en
horfðu þess í stað með hryllingi á
stórkarlalegar hreyfingar dansar-
anna sem túlkuðu frumstætt blót að
hætti fornmanna og fengu í þokkabót
tónlist við hæfi. Mörg ár liðu þar til
almenningur og gagnrýnendur átt-
uðu sig á mikilleik og gæðum verks-
ins.
Sumarið 1929 skrifaði Diaghilev,
ballettstjóri Rússneska balletsins í
París, vini sínum: „Í gær var Vorblót-
ið flutt við mikinn fögnuð. Loksins
hafa þessir einfeldningar öðlast
skilning á því. The Times segir Vor-
blótið vera fyrir tuttugustu öldina
það sem Níunda Beethovens var
þeirri nítjándu. Loksins!“ Á síðasta
ári valdi tímaritið Classic CD Vor-
blótið eitt af tíu mestu tónverkum þú-
saldarinnar.
Náttúrumúsík
Við stjórnvölinn á tónleikunum í
kvöld stendur fyrrverandi aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar-
innar, Petri Sakari. „Verkin sem við
flytjum í kvöld eru bæði tengd nátt-
úrunni. Við flytjum Sveitalífssinfón-
íuna eftir Beethoven, sem er ein feg-
ursta lýsing á náttúrustemmningu
sem til er, en eftir hlé flytjum við Vor-
blótið eftir Stravinskíj, sem er eitt af
mestu verkum 20. aldarinnar. Vor-
blótið er líka tengt náttúrunni en á
allt annan hátt. Í Sveitalífssinfón-
íunni ríkir mikil hamingja og engin
vandræði fyrir utan svolítið þrumu-
veður, en í Vorblótinu er hamingjan
ekki jafn mikil, sérstaklega ekki fyrir
brúðina sem þarf að dansa þar til hún
dettur dauð.“
Það kemur Petri Sakari ekki á
óvart að Vorblótið hafi verið valið eitt
af tíu bestu verkum þúsaldarinnar.
„Þegar verkið var frumflutt var þetta
eitthvað öldungis nýtt og burtséð frá
dansinum hafði fólk aldrei heyrt ann-
að eins í tónlist. Það sem snart við
fólki þá og gerir enn, þótt á annan veg
sé, er þessi sterki rytmi, en einnig
hljómur þessarar stóru hljómsveitar
sem verkið krefst. Svo má líka nefna
hvernig Stravinskíj mótar laglínur og
byggir hljómavef kringum þær, þetta
hefur allt áhrif. Það er mikill kraftur í
Vorblótinu, næstum því kynferðis-
legur, sérstaklega undir lokin.“
Sneggri upp á lagið
Frá síðasta hausti hefur Petri Sak-
ari verið aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Gävle í Svíþjóð,
en jafnframt því hefur hann átt ann-
ríkt sem gestastjórnandi. „Ég hef þó
ekki mikið verið að stjórna sem gest-
ur á Norðurlöndunum; miklu frekar
annars staðar og sérstaklega mikið í
þýskumælandi löndunum og á Eng-
landi. Þá er ég fastur gestur Útvarps-
hljómsveitarinnar í Vínarborg.“
En hvernig finnst Petri Sakari Sin-
fóníuhljómsveit Íslands hafa dafnað á
þeim þremur árum sem liðin eru frá
því hann hætti síðast sem aðalstjórn-
andi hljómsveitarinnar? „Þá voru að-
eins 72 hljóðfæraleikarar í hljóm-
sveitinni, en nú eru þeir orðnir 80, og
það er mikil breyting til góðs. Hvað
listrænu hliðina snertir finnst mér
hljómsveitin vera orðin sneggri upp á
lagið, þau læra hraðar og æfingarnar
ganga jafnar fyrir sig. Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands hefur alltaf verið frábær
tónleikahljómsveit, og ég hef alltaf
haft mikla ánægju af því að stjórna
henni á tónleikum.“ Aðspurður hvort
hann gæti hugsað sér að koma aftur
til starfa sem aðalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands segir Petri
Sakari að það yrði þá heimsmet að
stjórnandi réði sig í þriðja sinn sem
aðalstjórnanda sömu hljómsveitar-
innar á innan við áratug, og taldi það
fremur óraunhæft.
„Ég nýt þess samt að vera hér og
vinna með hljómsveitinni og ég vona
að henni líki enn við mig. En ég kem
hingað örugglega aftur í apríl á
næsta ári, þar sem við verðum aftur
með stórt prógramm með þremur
verkum sem ekki hafa heyrst hér áð-
ur; nýju stóru verki, Hyr eftir Áskel
Másson, og tveimur verkum eftir
Richard Strauss sem ekki hafa
heyrst hér áður á tónleikum;
Sjöslæðudansinum úr Salóme og
Alpasinfóníunni, sem einnig hefur
tengsl við náttúruna.“
Petri Sakari stjórnar lokatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Frábær tónleikahljómsveit
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Petri Sakari hljómsveitarstjóri einbeittur við æfingar á Vorblótinu í Háskólabíói í gærmorgun.
RITHÖFUNDURINN Gyrðir El-
íasson tekur nú í ágústmánuði þátt í
bókmenntahátíð í Molde í Noregi
ásamt ekki ómerkari rithöfundum en
Richard Ford, David Grossmann og
Bei Dao.
Bókmenntahátíðin, sem ber heitið
Bjørnson-hátíðin, verður með al-
þjóðlegu yfirbragði að sögn stjórn-
enda og eru Bandaríkjamaðurinn
Ford, ísraelski rithöfundurinn
Grossmann og kínverska skáldið Bei
Dao helstu stjörnur hátíðarinnar.
Alls munu þó um 70 rithöfundar og
skáld, Gyrðir þeirra á meðal, flytja
verk sín á Bjørnson-hátíðinni.
Áherslur í ritverkavali eru að þessu
sinni alþjóðlegar, líkt og áður hefur
komið fram, og koma höfundarnir
því víða að. Eru stjórnmál og þjóð-
félagsmál þá einnig gegnumgang-
andi þema í skrifum þeirra flestra.
Gyrðir Elías-
son á há-
tíð í Molde
VILLUR slæddust inn í frétt um
sumartónleika í Stykkishólmskirkju
og verður dagskráin því birt á ný.
Næstu tónleikar í röðinni eru með
Óskari Guðjónssyni saxófónleikara og
Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara 21.
júní. Stúlknakór danska ríkisútvarps-
ins verður með tónleika 2. júlí. Laufey
Sigurðardóttir, fiðluleikari og Páll
Eyjólfsson, gítarleikari koma fram 5.
júlí.
19. júlí. kemur fram djasskvartett-
inn Dúett Plús. 26. júlí verða tónleikar
með Þór Breiðfjörð Kristinssyni og
Ingibjörgu Þorsteinsdóttur og munu
þau flytja lög úr söngleikjum. 2. ágúst
verða tónleikar með Berglindi Maríu
Tómasdóttur, þverflautuleikara og
Arne Jörgen Fæo, píanóleikara. 19.
ágúst skemmtir söngkvartettinn Út í
vorið og með þeim eru Signý Sæ-
mundsdóttir, sópran og Bjarni Jón-
atansson, píanóleikari. 23. ágúst eru
lokatónleikarnir en þá koma fram El-
ísa Vilbergsdóttir, sópran og Ingi-
björg Þorsteinsdóttir, píanóleikari.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Sumartón-
leikar í Stykk-
ishólmskirkju
41. ÁRGANGUR Húnavökunnar
er kominn út en í ritinu eru um
300 síður af efni sem allt tengist
Húnaþingi á einhvern hátt.
Húnavaka er myndskreytt rit,
sem gefið er út af Ungmenna-
sambandi Austur-Húnvetninga og
hefur komið út á hverju ári síðan
1961.
Efni ritsins er ljóð, sögur, þjóð-
legur fróðleikur, annáll ársins
ásamt stuttu æviágripi allra Hún-
vetninga sem látist hafa á árinu.
Nýjung í bók þessa árs er að tíu
Húnvetningar skrifa um liðna öld
og spá um framtíðina á þeirri ný-
byrjuðu.
Stefán Jónsson bóndi á Kag-
aðarhóli er ritsjóri Húnavöku og
hefur hann ritstýrt henni frá
upphafi. Fyrstu þrjú árin í sam-
vinnu við Þorstein Matthíasson
rithöfund á Blönduósi en einn eft-
ir það.
Í ritnefnd eru fimm manns auk
Stefáns og hafa margir þeirra
verið lengi í nefndinni. Á kynn-
ingarfundi í Kántrýbæ á dög-
unum kom fram í máli Stefáns
ritstjóra, að í þessari 41 bók, sem
nú eru út komnar, hafa um 400
manns skrifað samtals 9000 blað-
síður. Bókin í ár skartar 34 höf-
undum á öllum aldri, sem skrifa
um hin ýmsu efni. Stefán sagðist
undrast og jafnframt gleðjast yfir
hve auðvelt væri að fá fólk til að
skrifa í Húnavökuna því enginn
fær greitt fyrir skrif sín að öðru
leyti en því, að allir höfundar fá
eintak af bókinni.
Björgvin Þórhallsson, formaður
USAH sagðist telja að Húnavaka
væri rós í hnappagat ungmenna-
sambandsins.
Húnavakan hefur komið út á hverju ári frá 1961
Auðvelt að fá fólk til að skrifa
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Ritnefndarmennirnir með nýju Húnavökuna; Páll Ingþór Kristinsson, Magnús Jónsson, Stefán Jónsson ritstjóri,
Ingibergur Guðmundsson og Björgvin Þórhallsson, formaður ungmennasambandsins.
Skagaströnd. Morgunblaðið.
♦ ♦ ♦