Morgunblaðið - 07.06.2001, Side 44

Morgunblaðið - 07.06.2001, Side 44
UMRÆÐAN 44 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HINN 16. maí sl. boðuðu trúnaðarmenn sjúkraliða á Landspít- alanum til vinnustaða- fundar og var fundar- efnið aðallega að ræða stöðuna í samninga- málum. Einnig var tæki- færið notað og mót- mælum komið á fram- færi við formann samninganefndar rík- isins og gengið á fund heilbrigðisráðherra og hann hvattur til að leggja sjúkraliðum lið. Á fundinum kom í ljós að óánægja sjúkraliða er mikil og ekki að ástæðulausu eins og berlega kom í ljós þegar hagfræðingur BSRB kynnti nýja skýrslu um þróun launa nokkurra stétta innan bandalagsins. Kom í ljós að sjúkra- liðar hafa setið eftir á síðustu árum og hafa alls ekki fengið sam- bærilegar hækkanir og aðrar stéttir hvorki í prósentum né krón- um talið og eru þó við- miðunarstéttirnar ekki of sælar af sínu. Þar sáu sjúkraliðar svart á hvítu að laun þeirra þurfa að hækka um 36% til þess að vera sambærileg og er þó ósamið við viðmið- unarstéttirnar sem eru með styttra nám að baki sér. Einnig þótti nauðsynlegt að kynna fyrir sjúkraliðum að síðan samningar voru lausir í nóv. sl. þá hafði samninganefndin aðeins setið 4 sáttafundi og það eina sem hefur verið boðið upp á er fyrir marga sjúkraliða launalækkun. Sjúkraliðar vinna vaktavinnu og geta aldrei boðað til fundar sem þessa öðruvísi en það sé í vinnu- tíma einhverra. Þeir vinna nefni- lega á daginn, á kvöldin, á nóttunni, á jólunum og páskunum fyrir lág laun. Til þess að geta sótt fund sem þennan, sem haldinn var á dag- vinnutíma, fórnuðu sjúkraliðar dag- vinnulaunum og mér vitanlega hef- ur ekki verið boðið upp á að nota t.d. uppsafnað orlof sem sjúkraliðar einatt eiga inni til að koma í veg fyrir að þeir verði enn óánægðari á útborgunardegi. Landspítalinn – háskólasjúkra- hús er langstærsti vinnustaður sjúkraliða á landinu. Á allflestum deildum er mikil þörf fyrir fleiri sjúkraliða. Maður skyldi því ætla að vinnuveitandinn, þ.e. stjórnend- ur sjúkrahússins gerðu allt sem í þeirra valdi stendur til þess að halda í þetta starfsfólk sem það þó hefur. Það er ekki síður þeirra hagur að samningar náist við stéttina, en sjúkraliða sjálfra. Þeir ættu að beita sér fyrir því að sjúkraliðar fái verulega kjarabót svo að þeir verði ekki undir í samkeppninni um þá. Því að það er fullt af vinnustöðum sem gjarnan vilja nýta sér starfs- krafta sjúkraliða, í alls konar umönnunarstörfum, því það er jú það sem sjúkraliðar eru menntaðir til. Úti í þjóðfélaginu eru stórir hóp- ar sem þarfnast umönnunar og nú þegar er farið að greiða þeim sem vilja taka þá að sér oft á tíðum mun hærri laun en sjúkraliðar fá greitt fyrir vinnu sína á LSH. Ljóst er að faglært hjúkrunarfólk er miklu færra á Íslandi miðað við íbúafjölda heldur en á hinum Norðurlöndun- um og ekki stefnir í atvinnuleysi hjá þessum stéttum svo það er á valdi hvers vinnustaðar hvernig hann býr að starfsfólki sínu. Nú þegar LSH hefur gefið út annars ágæta starfsmannastefnu þá er lag að láta starfsfólkið finna, með áþreifanlegum hætti að það sé mikils virði, að það eigi skilið mannsæmandi laun, að stöðva flótta faglærðs hjúkrunarfólks frá stofnuninni svo álagið verði ekki óbærilegt þeim sem eftir eru og síðast en ekki síst að láta það aldrei henda aftur að starfsfólkið þurfi að upplifa þá niðurlægingu að vera án samninga svo mánuðum skiptir gegn vilja sínum. Sjúkraliði – hvar viltu vinna? Hanna Margrét Geirsdóttir Kjarabarátta Nú þegar LSH hefur gefið út starfsmanna- stefnu, segir Hanna Margrét Geirsdóttir, er lag að láta starfsfólkið finna að það sé mikils virði. Höfundur er aðaltrúnaðarmaður sjúkraliða á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut. Aðalfundur Máka hf. verður haldinn fimmtudaginn 21. júní 2001 kl. 14.30 í eldisstöð MÁKA hf. í Fljótum. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins og hlutafélagalögum. 2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins að auka hlutafé félagsins um allt að 100 milljónir kr. Ennfremur að stjórn félagsins verði falið að ákvarða útboðsgengi hinna nýju hluta. 3. Önnur mál sem kunna að verða fram borin. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins ásamt ársreikningi munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins, Freyjugötu 9, Sauðárkróki. Stjórn Máka hf., Sauðárkróki. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Íslenska járnblendifélagið hf. Aðalfundur Íslenska járnblendifélagsins hf. verður haldinn í matsal félagsins á Grundar- tanga fimmtudaginn 21. júní kl. 15.00. Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf skv. 17. gr. samþykkta félagsins. Atkvæðaseðl- ar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Grundartanga 7. maí 2001, stjórn Íslenska járnblendifélagsins hf. TILKYNNINGAR Skólaslit IR verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 8. júní kl. 14.00. Aðstandendur nemenda og velunnarar skólans eru velkomnir. Skólameistari. Landsbyggðarfólk athugið! Bjóðum upp á ódýra gistingu til 15. júní nk. Morgunmatur er innifalinn. Gistiheimilið Berg, Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði, sími 565 2220, fax 565 4520, netfang gestberg@vortex.is, heimasíða gestberg.vortex.is . Listmunir Tökum eldri listaverk til sölu. Höfum kaupendur að góðum verkum gömlu meistaranna. Fyrir viðskiptavini leitum við sérstaklega eftir verk- um Þórarins B. Þorlákssonar, Jóns Stefánsson- ar, Nínu Tryggvadóttur, Þorvalds Skúlasonar, Gunnlaugs Schevings, Gunnlaugs Blöndals og Muggs. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14—16, sími 551 0400. Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirfarandi framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/ 2000 um mat á umhverfisáhrifum: Uppbygging sjóvarnar frá Minni-Vogum að Grænuborg, Vatnsleysustrandarhreppi. Lagning Hringvegar um Djúpá, Laxá og Brúará í Fljótshverfi, Skaftárhreppi. Hálendismiðstöð við Drekagil, Skútu- staðahreppi. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulags- stofnunar: http://www.skipulag.is . Ákvarðanir Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 5. júlí 2001. Skipulagsstofnun. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Fimmtudagur 7. júní. Í kvöld kl. 20.00: Kvöldvaka í um- sjón gistiheimilisins. Allir hjartanlega velkomnir. Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00. Vitnisburðir. Ræðumaður: Gylfi Markússon. Fjölbreyttur söngur. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. www.samhjalp.is . Kynning á tillögu að matsáæltun Sultartangalínu 3 Landsvirkjun hyggst leggja nýja 420 kV há- spennulínu, Sultartangalínu 3, frá tengivirki við Sultartangastöð að aðveitustöð Lands- virkjunar á Brennimel á Hvalfjarðarströnd. Af þessu tilefni stendur Landsvirkjun fyrir opnu húsi þar sem framkvæmdin verður kynnt á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd föstudaginn 8. júní frá kl. 16.00—22.00 og laugardaginn 9. júní frá kl. 10.00—1800. Við hvetjum alla, sem hafa áhuga á að kynna sér þessi málefni, til að mæta. Ársfundur Boðað er til ársfundar Eftirlaunasjóðs stm. Hafnarfjarðarkaupstaðar svk. 8. gr. samþykkta sjóðsins 21. júní nk. kl. 16.30 í fundarherbergi Hafnarsjóðs, Vesturgötu 11-13, Hafnarfirði. Á fundinum verður gerð grein fyrir: ● Skýrslu stjórnar. ● Ársreikningum. ● Tryggingafræðilegri úttekt. ● Fjárfestingarstefnu. ● Tillögum stjórnar til breytinga á samþykkt- um sjóðsins. Allir sjóðsfélagar, þ.m.t. lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum með umræðu- og tillögurétti. R A Ð A U G L Ý S I N G A R LISTMUNIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.