Morgunblaðið - 07.06.2001, Síða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 45
Arnar Sölvason,
sölumaður
Jón G. Sandholt,
sölumaður
Gunnar Jóh. Birgisson hrl.
löggildur fasteignasali
Sigurbjörn Magnússon hrl.
löggildur fasteignasali
Sérhæfð fasteigna-
sala fyrir atvinnu-
og skrifstofu-
húsnæði
Til leigu Dalvegur 18, Kópavogi.
Vorum að fá til leigu í þessu glæsilega húsi 895 fm. verslunarhæð/skrifstofuhæð og 778 fm
skrifstofuhæð, hægt er að skipta eigninni í minni einingar, þ.e. verslunar/skrifstofuhæð í tvær
447,5 fm. einingar og skrifstofuhæð í allt að fjórar 194,5 fm. einingar.
Heildarflatarmál eignarinnar er 3.600 fm. en aðrir eignarhlutar hafa verið leigðir
Sýslumanninum í Kópavogi.
Eignin afhendist að innan eftir nánara samkomulagi á milli leigutaka og leigusala.
Við hlið ofangreindrar eignar höfum við til leigu 400 fm verslunar/þjónustuhúsnæði á jarðhæð
sem hægt er að skipta í tvær einingar.
Staðsetning eignanna er mjög góð í þessu framtíðar verslunar- og þjónustuhverfi fyrir
höfuðborgarsvæðið.
Teikningar og allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar.
Lágmúli 7, Reykjavík • sími 55 12345
ATVINNUHÚSNÆÐI
MAGNÚS
S: 899 9271
Hlíðasmári 1 og 3 - nýbygging. Til
leigu mjög vandað 5 h. versl.- og skrifstofuhúsn.
m. lyftu. Grunnfl. h. frá 450 til 1150 fm. Mjög góð
aðkoma, 260 bílast. Eignin afh. fullb. að utan,
sameign fullb. að innan sem utan. Lóð fullb. og
malbikuð bílastæði. Byggingaraðili Byggir ehf.
Akralind Kóp. 292,3 fm. Í einkasölu.
Mjög bjart og skemmtil. fullb. vandað, snyrt.
iðn.húsn. Má skipta upp í tvær ein. Hentar fyrir
lager, versl. eða heilds. Gott verð.
Tunguháls 1251 fm. Nýkomið vandað
skrifstofu og lagerhúsnæði á mjög góðum stað á
Höfðanum. Allt fullfrág. þ.m.t .lóð, bílastæði og
húsnæðið fullb. að innan. Mjög gott tækifæri.
Verð 72 millj.
Bæjarlind. - Til sölu - Til leigu Glæsil.
hús í byggingu. Klætt að utan m. graníti og áli.
Húsið er 3. h. Verslunarhúsn. á jarðh 626 fm.
Lagerhúsn. 165 fm á jarðh. Verslunarhúsn. 1. h.
795 fm. Skrifstofuhúsn. á 2. h. 794 fm. Bíla-
geymsla 517 fm. Teikningar á skrifst. 3785
Nethylur 78 fm. Fyrsta flokks skrifst. rými á
2. hæð. Mjög snyrtil. og góð aðkoma. Hentar t.d.
endursk. lögm. heilds. Áhv. 3 m. Verð 7,5 m.
Skemmuvegur 320 fm m. góðri
lofth. Bjart, rúmgott, iðnaðh. sem er salur
með góðri lofth. ásamt góðum skrifstofum.
Góð staðsetn. Húsnæði með mikla mögul.
Gott áhv. lán. Verð 27 m. 1059
Grensásvegur. Í einkas. fullb. glæsil.
skrifst. Samt. 892,7 fm. Skiptist í 4 einingar,
277 fm, 380 fm, 130,9 fm, 104,8 fm. Eignin
selst í einu lagi eða í smærri einingum.
Til leigu
Teg. Fm v.pr.fm
Melab. Hf. 98 790
Keilugrandi, lager 1.360 750
Nóatún, 4.h.,skrifst 638 1.200
Ármúli, verslun 531 1.400
Teg. Fm v.pr.fm
Álfabakki, skrifst. 290 1.200
Auðbrekka, skrif/lag 430 850
Vesturvör, lager 1.000 780
Á Höfðanum, Lager 500-1.000 500 án vsk
ÞAÐ hefur aldrei
kunnað góðri lukku
stýra að geta ekki lif-
að í sátt við umhverfi
sitt. Indíánar gættu
þess að lifa með nátt-
úrunni og veiðidýrun-
um, þeir gengu aldrei
nærri móður jörð og
tóku ekki meira en
þeir torguðu, enda
ríkti meðal þeirra sú
trú að hvert fyrirbæri
í náttúrunnar ríki
hefði sál. Þegar hvíti
maðurinn hrifsaði
undir sig lönd þeirra
hröktust þeir á von-
arvöl og töpuðu
tengslunum við sjálfa sig og menn-
ingu sína.
Íslenskri þjóð hefur fram undir
þetta tekist að lifa í sæmilegri sátt
við landið. Hún hefur erjað það í
gegnum tíðina, að vísu neyðst til
að ganga fullnærri því, en í seinni
tíð borið gæfu til að snúa dæminu
við og lagt mikið kapp á að græða
sárin. Hávær umræða er hvar-
vetna um náttúruvernd og land-
græðslu og ráðamenn tala fagur-
lega við hátíðleg tækifæri. Mitt í
öllum þeim fagurgala skýtur
skökku við að hlusta á hin geig-
vænlegu áform um Kárahnúka-
virkjun.
Ágætu stjórnmála-
menn, í upplýstu
menningarsamfélagi
er stórkostlega móðg-
andi að bera slíkan
ósóma á borð fyrir
fólk. Þvílík ráðs-
mennska með íslenska
náttúru er með öllu
óásættanleg, hversu
margar krónur sem
hún hugsanlega færði
okkur um stundarsak-
ir. Rannsóknir benda
til að sá gróði gæti
orðið skammvinnur og
vopnin snúist í hönd-
um ykkar fyrr en var-
ir. Hvernig í ósköp-
unum er líka hægt að tala um
náttúruvernd í öðru orðinu og
verstu náttúruspjöll sem um getur
í hinu? Að þykjast ætla að sameina
þetta tvennt er hláleg firra og það
er langt fyrir neðan okkar virð-
ingu að taka endalaust við óþverr-
anum sem aðrar þjóðir vilja losa
sig við.
Stóriðja er ekki lausn á atvinnu-
vanda og landsbyggðarflótta. Hún
hrekur jafn marga burt og hún
laðar að. Með því að vinna þetta
óbætanlega níðingsverk á víðáttum
öræfanna, og reyndar allt frá jökl-
um fram til sjávar, tækju ráða-
menn það vald í sínar hendur að
loka ótal dyrum að framtíðartæki-
færum. Sú hegðun minnir á hænur
sem éta sín eigin egg. Í minni sveit
voru hænur sem átu undan sjálfum
sér hiklaust slegnar af.
Líkt og hvíti maðurinn forðum í
samfélagi indíána búa stjórnmála-
menn sig undir að rústa mögu-
leikum Íslendinga til að halda
áfram að lifa í sátt við umhverfið.
Stöðvum ódæðisverkið. Munum
að senda Skipulagsstofnun athuga-
semdir fyrir 15. júní.
Að éta undan
sjálfum sér
Hildur
Hermóðsdóttir
Höfundur er útgefandi.
Náttúruvernd
Stóriðja er ekki lausn á
atvinnuvanda og lands-
byggðarflótta, segir
Hildur Hermóðsdóttir.
Hún hrekur jafn marga
burt og hún laðar að.
NÝLEGA skrifaði ég
grein í Mbl. sem birtist
12. maí sl. og fjallaði
hún um skýrslu Sam-
keppnisstofnunar sem
birt var 4. maí sl. Rík-
isstjórnin hafði að til-
lögu viðskiptaráðherra
óskað eftir könnun
stofnunarinnar á orsök-
um óhagstæðrar þró-
unar matvöruverðs.
Einnig höfðu innlendir
framleiðendur og sam-
tök þeirra auk Neyt-
endasamtakanna óskað
eftir könnun á sam-
keppnisháttum í mat-
vöruverslun. Af þessu má sjá að
margir hafa leitt hugann að einkenni-
legri þróun samkeppnisháttanna.
Upplýsinga var aflað hjá 70 helstu
birgjum á dagvörumarkaði. Fulltrú-
ar 40 birgja og flestra matvörukeðja
voru heimsóttir af starfsmönnum
Samkeppnisstofnunar í tengslum við
upplýsingaöflun. Hafi viðskiptaráð-
herra þökk fyrir. Engar teljandi um-
ræður hafa orðið í þjóðfélaginu um
efni skýrslunnar. Engum þykir ein-
kennilegur sá níðingsháttur sem
fram kemur í skýrslunni. Menn halda
líklega að þetta sé bara ein skýrslan
enn um paprikumafíuna, en svo er
aldeilis ekki.
Kaupendastyrkur er meginþema
skýrslunnar. Sem þýðir að verslun-
arkeðjunar tvær ráða verðlagningu
hjá heildsölum og framleiðendum
auk þess sem þeir ráða verði sömu
aðila til okkar fáu kaupmanna sem
störfum sjálfstætt.
Í skýrslunni segir á einum stað:
„Loks hafa birgjar bent á að gögn og
aðrar upplýsingar sýni að birgjum
hafi verið hótað af matvörukeðjum að
viðskiptum við þá verði hætt eða
jafnvel að vörur hafi verið teknar úr
sölu ef birgjarnir hafi ekki getað haft
áhrif á verð hjá öðrum matvöruversl-
unum.“ Feðgarnir í Bónus geta verið
ánægðir með sig. Þeim
hefur með þessum vafa-
sömu aðferðum tekist
að koma fjölda horn-
kaupmanna á hausinn
og losnað þar við
óheppilega samkeppni.
Það er ekki sagt ber-
um orðum í skýrslunni
að þeir Bónusfeðgar
hafi beitt þessum níð-
ingsskap, en enginn
sem til þekkir innan
starfsgreinarinnar
velkist í vafa um að hér
er átt við þá og fjöl-
mörgum birgjum er
greinilega mál að gera
það opinbert en þora ekki vegna
hættu á viðskiptaþvingunum. Það er
dálaglegur minnisvarði sem Jóhann-
es hefur reist sér.
Fyrir hönd Félags matvöruversl-
ana vil ég fara þess á leit að Sam-
keppnisstofnun fari ofan í saumana á
þessum aðgerðum Bónusfeðga og
reyni e.t.v. að varpa ljósi á umfang
þess fjárhagslega skaða sem þeir
Bónusfeðgar hafa valdið okkur. Er
sú niðurstaða liggur fyrir munum við
athuga möguleika okkar á skaða-
bótakröfum.
Samkeppnisstofnun
kanni meintan skaða
Heimir L. Fjeldsted
Samkeppnismál
Við viljum að Sam-
keppnisstofnun, segir
Heimir L. Fjeldsted,
kanni það tjón sem við
höfum orðið fyrir af
hálfu Bónusfeðga.
Höfundur er formaður Félags
matvöruverslana.
VIÐSKIPTI mbl.isM O N S O O NM A K E U Plifandi litir