Morgunblaðið - 07.06.2001, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í KJÖLFAR umræðu Hrafnkels
Marinóssonar formanns SH í Mbl. 2.
júní sl. um lítinn fréttaflutning af
Smáþjóðaleikum langar mig að
dusta ryk af rannsókn á magni
íþróttafrétta. Í rannsókninni er fyr-
irhugað að taka saman hve mikla
umfjöllun hver íþróttagrein innan
ÍSÍ fær í fjölmiðlum. Ef til vill segir
einhver að niðurstöðurnar séu þegar
ljósar, boltagreinar og aftur bolta-
greinar. Látum staðreyndir tala sínu
máli, sýnum fram á þetta með tölum.
Ég óska eftir hugmyndum um hvar
og hvernig hægt er að fá styrki til
rannsóknarinnar.
Besta kveðja,
ARNÞÓR RAGNARSSON,
Fellsmúla 20, Reykjavík.
Fjölmiðlaumfjöllun
um einstakar
íþróttagreinar
Frá Arnþóri Ragnarssyni:
Í borgarstjórnarkosningum árið
1994 gaf R-listinn m.a. þau loforð að
árið 1998 yrðu engin börn eins árs og
eldri á biðlista eftir leikskólaplássi.
Ég sjálf var ekki mikið að gefa þessu
loforði R-listans gaum þar sem mitt
barn var komið yfir leikskólaaldur
og ég hafði ekki í hyggju að koma
með fleiri. En enginn veit sína ævina
fyrr en öll er og nú er svo komið að
við hjónin erum á biðlista eftir leik-
skólaplássi fyrir dóttur okkar og er
okkur sagt að hún eigi fyrst mögu-
leika á að komast inn tveggja ára
gömul. Það er kannski ekki svo
slæmt miðað við margt annað, gætu
margir sagt, en það er samt langt frá
því loforði sem R-listinn hafði gefið
út. Það er hins vegar staðreynd að
sjaldan eða aldrei hafa biðlistarnir
verið lengri en einmitt núna og hafa
lengst frá árinu 1997. Í nóvember
2000 voru 2.685 börn á biðlista eftir
leikskólaplássi en í nóvember 1997
voru 2.026 börn á þessum biðlista.
Þetta er aukning um rúm 30%.
Hvað varð um loforðið?
Því vil ég spyrja ráðamenn R-
listans hvað varð um loforð ykkar?
Af hverju fer listinn stækkandi í stað
þess að hverfa? Tölur og skatta-
hækkanir sýna að mun meira er
greitt til borgarinnar í dag en fyrir
fimm árum, kostnaður á hverja fjöl-
skyldu hefur hækkað mikið. Í hvað
hafa þessir peningar farið? Eru
borgarstjórnendur of uppteknir við
uppbyggingu á háþróuðu tæknifyr-
irtæki sem afskrifar skuldir til hægri
og vinstri, til þess að hafa áhyggjur
af æsku borgarinnar? Við hljótum að
sjá að börn okkar eru það mikilvæg-
asta og sem foreldrar eigum við
þann rétt að krefjast þess besta fyrir
þau.
SÓLVEIG
KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hraunbæ 65, Reykjavík.
Loforð R-listans
Frá Sólveigu Kristjánsdóttur:
FYRIR um aldarfjórðungi lenti ég á
spítala og hitti þar konu sem var gift
skipstjóra og hún sagði mér þessa
sögu: Skipstjórinn var á síldveiðum
með áhöfn sinni í Norðursjónum
þegar einn skipverja slasaðist alvar-
lega og fékk mikinn höfuðáverka.
Fundið var frægasta sjúkrahúsið og
hæfustu heilaskurðlæknarnir í
Þýskalandi og síðan keyrt á fullu á
sjó og landi. Á spítalanum tóku yf-
irlæknir og starfsfólk á móti þeim og
eftir skoðun kom yfirlæknirinn og
sagði að tvísýnt væri um að hægt
yrði að bjarga manninum. Þegar
hann heyrði að hér væru Íslendingar
á ferð sagði hann: „Þið eruð á vit-
lausum stað. Besti maðurinn í þetta
er í Reykjavík og heitir Bjarni
Hannesson!“ Það er gaman að heyra
svona sögu. En það er ekki gaman að
heyra að fjöldi lækna kemur ekki
heim eftir framhaldsnám og verður
að velja þjóðerni fyrir börn sín. Og
það er ekki gaman að heyra að eitt
mikilsverðasta sérfræðinámið, heim-
ilislækningar, skuli eiga undir högg
að sækja. Og það er ekki gaman að
sjá starfsfólk sjúkrahúsanna, fag-
lært og ófaglært, berjast á hverri
vakt við að bjarga neyðarástandi.
Berjast upp á líf og dauða á launum
sem er ekki hægt að lifa af.
Þetta mál er ekki „vandamál“ í
sjálfu sér. Stjórnskipan lýðveldisins
stendur á þremur stoðum; löggjaf-
arvaldi, dómsvaldi og framkvæmda-
valdi. Í þessu tríói leika 63 alþingis-
menn. Þeir bregðast. Forgangs-
röðunin er röng. Lýðræðið er að
snúast í andhverfu sína. Þótt til séu
þingmenn sem jafnvel hafa lagt
heilsu sína að veði í þesu máli eru
þeir fleiri sem ekki þora að ganga á
móti „háttvirtum“ kjósendum sem
vilja meiri neyslu. Stöðugt meira
nammi í munninn! Og það gæti styst
í það eftir núverandi þróun sem alls
staðar blasir við að hin nýja peninga-
stétt, sem tekur að vild af óskiptri
kökunni fyrir augunum á alþingis-
mönunum, fari í opið stríð gegn heil-
brigðiskerfinu. Ég held í alvöru að
fólk ætti að líta upp úr innkaupakörf-
unum og horfa í kringum sig.
HRAFN SÆMUNDSSON,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Þið eruð á
vitlausum stað
Frá Hrafni Sæmundssyni: