Morgunblaðið - 07.06.2001, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 63
DAGBÓK
Úrvalið er hjá okkur
www.oo.is
Challenger
0-18 kg.
Verð kr.
10.960
Tryggðu
barninu þínu
öruggt sæti
Árnað heilla
ALEXEY Shirov (2.722)
hefur ekki riðið feitum hesti
frá viðureignum sínum við
Garry Kasparov (2.827).
Augljóst virðist vera að sá
síðarnefndi hafi sálfræðileg
tök á honum, enda yrði ann-
ars erfitt að útskýra suma
afleiki Shirovs í jöfnum stöð-
um gegn skrímslinu með
þúsund augun. Nýjasta
dæmið um þetta er staðan
sem kom upp á milli þeirra á
ofurmótinu í Astana í Ka-
sakstan. Shirov lék með
svörtu síðast 34. ...Kg6-f5??
en eftir t.d. 34. ...Kf7
hefði svartur seint
getað tapað skákinni.
Heimsmeistarinn
fyrrverandi var ekki
lengi að nýta sér mis-
tökin: 35. Hd4! og
svartur gafst upp
enda óverjandi mát.
Skákin tefldist í heild
sinni: 1. e4 e6 2. d4 d5
3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7
5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7.
Be3 cxd4 8. Rxd4 Bc5
9. Dd2 0-0 10. g3 De7
11. 0-0-0 Rb6 12. Rb3
Bxe3 13. Dxe3 Bd7
14. Kb1 Hfc8 15. g4 Rb4 16.
Rd4 Hc5 17. a3 Rc6 18. Rcb5
Rxd4 19. Rxd4 Hac8 20. Bd3
Rc4 21. Dh3 h6 22. g5
Rxa3+ 23. bxa3 Hc3 24.
gxh6 g6 25. Dg2 Hxa3 26.
Rb3 Db4 27. Bxg6 Hxb3+
28. cxb3 Dxb3+ 29. Db2
Dxb2+ 30. Kxb2 fxg6 31. h4
Kh7 32. h5 Kxh6 33. hxg6+
Kxg6 34. Hhg1+ Kf5 o.s.frv.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
Á heiðinni
Geng ég og þræði
grýtta og mjóa
rökkvaða stigu
rauðra móa;
glóir, liðast
lind ofan þýfða tó,
kliðar við stráin:
kyrrð, ró.
Litir haustsins
í lynginu brenna;
húmblámans elfur
hrynja, renna
í bálin rauðu,
rýkur um hól og klett
svanvængjuð þoka
sviflétt.
---
Snorri Hjartarson
60 ÁRA hjúskaparafmæli. Í dag, fimmmtudaginn 7.júní, eiga demantsbrúðkaup hjónin Sólveig Krist-
jánsdóttir fv. kennari og Ólafur H. Kristjánsson, fv. skóla-
stjóri að Reykjaskóla í Hrútafirði, nú til heimilis að Hraun-
tungu 77, Kópavogi. Þau verða að heiman á afmælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 7.
júní, er sjötug Nanna L.
Petersen, Fannafold 17,
Reykjavík. Hún og eigin-
maður hennar Olgeir Ol-
geirsson taka á móti vinum
og ættingjum föstudaginn 8.
júní í félagsheimili Víkings
Traðarlandi 1, Fossvogi frá
kl. 18 til 21.
EVRÓPUMÓT í opnum
flokki, kvennaflokki og öld-
ungaflokki hefst á Tenerife
á þjóðhátíðardag Íslendinga
og stendur yfir í hálfan
mánuð. Ísland keppir aðeins
í opna flokknum í þetta
sinn, en þar eru þátttöku-
þjóðir 36 og verða líkindum
spilaðir 20 spila leikir, allir
við alla. Sveit Íslands er
skipuð Jóni Baldurssyni,
Karli Sigurhjartarsyni, Þor-
láki Jónssyni, Matthíasi
Þorvaldssyni, Þresti Ingi-
marssyni og Magnúsi
Magnússyni, en fyrirliði er
Guðmundur Páll Arnarson.
Landsliðið var í æfingabúð-
um um síðustu helgi og spil-
aði 120 spil gegn harðsnúnu
pressuliði. Hér er eitt af
skemmtilegri spilum helg-
arinnar:
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁK
♥ ÁG83
♦ ÁD1087
♣ 85
Vestur Austur
♠ DG642 ♠ 873
♥ 5 ♥ D10942
♦ 96432 ♦ KG5
♣ K6 ♣ Á7
Suður
♠ 1095
♥ K76
♦ --
♣ DG109432
Þorlákur og Matthías
voru í AV gegn Snorra
Karlssyni og Aroni Þor-
finnssyni í NS:
Vestur Norður Austur Suður
Matthías Snorri Þorlákur Aron
2 spaðar Dobl 3 spaðar 5 lauf
Pass Pass Pass
Matthías kom út með ein-
spilið í hjarta. Aron prófaði
gosann og tók drottningu
Þorláks með kóng. Nú kem-
ur til greina að reyna að frí-
spila tígulinn, en Aron
ákvað að spila frekar upp á
að trompa þriðja spaðann í
borði með áttunni, sem er
mjög eðlileg spilamennska.
Hann tók strax ÁK í spaða,
henti hjarta í tígulás og
trompaði tígul. Stakk svo
þriðja spaðann með áttu og
trompaði út. Allt samkvæmt
áætlun.
Vörnin virðist aðeins eiga
tvo slagi á tromp, en annað
átti eftir að koma á daginn.
Matthías fékk fyrsta tromp-
slaginn á kónginn og spilaði
spaða, sem Þorlákur stakk
með ás! Hjarta til baka
tryggði vörninni þriðja
trompslaginn á sexuna. Fal-
leg flétta.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is. Einnig
er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert eftirlæti margra, en
þarft að sýna meiri tillits-
semi og hafa stjórn á
tilætlunarsemi þinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt ekki hafa svo miklar
áhyggjur af framtíðinni að þú
getir ekki tekist á við nútíð-
ina. Nauðsynlegar ákvarðanir
verður að taka.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sýndu tillitssemi í garð sam-
starfsmanns þíns, sem á erfitt
með að sætta sig við breyt-
ingar. Það gerir bara illt verra
að ýta of fast á eftir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Farðu vandlega yfir fjárhags-
stöðuna, þegar þú veltir fyrir
þér kaupum á hlut, sem þig
hefur lengi langað í. Þolin-
mæði er lykilorðið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að forðast alla
árekstra milli starfs og heim-
ilis. Forgangsraðaðu hlutun-
um og hafðu sveigjanleika,
þegar annað þarf meira en
hitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er nauðsynlegt að kunna
fótum sínum forráð og betri
er krókur en kelda. Þeir sem
ana áfram í hugsunarleysi
enda yfirleitt alltaf í ógöng-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú vilt endilega heyra
sannleikann verður þú að vera
maður til þess að taka honum.
Varastu að vanrækja vin sem
þarf á þinni aðstoð að halda.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú ættirðu að fara að sjá fyrir
endann á því verkefni, sem
hefur tekið allan þinn tíma um
skeið. Gerðu þér dagamun,
þegar allt er í höfn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að gæta þess vand-
lega að týna ekki vinum og
vandamönnum í annríki dags-
ins. Þetta er spurning um að
leyfa sér að anda endrum og
sinnum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Farðu vandlega í gegn um ný-
liðna atburði og veltu því fyrir
þér, hvort þú getir ekki lært
eitthvað uppbyggjandi af at-
burðarásinni. Vertu heiðar-
legur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er óþarfi að vera svo
feiminn að þora ekki að viðra
skoðanir sínar við vini og
vandamenn. Talaðu hreint út
og jákvæð viðbrögð hjálpa
þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú er ekki rétti tíminn til að
standa í orðræðum á vinnu-
stað. Láttu smátíma líða og þá
verða allir tilbúnir að heyra
hvað þú hefur fram að færa.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þú reynir að stytta þér leið
í ákvarðanatöku, áttu á hættu
að gera afdrifarík mistök.
Gefðu þér tíma til þess að
kanna alla málavöxtu fyrst.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Rie Takeshima sem er 27
ára gömul frá Japan óskar
eftir pennavini á íslandi.
Hún hefur áhuga á bréfa-
skrifum, tónlist, kvikmynd-
um og internetinu.
Rie Takeshima
Ogi-kou 52,
Nishiarita-cho,
Nishimatsuura-gun
Saga-ken 849-4103
Japan.
Annegret Brandt, 14 ára
gömul, frá Þýskalandi óskar
eftir pennavini á Íslandi,
hún hefur áhuga á tónlist,
fótbolta, lestri og bréfa-
skriftum.
Annegret Brandt
Stockholmer Str. 25
15566 Schöneiche
GERMANY
norwegianwood-
@gmx.net !
Pennavinir
FRÉTTIR
HÆKKUN lyfjakostnaðar, fast-
eignagjalda og ýmissa þjónustugjalda
eru eitt af því sem hefur valdið kjara-
skerðingu ellilífeyrisþega en þátttaka
sjúklinga í lyfjakostnaði sem hefur
aukist verulega, hefur hlutfallslega
aukist mest hjá eldra fólki að sögn
Benedikts Davíðssonar, formanns
Landssambands eldri borgara, en á
nýliðnum landsfundi sambandsins
voru kjara- og þjónustumál eldri
borgara í brennidepli og voru nokkrar
ályktanir um þessi mál samþykktar á
fundinum. „Krafa okkar er að það
sem á hefur hallað á undanförnum ár-
um verði leiðrétt. Almannatrygginga-
kerfið hér hefur verið að daprast í
samanburði við þau kerfi sem þykja
best og eru í nágrannalöndum okkar,
það hefur þróast meira yfir í neyð-
arhjálp frekar en tryggingar og því
erum við mjög á móti,“ segir Bene-
dikt. Hann segist vilja að frítekju-
mark almannatrygginga verði hækk-
að og látið fylgja almennri launaþróun
í landinu. „Samkvæmt viðurkenndum
útreikningum skortir 18% á að ellilíf-
eyrir og tekjutrygging nái því hlutfalli
að dagvinnulaunum verkamanna sem
var árið 1991.“ Einnig vill hann að
samspil almannatrygginga og skatt-
kerfisins verði gert einfaldara.
Hann segir að eldri borgarar leggi
mikla áherslu á að heimahjúkrun
verði efld til að fólk geti verið lengur
heima hjá sér. „Það er bæði gott fyrir
viðkomandi en einnig fyrir þjóðfélag-
ið þar sem það er ódýrara að aðstoða
fólk heima en að vista það á stofnun.“
Hann segir jafnframt mikilvægt að
hjúkrunarheimilum verði auðveldað
að ráða og halda starfsfólki. „Bæði
þarf að auðvelda uppbyggingu á
tækjakosti stofnana til að létta störfin
en einnig þarf að bæta kjör starfs-
fólks til að fá fólk til að staðnæmast í
störfunum en mikill skortur er á
starfsfólki, sérstaklega yfir sumar-
tímann.“ Nú eru um 300 manns á bið-
lista en Benedikt segir að með nýju
hjúkrunarheimili, sem ráðgert er að
opna á næstu mánuðum, lækki þessi
tala niður í 200 manns sem er þó enn
of mikið, bið eftir rými á hjúkrunar-
heimili sé allt að tvö ár.
Unglingar kenna á tölvur og fá
þjóðfélagsfræðslu á móti
Benedikt segir framfarir í félags-
og fræðslumálum aldraðra mjög
ánægjulegar. „Ýmsir aðilar hafa
stuðlað að því að fólk sem komið er á
eftirlaunaaldur geti sótt sér ýmiss
konar fræðslu, sér til hugarhægðar
og andlegrar uppbyggingar en einnig
til að gera því auðveldara að búa við
þær aðstæður sem það lifir við. Þann-
ig er mikilvægt að fólk finni sig meira
virkt í þjóðfélaginu.“ Hann segir að á
höfuðborgarsvæðinu hafi tekist ákaf-
lega góð samvinna á milli skólayfir-
valda og félagsmiðstöðva eldri borg-
ara, til dæmis hafi nemendur í efstu
bekkjum grunnskóla í Garðabæ að-
stoðað aldraða við að læra að nýta sér
tölvutækni en síðan sáu eldri borg-
ararnir um þjóðfélagsfræðslu ung-
linganna á móti. „Við horfum mjög
björtum augum til slíks samstarfs og
viljum gjarnan efla það, ekki síst ef
hægt er að nýta þessa þjónustu um
leið í fræðslustarf með ungu fólki.“
Heimahjúkrun verði
efld og biðlistar á
stofnanir styttir
Bætt kjör og þjónusta helstu
hagsmunamál eldri borgara
HINN ungi og efnilegi Stefán Krist-
jánsson hefur heldur betur tekið við
sér á Evrópumótinu í skák sem fram
fer í Makedóníu. Í 5. umferð sem
tefld var í gær sigraði hann með
svörtu, rússnesska alþjóðameistar-
ann SMIRNOV Pavel (2511 Eló).
Stefán sigraði einnig í fyrradag og
hefur nú hlotið tvo og hálfan vinning
í síðustu þremur skákum sínum.
Hannes Hlífar og Jón Viktor
gerðu jafntefli í sínum skákum við
ungversku stórmeistarana ALMASI
Zoltan (2640 Eló) og ACS Peter
(2509 Eló). Hannes tefldi við Almasi
með hvítu og Jón Viktor við Acs með
svörtu. Bragi Þorfinnsson tapaði
hinsvegar fyrir króatíska stórmeist-
aranum ZELCIC Robert (2503 Eló).
Hannes Hlífar er í 11-40 sæti með
þrjá og hálfann vinning í fimm um-
ferðum, vinningi á eftir efstu mönnu,
stórmeisturunum Aseev og Timos-
henko.
Stefán Kristjánsson hefur tvo og
hálfan vinning, Jón Viktor Gunnars-
son tvo og Bragi Þorfinnsson einn og
hálfann.
Í 6. umferð mætir Hannes Hlífar
þýska stórmeistaranum GRAF Al-
exander (2649 Eló) með svörtu, Stef-
án teflir við pólska stórmeistarann
GDANSKI Jacek (2528 Eló) með
hvítu, Jón Viktor fær hvítt á
spænska stórmeistarann SAN SEG-
UNDO CARRILLO Pablo (2508
Eló) og Bragi fær svart á móti
ítalska stórmeistaranum ZLOC-
HEVSKIJ Alexander (2469 Eló).
Skák Hannesar Hlífars og Alex-
anders Graf hefst kl. 14:00 og verður
hún sýnd beint á netinu.
Nánari upplýsingar má nálgast á
heimasíðu skákmanna: skak.is
Stefán sigrar öðru sinni