Morgunblaðið - 16.06.2001, Page 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 17
Til sölu
Grand Cherokee
Árg. ‘98, ekinn 24.000 km,
einn eigandi, innfluttur nýr.
Uppl. í síma 897 6006.
LANDSSAMTÖKIN Landsbyggðin
lifi voru stofnuð á Akureyri á þriðju-
daginn. Sambærilegur félagsskapur
er starfandi á öðrum Norðurlöndum
undir ýmsum nöfnum sem sameinast
í samtökunum Hele Norden skal
leve! en Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti Íslands, er verndari
þeirra „regnhlífarsamtaka“ eins og
hún kallar þau.
Fríða Vala Ásbjörnsdóttir, kenn-
ari við Réttarholtsskóla í Reykjavík,
var kjörin fyrsti formaður íslensku
samtakanna en hún er aðalhvata-
maðurinn að stofnun þeirra og segir
það fimm ára áætlun að stofnuð verði
aðildarfélög í öllum landshlutum.
Markmið samtakanna er að vera
samstarfsvettvangur fyrir félög,
áhugamannahópa og einstaklinga
sem hafa það að markmiði að styrkja
sína heimabyggð. Samtökin hyggj-
ast vinna í samvinnu við staðbundin
þróunarfélög, atvinnuþróunarfélög
og áhugamannafélög um velferð og
framgang heimabyggðar, sveitar-
félög, héraðsnefndir og önnur sam-
tök sem starfa í þessum anda.
Á ráðstefnu sem haldin var fyrir
stofnfundinn töluðu Sigurður J. Sig-
urðsson, forseti bæjarstjórnar Akur-
eyrar, Vigdís Finnbogadóttir, Jónas
Jónsson, fyrrverandi búnaðarmála-
stjóri, Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, Theodór
Bjarnason, forstöðumaður Byggða-
stofnunar, og Helgi Sigfússon frá
Velferðarfélagi Hríseyinga auk
Fríðu Völu Ásbjörnsdóttur.
Meðstjórnendur í hinum nýju
samtökum voru kosnir Stefán Á.
Jónsson á Kagarhóli í Torfalækjar-
hreppi, Helgi Sigfússon í Hrísey,
Þormóður Jónsson í Reykjadal, Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, og Kristján
Kristjánsson á Steinnýjarstöðum í
Skagahreppi, Austur-Húnavatns-
sýslu, og skipta þeir með sér verk-
um. Varamenn í stjórn eru Hólmfríð-
ur Eiríksdóttir, Fosshóli í
Ljósavatnshreppi, og Jónas Jónsson
fyrrverandi búnaðarmálastjóri.
Landsbyggðin lifi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vigdís Finnbogadóttir flytur
ávarp á ráðstefnunni á Akur-
eyri. Í forgrunni er Jónas Jón-
asson fundarstjóri.
LEIKSKÓLABÖRN á Akureyri
hafa ekki verið mikið úti við síð-
ustu dægrin vegna kulda en þeg-
ar íbúar höfuðstaðar Norðurlands
vöknuðu í gærmorgun var rjóma-
blíða, sól skein í heiði og hár
bærðist vart á höfði. Greinilegt
var að leikskólakennarar gripu
tækifærið fegins hendi og skund-
uðu út með börnin, því þau var
víða að sjá í bænum. Þau voru
ánægð í umferðinni og vitaskuld
vel gætt; handtak leikskólakenn-
arans á myndinni er þétt og
stúlkan flautar lagstúf þar sem
hún gengur áhyggjulaus í góða
veðrinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gengið
í góða
veðrinu
ALÞJÓÐLEGT þing um veður á
höfunum og hagnýta haffræði
verður haldið á Akureyri dagana
19. til 29. júní næstkomandi.
Þingið verður haldið í Íþrótta-
höllinni á Akureyri með þátttöku
fulltrúa um 40 ríkja víðs vegar
að af jarðarkringlunni. Það er
haldið á vegum Alþjóðaveður-
fræðistofnunarinnar (WMO) og
milliríkjanefndar UNESCO um
málefni hafsins (IOC). Fyrir
hönd ríkisstjórnar Íslands
standa að þinginu Akureyrar-
bær, Háskólinn á Akureyri og
Veðurstofa Íslands.
Síðastliðið eitt og hálft ár hef-
ur undirbúningsnefnd, sem í
sitja fulltrúar Akureyrarbæjar,
Háskólans á Akureyri og Veð-
urstofu Íslands, unnið að und-
irbúningi þingsins en það er afar
viðamikið með yfir 160 þátttak-
endum víðs vegar að úr heim-
inum. Þess má geta að unnið
hefur verið að því að fá þingið
hingað til lands allt frá árinu
1997.
Alþjóðaveðurfræðistofnunin er
stofnun innan Sameinuðu þjóð-
anna og er með aðsetur í Genf í
Sviss. Sjóveðurþing eru haldin á
fjögurra ára fresti, ýmist í Sviss
eða í því landi sem boðist hefur
til að halda þingið.
Síðasta þing var árið 1997 á
Kúbu en nú er sem sagt komið
að Íslendingum að halda þingið í
fyrsta sinn.
Á þingi sem þessu er sérstak-
lega fjallað um það sem við-
kemur sjóveðurfræði og þarf
ekki að fara mörgum orðum um
mikilvægi góðrar veðurþjónustu
á höfum úti fyrir okkur Íslend-
inga. Þar sem stærsti atvinnu-
vegur þjóðarinnar reiðir sig á
fiskveiðar er nauðsynlegt að
geta haldið uppi öflugu veðureft-
irliti á sjó.
Á þinginu verða á dagskrá
ýmis málefni, m.a. má nefna al-
þjóðlegt samstarf um margvís-
legar athuganir á sjó, veður,
vinda, sjólag og hafís, sömuleiðis
um gagnasöfn, fjarskipti, fjar-
könnun úr gervihnöttum, sam-
göngur, rannsóknir á höfunum,
veðurfarsbreytingar, öryggi á
sjó og þar fram eftir götunum.
Þátttakendur frá
40 strandríkjum
Þátttakendur á þinginu koma
víða að eða frá um 40 strandríkj-
um frá öllum heimshornum og
verða þeir um 160 talsins. Þarna
koma saman helstu sérfræðingar
í þessum málefnum og er ekki
að efa að mikill fengur er fyrir
Íslendinga að vera miðdepill vís-
indalegra viðfangsefna af þessu
tagi um hálfsmánaðarskeið.
Eitt af því sem gerir þetta
þing afar sérstakt er að það fer
fram á sex tungumálum sam-
tímis með hjálp túlka. Tungu-
málin eru arabíska, enska,
franska, kínverska, spænska og
rússneska.
Alþjóðlegt
sjóveðurþing
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónustua kl. 11 á morgun, 17.
júní, þjóðhátíðardaginn.
Sr. Svavar A. Jónsson. Kór Ak-
ureyrarkirkju syngur.
Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Morgunsöngur kl. 9 á
þriðjudagsmorgun. Kyrrðar- og
fyrirbænastund kl. 12 á hádegi á
fimmtudag, 21. júní. Bænaefnum
má koma til prestanna. Unnt er að
kaupa léttan hádegisverð í Safn-
aðarheimili eftir stundina.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Engin
samkoma verður á morgun, sunnu-
dag, en öllum óskað gleðilegrar
þjóðhátíðar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning í kvöld kl. 20,
Yngvi Rafn Yngvason predikar.
Vakningasamkoma í umsjá Snorra
Óskarssonar og Kristins Ásgríms-
sonar kl. 20 á sunnudagskvöld.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Hátíð-
armessa verður í Möðruvallakirkju
í Laugalandsprestakalli á morgun,
sunnudaginn 17. júní, kl. 11.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morg-
un, sunnudag, kl. 18.
Kirkjustarf
KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá verð-
ur með kaffihlaðborð 17. júní í í safn-
aðarsal Glerárkirkju kl. 15 til 17. Í
anddyri verður málverkasýning Ið-
unnar Ágústsdóttur, og verk eftir
Benedikt Hallgrímsson í safnaðarsal.
Villurnar bráðskemmtilegu koma og
skemmta með söng um kl. 15.30. All-
ur ágóði rennur í söfnun fyrir steind-
um glugga í Glerárkirkju.
Kaffihlaðborð
Baldursbrár
♦ ♦ ♦