Morgunblaðið - 17.06.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMKVÆMDASTJÓRAR Sölu-
félags garðyrkjumanna svf. (SGF),
Ágætis hf. og Mötu ehf. fagna þeirri
niðurstöðu áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála að félögin hafi ekki
gerst sek um samsæri gegn hags-
munum neytenda, eins og haldið var
fram í ákvörðun samkeppnisráðs.
Þeir eru hins vegar mjög óánægðir
með að nefndin hreinsar félögin ekki
af öllum ásökunum samkeppnisyfir-
valda og hafa SGF og Mata þegar
ákveðið að vísa málinu til dómstóla,
og forsvarsmenn Ágætis hafa til
skoðunar að gera það einnig.
Áhyggjuefni að vera fundnir
sekir um samráð
,,Við undrumst niðurstöðu áfrýj-
unarnefndar, en á henni eru bæði já-
kvæðar og neikvæðar hliðar. Við er-
um mjög ánægðir með að vera
sýknaðir af ásökun stofnunarinnar
um samsæri gegn neytendum,“ segir
Pálmi Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Sölufélagsins.
„Það er engin spurning að stofn-
unin fór offari gegn okkur. Hins veg-
ar er það áhyggjuefni að við erum
fundnir sekir um samráð, og þá sér-
staklega hvað snertir framleiðslu-
stýringu og kvótasetningu en þarna
hefur áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála fallið í þá gryfju, eins og sam-
keppnisráð, að skoða ekki sögu
félagsins. Félagið er 60 ára sam-
vinnufélag í eigu framleiðenda og
það var beinlínis kveðið á um í lögum
félagsins að starfsmenn félagsins og
félagið skuli hugsa um hagsmuni
framleiðenda að einu og öllu leyti,
enda er fyrirtækið samvinnufélag í
eigu framleiðenda og ekkert óeðli-
legt þótt það vinni að hinum ýmsu
hagsmunamálum með framleiðend-
um. Fyrir þetta er félagið dæmt í 25
milljóna króna sekt og það er alveg
ljóst að við munum áfrýja þessu til
æðri dómstiga,“ segir Pálmi.
Mannorð félagsins hreinsað
af ásökunum um samsæri
,,Ég er mjög ánægður með að
mannorð félagsins hefur verið
hreinsað af ásökunum um samsæri
gegn neytendum. Það er stórsigur út
af fyrir sig, þrátt fyrir að ég hefði
viljað sjá að málinu yrði vísað aftur
heim, þar sem mér finnst persónu-
lega og mínum lögmanni, að miklir
annmarkar hafi verið á allri máls-
meðferðinni, frá upphafi til enda,“
segir Almar Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Ágætis.
,,Þessi niðurstaða er ákveðinn
áfangasigur fyrir okkur. Við munum
svo skoða framhaldið, kanna okkar
stöðu og ákveða hvort við förum með
þetta fyrir dómstóla,“ segir hann.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
lækkaði sektarákvörðun samkeppn-
isráðs úr 35 milljónum í 17 millj.
Almar segir þarna um verulega
lækkun að ræða hvað Ágæti varðar
eða sem nemur 18 milljónum kr.
,,Ekki er talið sannað að um samráð
Ágætis og Mötu hafi verið að ræða
og á sama hátt eru aðrir veigamiklir
þættir í málinu sem snerta Ágæti
felldir niður,“ segir hann.
Áfangasigur fyrir Mötu
Forsvarsmenn Mötu ehf. sendu í
gær frá sér eftirfarandi yfirlýsingu
vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar
samkeppnismála:
„Mata ehf. fagnar skjótum vinnu-
brögðum áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála og yfirvegaðri umfjöll-
un hennar. Áfrýjunarnefndin hafnar
niðurstöðu samkeppnisráðs í mörg-
um veigamiklum atriðum sem varða
Mötu og er úrskurðurinn því áfanga-
sigur fyrir Mötu þótt fyrirtækið sé
ekki að öllu leyti sátt við niðurstöðu
nefndarinnar.
Ólíkt samkeppnisráði gerir áfrýj-
unarnefndin skýran greinarmun á
Mötu annars vegar og félögum í eigu
og stjórn bænda hins vegar. Það
kemur skýrt fram í úrskurði áfrýj-
unarnefndarinnar að Mata hefur
ekki verið þátttakandi í framleiðslu-
stýringu og meintu samráði græn-
metisbænda. Sektarfjárhæð sú, sem
áfrýjunarnefndin gerir Mötu að
greiða, er ekki nema brot af því sem
samkeppnisráð hafði úrskurðað.
Þessi úrskurður er frekari staðfest-
ing á því að samkeppnisráð hefur
verið fullkappsamt í framgöngu sinni
gagnvart Mötu eins og fyrirtækið
hefur ávallt haldið fram.
Það er ljóst af úrskurði áfrýjunar-
nefndarinnar að samkeppnisráð hef-
ur farið offari í málflutningi sínum,
sektarákvörðunum og yfirlýsingum
um samsæri gegn neytendum. Með
þessu glannalega háttalagi, sem
tæpast er opinberu stjórnvaldi sæm-
andi, hefur samkeppnisráð valdið
Mötu ómældum skaða sem hefði
mátt komast hjá með vandaðri
vinnubrögðum.
Eftir úrskurð áfrýjunarnefndar
samkeppnismála standa einungis
eftirfarandi atriði eftir af málatilbún-
aði samkeppnisyfirvalda gegn Mötu:
„1. Meint samráð milli Sölufélags
garðyrkjumanna (SFG) og Mötu um
hækkun á heildsöluverði banana.“
Mata hefur mótmælt að um samráð
hafi verið að ræða og hefur sýnt fram
á í gögnum málsins að heildsöluverð
banana hjá Mötu hækkaði minna en
almennt verðlag frá því fyrir meint
samráðstímabil (1995–1999) og fram
að lokum þess tímabils.
„Meint stýring Mötu á heildsölu-
verði SFG á ávöxtum sem Mata seldi
SFG.“ Mata hafnar þessari fullyrð-
ingu og hefur bent samkeppnisyfir-
völdum á að samkvæmt svokölluðum
„framlegðarsamningum“ sem Mötu
skilst að SFG hafi gert við marga af
sínum stærstu viðskiptavinum hafi
SFG sjálft ekki fulla stjórn á sínu
heildsöluverði, hvað þá að Mata hafi
það. Samkeppnisyfirvöld hafa hins
vegar ekki hirt um að rannsaka
þessa ábendingu Mötu.
„2. Samkeppnisyfirvöld komast að
þeirri niðurstöðu að kaup Mötu á ís-
lensku grænmeti af SFG brjóti í
bága við samkeppnislög.“ Mata
undrast þessa niðurstöðu þegar litið
er til anda úrskurða samkeppnisráðs
frá 1993 og 1994 í sveppamálinu svo-
kallaða og tilmæla landbúnaðarráðu-
neytisins á undanförnum árum að
heildsölufyrirtækin miðli á milli sín
íslensku grænmeti þegar framboð
þess er takmarkað. Það er eins og
samkeppnisyfirvöld skynji ekki það
haftaumhverfi í verslun með græn-
meti sem stjórnvöld hafa komið á
með ofurtollum og innflutningshöft-
um. Það er kaldhæðnislegt að fyrir-
tæki, sem hefur æ ofan í æ barist
gegn þessu kerfi, sé talið brjóta sam-
keppnislög með því að fara að til-
mælum yfirvalda.
Í ljósi ofangreinds mun Mata ehf.
vísa málinu áfram til dómstóla,“ seg-
ir í yfirlýsingu Mötu í gær.
Viðbrögð forsvarsmanna grænmetisheildsala við úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála
Ánægja með hreinsun
af ásökunum um sam-
særi gegn neytendum
Félögin undirbúa
áfrýjun úrskurð-
arins til æðri
dómstiga
ERLENDIR hælisleitendur hér á
landi eru orðnir 21 það sem af er
árinu en voru fimm á sama tíma í
fyrra. Alls leituðu 24 útlendingar eft-
ir hæli hér á landi á síðasta ári.
Kristín Völundardóttir, lögfræð-
ingur hjá Útlendingaeftirlitinu,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
of snemmt væri að segja til um
ástæður fyrir þessari miklu fjölgun.
Þá væri aðsókn hælisleitenda
sveiflukennd og ekki útséð um að
þeir yrðu miklu fleiri en í fyrra.
Stærsti hópurinn, sem sótt hefur
um hæli, er frá Austur-Evrópu.
Nokkur fjöldi er frá Afríku þ.m.t.
Alsír og Líbýu og einnig frá Íran og
Írak. Kristín segir að flestir fari þeir
fram á hæli af pólitískum ástæðum
en einstaka biður um dvalarleyfi af
mannúðarástæðum.
Kristín segir að rannsókn á málum
hælisleitenda geti tekið mjög langan
tíma. Grafast þarf fyrir um hvernig
fólkið kom til landsins og frá hvaða
landi það kemur. Kanna þarf hvaða
aðstæður fólkið bjó við í föðurlandi
sínu og hvort fólkið gefi réttar per-
sónuupplýsingar en vitað sé að
margir gefi upp röng nöfn og fram-
vísi fölsuðum skilríkjum.
Um þessar mundir er verið að úr-
skurða í málum þeirra sem komu til
landsins í fyrra. Kristín segir að
fæstir þeirra uppfylli skilyrði til að
teljast pólitískir flóttamenn og sé því
synjað um hæli hér á landi. Nokkrir
hafi fengið tímabundið dvalarleyfi af
mannúðarástæðum.
Erlendir hælis-
leitendur mun
fleiri en í fyrra
NOKKRAR tafir hafa orðið á viðgerð á TF-SIF, þyrlu
Landhelgisgæslunnar þar sem erfiðlega hefur gengið
að útvega varahluti frá Frakklandi. Landhelgisgæslan
hefur leitað eftir varahlutum hjá framleiðanda þyrl-
unnar og söluaðilum og er búist við að málin skýrist í
vikunni.
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, sagði í samtali að enn væri ekki ljóst hver heild-
arkostnaður við viðgerðina yrði. Þó væri víst að Land-
helgisgæslan þyrfti að greiða um 30 milljónir vegna
sjálfsábyrgðar. Hafsteinn sagði að þrátt fyrir að önnur
þyrlan væri úr leik í bili skapaði það ekki hættuástand.
Stærri þyrlan væri í góðu lagi og þyrfti aðra þyrlu
myndi varnarliðið koma til hjálpar. TF-SIF skemmdist
þegar þyrluspaðarnir rákust í stél vélarinnar þar sem
hún var yfir Snæfellsnesi 25. maí sl.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ómar Þór Edvaldsson hjá tæknideild Landhelgisgæslunnar dyttar að TF-SIF.
Beðið eftir varahlutum í TF-SIF
TÆPLEGA 30% samdráttur verður á skurðlækn-
ingasviði Landspítala – háskólasjúkrahúss yfir
sumarið, að sögn Lilju Stefánsdóttur aðstoðar-
hjúkrunarforstjóra sjúkrahússins. Á öldrunar-
sviði verður samdrátturinn um 18% og 14% á lyf-
lækningasviði. Talsverður samdráttur er
sömuleiðis á geðlækningasviði, þar verður nokkr-
um deildum lokað tímabundið og aðrar verða sam-
einaðar. Ein bráðadeild verður t.d. lokuð fyrstu
mánuði sumarsins.
Lilja segir að mestur sé samdrátturinn á skurð-
lækningasviði, en mun færri valaðgerðir, sem geta
beðið, verða gerðar yfir sumarið en á öðrum tíma
ársins. Lýtalækningadeildinni verður t.d. lokað
tímabundið næsta föstudag, sú deild sér m.a. um
sjúklinga með brunasár og verður þeim sinnt á
annarri deild meðan deildin er lokuð.
Lilja segir að aðrar deildir dragi úr starfsemi og
á það einkum við sérhæfðari deildir. Alls segir hún
samdráttinn á sjúkrahúsinu vera svipaðan og síð-
ustu ár. Öllum bráðatilfellum verður sinnt að
hennar sögn og verða engir sjúklingar sem þurfa
lækningar við sendir heim.
5.000 starfsmenn vinna á sjúkrahúsinu og þyrfti
að ráða um þriðjung þess starfsmannafjölda, eða
um 1.700 starfsmenn, til að halda óbreyttri starf-
semi yfir sumarleyfistímann, en Lilja segir að slík-
an fjölda sé ekki unnt að fá til starfa. 1.300 hjúkr-
unarfræðingar starfa á spítalanum og mætti því
segja að það þyrfti að ráða rúmlega 400 hjúkr-
unarfræðinga yfir sumarið. Lilja segir ómögulegt
að ráða svo marga, en um 60–70 hjúkrunarfræð-
ingar útskrifast á hverju ári.
Einnig vantar sjúkraliða, meinatækna, rönt-
gentækna og lækna. Lilja segir að allir sem sæki
um og uppfylli inntökuskilyrði séu ráðnir.
Sumarlokanir á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
Ráða þyrfti um 1.700 starfsmenn
ÞRETTÁN ára ökumaður velti
jeppabifreið foreldra sinna á Eyrar-
bakka um klukkan þrjú í fyrrinótt,
að sögn lögreglunnar á Selfossi. Pilt-
urinn hafði tekið bifreið foreldra
sinna í óleyfi og endaði ökuferðina
utan vegar á móts við Litla-Hraun
við Eyrarbakkaveg.
Lögregla sagði drenginn hafa
sloppið lítið meiddan en bíllinn mun
vera talsvert skemmdur.
Þrettán ára pilt-
ur velti jeppa
TÖLUVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni í Reykjavík á aðfaranótt
laugardags. Ráðist var á mann í
Lækjargötu og honum veittir áverk-
ar í andliti. Lögregla fann árásar-
manninn skömmu síðar í biðröð að
einu af öldurhúsum borgarinnar.
Þá réðst hópur manna á pilt á
Laugaveginum og tók af honum
tösku sem í voru áritaðir aðgöngu-
miðar á Rammstein-tónleikana. Pilt-
urinn var fluttur á slysadeild en er
ekki talinn mikið meiddur. Lögregl-
an segir bæði menn og tösku enn
ófundin. Rammstein-tónleikarnir
fóru annars vel fram.
Erill hjá lögregl-
unni í Reykjavík
♦ ♦ ♦