Morgunblaðið - 17.06.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 53
DAGBÓK
Ekta augnhára- og augnabrúnalitur, er
samanstendur af litakremi og geli sem
blandast saman, allt í einum pakka.
Mjög auðveldur í notkun. Fæst í þrem-
ur litum og gefur frábæran árangur.
Hver pakki dugir í 20 litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
Dreifing: S. Gunnbjörnsson, s: 5656317
Þýskar förðunarvörur
Klapparstíg 27,
sími 552 2522.
fyrir sumarið
Barnalæknir
Hef opnað lækningastofu í Domus Medica,
Egilsgötu 3, 101 Reykjavík.
Tekið er við tímapöntunum í síma 563 1072
alla virka daga frá kl. 9-17.
Verð áfram vikulega á lækningastofu á Selfossi
(sími 842 3600).
Geir Friðgeirsson.
Sérgrein: Barnalækningar.
Laura Ashley
Eigum yfir 80 gerðir
af veggfóðri
10% afsláttur 18.-23. júní
Bæjarlind 14-16,
sími 551 6646,
Hafnarstræti 91,
Akureyri,
sími 462 6640
Í DAG hefst á Tenerife 45.
Evrópumótið í brids. Ísland
sendir lið til þátttöku í opna
flokknum og er það skipað
Jóni Baldurssyni, Karli Sig-
urhjartarsyni, Þorláki Jóns-
syni, Matthíasi Þorvalds-
syni, Þresti Ingimarssyni,
Magnúsi E. Magnússyni en
fyrirliði er Guðmundur P.
Arnarson. 36 þjóðir taka
þátt í mótinu og verða spil-
aðir 20 spila leikir, allir við
alla. Mótinu lýkur föstudag-
inn 29. júní. Fimm efstu
þjóðirnar öðlast rétt til að
taka þátt í HM á Bali í haust.
Íslenska liðið er skipað
reyndum spilurum og ætti
því að eiga möguleika á HM-
sæti en það er við ramman
reip að draga því Evrópu-
þjóðirnar verða sífellt sterk-
ari og fyrir fram má búast
við að 13–15 þjóðir komi til
með að berjast um efstu
fimm sætin. Á næstu dögum
verður þátturinn helgaður
fyrri Evrópumótum og rifj-
aður upp árangur Íslands og
áhugaverð spil. Við byrjum
á Salsomaggiori á Ítalíu árið
1985:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á765
♥ K64
♦ Á2
♣ ÁG85
Vestur Austur
♠ G842 ♠ 109
♥ 10987 ♥ G
♦ D87 ♦ G109643
♣104 ♣9762
Suður
♠ KD3
♥ ÁD532
♦ K5
♣KD3
Lið Íslands var skipað
Jóni Baldurssyni, Sigurði
Sverrissyni, Aðalsteini
Jörgensen, Vali Sigurðs-
syni, Símoni Símonarsyni og
Jóni Ásbjörnssyni en fyrir-
liði var Björn Theódórsson.
Ísland varð í 16. sæti af 21
þjóð en Austurríkismenn
fóru með sigur af hólmi. Í
spilinu að ofan fundu Jón og
Sigurður bestu slemmuna
þrátt fyrir kjarkmikla
hindrunarsögn austurs.
Þetta var gegn Finnum:
Vestur Norður Austur Suður
Sigurður Jón
-- 1 grand 3 tíglar 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 7 grönd
Pass Pass Pass
Eins og sést fellur hjartað
ekki, svo sjö hjörtu eru
dauðadæmd. En sjö grönd
vinnast með þvingun á vest-
ur í hálitunum. Jón tók slag-
ina á lauf og tígul og vestur
gat ekki bæði valdað spað-
ann og hjartað. Þrettán
slagir en engin sveifla því
Finnarnir í NS á hinu borð-
inu náðu líka sjö gröndum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
EKKI alls fyrir löngu var
í Fréttablaðinu sagt frá
árás á mann og komizt svo
að orði að hún „hafi verið
tilhæfulaus“. Í þessum
pistlum hefur verið bent á
að svo virðist sem það
færist í vöxt að menn
missi sjónar á uppruna-
legri merkingu orða, ekki
sízt lýsingarorða. Kemur
þá fram merking sem á í
reynd enga stoð í málinu.
Ef ekki er reynt að sporna
við slíkri merkingar-
brenglun er hætta á að
hún festist í málinu – eða
sé komin til að vera, eins
og sumir segja. Mér leið-
ist hins vegar verulega sá
uppgjafartónn, sem felst í
því orðalagi, enda er hann
máli okkar oft til óþurftar.
Ég hnaut að sjálfsögðu
um lo. tilhæfulaus á þess-
um stað, enda fær það
ekki staðizt íslenzka mál-
venju. Sá, sem fréttina
skrifaði, hefur auðsæilega
ruglað lo. tilhæfulaus
saman við lo. tilefnislaus
en það er einmitt orðið
sem á við í frásögn blaðs-
ins. Í OM (1983) er lo. til-
hæfulaus skýrt þannig:
„alveg loginn, sem enginn
sannleikskjarni er í“.
Við segjum sem svo að
fregn eða orðrómur sé al-
veg tilhæfulaus, þ.e. að
enginn fótur sé fyrir
fregninni eða orðrómnum.
Við sjáum því að notkun
þessa orðs getur ekki
staðizt í ofangreindu
sambandi. Hins vegar höf-
um við annað lo., tilefn-
islaus, sem merkir samkv.
OM sama sem ástæðu-
laus.
Það átti að sjálfsögðu
við í þeirri frásögn sem
lýst var í blaðinu.
Árásin var tilefnislaus,
þ. e. ástæðulaus, ekkert
tilefni var til hennar.
Talað er um að ummæli
eða frásögn sé tilhæfulaus
þegar ekkert er að marka
það sem þar segir. Af
þessu er ljóst að blaða-
maðurinn hefur hér farið
sagnavillt og því allt ann-
að komið fram í frásögn
hans en hann vildi í reynd
sagt hafa. - J.A.J.
ORÐABÓKIN
Tilhæfulaus – tilefnislaus
LJÓÐABROT
MANNSLÁT
Mínir vinir fara fjöld,
feigðin þessa heimtar köld.
Eg kem eftir, kannske í kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn skjöld,
brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld.
Bólu-Hjálmar
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert laginn við að komast
hjá vandræðum og með
þolinmæðinni vinnur þú
þær þrautir sem fyrir þig
eru lagðar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dæmdu ekki aðra eftir útlit-
inu heldur hlustaðu á það sem
þeir hafa fram að færa og
gerðu upp hug til manna og
málefna á sanngjarnan hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ef þú vilt að aðrir taki mark á
orðum þínum verður þú að
vera skorðinorður og skýra
mál þitt þannig að enginn
velkist í vafa um hvað fyrir
þér vakir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur tekið svo mörg
verkefni að þér að þú ert að
missa alla yfirsýn og það
kann ekki góðri lukku að
stýra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er ekki klókt að hafna
hugmyndum að óathuguðu
máli. Ef þú vilt að aðrir sýni
þér sanngirni verður þú að
vera reiðubúinn til að endur-
gjalda í sömu mynt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt margt geti borið mann
af leið er ekki um annað að
ræða en bíta á jaxlinn og
stefna í þá átt sem maður ætl-
ar hvað sem tautar og raular.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur enga afsökun fyrir
því að taka ekki að þér það
verkefni sem yfirboðararnir
vilja fela þér. Enda ertu vel í
stakk búinn til þess að fram-
kvæma það.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sígandi lukka er best og það
hefur sannast á starfsferli
þínum. Nú ertu kominn í þá
aðstöðu að þú getur valið þau
verkefni sem þú vilt vinna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þegar margs er spurt má
alltaf reikna með að fá ein-
hver þau svör sem falla
manni misjafnlega í geð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það hefnir sín alltaf þegar an-
að er út í hlutina undirbún-
ingslaust. Gefðu þér því góð-
an tíma til þess að skoða
málin frá öllum sjónarhorn-
um.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur lagt hart að þér en
um leið vanrækt þinn innri
mann. Nú er kominn tími til
að hlúa að honum og setja
hans þarfir ofar öllu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er sjálfsagt að sinna
starfi sínu af fullum heilind-
um en það eru fleiri hliðar á
mannlífinu en brauðstritið og
þeim þarf að sinna líka.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt margt freisti til að fara
hratt yfir skaltu ekki gera
það heldur staldra við og
skyggnast um áður en þú tek-
ur ákvörðun um framhaldið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
85 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 17.
júní, verður 85 ára Lára
Gunnarsdóttir, fóstra,
Drápuhlíð 8, Reykjavík.
Lára er að heiman í dag.
80 ÁRA afmæli. Í dagsunnudaginn 17. júní
verður áttræð Halldóra
Helga Magnúsdóttir, Ból-
staðarhlíð 16, Reykjavík.
70 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag 19. júní er
sjötugur Jón Reynir Magn-
ússon, efnaverkfræðingur,
fyrrverandi forstjóri Síld-
arverksmiðju ríkisins og
SR-mjöls hf. Eiginkona
hans er Guðrún Sigríður
Björnsdóttir. Í tilefni dags-
ins taka þau á móti gestum í
Versölum, Hallveigarstíg 1,
á afmælisdaginn kl. 17 til 19.
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 17.
júní, verður sextugur Stein-
grímur Lillendahl prent-
smiður, Heiðarholti 31,
Keflavík. Eiginkona hans er
Jóhanna Jónsdóttir versl-
unarmaður.
40ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 18.
júní, verður fertug Sylvia
Ingibergsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Grundartanga
25, Mosfellsbæ. Eiginmaður
hennar er Magnús Huldar
Ingþórsson. Sylvia verður
að heiman á afmælisdaginn.