Morgunblaðið - 17.06.2001, Blaðsíða 6
ERLENT
6 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 10/6–16/6
TVEIR Íslendingar voru
handteknir á Spáni eftir að
200 kíló af hassi sem fund-
ust í bifreið þeirra. Voru
þeir taldir hafa ætlað að
dreifa hassinu á Costa
Brava. Mennirnir eru 40 og
45 ára og hafa verið búsett-
ir á Spáni um nokkra hríð.
VALGERÐUR Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra,
gangsetti á mánudag ann-
an áfanga álversins á
Grundartanga. Við það
eykst framleiðslugeta fyr-
irtækisins um 50% á árs-
grundvelli, úr 60 þúsund
tonnum í 90 þúsund tonn.
Jim Hensel, aðstoðarfor-
stjóri Colombia Ventures,
móðurfélags Norðuráls,
segir félagið huga að fleiri
fjárfestingakostum en
frekari stækkun álversins
á Grundartanga.
DELTA hf. hefur sett of-
næmislyfið Loradine á
markað í Þýskalandi, en
Delta var fyrsta fyrirtæk-
iðsem fékk leyfi fyrir sölu á
samheitalyfinu þar í landi.
50 milljónir taflna að verð-
mæti 340 milljónir króna
voru fluttar þangað í vik-
unni.
FÉLAG tónlistarskóla-
kennara hefur lýst yfir
megnri óánægju með
vinnubrögð samninga-
nefndar launanefndar
sveitarfélaga í viðræðum
við tónlistarskólakennara
og hvetur félagið tónlistar-
kennara til að taka ekki
þátt í tónlistarflutningi á
17. júní.
BRESK yfirvöld hand-
tóku nýverið Íslending í
London, en á honum fund-
ust 1,1 kíló af anfetamíni.
Neysluvísitala
hækkaði um 1,5%
milli maí og júní
VÍSITALA neysluverðs hækkaði um
1,5% milli mánaðanna maí og júní og
eru ekki dæmi um meiri hækkun vísi-
tölunnar í einum mánuði síðan í febr-
úar 1990. Hækkunin veldur því að
verðtryggð lán heimila í landinu
hækka um 7,5 milljarða króna. Eftir
hækkunina er verðbólga síðustu tólf
mánaða 6,8%, samkvæmt mælingum
Hagstofunnar.
Samkeppnislög brotin
– sektir lækkaðar
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppnis-
mála staðfesti niðurstöðu samkeppnis-
ráðs um að Fengur hf., Sölufélag garð-
yrkjumanna svf., Bananar ehf., Ágæti
hf. og Mata ehf., hafi brotið samkeppn-
islög. Hins vegar er ekki fallist á það
með samkeppnisráði að í aðgerðunum
hafi falist sérstakt samsæri gegn hags-
munum neytenda. Áfrýjunarnefndin
lækkar þær sektir sem félögunum er
gert að greiða úr 105 milljónum króna í
47 milljónir.
40 þroskaþjálfar til
viðbótar í verkfall
EKKERT hefur miðað í átt að sam-
komulagi á samningafundum vegna
kjaradeilu þroskaþjálfa. Verkfall
þroskaþjálfa, sem starfa hjá sjálfs-
eignarstofnunum, hófst á miðnætti á
fimmtudag og bættust þá 40 þroska-
þjálfar í verkfallshópinn. Sem afleiðing
af því hefur þremur dagvistarstofnun-
um, Lyngási, Lækjarási og Bjarkarási,
verið lokað.
Verkfall þroskaþjálfa, sem starfa hjá
Reykjuvíkurborg, hefur staðið í fjórar
vikur og hafa þroskaþjálfar, sem starfa
hjá ríkinu samþykkt að hefja verkfall
hinn 28. júní náist ekki samningar.
INNLENT
Bush í Evrópuför
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hélt í vikunni í sína fyrstu Evr-
ópuför eftir að hann tók við emb-
ætti. Heimsótti forsetinn fimm
Evrópulönd á sex dögum.
Fyrsti áfangastaður Bush var
Madríd, þar sem hann ræddi við
Jose Maria Aznar, forsætisráðherra
Spánar, á þriðjudag. Á miðvikudag
fundaði hann með öðrum leiðtogum
NATO-ríkja í Brussel og á fimmtu-
dag hitti forsetinn leiðtoga Evrópu-
sambandsríkjanna í Gautaborg.
Bush heimsótti Pólland á föstudag
og átti þar fund með Aleksander
Kwasniewski, forseta landsins. Í
ræðu í Varsjárháskóla hvatti hann
eindregið til stækkunar Atlantshafs-
bandalagsins. Bush hélt á laugardag
til Slóveníu, þar sem hann átti fyrsta
fund sinn með Vladímír Pútín Rúss-
landsforseta.
Vopnahléstillögur
Tenets samþykktar
BÆÐI Ísraelar og Palestínumenn
samþykktu á þriðjudag vopnahléstil-
lögur George Tenets, sendimanns
Bandaríkjastjórnar í Mið-Austur-
löndum.
Tillögurnar byggjast á skýrslu
Mitchell-nefndarinnar svonefndu og
kveða á um skilyrðislaust vopnahlé.
Gert er ráð fyrir að Ísraelar dragi
herlið sitt til baka til þeirra stöðva
sem það var í áður en uppreisnin
hófst og að herkvínni um svæði Pal-
estínumanna verði aflétt. Palestínu-
menn eiga á móti að handtaka
hryðjuverkamenn úr samtökunum
Islamic Jihad og Hamas og gera
ólögleg vopn upptæk.
Vopnahléið þykir þó afar brothætt
og því var ógnað strax á miðviku-
dag, þegar bæði Ísraelar og Palest-
ínumenn féllu í skotbardaga. Þá lét-
ust tveir Palestínumenn og einn
Ísraeli í átökum á fimmtudag.
LEIÐTOGAR Evrópu-
sambandsins (ESB) lýstu
því yfir á fundi sínum í
Gautaborg í Svíþjóð á
föstudag að ekki yrði hvik-
að frá áformum um stækk-
un sambandsins, þrátt fyr-
ir að Írar hefðu hafnað
Nice-sáttmálanum í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Fjöldi
mótmælenda alþjóðastofn-
ana og hnattvæðingar
kom til Gautaborgar til að
trufla leiðtogafundinn og
átti lögregla fullt í fangi
með að halda aftur af
óeirðaseggjunum.
TIMOTHY McVeigh,
sem var dæmdur til dauða
fyrir sprengjutilræðið í al-
ríkisbyggingunni í Okla-
hóma árið 1995, var tekinn
af lífi á mánudag. Aftakan
fór fram í alríkisfangelsi í
Terre Haute í Indíana-
ríki og var framkvæmd
með lyfjagjöf. 168 manns
biðu bana í sprengju-
tilræðinu.
SLAGURINN um leið-
togaembættið í breska
Íhaldsflokknum hófst fyrir
alvöru á miðvikudag, þeg-
ar Michael Portillo, tals-
maður flokksins í ríkis-
fjármálum, varð fyrstur til
að lýsa yfir framboði. Með-
al annarra sem lýst hafa
áhuga á leiðtogastöðunni
eru Kenneth Clarke, fyrr-
verandi fjármálaráðherra,
og skuggaráðherrarnir
Iain Duncan Smith og Ann
Widdecombe. Fyrrverandi
leiðtogi, William Hague,
sagði af sér í kjölfar ósig-
urs Íhaldsflokksins í þing-
kosningunum í síðustu
viku.
ERLENT
NÝLEGA sýndi Fox-sjónvarpsstöð-
in í Bandaríkjunum þátt þar sem
leidd voru rök að því að fyrsta ferð
manna til tunglsins árið 1969 hafi
verið sett á svið og almenningur um
allan heim blekktur með fölsunum.
En jafnframt er tekið fram að fleiri
skýringar geti verið á því sem talið
er að séu vísbendingar um fölsun,
málið sé umdeilt. „Lentum við á
tunglinu?“ heitir þátturinn.
Michael Shermer, sem stofnaði
tímaritið Skeptic og hefur samið
bækur um vísindi og takmörk þeirra,
ritar grein í nýjasta eintak tímarits-
ins Scientific American og fer þar
hraklegum orðum um þáttinn og alla
þá sem styðja samsæriskenninguna.
Er yfirskrift hans „Firrurnar hjá
Fox“ og segir hann meðal annars að
þátturinn sé kennslubókardæmi í
gagnrýnislausri hugsun. Hann svar-
ar helstu röksemdum þeirra sem
álíta að bandaríska geimferðamála-
stofnunin, NASA, hafi látið búa til
vísbendingar um ferð sem aldrei hafi
verið farin.
Sagt er að bandaríski fáninn sem
geimfararnir höfðu með sér og festu
upp sjáist blakta þótt ekki sé neitt
andrúmsloft á mánanum og því eng-
inn vindur á staðnum. Svar Sherm-
ers: Fáninn blaktir eingöngu þegar
geimfarinn snertir hann.
Sagt er að skuggar á ljósmyndum
af tunglferju Apollo 11. og geimför-
unum tveim, Neil Armstrong og
Edwin Aldrin, bendi til þess að birta
komi úr tveim áttum í senn. Notuð
hafi verið kastljós í upptökusal.
Shermer segir að í reynd séu ljós-
gjafarnir þrír; sólin, jörðin og tunglið
sjálft. Tveir síðastnefndu endurvarpi
sólarbirtunni.
Sagt er einkennilegt að ekki séu
merki á yfirborði mánans um ferjuna
sem hefði átt að skilja eftir sig
nokkra holu. Shermer svarar því til
að yfirborðið hafi reynst vera þakið
nokkurra sentimetra lagi af ryki en
hart undir rykinu.
Sagt er að ekki sjáist útblástur
neðan úr tunglferjunni þegar hún yf-
irgefi lendingarstaðinn. Henni virð-
ist vera lyft með vírum. Shermer
bendir á að myndirnar sýni öfluga
sprengingu, mánaryk þyrlist upp.
Og jafnframt að ekki sé súrefni á
tunglinu og því geti ekki staðið eld-
tungur út úr hreyflunum eins og við
geimskot frá jörðu.
Sagt er að ekki sjáist neinar
stjörnur á himinhvolfinu. Shermer
svarar því til að á venjulegum ljós-
myndum sjáist yfirleitt ekki stjörn-
ur, birtan frá þeim sé einfaldlega of
veik.
Shermer segir að ákafir stuðn-
ingsmenn samsæriskenninga full-
yrði að geimfarar sem farist hafi af
slysförum hafi verið myrtir vegna
þess að þeir hafi ætlað að skýra frá
blekkingunum. „Það er fáránlegt að
ímynda sér að þúsundir starfsmanna
NASA hafi þagað um málið árum
saman,“ segir Shermer að lokum.
Fox-sjónvarpsstöðin um tunglferð Apollo 11. árið 1969
Settar fram kenning-
ar um sviðsetningu
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti og Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, áttu sinn fyrsta fund í
gær í kastala skammt utan við
Ljubljana, höfuðborg Slóveníu.
Fundi leiðtoganna var ekki lokið
þegar Morgunblaðið fór í prentun,
en búist var við að öryggis- og
varnarmál yrðu efst á baugi í við-
ræðum þeirra, einkum hugsanleg
stækkun Atlantshafsbandalagsins
(NATO) og áform Bandaríkja-
stjórnar um að koma upp eld-
flaugavarnakerfi.
Rússneskir fjölmiðlar höfðu eftir
Pútín áður en hann lagði af stað til
Slóveníu að hann vænti nánari út-
listunar á eldflaugavarnaáformun-
um, sem Rússar segja að brjóti í
bága við Gagneldflaugasáttmálann
frá 1972. „Mér finnst mikilvægt að
heyra afstöðu Bush í þessu máli
beint frá honum sjálfum, ekki í
endursögn embættismanna eða
fjölmiðla,“ sagði Pútín.
Einnig var búist við að Rúss-
landsforseti mótmælti því að
NATO yrði víkkað út til austurs,
en Bush hafði lýst eindregnum
stuðningi við stækkun bandalags-
ins í ræðu í Varsjá á föstudag og
vakti meðal annars máls á því að
Eystrasaltsríkin fengju aðild, þrátt
fyrir andstöðu Rússa.
Bandarískir embættismenn
greindu frá því að Bush myndi á
fundinum lýsa áhyggjum vegna
sölu Rússa á vopnum og tækni til
óvinveittra ríkja.
Fréttaskýrendur áttu ekki von á
að Bush og Pútín næðu samkomu-
lagi um einstök ágreiningsefni á
fundinum, honum væri frekar ætl-
að að byggja upp persónuleg
tengsl milli leiðtoganna.
Eldflaugavarnir í
brennideplinum
AP
George W. Bush og Vladímír Pútín við upphaf fundar síns í gær.
Ljubljana, Varsjá. AFP, AP.
George W. Bush og Vladímír Pútín funda í Slóveníu